Morgunblaðið - 03.09.1978, Page 14

Morgunblaðið - 03.09.1978, Page 14
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1978 Camel breytir um svip \ W | V •' - I-' —> . i Camel. talið frá vinstri. Richard Sinclair. Andy Latimcr, Dave Sinclair. Jan Schelhaas. Andy Ward ok Mel Collins. Hljómborðsleikarinn Peter Bardens, einn af stofnendum brezku hljómsveitarinnar Camel, iýsti því yfir fyrir skömmu að hann væri hættur í hljómsveitinni. Astæðuna segir Bardens vera „síaukinn tónlistarlegan ágrein- ing,“ en við sæti Bardens í Camel taka tveir hljómborðsleikarar, Dave Sinclair og Jan Schelhaas. Bardens hefur að undanförnu verið í Bandaríkjunum, þar sem hann hefur aðstoðað söngvarann Van Morrison við gerð nýjustu plötu hans. Á þeirri plötu leikur einnig trommuleikarinn Peter Van Hooke. Nú er Bardens hins vegar á írlandi og herma fregnir að hann hafi hafið samstarf við olnboga- pípuleikarann Seamus McBarry. Breiðskífur — breiðskífur ÞR.IÁR kunnar hljómsveitir munu á næstunni senda frá sér nýjar hljómplötur. Hljómsveitir þessar eru Gentle Giant, Beach Boys og Rohin Trower Band. Hljómplata Gentle Giant er væntanleg á markaðinn snemma í september og ber hún nafnið „Giant For a Day“. Samhliða breiðskífunni sendir hljómsveitin frá sér litla plötu með lögunum „Thank You“ og „No Stranger", en bæði lögin eru tekin af breiðskíf- unni. Plata Beach Boys heitir „M.I.U.“ og er áætlað að hún komi út í Bandaríkjunum 6. október. Á plötunni eru 12 lög og þar af hefur Brian Wilson samið átta, einn eða með öðrum. Þetta er síðasta plata Beach Boys, sem kemur út hjá Reprise útgáfufyrirtækinu. „Caravan To Midnight", nýjasta plata Robin Trowers, kom út fyrir skömmu, en platan var tekin upp Who minnist afmælis síns IILJÓMSVEITIN Who á um þessar mundir 15 ára starfsaf- mæli og í -HTéfni af því hyggst hljómsveitin heldur betur minna á sig. Ný breiðskífa með Who kemur út í næsta mánuði og auk þess er í bígerð að kvikmynda .,Quadropheniu“. Þá hyggst Peter Townsend hefja að nýju vinnu við verk sitt „Lifehouse“. Breiðskífan ber heitið „Who Are You“, en titillag plötunnar hefur verið gefið út á lítilli plötu, sem er á hraðri leið upp brezka vinsælda- listann. Á afmælisplötunni eru níu lög, en Glyn Johns hefur séð um útsetningar laganna, í félagi við þá í Who. Who njóta aðstoðar þeirra Rod Argents hljómborðsleikara og Andy Faireweather-Low söngvara, á plötunni. Af hinum nýju lögum hefur Townshend samið sex, en John Entwistle, bassaleikari, hefur samið þrjú. Veðjað um plötusölu UMBOÐSMAÐUR hljómsveitar- innar Boston. Paul Ahern. er svo sannarlega viss um að önnur plata hljómsveitarinnar. muni seljast vel. Ahern veðjaði 1000 dollurum (260.000 krónum) við umboðsmann hljómsveitarinnar Journey. Walter Herbert. um að platan myndi seljast í sjö milljón- um eintaka innan árs frá útgáfu hennar. Ahern þessi hefur sjálfur látið hafa eftir sér að „fyrsta plata Boston hafi verið eins og svart og hvítt sjónvarp, en önnur platan sé Vinsældalistar Brezki vinsældalistinn skartar þremur nýjum lögum þessa vikuna og ekki eru þau öll af verri endanum, því meðal flytjenda eru þeir Bob Dylan og David Essex. Commodores eru sem fyrr í efsta sæti listans, en framgangur 10CC vekur talsverða eftirtekt. Handaríski listinn er að mestu leyti óbreyttur frá því í seinustu viku. en frekar eru nú vinsældir Rollings Stones farnar að dvína þar vestra. í Amsterdam har það til tíðinda að Luv skauzt i efsta sætið ok í Hons Konx tóku John Travoita og Olivia Newton-John við efsta sætinu af Andy Gibb. Vesturþýzki vinsældalistinn er hins vexar að mestu leyti eins ok hann var fyrir viku. LONDON 1. (1) Three times a lady — Commodores 2. (3) It’s raining — Darts 3. (7) Dreadloek holiday — 10CC 1 (1) Brown xirl in the rinjf/ Rivers oí Babylon — Boney M. 5 (5) Supernature — Cerrone 6 (16) Oh. what a circus — David Essex. (15) Jilted John — Jilted John 8. (8) Forever autumn — Justin Hayward 9. (2) You're the one that I want — John Travolta ok Olivia Newton-John. 10. (13) Baby stop cryini; — Bob Dylan Tvó Iök jöfn f sjötta sæti. NEW YORK 1. (1) Three times a lady — Commodores 2. (2) Grease — Frankie Valii 3. (7) Booxie ooRÍe ooxie — Taste Of Honey I. (1) Hot blooded — Foreiiíner Hafa þeir félagar í bígerð að taka upp plötu, auk þess sem ætlunin er að fara í hljómleikaferðalag. Andrew Latimer, gítarleikari Camels, sagði að þrátt fyrir að nokkur eftirsjá væri í Bardens, myndu hinir tveir nýju liðsmenn bæta mikið úr. Sinclair og Schel- haas voru báðir um tíma í hljómsveitinni Caravan og leikur Schelhaas til dæmis á nýjustu plötu hennar, „Better by Far“. Núverandi skipan Camels er.því þessi: Andrew Loatimer, gítar, Andy Ward, trommur, Richard Sinclair, bassi, Mel Collins, Saxó- fónn og Dave Sinclair og Jan Schelhaas. Hljómsveitin er nú í þann mund að leggja af stað í hljómleikaferðalag um Bretlands- eyjar og þá kemur í næsta mánuði út ný plata með Camel, sem nefnist „Breathless". Bardéns leik- ur á þeirri plötu, en platan er sú síðasta, sem hann lék á með hljómsveitinni. í Los Angeles fyrr á árinu. Don Davis útsetti lögin á plötunni, en hann hafði einnig það hlutverk með höndum á plötu Trowers „In City Dreams". „Caravan To Midnight" hefur að geyma níu lög og hafa Trower og Jim Dewar, söngvari hljómsveitarinnar, samið öll lögin í félagi. Aðrir meðlimir hljómsveitarinnar eru Rustee All- en, bassaleikari og Bill London, trommuleikari, en hljómsveitin heldur sig nú að mestu , leyti í Bandaríkjunum. Þegar að öllu umstanginu í kringum plötuútkomuna er lokið hefst kvikmyndun „Quadrophen- iu“, en Franc Roddam mun sjá um leikstjórnina. „Quadrophenia" er rokk-ópera í svipuðum' stíl og Tommy, þótt svo að hún hafi aldrei náð sömu vinsældum. Hún var samin fyrir einum sex árum og sömdu fjórmenningarnir í Who, Townshend, Roger Daltrey, Ent- wistle og Keith Moon hana saman. eins og að horfa í fyrsta skiptið á litasjónvarp." Til gamans má geta þess að ef platan á að seljast í sjö milljónum eintaka á einu ári, verða að seljast yfir 19.000 eintök af plötunni dag hvern. 5. (6) Hopelcssly dcvotcd to you — Olivia Newton-John 6. (8) An evcrlasting love — Andy Gibb (3) Miss you — Kullimc Stoncs 8. (11) Shame — Evelyn King 9. (5) Lovc will find a way — Pablo Cruise 10. (9) Maicnet and steel — Waiter F.xan Tvö lög jöfn í sjötta sæti. AMSTERDAM 1. (3) You're the greatest lover — Luv 2. (1) You're the one that i want — John Travolta ok Olivia Newton-John 3. (2) Windsurfin — Surfers 1. (9) Follow me — Amanda Lear 5. (1) Lay lovc on you — Luisa Fcrnandez fi. (5) Too much. too littlc. too late — Johnny Mathis ok Deniece Williams. 7. (11) One for you. one for me — La Biontja 8. (6) Arabian affair — Abdul Hassan ok hljómsveit 9. (10) Let's all chant — Michael ZaKer Band 10. (7) Oh darlinK — The Diepenbrock BONN 1. (1) Oh Carol — Smokic 2. (2) Nixht fever — Bee Gees 3. (1) You're the onc that 1 want — John Travolta ok Olivia Newton-John 4. (7) Ca plane pour moi — Plastic Bertand 5. (3) Eaxle — ABBA fi. (5) Baker street — Gerry Rafferty (6) Brown KÍrl in the rinK — Boney M. 8. (8) The wanderer — Leif Garrett 9. (11) California nights — Swect 10. (9) Rivcrs of Babylon — Boney M. Tvö Iök jöfn í sjötta sæti. Nokkrir af aðstandendum væntanlegra hljómplatna> Jónas R. Jónsson, Áskell Másson og Leifur Þórarinsson. Manucla Wiesler og Karl Sighvatsson. — (Ljósm. Kristinn). Hljódriti gef- ur út íslenzka nútímatónlist IILJÓÐRITI mun á næstunni færa út kvíarnar og hefja hljómplötuútgáfu. Þetta kom fram á blaðamannafundi, sem fyrirtækið cfndi til í liðinni viku. Ilyggjast Hljóðritamenn gcfa út á næstu fjórum eða fimm mánuðum fimm hljómplötur. Þessar piötur ciga það allar sammerkt að hafa að gcyma nútímatónlist aðallega eftir íslensk tónskáld og á öllum plötunum lcikur íslenskt tónlistarfólk. Er ætlunin að halda áfram á þessari braut, ef vel gengur. Þær fimm plötur, sem þegar hefur verið ákveðið að gefa út, eru: Plata með leik Manuelu Wiesler, ein með verkum Áskels Mássonar en hennar hefur áður verið getið í Slagbrandi. Ein platan mun hafa að geyma tónverk e.ftir Atla Heimi Sveinsson og á annarri verða verk eftir Jón Þórarinsson. A einni skífu leika þeir svo Gísli Magnússon og Halldór Haraldsson: Á döfinni eru plötur með verkum Þorkels Sigurbjörnssonar, Gunnars Reynis Sveinssonar, Jóns Leifs og Jóns Ásgeirssonar. Þessar plötur verða gefnar út í fremur litlu upplagi, eða 500—1500 eintök og' mun fyrirtækið Steinar hf. annast dreifingu þeirra. Er gert ráð fyrir að þessar plötur komi bæði á markað hér heima og erlendis. Það er ljóst að hér er um lofsvert framtak að ræða og er það von þess er þetta ritar að þessi útgáfa verði til þess að vekja athygli fólks og áhuga á íslenskri nútímatónlist og því tónlistarfólki, sem hér á í hlut. — gjg Þessir heiðursmcnn kumu fram á jazzkvöldinu á mánudaK- Talið frá vinstrii Alfreð Alfrcðsson, HelKÍ Kristjánsson. Guðmundur InKÓIfssun. Gunnar Ormslev ok Jón Páll Jónsson. Blúskompaníið. scm einnÍK átti að leika þetta kvöld. sá sór ekki fært að mæta. enda hafði víst KcnKÍð hálf briisuIcKa að ná í meðlimi kompanísins. Jazzað á Sögu JAZZKLÚBBUR Reykjavíkur gekkst á mánudagskvöld fyrir jazzkvöldi að Hótel Sögu. Þar léku þeir Alfreð Alfreðsson. trommuleikari, Ilelgi Kristjánsson. bassa- leikari. Gunnar Ormslev, saxofónleikari, Guðmundur Ingólfsson, píanóleikari, og Jón Páll Jónsson, gítarleik- ari. jazz fram eftir kvöldi, en skcmmtunin hófst klukkan níu. Ovenjufáir áheyrendur voru mættir þetta kvöld, en vera kann að orsök fyrir því sé, að Jazzklúbbur Reykjavíkur auglýsti jazz-kvöldið lítið. Þeir sem á annað borð mættu fengu hins vegar að heyra ljómandi góðan og skemmtileg- an jazz og sérstaklega vakti gítarleikur Jóns Páls athygli, en Jón Páll hefur undanfarin ár dvalið í Svíþjóð og gert það gott þar. Aðrir stóðu fyllilega fyrir sínu og vel það. Lagaval þeirra var þannig að ábyggilega hafa allir fengið eitthvað við sitt hæfi, meðal annars léku þeir lagið Summertime, sem George Benson hefur getið sér frægð fyrir. Jazzklúbbur Reykjavíkur hyggst gangast fyrir fleiri jazz-kvöldum í haust og vetur, en vonandi er að þá verði betur auglýst, annars er fyrirsjáanlegt að klúbburinn kemur út úr því ævintýri með tapi. SA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.