Morgunblaðið - 21.09.1978, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1978
7% niðurf ærsla
F-vísitöluer
brátt uppurin
— Nýja kjötid hækkar vísitöluna
nú þegar um 1,4%, bensínið um0,4%
VERÐIIÆKKUNARALDA
vegna gengisbreytingar-
innar gengur nú yfir og
mun hún ásamt hækkun
kindakjöts og hækkun á
útseldri vinnu, sem taka
mun gildi á næstunni,
valda meiri hækkun á
vísitölu framfærslukostn-
aðar en nam niðurfærslu-
aðgerðum ríkisstjórnar
innar. Aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar miðuðust að
því að greiða niður 7,5% af
verðbótavísitölu, sem jafn-
gildir rétt um 7% lækkun
framfærsluvísitölu. Þegar
hefur orðið bensínhækkun,
sem veldur 0,4% hækkun
F-vísitölu og verð á nýju
kindakjöti, sem er 38,6%
hærra en verðið á gamla
kjötinu, veldur um 1,4%
hækkun framfærsluvísi-
tölu. Þá standa þegar
aðeins eftir rúm 5% niður-
færslunnar.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið hefur aflað sér mun
á tímabilinu frá september til
nóvember og það fyrr en síðar,
koma að því marki, að
verðhækkanir meir en þurrki út
niðurfærslu verðlags. Meðal niður-
færsluaðgerða ríkisstjórnarinnar
var að auka niðurgreiðslur á
kindakjöti og hefur síðustu daga
verið selt í verzlunum kjöt frá
fyrra hausti og er það nú í þann
mund að ganga til þurrðar í
verzlunum. Þá hefst sala á kinda-
kjöti af nýslátruðu og er verð þess
miðað við heila skrokka 38,6%
hærra en verðið á kindakjötinu frá
fyrra hausti. Þessi verðmunur á
kjötinu hækkar framfærsluvísitöl-
una um 1,4% og í gær tók gildi
nýtt bensínverð og hefur hækkun
þess áhrif til hækkunar á fram-
færsluvísitölu um 0,4%. Þessar
hækkanir dragast frá 7% niður-
færslunni og standa þá eftir
rúmlega 5%. Þá eiga á allra næstu
vikum ýmis konar, hækkanir, m.a.
á útseldri vinnu, eftir að eyða
þessum 5%, sem eftir standa.
Niðurfærsluaðgerðir ríkis-
stjórnarinnar leiddu til lækkunar
búvörúverðs frá í ágúst um 13,2%,
en lækkunin frá því verði, sem ella
hefði tekið gildi í september, var
26,1%. Þannig er raunveruleg
hækkun búvara 17,5%.
Húsavík:
Skortur á hjúkrunar-
fræðingum háir
rekstri sjúkrahússins
Húsavfk. 20. sept.
SKORTUR á hjúkrunar-
fræðingum háir nú rekstri
sjúkrahússins á Húsavík og
þrátt fyrir miklar tilraunir
er ekki útlit fyrir að úr
rætist á næstunni.
* Hjúkrunarfræðingur, sem starf-
að Jiefur á Kópaskeri, en í því
héraði situr nú enginn læknir, fór
þaðan í sumar.
Með auknum byggingum sjúkra-
húsa og aukinni heilsugæzlu á
höfuðborgarsvæðinu vaxa örðug-
leikarnir með að fá hjúkrunar-
fræðinga út á landsbyggðina.
— Fréttaritari
Aðstodarmenn
ráðherranna
Iljiirleifur Guttormsson iðnaðar-
ráðherra hefur ráðið Þorstein
Ólafsson viðskiptafræðing og
framkvæmdastjóra Kísiliðjunnar
sem aðstoðarráðherra sinn. Þor-
steinn Ólafsson lauk viðskipta-
fræðiprófi 1970 og frá þeim tíma
starfaði hann í fjármálaráðuneyt-
inu í 6 ár m.a. sem deildarstjóri.
en s.l. tvö ár hefur hann verið
annar af tveimur framkvæmda-
Georg II. Tryggvason
stjórum Kísiliðjunnar við
Mývatn.
Þá hefur Magnús H. Magnússon
heilbrigðis- og félagsmálaráðherra
ráðið a.m.k. til bráðabirgða Georg
H. Tryggvason lögfræðing sem
aðstoðarmann' sinn, en Georg
hefur nýlega látið af störfum sem
bæjarlögmaður í Vestmannaeyj-
um, en því starfi hafði hann gegnt
frá 1970.
Þorsteinn Ólafsson
Nefndin hefur látið útbúa ýmis konar efni til dreifingar um landið og hefur hún í því skyni komið sér
upp um 40 umboðsmönnum til að annast þessa dreifingu m.a. r skólum og víðar. Hér má sjá poka sem
gerðir hafa verið og auglýsingu á Strætisvögnum Reykjavíkur.
Samstarfsnefnd um reykingavarnir:
Ver ja 20 milljónum í
ár tfl reykingavarna
Reyklaus dagur 23. janúar næstkomandi
skilaði í ríkissjóð og átti hann
þar við þann kostnað sem
skapaðist vegna áhrifa reykinga
á heilsufar landsmanna, þ.e.
sjúkrakostnað, tapaðar vinnu-
stundir o.fl. Sagði Ólafur að á
vegum samstarfsnefndarinnar
væru um þessar mundir verið að
áætla þennan kostnað og væri
fljótlega hægt að birta þá
samantekt. í ár fær samstarfs-
nefndin um reykingavarnir til
ráðstöfunar af fjárlögum 20
milljónir króna og er það
samsvarandi hálfu prósenti af
hreinum tekjum ríkissjóðs af
tóbakssölu. Sagði Ólafur að
þessi tala væri álíka há og
rekstrarkostnaður tveggja
sjúkrarúma á íslenzkum spítala
á ári miðað við 40 þúsund króna
daggjöld eins og eru nú á
flestum spítölum í Reykjavík.
Fé þessu er varið til verkefna
nefndarinnar sem áður er getið
um en auk þeirra er varið fé til
margvíslegra verkefna sent
miða að því að hamla gegn
tóbaksreykingum m.a. hefur
verið styrkt útkoma blaðsins
Takmark, Krabbameinsfélag
Reykjavíkur vegna fræðslu-
starfa í skólum og íslenzka
bindindisfélagið til námskeiða-
halds fyrir fólk sem vill hætta
að reykja. Þá tók nefndin þátt í
kostnaði við könnun sem nýlega
hefur verið gerð á reykingavenj-
um skólabarna í Reykjavík og í
undirbúningi er könnun á
reykingum landsmanna á vegum
Samstarfsnefndarinnar.
Áður en núverandi samstarfs-
nefnd um reykingavarnir var
skipuð starfaði önnur nefnd með
sama nafni og var meginhlut-
verk hennar að vara við hættu
af tóbaksreykingum með því að
birta auglýsingar varðandi þessi
mál.
SAMSTARFSNEFND um reykingavarnir hefur nú starfað í eitt
ár og er hlutverk hennar að annast framkvæmd laga þeirra sem
samþykkt voru á Alþingi vorið 1977 um ráðstafanir til að draga
úr tóbaksreykingum og aðrar aðgerðir á því sviði. Um þessar
mundir stendur yfir upplýsingaherferð í fjölmiðlum og víðar
undir nafninu „Varnarvika gegn reykingum.“
Samstarfsnefndina gegn
reykingavörnum skipa Ólafur
Ragnarsson ritstjóri formaður,
Ásgeir Guðmundsson skóla-
stjóri og Þorvarður Örnólfsson
framkvæmdastjóri. Esther
Guðmundsdóttir þjóðfélags-
fræðingur hefur verið ráðin
framkvæmdastjóri nefndarinn-
ar en undanfarið hefur Tómas
Þorvaldsson lögfræðinemi verið
starfsmaður nefndarinnar.
Fréttamenn voru boðaðir á fund
nefndarinnar nýlega og var þar
gerð grein fyrir ýmsu því sem á
döfinni er.
Ber þar fyrst að nefna ráð-
stefnu er verður þriðjudag 26.
september um reykingar og
heilsufar og er boðið til hennar
fulltrúum fjölmargra samtaka
og stofnana sem tengjast
reykingasjúkdómum og
reykingavörnum beint eða
óbeint. Esther Guðmundsdóttir
sagði að næsta stórverkefni
nefndarinnar væri undirbúning-
ur fyrir svonefndan reyklausan
dag sem hefur verið ákveðinn
23. janúar n.k. og er þá ætlunin
að fá sem flesta landsmenn til
þess að reykja ekki og er ráðgert
að vekja athygli á skaðsemi
tóbaks og leiðum til að draga úr
reykingum á margvíslegan hátt.
Létu nefndarmenn í ljós að bezt
væri ef þetta gæti orðið upphaf
þess að sem flestir létu af
reykingum og nefndu í því
sambandi að vinnufélagar gætu
tekið sig saman um að hætta að
reykja. Þau sögðu að slíkur
reyklaus dagur hefði m.a. verið
haldinn í Noregi og hefði hann
borið góðan árangur.
Ólafur Ragnarsson drap á
nokkur atriði varðandi reyking-
ar og sagði m.a. að óhætt væri
að fullyrða að kostnaður þjóð-
félagsins vegna reykinga lands-
manna væri niun meiri en þær
hreinu tekjur sem tóbakssalan
Ólafur Ragnarsson formaður Samstarfsnefndar um reykínga-
varnir, Esther Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri nefndarinnar
og Tómas Þorvaldsson, sem unnið hefur hjá nefndinni
undanfarna mánuði.
Júpiter endurbyggð-
ur sem loðnuskip
750 millj. kr. kostnadur vid 20 ára gamalt skip
Fiskveiðisjóður hefur samþykkt
að lána 560 milljónir króna til
cndurbóta á síðutogaranum
Júpíter sem Ilrólfur Gunnarsson
útgerðarmaður hefur keypt af
Tryggva Ófeigssyni, en Júpíter er
20 ára gamalt skip og hefur jegið
bundið um nokkurt skeið. Áætl-
aður kostnaður við endurbygg-
ingu skipsins er 750 millj. kr.
samkvæmt upplýsingum Sverns
Júlíussonar framkvæmdastjóra
Fiskveiðisjóðs. Lánar Fiskveiði-
sjóður 75% af kostnaðinum og
Byggðasjóður 10% eða 75 millj.
kr. Það er Stálvík h.f. sem hefur
gert tilboð í brcytingu á Júpíter,
en þær brcytingar verða m.a.
gerðar á skipinu að ný vél verður
sett í það og ný stjórntæki og
byggt verður yfir skipið þannig
að það mun jjeta borið
1000 — 1100 tonn. Aætlað er að
skipið verði tilbúið á veiðar í
fcbrúar n.k.
Hrólfur er einn af eigendum
Guðmundar RE sem Lýsi og mjöl
h.f. í Hafnarfirði er nú að semja
um kaup á.