Morgunblaðið - 08.09.1978, Side 10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1978
10
Mynd- og handmenntarkennarar:
Mynd- og handmennt verði
í námskjarna menntaskóla
Mbl. hofur borizt cftirfarandi
frcttatilkynninK frá mynd- og
handmcnntarkcnnurumi
„Dajíana 21.—27. ágúst 1978 var
haldið mynd- og handmenntar-
kennaranámskeið við Kennarahá-
skóla Islands.
Þátttakendur voru tæplega tvö-
hundruð o)í stunda þeir allir
kennslu við grunnskóla víðsvegar
um land.
Á fundi, sem þessir kennarar
héldu þann 26. ágúst, voru eftir-
farandi ályktanir samþykktar
samhljóða:
1. Fundur haldinn á námskeiði
mynd- og handmenntarkennara
telur mikla nauðsyn á að mynd- og
handmennt verði nú þegar tekin
upp í kjarnanámi menntaskólanna
og allra fjölbrautaskólanna.
2. Skorað er á menntamálaráð-
herra að koma nú þegar á fót
námstjórn í mynd- og handmennt
er nái yfir framhaldsskólastigið
ailt að háskóla.
3. Að komið verði upp sérstakri
innkaupastofnun er annist öll
innkaup og dreifingu á efni og
tækjum fyrir mynd- og hand-
menntarkennslu í íslenskum skól-
um og að námstjórar í mynd- og
handmennt verði ráðgefandi um
efniskaup og aðrar framkvæmdir
þessa máls.
4. Mynd- og handmenntarkenn-
arar eru ákaflega óánægðir með
þá tímaskerðingu sem orðin er í
handmenntargreinum víða í
grunnskólum landsins þar sem
kennslustundum fjölgar ekki í
samræmi við aukinn nemenda-
fjölda og námsefni.
Mynd- og handmenntarkennar-
ar harma að ítrekaðar tilraunir til
leiðréttingar þessara mála hafa
ekki borið árangur. Þeir vilja
minna á að í nýútkominni nám-
skrá í mynd- og handmennt er
námsefnið miðað við tvær viku-
stundir vetrarlangt á nemanda.
Mynd- og handmenntarkennarar
telja, og vilja undirstrika, að
áðurgreind tímaskerðing á engan
rétt á sér, og skipting nemenda í
hannyrða- og smíðanámi er ekki
tímabær fyrr en tímum hefur
verið fjölgað um helming."
Botha andvígur
tillögum Waldheims
Sameinuðu þjóðunum,
6. september, AP.
Utanríkisráðherra Suð-
ur-Afríku, Roelof F. Botha, sendi
Kurt Waldheim framkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna bréf í
dag og kvaðst vera andvígur
tillögum framkvæmdastjórans
um að sent yrði 7.500 manna
gæzlulið og sérstök sveit lögreglu
til Namibíu á meðan landsmenn
byggju sig undir að taka við
stjórn sinna mála. Ennfremur
sagði Botha sig andvígan þvi að
undirhúningstíminn yrði lengdur
um eitt ár, en landið hlýtur
sjálfstæði 1. janúar n.k.
Þessi atriði komu fram í skýrslu
framkvæmdastjórans til öryggis-
ráðsins þar sem hann gerir grein
fyrir því með hvaða hætti Samein-
uðu þjóðirnar geti tryggt sjálf-
stæði Namibíu í samvinnu við
Suður-Afríku.
Samsæri Alfreðs Flóka
og Svarta eggið
ALFREÐ Flóki hefur nú gefið
út eftirprentanir með tveimur
nýjum teikningum eftir sig og
voru þær prentaðar í Banda-
ríkjunum þar sem listamaður-
inn hefur dvalið undanfarna
mánuði.
Þessar teikningar Alfreðs
Flóka heita Svarta eggið og
Samsærið. Þær eru gefnar út i
100 eintökum númeruðum og
árituðum af listamanninum, en
í spjalli við listamanninn kvað
hann einfaldara fyrir þá sem
hafa hug á myndunum að hafa
samband í síma 20306 heldur en
hringja í sig í New York. Kvaðst
listamaðurinn hyggja á heim-
komu innan tíðar með sitthvað
æsilegt fyrir heimskúltúrinn.
Vestfirzkir bygg-
ingarverktakar:
Mótmæla
vinnubrögð-
um Lands-
bankans
BYGGINGARVERKTAKAR á
Vestfjörðum hafa nú harðlega
mótmælt því, að Landsbanki
íslands h.f. skuli hafa samið um
smíði cinbýlishúss á ísafirði við
fyrirtækið Ármannsfell h.f. í
Reykjavík. Gunnar Þ. Lárusson
byggingarmeistari, sem er verk-
stjóri hjá Ármannsfelli, stcndur
fyrir byggingunni, en hann hefur
fengið til þess sérstakt leyfi frá
byggingarnefnd ísafjarðar, þótt
hann starfi aðeins til bráðabirgða
á staðnum, eins og segir í
Vestfirska fréttablaðinu.
Daníel Kristjánsson, formaður
Félags byggingarverktaka á Vest-
fjörðum, segir í samtali við
Vestfirska fréttablaðið, að ekki
hafi verið leitað til .löggiltra
byggingaraðila á ísafirði heldur
hafi Gunnari Lárussyni verið
fengið verkið.
„Tilgangur mótmælanna er að
láta í ljós vanþóknun okkar á því
að opinberar þjónustustofnanir
skuli ganga framhjá aðilum á
ísafirði, sem reyna að halda uppi
starfsemi og sem greiða gjöld hér
á staðnum. Auk þess mótmælum
við því, að þetta verk er ekki á
frjálsu útboði, heldur virðist þetta
hafa komizt í gegn vegna þrýst-
ings Landsbankans sem peninga-
stofnunar og að öllum líkindum,
hefur verið gengið frá þessu „fyrir
sunnan", segir Daníel.
Hjónin að Grundarlandi 22 ásamt dóttur sinni, úthlutunarnefndinni, sóknarpresti og
safnaðarfulltrúa Bústaðasóknar.
V iðurkenningar veit-
ing bræðrafélagsins
ÞAÐ ER orðinn árlegur
viðburður hjá Bræðrafélagi
Bústaðasóknar að úthluta
viðurkenningu fyrir „snyrti-
lega umgengni á lóð og húsi“.
Að þessu sinni hlutu viður-
kenningu hjónin Edda Jóns-
dóttir og Ólafur Briem fyrir
eign sína að Grundarlandi 22.
Dómnefndin benti sérstak-
lega á, að erfitt hefði verið að
ákveða þetta því svo margar
húseignir hefðu verið verð-
launaverðar við þá götu.
í úthlutunarnefndinni eiga
sæti Ólafur B. Guðmundsson,
Oddrún Pálsdóttir og María
Jónsdóttir, en nefndin lauk
greinargerð sinni á eftirfar-
andi hátt: Það er álit okkar
að ræktunarmenning, snyrt-
ing og fegrun umhverfis
aukist og batni með ári
hverju, bæði frá hendi ein-
staklinga og þess opinbera,
eins og sjá má í þessu hverfi.
Heilbrigðiseftirlitið:
kki taugaveikibróðir
heldur salmonella-
sýkill í svínabúinu
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
heilbrigöiseftirlitínu í Reykjavík:
í dagblaðinu Vísi í gær, 5.9 ‘78,
er frétt um að taugaveikibróður-
sýkingar (para typhus) hafi orðið
vart hjá starfsmanni svínabús í
nágrenni Reykjavíkur og að ef til
vill þyrfti af þeim sökum að eyða
á annað hundrað tonnum af
svínakjöti.
Þar sem frétt þessi er efnislega
ekki rétt, og ennfremur vegna eðlis
máls þessa, telur heilbrigðiseftirlit
borgarinnar nauðsynlegt að skýra
frá helstu staðreyndum hér að
lútandi:
1. Starfsmaður svínabús í Mos-
fellssveit veiktist ekki af tauga-
veikibróður, heldur af sýklinum
salmonella agona. Sýkill þessi er
einn af mörg hundruð afbrigðum
af salmonellu-sýklum, sem valdið
geta þarmasýkingu. Sýking af
þessu tagi er ekki talin eins
alvarleg og taugaveikibróðursýk-
ing.
2. Vegna veikinda starfsmanns
búsins, tóku hlutaðeigandi heil-
brigðisyfirvöld sýnishorn í sjálfu
svínabúinu, bæði úr svínastíum og
frárennsli og fannst þar samskon-
ar sýkill og í starfsmanninum.
Annað starfsfólk búsins hefur ekki
veikst.
3. Slátrað hefur verið 115 dýr-
um frá svínabúinu, 40 dýrum 1.
ágúst s.l., 35 hinn 8. ágúst og 40
hinn 14. s.m. Á meðan athugun og
rannsókn heilbrigðisyfirvalda fór
fram á kjötinu var það geymt í
sérstökum frystiklefa á vegum og
undir eftirliti heilbrigðiseftirlits
borgarinnar. Engin önnur mat-
vara var geymd í klefanum.
4. Ekki hefur orðið vart neins
sjúkdóms í dýrum búsins, né
heldur merki um að ofangreind
115 dýr hafi verið sjúk. Hins vegar
fannst umræddur sýkill við rækt-
un frá þarmaeitlum 24 sláturdýra.
Við rannsókn á 91 skrokk, sem
eftir var fannst sýkilinn á yfir-
borði í 8. Af þeim 83 skrokkum
sem þá voru eftir fannst enginn
sýkill við þá rannsókn sem fram-
kvæmd var.
5. Ofangreindum 32 skrokkum,
samtals 2.272 kg, var eytt strax og
niðurstöður sýklarannsókna lágu
fyrir.
6. Umræddum 83 skrokkum,
samtals 4.920 kg, hefur nú verið
eytt eftir ákvörðun heilbrigðis-
eftirlits borgarinnar. Ákvörðun
þessi var tekin í varúðarskyni, að
höfðu samráði við hejlbrigðiseftir-
lit ríkisins og landlækni.
7. Umræddur frystiklefi verður
sótthreinsaður undir eftirliti heil-
brigðiseftirlits borgarinnar og
ennfremur verður gætt fyllstu
varúðar til að girða fyrir að smit
geti dreifst frá sláturgripum eða
viðkomandi búi.