Morgunblaðið - 21.09.1978, Síða 22

Morgunblaðið - 21.09.1978, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1978 Ungfrú Proll giftist á laun London. 20. scptembcr. AP. ASTRID Proll, sem Vest- ur-Þjóðverjar vilja fá fram- selda fyrir þátttöku í hryðju- verkasamtökunum Baad- er-Meinhof, giftist á laun til þess að fá brezkan ríkisborg- ararétt samkvæmt heimild- um í brezka innanríkisráðu- neytinu. Samkvæmt heimildunum er þó talið ólíklegt að hjóna- vígslan hafi áhrif á framsal ungfrú Prolls. Hjónaband leiðir ekki óhjákvæmilega til brezks ríkisborgararéttar samkvæmt heimildunum. Proll notaði falsað nafn til þess að giftast þrítugum pípulagningarmanni 11 mán- uðum eftir að hún flúði frá Þýzkalandi. Eiginmaður hennar mun nú vera við nám í trúarbrögðum á Indlandi. Þau bjuggu saman í hippa- kommúnu þegar þau giftust. Upphringing frá öðrum hnöttum? Washington, 20. september. AP. NOKKRIR fremstu geimvís- indamenn Bandaríkjanna reyndu í dag að sannfæra handaríska þingnefnd um að það sé aðeins tímaspursmál hvenær framandi verur „hrinsi til jarðarinnar.“ Vísindamenn- irnir vilja geta svarað upp- hrinvunni og hvöttu stjórnvöld til þess að láta smíða fullkom- inn tækjakost til að taka við merkjum utan úr Koimnum. Vísindamennirnir sögðu að nútímatækni leyfði smíði tækja- búnaðar til að rannsaka sam- tímis ógrynni hljóðmerkja sem berast utan úr geimnum. Þeir sögðu og að búast mætti við því að „sarntal" til annarra hnatta tæki tugi ef ekki hundruð ára vegna fjarlægða. Geimvísindamenn gera ráð fyrir þeim möguleika að líf sé tii á reikistjörnum í öðrum sóikerf- um. Þeir gera einnig ráð fyrir því að að því muni koma að samband náist við þessar reiki- stjörnur og það jafnvel á næstu 50[75 árum. HEIMSMET í HÁSTÖKKI — Hvirfilvindur feykti íþróttamönnum á frjálsíþróttamóti í Japan í fyrri viku þrjá metra í loft upp og sést einn þeirra á fluginu á þessari mynd. íþróttamennirnir voru keppendur í hástökki og voru að koma hástökksdýnunni fyrir á sínum stað þegar vindurinn hóf þá í loft upp. Hið opinbera heimsmet í hástökki er 2.34 metrar. Sovézkir geimfarar setja geimdvalarmet Norskur blaðamaður mataði Rússa á röngum upplýsingum Ósló, 20. september. AP. NORSKI hlaðamaðurinn Björnar Ilalnum segir í nýrri bók, að hann hafi vísvitandi útvegað sovézku leynilögreglunni KGB rangar upplýsingar á tímabilinu síðla árs 1964 til þess að afhjúpa undirróðursaðferðir Rússa. Halnum segir. að vegna að- gerða sinna hafi þriðja sendiráðs- ritara sovézka sendiráðsins í Ósló verið vísað úr landi í júlí 1968 og að annar sovézkur leyniþjónustu- starfsmaður, Nicolai Mozorow, lýstur „óæskilegur“ þegar hann var farinn frá Noregi. Talsmaður norska utanríkis- ráðuneytisins neitaði að láta hafa nokkuð eftir sér um málið. Halnum segir í bók sinni, „Leikið tveim skjöldum," að hann hafi stundað þessa starfsemi þegar hann vann sem blaðamaður við vikublaðið NAA í Ósló og án vitundar yfirmanna sinna. Hann segir að hann hafi aldrei ógnað öryggi Noregs með starf- semi sinni og að hann hafi fengið að launum 11.700 norskra króna og 36 áfengisflöskur. Ritstjóri vikublaðsins, Kjell Lynau, segir að hann hafi ekkert 10 Suður- Mólukkar í verkfalli Haag, 20. sept. AP. TÍU SUÐUR-Mólukkumenn sem eru í haldi í Arnhem-fengelsi, hafa gert hungurverkfall til þess að leggja áherzlu á kröfur sínar um að hollenzka stjórnin beri upp á vettvangi Sameinuðu þjóðanna kröfur þeirra um sjálfstæði í indónesíska eyjaklasanum. vitað um starfsemi Halnums og að ef greinar hans hafi verið skrifað- ar út frá annarlegum sjónarmið- um hljóti þær að hafa verið sakleysislegar. Halnum segir að lögreglan hafi vitað um samband hans við Rússa og haft samband við hann 1966. Hann segir að lögreglan hafi hvatt hann til að halda samstarfinu við Rússa áfram. Hann segir að lögreglan hafi lesið handritið að bókinni og lagt blessun sína yfir hana. Hann kvaðst hafa skrifað bók- ina af því að honum gremdust ásakanir norskra vinstrisinna um að lögreglan einbeitti sér að eftirliti með norskum vinstrisinn- um og kommúnistum. Hann kvaðst vilja sýna að lögreglan fylgdist einnig með útsendurum Rússa og annarra Austur-Evrópu- þjóða. 1976 — Olof Palme segir af sér eftir kosningaósigur sósíaldemókrata. 1971 — Mestu loftárásir á Norður-Víetnam í þrjú ár. 1970 — Palestínskir skæruliðar taka borgina Irbid í Jórdaníu. 1956 — Notendafélaga Súez-skurðar stofnað á Lundúna-ráðstefnu. 1949 — Hernámsveldi Vestur- veldanna í Þýzkalandi undir þýzka stjórn og Vestur-Þýzka- land verður til — Kínverska alþýðulýðveldið stofnað. 1942 — Rússar sækja yfir Volgu. 1939 — Rússar og Þjóðverjar skipta Póllandi á milli sín. 1938 — Tékkar samþykkja að láta Súdetahéruöin af hendi við Þjóðverja. Moskvu, 20. september. AP. TVEIR sovézkir geimfarar í rannsóknastöðinni Salyut 6, Vladimir Kovalenok og Alexand- er Ivanchenkov, haía sett nýtt dvalarmet í geimnum. l’yrra metið var 96 dagar og 10 klst. og það settu tveir sovézkir félagar þeirra, Gcorgy Grechko og Yuri Romanenko, í sömu rannsóknastöð 11. febrúar. Kovalenok og Ivanchenkov var skotið 15. júní. Managua, 20. sept. AP. IIER Anastasio Somoza forseta segir að hann hafi sigrazt á allri mótspyrnu uppreisnarmanna eftir 11 daga uppreisn. Þjóðvarðliðið tilkynnti í út- varpi í nótt, að hermenn Somoza hefðu aftur náð á sitt vald borginni Esteli, síðasta vígi uppreisnarmanna, sótt inn í öll hverfi borgarinnar og komið aftur á iögum og reglu. 1931 — Bretar segja skilið vil gullfótinn. 1907 — Uppreisnir bældar niður í Þýzku Suðvestur-Afríku. 1896 — Kitchener tekur Dong- ola í Súdan. 1802 — Napoleon innlimar Piedmont. 1746 — Frakkar taka Madras, Indlandi — Madame de Pompi- dour sezt að í Versölum sem viðurkennd hjákona Frakkakonungs. 1529 — Tyrkir setjast um Vín — ítölsku ríkin mynda varnarbandalag. Afmæli dagsinsi H.G. Wells, brezkur rithöfundur (1866—1946) — Gustav Holst, brezkt tónskáld (1874—1934). Fréttastofan Tass segir að þeir hafi stundað ýmiss konar vísinda- rannsóknir í þágu sovézks efna- hagslífs, fylgst reglubundið með yfirborði jarðar og úthöfunum og gert auk þess tilraunir á sviðum geimtækni, stjarneðlisfræði og læknisfræði. Grechko og Romanenko fengust -við svipaðar tilraunir og rannsóknir. Tass benti á að sovézk-pólsk áhöfn og sovézk-austur-þýzk áhöfn hefðu heimsótt Kovalenok og Flugvélar stjórnarinnar hafa haldið uppi árásum á borgina síðan á fimmtudaginn á sama tíma og hermenn stjórnarinnar hafa náð borgunum Leon og Chin- andega í norðvesturhluta landsins á sitt vald. Rauði krossinn segir, að mörg hundruð manns hafi týnt lífi í árásunum á borgirnar þrjár. Starfsmenn Rauða krossins hafa Innlenti Kristján Kristjánsson bæjarfógeti sviptur embætti 1851 — Rosenörn stiftamtmaður skipaður dómsmálaráðherra 1849 — Bræöurnir Björn og Einar hirðstjóri Þorleifssynir taka eignir Guðmundar ríka undir sig 1446 — D. Bjarni Jónsson rektor 1868 — Jón Sigurðsson prestur á Rafnseyri 1821 — Lög um gengisfellingu 1949 — Áhöfn „Geysis" fagnað í Reykjavík 1950. Orð dagsinsi Að hrósa því sem er glatað gerir minninguna kæra — William Shakespeare, enskt leikritaskáld (1564—1616). Ivanchenkov í geimrannsóknastöð- inni. Grechko og Romanenko slógu gamalt geimdvalarmet Bandaríkj- anna í ferð sinni í febrúar. Það var 84 dagar, ein klukkustund og 16 mínútur og geimfararnir Gerald Carr, Edward Gibson og William Pogue settu það fyrir fjórum árum. Bandaríkjamenn hafa ekki skotið mönnuðu geimfarl síðan þeir tóku þátt í Apollo-Soyuz-ferð- inni 1975. áður áætlað að 300 hafi beðið bana og 3.000 slasazt í Leon og 200 hafi beðið bana og 200 særzt í Masya, annarri bækistöð uppreisnar- manna fyrir sunnan höfuðborgina Managua. Fjöldi skæruliða þjóðfrelsis- hreyfingar Sandinista er talinn vera einhvers staðar á bilinu 400 til 2.000 en þeir fengu í lið með sér nokkur þúsund stuðningsmenn í bæjunum sem þeir tóku. Margir þeirra flúðu til fjalla og því getur verið að skæruhernaður verði hafinn gegn stjórninni. Sumir þeirra flúðu yfir norður- landamærin inn í Honduras þar sm þeir fengu hæli eða til Costa Rica í suðri. Reykur stígur enn til himins í Chinandega en allri mótspyrnu er lokið. Ibúar borgarinnar eru 40.000 og þar er sagt að um 1.000 til 1.500 borgarbúar hafi tekið þátt í uppreisninni, aðallega ungir menn búnir handbyssum eða litlum veiðirifflum. Mörg lík voru lögð í ómerktar grafir af ótta við hefnd- arráðstafanir þjóðvarðliða gegn ættingjum hinna föllnu. Herlögeru enn í gildi í Managua og níu tíma útgöngubann. Margar verzlanir og mörg fyrirtæki eru lokuð vegna allsherjarverkfalls sem hefur staðið á fjórðu viku. Somoza stendur enn fast við það að hann muni ekki láta af störfum fyrr en kjörtímabili hans lýkur 1981. Somozasinnar segjast haf a sigrað skæruliða

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.