Morgunblaðið - 03.09.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1978
39
Alfred Sauvy, sem er einn elzti og frumlegasti hagfræöingur Frakka, hefur i
nýútkominni bók sinni, „Verð og gildi mannlífsinsu, nálgazt á nýjan hátt
fólksfjölgunarvandamálið og hungrið í heiminum, og hefur bókin vakið athygli
og umrœður. Hér birtist einn kafli bókarinnar í þýðingu.
enginn vafi er á að er
lögmætur) voru borin fram
sem helztu rök að þetta
kæmi í veg fyrir fóstureyð-
ingu. En varla var blekið
þornað af undirskrift lag-
anna, fyrr en sömu menn
tóku að mæla fyrir frelsi og
'skipulagningu á fóstureýð-
ingum, um leið og þeir
héldu því fram að fæðinga-
tölur lækkuðu ekki. Við
þekkjum öll árangurinn.
En snúum okkur að fá-
tæku, þéttbýlustu Iöndun-
um. Það tók um það bil 20
ár að koma þátttakendum í
áætluninni um að draga úr
mannfjölgun í skilning um
hvernig fjolgunin vindur
upp á sig. Þrátt fyrir hinar
miklu tækniframfarir í
getnaðarvörnum, er
árangurinn ekki sjáanlegur
meðal þeirra þjóða, sem
minnsta menntun hafa og
veikasta von. Rétt er það,
að nokkrir pillupakkar eða
ófrjósemisaðgerðir eru
ódýrari en uppfræðsla einn-
ar konu. En samt verður að
miða við árangurinn.
Gagnsleysi eldri og nýrri
tækni meðal fátækra,
menningarsnauðra þjóða
hefur leitt til leitar að nýrri
tækni, sem sameini ein-
falda notkun og árangur.
En erfiðleikarnir láta ekki
á sér standa.
Gildi
barnsins
Án efa hefði mátt vinna
15—20 ár, ef sér-
fræðingarnir hefðu í stað
þess að einblína á hreina
tækni, reynt að kynnast
betur hugsanagangi þeirra,
sem þeir vildu fá til að
breyta lífsháttum sínum.
Tökum sem dæmi hinn
góða árangur í Singapore,
Hong Kong og Formósu,
þar sem fæðingatölur tóku
að lækka jafnvel áður en
búið var að koma af stað
áætlun um fækkun fæð-
inga. Þar eru varla fleiri en
2—3 börn í fjölskyldu.
engan hljómgrunn á al-
þjóðavettvangi. Fulltrúar
Asíu, Afríku og Suð-
ur-Ameríku eru allt of
uppteknir af markaðsverð-
inu á frumframleiðsluefn-
um — sem er eins illa fyrir
komið og hægt er — eða
framvindu á fjármálasvið-
inu, til að þeir geti beint
huganum að mannslífum, á
sama hátt og þeir láta
undir höfuð leggjast að
hirða um útflutning á
merintamönnum.
Reiknings-
tilraun
Reynum nú að gera til-
raun til að meta í stórum
dráttum tjónið. Er fullorðin
manneskja borðar 400 hita-
einingum of stóran skammt
af dýraafurðum (til dæmis
30 grömm af fitu og 100 gr.
af kjöti), þá innbyrðir hún
beinlínis 2600 hitaeiningum
of mikið af grænmeti, sem
er meira en skynsamlegur
skammtur fyrir fullorðinn
Asíubúa eða Afríkubúa. Þá
borða þessir 350 milljónir
fullorðinna Vesturlandabúa
og Engilsaxa (sleppum
sósíalistaríkjunum í
Evrópu) grænmetisfæðu
350 milljóna manna. Ef við
gerum ráð fyrir því að þetta
fólk fái nægilega margar
hitaeiningar í dýraafurð-
um, þá getum við lækkað
töluna um 150, þannig að
hún sé 200 milljónir. Þetta
er enn gífurlega há tala.
Á þennan hátt gæti ekki
mjög ströng skipting á
fæðu heimsins, sem að vísu
er alls ekki gerleg, gert
fært með jafnri skiptingu
að fæða 200 milljónir
manna í viðbót. Dánartala
þriðja heimsins hækkar um
46 milljónir og dauðsföll,
sem stafa beint af vannær-
ingu eru innan við 10
milljónir. Því mundi mun
ójafnari skipting en hér
hefur verið talað um nægja
til að losna við dauðsföll af
völdum skorts.
um, án þess að fækka
fæðingum, því þeir aum-
ustu eru frjósamir. Mann-
úðarpostularnir í ríku
löndunum, sem vinna gott
starf í þágu mannkynsins
alls, hafa ekki mótmælt
með einu orði þessum
skelfilegu aðgerðum, sem
eru andstæðar Mannrétt-
indasáttmálanum og Sátt-
málanum um rétt barnsins
(1959), og í rauninni and-
stæðar öllum mannlegum
frumeiginleikum. Grimmd-
in hefur þegar haldið inn-
reið sína.
Dýr hinna
ríku
Þegar á heildina er litið,
er fæða fóiks í auðugu
löndunum ekki aðeins meiri
en líkamlegar þarfir krefj-
ast, heldur meiri en því er
líkamlega hollt. Heims-
styrjöldin 1939—45 sannaði
hagstæð áhrif hæfilegrar
skömmtunar á dánartíðni.
Samt sem áður hefur fæðu-
notkun aukizt verulega á
síðustu 30 árum, einkum
notkun dýraafurða, eftir
því sem velmegunin óx.
Segja má sem svo, að þaði
sé mál fólksins í ríku
löndunum, ef það vill auka
dánarlíkur sínar á þennan
hátt. Það eigi rétt á að
ákveða það sjálft. Gallinn
er bara sá, að um leið eykur
það dánartíðnina í fátæku
löndunum, sem er vissulega
slæmt. Tökum sem dæmi
ódýru eggjahvítuefnin
(sojabaunir, hveiti o.s.frv.),
sem gætu fætt manneskjur
en eru notuð handa skepn-
um. Skepnurnar á
mörkuðunum í ríku löndun-
um eru betur haldnar en
fólkið í fátæku löndunum.
Öll þessi aukna fæða, talin
í hitaeiningum, ætti að geta
fætt fleira fólk á jörðinni.
En svo undarlegt sem það
er, þá er þessum tolli á lífið
mest afneitað í ríku
löndunum og úrbætur fá
fiú spuming vaknar á hvaða stundu eða hvaða stigi við viljum í rauninni
koma í veg fyrir að fólk deyi. “
Skýringin liggur ekki
bara í efnalegum framför-
um (ennþá er efnahagur
þar mjög bágborinn) heldur
miklu fremur í því að hver
manneskja er hærra metin.
I Austurlöndum hafa
dánartölur barna lækkað
frá miðöldum og fram á
okkar daga niður fyrir 3%.
Til þess að ná þeim árangri
að 97 af hverjum 100
nýfæddum börnum lifi í
þröngum húsakynnum og
heitum löndum, þá verður
að sýna hverju barni svo
takmarkalausa umhyggju,
að það er orðið mjög dýr-
mætt í augum móður sinn-
ar.
Upphaf
grimmdar-
innar
I rauninni er hér ekki um
að ræða einn stóran
björgunarfleka á heims-
mælikvarða, heldur fjölda
fleka, þar sem skortur er á
matföngum. Og nú þegar
eru ósköpin byrjuð. Að vísu
er hvergi farið að varpa
hlutkesti um það hverjum
eigi að fórna. Áhrifin eru
óbeinni og koma í ýmsum
löndum fram í naumari
skammti eða niðurfellingu
á greiðslum með þriðja
barni og öllum þeim sem á
eftir koma. Þannig eru
saklausir dæmdir til að
farast og fjölskyldur þeirra
líka, því reglan er sú að
fjölskyldan skiptir með sér
því sem til er. Slíkar
aðgerðir fjölga dauðsföllun-
Vaktmaður
óskast til starfa nú þegar. Upplýsingar á
skrifstofunni frá kl. 4—5, mánudag og þriöjudag.
HEKLAhf.
Laugavegi 1 70—1 72 — Sími 21240
Tónlistarskóli
Hafnarfjarðar
Tónlistarskóli Hafnarfjarðar verður settur sunnudag-
inn 17. september kl. 5 í Þjóðkirkjunni. Innritun hefst
fimmtudaginn 7. september og lýkur priðjudaginn
12. september. Tekið er á móti umsóknum á
skrifstofu skólans Þessa daga kl. 2—5.
Skólastjóri.
Dregið á
þriðjudag
l lappdrættiE
HC