Morgunblaðið - 21.09.1978, Page 1
40 SÍÐUR
214. tbl. 65. árg.
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1978
Prentsmiöja Morgunblaðsins.
Suður-Afríka:
Vorster læt-
ur af völdum
Pretoriu, S-Afríku, 20. sept.
AP — Reuter.
JOHN Vorster. sem verið hefur
forsætisráðherra Suður-Afríku í
12 ár. tilkynnti í dag að hann
hefði ákveðið að láta af embætti.
Sagði hann við það tækifæri. að
hann hefði „einskis að iðrast" á
12 ára valdaferli sínum og að
hann hefði komizt langt áleiðis í
að sameina ibúa landsins.
Áður en Vorster sagði af sér
tilkynnti hann að stjórn S-Afríku
hefði ákveðið að efna til kosninga í
Suðvestur-Afríku (Namibíu) á
næstunni án afskipta Sameinuðu
þjóðanna. Er talið að þessi
ákvörðun muni gera friðsamlegt
samkomulag um framtíð þessarar
fyrrverandi þýzku nýlendu, sem
S-Afríka hefur ráðið yfir frá árinu
1920 enn fjarlægara. Leiðtogar
frelsishreyfingar Namibíu,
SWAPO, sögðu í dag að ákvörðun
Vorsters um kosningar þýddi
óhjákvæmilega að þeir yrðu að
Sovétríkin:
Prófessor
sviptur borg-
araréttindum
Moskvu, 20. sept. Reuter, AP
SOVÉZKI heimspekiprófessor-
inn Alexander Zinoviev hefur
verið sviptur borgararéttindum
í Sovétríkjunum og verður
honum ekki heimilt að snúa
aftur til heimkynna sinna, en
prófessorinn og fjölskylda hans
eru nú í Munehen í V-Þýzka-
landi, þar sem Zinoviev stundar
kennslu. Yfirlýsing um þetta
var birt í dag í opinberu
málgagni Æðstaráðsins og var
hún undirrituð af Brezhnev
forseta Sovétríkjanna. Þar seg-
ir að Zinoviev hafi gerst sekur
um athæfi, sem skaði álit
Sovétríkjanna.
Zinoviev, kona hans og dóttir
höfðu fengið leyfi í júlí sl. til að
dveljast erlendis í eitt ár og
sagði Olga eiginkona Zinovievs
í dag, að henni kæmi þessi
ákvörðun mjög á óvart, þrátt
fyrir að manni hennar hafi á
síðasta ári verið vikið úr
sovézku vísindaakademíunni.
Zinoviev skrifaði í fyi“ra bók,
sem gefin hefur verið út á
Vesturlöndum, en í bókinni er
gert grín að sovézka þjóðskipu-
laginu. Er þessi bók talin
ástæða réttindasviptingarinn-
herða stríðsrekstur sinn gegn
stjórninni.
I Pretoríu velta menn nú mjög
vöngum yfir því hver verði eftir-
maður Vorsters. Þrír ráðherrar,
sem allir heita Botha, eru taldir
líklegastir, en varnarmálaráðherr-
ann, Pieter Botha, þó talinn
líklegastur. Hann er talinn mjög
harður í horn að taka og ekki
líklegri en Vorster til að leita
samninga um framtíð Namibiu
eða auka réttindi blökkumanna
heima fyrir frá því sem nú er.
Þingið velur nýjan forsætisráð-
herra í næstu viku og daginn eftir
verður valinn nýr forseti landsins í
stað Nicolaas Diederic, sem lézt i
fyrra mánuði. Vorster sagöi í dag
að hann kynni að vera fáanlegur
til að gefa kost á sér í forsetaemb-
ættið, en það embætti er valdalítið
í Suður-Afríku.
(Símamynd AP).
EYÐILEGGING — Kona ein virðir fyrir sér rústir heimilis síns í írönsku borginni Tabas eftir
jarðskjálftann sem lagði borgina í rúst í fyrri viku og varð rúmlega 20 þúsund manns að bana.
íranskeisari heimsótti jarðskjálftasvæðin í dag og lofaði því að þau yrðu endurbyggð.
„Gætum samið á
tveimur mánuðum’ ’
— segir Sadat Egyptalandsforseti
Washington, Jerúsalem,
Damaskus, Amman, 20. sept,
AP, Reuter.
SADAT Egyptalandsforseti sagði
í dag, að unnt ætti að vera að ná
friðarsamkomulagi milli ísraels
og Egyptalands á tveimur mánuð-
um en ekki þremur eins og um er
talað í Camp David samkomulag-
inu. Þrátt fyrir þessi ummæli
Sadats hefur komið upp á yfir-
borðið ólík túlkun Egypta og
ísraelsmanna á ýmsum vciga-
miklum atriðum samkomulagsins
og hefur það leitt til þess að
dregist hefur að löndin tvö
skiptist á nótum í framhaldi
Camp Davidfundarins eins og
ráðgert hafði verið.
Begin forsætisráðherra Israels
S ióherinn visar
frá flóttafólki
Singapore, 20. sept. Reuter
STJÓRN Singapore hefur fyrir-
skipað sjóher sínum að koma í
veg fyrir að litlu flutningaskipi
takist að koma á land í borginni
um eitt þúsund flóttamönnum frá
Viet Nam, að því er opinberar
heimiidir hermdu í dag. Malaysia
hefur einnig neitað að taka við
þessu fólki. en flóttamennirnir
komust um borð í skipið fyrir
nokkrum dögum úr smábátum
þegar vélarbilun varð í skipinu á
Thailandsflóa.
Starfsmenn Flóttamannahjálp-
ar Sameinuðu þjóðanna hafa verið
settir í mikinn vanda vegna
þessarar afstöðu Singapore og
Malaysiu, þar sem ekki er útlit
fyrir að neitt land muni á
næstunni fallast á að taka við
þessu fólki. Malaysiumenn hafa
sent matarbirgðir til skipsins en
segjast ekki geta tekið við því þar
sem þegar séu 15500 vietnamskir
flóttamenn í landinu sem eftir er
að koma fyrir. I Singapore eru um
400 flóttamenn frá Viet Nam og
býr fólkið í tíráðabirgðaskýlum.
Með öllu er óvíst hver verður
framtíð þessara flóttamanna, en í
hópi þeirra eru 500 börn.
hefur lagt áherzlu á að einungis
verði hætt við frekara landnám
Israelsmanna á Vesturbakka
Jófdanár í þrjá manuði, en
skilningur annarra þátttakenda á
fundinum er sá, að samið hafi
verið um fimm ára hlé. Þá sagði
Begin í dag á fundi með leiðtogum
bandarískra Gyðinga, að hermenn
Israels yrðu áfram á Vesturbakk-
anum eftir að heimastjórn Palest-
ínumanna tekur við völdum að
fimm árum liðnum, en þessi
túlljun hans á samkomulaginu er
heldur ekki talin koma heim og
saman við skilning Egypta og
Bandaríkjamanna.
Vance utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna útskýrði Camp Dav-
id-samkomulagið fyrir ráðamönn-
um í Jórdaníu í dag og er sagður
gera sér allgóðar vonir um að
Jórdanir muni innan tíðar gerast
aðilar að samkomulagi Egy'pta og
Israels. Jórdanir eru sagðir óttast
að aðeins beint samkomulag Isra-
elsmanna og Egypta muni komast
í framkvæmd en ekki hinn samn-
ingurinn sem sneri að framtíð
Vesturbakkans og þar með að
Jórdaníu. Vance heldur til Saudi—
Arabíu á morgun og mun eiga þar
fund með Khaled konungi.
Andstæðingar samkomulagsins
í röðum Araba hafa hafið fund í
Damaskus og eru þar fulltrúar
Sýrlands, Alsírs, íraks, Suð-
ur-Jemens, Líbýu og PLO-hreyf-
ingarinnar. Er talið að fundur
þeirra kunni að leiða til aukinna
tengsla þessara ríkja við Sovétrík-
in.
Sadat hélt heimleiðis í dag og
hafði viðkomu í Marokkó. Hann er
sagður staðráðinn í að leiða
samningana við ísrael til farsælla
lykta og sagði í dag að hann myndi
endurskipuleggja stjórn sína þeg-
ar heim kæmi.
Rhodesíumenn ráðast gegn
skæruliðum í Mozambique
Salisbury,
20. sept. — AP, Reuter.
HEUSVEITIR Rhodesíu gerðu í
dag árásir á hækistöövar skæru-
iiða í Mozambique. að því er
tilkynnt var í Salisbury í dag. í
tilkynningu stjórnarinnar segir.
að hér sé um að ra'ða varnarað-
gerðir sem. beinist eingöngu
gcgn skæruliðum en ekki að
almennum borgurum né her-
mönnum stjórnar Mozambique.
Þetta er í annað sinn á tveimur
mánuðum sem hermenn Rhodesíu-
stjórnar ráðast gegn skæruliðum í
Mozambique og árásin er gerð 10
dögum eftir að Smith forsætisráð-
herra hótaði öflugum aðgerðum
gegn skæruliðum eftir að Vis-
count-farþegaflutvél frá Air
Rhodesia var skotin niður. Það
vekur þó athygli að árásinni nú er
beint gegn skæruliðum Roberts
Mugabes, sem hafa aðsetur í
Mozambique, en ekki skæruliða-
hreyfingu Joshua Nkomos, sem
staðsett er í Zambíu.
I fyrri árásum hersveita frá
Rhodesíu á stöðvar í Mozambique
hefur oröið mikið mannfall í
röðum skæruliða, on í kvöld höfðu
engar fréttir borizt um hvert
manntjón hefði orðið.
H vitlaukur við
kransæðastíflu
Köln, Reuter. komið hefði í ljós að
HVÍTLAUKUR er ef til vill hvítlaukurinn minnkaði
blóðfituna verulega og með
því að láta fólk neyta hans í
ákveðnum skömmtum
mætti koma í veg fyrir
kransæðastíflu. „Helzti
kostur hvítlauksins er og sá
að engir óæskilegir auka-
kvillar fylgja honum. Og ef
allir borða hann, þá amast
enginn við andremmu.“
Reuter ráðlagði fólki að
nota aðeins ferskan hvít-
lauk við matargerð þar sem
jurtin tapaði flestum eigin-
leikum sínum við niður-
suðu.
bezta meðalið við krans-
æðastíflu ef marka má
rannsóknir prófessors
Hans Reuters við Kölnar-
háskóla á áhrifum lauksins
á blóðfitu (kólesterol).
Laukurinn vinnur mjög vel
á blóðfitunni og einnig kom
í ljós, að hann var virkari
en penisillín og önnur
mótefni við að útrýma
ýmsum örveirum í blóði,
svo sem berklaveikis- og
barnaveikisveirum.
Hans Reuter sagði að