Morgunblaðið - 03.09.1978, Síða 30
62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1978
Organista-
námskeið
í Skáihoiti
Dagana 20,—27. ágúst s.l.
var haldið organistanám-
skeið í Skálholti með þátt-
töku yfir 50 organista víðs
vegar að af landinu. Slík
námskeið eru nú orðin
árlegur viðburður, en þau
eru haldin að fyrirlagi
söngmálastjóra þjóðkirkj-
unnar Hauks Guðlaugsson^
ar sem hefur verið stjórn-
andi þeirra.
DaKskrá þessa námskeiðs var
mjöíí fjölbreytt. Auk kennslu-
stunda í orfjelleik, sönfistjórn og
kórþjálfun voru frumsamin löf;
eftir orf;anista flutt og fjöldi
sönglaKa en undir lokin sönf? um
130 manna kór á tónleikum undir
stjórn orj;anista.
Kennarar á þessu námskeiði
voru auk söngmálastjóra Jónas
smma„r . iíV"
Námskeiðshópurinn fyrir utan Skálholtskirkju.
Þjálfun í orgelleik og kórstjórn
Injíimundarson, Reynir Jónasson,
Fríða Lárusdóttir, Glúmur Gylfa-
son ok Þorkell SÍKurbjörnsson
tónskáld. Epr'í Skálholti voru 7
sönKlöfi eftir organista, raddsett
af Þorkatli, frumflutt og ennfrem-
ur lag sem Smári Ólafsson radd-
setti við texta eftir Hallgrím
Pétursson. Allir þátttakendur í
námskeiðinu voru æfðir í kór-
stjórn.
A miðvikudagskvöldið flutti sr.
Sigurður Pálsson vígslubiskup
erindi, „Um messuformið" og
kvöldið eftir flutti Baldur Möller
ráðune.vtisstjóri erindi sem hann
nefndi „Viðhorf skákmanns til
ferils síns“. Þá flutti Aðalsteinn
Helgason formaður Kirkjukóra-
sambands Islands ávarp, en biskup
Islands herra Sigurbjörn Einars-
son predikaði í Skálholtskirkju
lokadag námskeiðisins og sr.
Guðmundur Óli Ólafsson þjónaði
fyrir altari.
Mbl. átti stutt viðtal við Hauk
Guðlaugsson söngmálastjóra þjóð-
kirkjunnar, Þorvald Björnsson
organista og Smára Ólafsson, sem
stundar nám í kirkjutónlist í
Vínarborg, um námskeið
organista.
Þátttakan góð
og námskeiðið
mjög árangursríkt
„Námskeiðið var vægast sagt
mjög árangursríkt, og ber þátttak-
an því gleggst vitni“, sagði Smári
í byrjun. „En þarna voru staddir
þáttfakendur úr 14 prófastsdæm-
um af þeim 15 sem eru á landinu,
og menn fengu tækifæri til þess að
kynnast nýjum starfsháttum."
„Þessi námskeið hafa verið
stuðningur fólki sem starfað hefur
á þessu sviði og heldur uppi
sönglífinu í sinni heimabyggð í
mörgum tilvikum. Það kemur til
þess að læra og áhugi þess er
sérstaklega mikill, auk þess sem
það hittir fleiri sem eiga kannski
við sömu vandamál að stríða í
starfinu. Þarna hittist fólk á öllum
aldri alls staðar af landinu og
ræðir þessi mál“ sagði Þorvaldur.
„Og ég get tekið undir orð Hauks
við námskeiðsslitin að það hafi
verið sérstaþlega ánægjulegt að
starfa með svo áhugasömu fólki
þennan tíma“.
Um kennsluna sagði Haukur að
stuðzt hefði verið við bók sem
gefin hefur verið út sem handrit
og nefnist Kóræfingin eftir Carl
Eberhardt, þýzkan mann, í þýð-
ingu Maríu L. Eðvarðsdóttur en
Kennarar námskeiðsins frá vinstri. Fríða Lárusdóttir, Reynir Jónasson, Guðrún Tómasdóttir, Jónas
Ingimundarson. Ilaukur Guðlaugsson söngmálastjóri þjóðkirkjunnar og Þorkell Sigurbjörnsson. A
myndina vantar Glúm Gylfason.
Elzti þátttakandinn á námskeiði organista var Ástríður Stefánsdóttir,
75 ára. en hún starfar sem organisti við Skeiðsflatarkirkju. Eftir hana
var frumflutt lag. sem raddsett var á námskeiðinu. Og yngsti
þátttakandinn var Guðný Vésteinsdóttir 12 ára gömul úr
Skagafirðinum.
ritið væri leiðarvísir til kórþjálf-
unar. A hverjum degi hefðu verið
kennslustundir í orgelleik, en
tilgangur námskeiðisins væri að
þjálfa organista í orgelleik og*
kórstjórn.
„I mörgum tilvikum voru þátt-
takendurnir fólk sem mikinn
áhuga hefur fyrir tónlist og
ástundun tónlistar, en hefur ekki
vegna aðstöðuleysis getað
fullnumað sig á þessu sviði. Þeim,
sem sóttu námskeiðið, var
viðfangsefnið sérstakt áhugamál
og það hefur verið mér mikill
stuðningur í starfi að vinna með
þeim,“ sagði Haukur. „Meðal
þeirra verka, sem flutt voru, má
fyrst nefna þátt úr Stjörnunni,
óratoríu eftir Pablo Casals í
þýðingu Heimis Steinssonar rekt-
ors Skálholtsskóla, en það var
samið á stríðsárunum og tileinkaði
höfundurinn það Sameinuðu þjóð-
unum. Það verk hefur ekki verið
gefið út.
Smári kveðst sannfærður um
það að yfir 100 sálmalög hafi verið
flutt á þessari viku sem námskeið-
ið stóð yfir, en m.a. var sungið
gamalt lag úr Þorlákstíðum. Þá
voru tónleikar fluttir bæði í
skólanum og í kirkjunni."
„Á öllu iandinu eru nú starfandi
177 organistar, en á einstaka stað
hefur gengið nokkuð erfiðlega að
fá organista við kirkjurnar og þá
sérstaklega í minni plássum. En
þar eru oft menn til staðar sem
telja sig skorta menntun til þess
að gegna þessu starfi og þá koma
slík námskeið ekki sízt að gagni,"
hélt Haukur áfram. „Þessi nám-
skeið organista hefur einstaklega
vel valið fólk sótt, eins og ég sagði
áðan, fólk sem á sér þetta sérstaka
áhugamál. Næsta sumar höfum
við jafnvel í hyggju að bjóða öllum
organistum á landinu þátttöku í
ferð til Leipzig, Vínarborgar og
fleiri borga tónlistarinnar og vera
þá m.a. við æfingu hjá kór
Tómasarkirkjunnar í Leipzig,
sækja messur og óperusýningar og
fleira, í stað þess að halda sérstakt
námskeið með okkur það árið.“
sagði Haukur að lokum.
Kirkjuráð styrkti námskeiðs-
haldið með organistum í Skálholti,
en að öðru leyti var það embætti
söngmálastjóra Þjóðkirkjunnar
sem kostaði það.