Morgunblaðið - 23.09.1978, Page 1
40 SÍÐUR OG LESBOK
216. tbl. 65. árg.
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
V ance frestar
Sýrlandsferð
Hiyadh. 22. sept. Reuter.
CYRUS Vance. utanríkisráð-
herra Bandarikjanna, tilkynnti í
dajf að hann heíði frestað ferð
sinni til Sýrlands um einn sólar-
hrinn að beiðni Hafez A1 Assad
forseta.
Damaskus verður síðasti við-
komustaðurinn í ferð þeirri sem
Vance fór til Miðausturlanda til
að útskýra samkomulagið í Camp
David og tryggja stuðning við
það. Vance hefur rætt við stjórnir
Saudi-Arabíu og Jórdaníu um
samkomulagið og sagði í Riyadh í
dag að loknum þessum viðræðum,
að hann væri hvorki bjartsýnn né
svartsýnn á þá afstöðu sem
stjórnir landanna tækju að lok-
um. Þær hafa báðar sagt að þær
hafi ekki tekið endanlega ákvörð-
un.
Háttsettur bandarískur emb-
ættismaður sagði í dag að Banda-
ríkin mundu styðja áframhaldandi
Callaghan kveður Begin í London áður en hann fór til Kano í Nígeríu og Begin til ísraels. Begin gaf
Callaghan skýrslu um samkomulagið í Camp David.
dvöl ísraelsks herliðs á vestur-
bakka Jórdanár að loknum fyrir-
huguðum fimm ára aðlögunartíma
ef það reyndist nauðsynlegt. Hann
sagði að hlutaðeigandi aðilar
mundu ræða fyrirkomulag örygg-
ismála að loknum fimm ára
tímanum.
Hann sagði líka að bandaríski
ræðismaðurinn í Jerúsalem hefði
átt undirbúningsviðræður við leið-
toga Palestínumanna á vestur-
bakkanum um samkomulagið í
Camp David. Hann sagði að þeir
væru ýmist með eða á móti
samkomulaginu.
Anwar Sadat forseti sagði í
Rabat, þar sem hann hefur reynt
að fá stuðning Marokkóstjórnar
við samkomulagið í Camp David,
að hann mundi halda friðartil-
raunum sínum til streitu því hann
vildi uppræta þjáningar Palestínu-
Araba sem búa við hernám
Israelsmanna.
Borgin Estele
riúkandi rústir
Estele. Nicarajfua, 22. september. Reuter.
BORGIN Estele í norðurhluta
Nicaragua lá í rjúkandi rústum í
dag þegar hermenn stjórnarinn-
ar þögguðu niður í síðustu
leyniskyttum uppreisnarmanna
með skriðdreka- og eldflauga-
skothríð.
Allar hyggingar í miðborginni
bera mcrki vélbyssuskothríðar og
miklu alvarlegra tjón hafði orðið
á mörgum byggingum. Bygging-
ar við aðaltorgið cru rjúkandi
rústir eftir eldflaugaskothrfð
Frjálst
fall
Lexinjfton. Kentucky. — 22. sept. — AP.
TUTTUGU og sjö ára gamall
ofurhugi og staðgengill kvik-
myndaieikara A. Bakunas slas-
aðist á fimmtudag. cr hann
gerði tilraun til að setja heims-
met í frjálsu loftstökki án
fallhlífar.
Hann stökk af þaki bygging-
ar úr 98 metra hæð með nálægt
200 km hraða á klukkustund.
en loftfylltir plastbelgir. sem
hann ætlaði að lenda á, rifnuðu
er hann lenti.
Ilann hefur stokkið ámóta
stökk 2500 sinnum og segist
aðeins hafa meiðst tvisvar. í
þessari tilraun ætlaði hann að
rcyna að endurheimta heims-
met sitt í frjálsu loftstökki. sem
hann hafði átt til skamms tfma.
Ekki var vitað hversu meiðsli
hans voru alvarleg.
flugvéla stjórnarinnar og aðal-
hótelið. Europa. er brunnið til
kaldra kola.
Tvö sviðin lík lágu á aðaltorg-
inu og óstyrkir hermenn skutu
öðru hverju til þess að fæla burtu
þjófa sem létu greipar sópa í
verzlunum og höfðu á brott með
sér útvarpsviðtæki. saumavélar
og íatnað.
Starfsmenn Rauða krossins
kváðust háfa fundið fjöldagröf
sem að minnsta kosti 50 lík höfðu
verið látin i meðan stóð á 12 daga
uppreisn borgarbúa gegn stjórn
Anastasio Somoza forseta. Estele
hefur orðið harðast úti þeirra
fjögurra bæja sem hafa risið gegn
stjórninni og síðasti bærinn sem
þjóðvarðliðið braut á bak aftur.
Þjóðvarðliðið beitti flugvélum
búnum eldflaugum,
Sherman-skriðdrekum og bryn-
vörðum vögnum búnum vélbyssum
til að hrekja síðustu uppreisnar-
mennina úr bænum. Skothylki við
götuvígi uppreisnarmanna sýna að
unglingarnir sem mönnuðu þau
beittu frumstæðum vopnum.
Grátandi kona benti á gapandi
sprengjuholu á húsi nokkru og
sagði: „Þeir komu í brynvagni og
fóru að skjóta. Við hrópuðum að
það væru börn þarna inni en þeir
létu það ekki á sig fá.“
Maður nokkur sagði: „Þú getur
sagt öllum að þeir eru búnir að
afgreiða Estele.“
Kaunda leggur
fast að Bretum
Kano. Níjferíu 22. sépt. Reutor.
JAMES Callaghan, forsætisráð-
herra Breta. átti í dag mikilvæg-
ar viðræður við Kenneth Kaunda,
forseta Zambíu, í Kano í Nígeríu
um deilurnar um brot á olíubann-
inu á Rhódesíu og hið versnandi
ástand í sunnanverðri Afríku.
Refsiaðgerðirnar gegn
Rhódesíu bar þó lítið á góma á
fyrsta fundinum samkvæmt
brezkum heimildum. Viðræðurn-
ar geta orðið stormasamar og
haft er eftir zambiskum heimild-
um að Kaunda muni krefjast þess
að Bretar lofi því að afneita Ian
Smith. forsætisráðherra
Rhódesíu.
í fylgd ineð Callaghan eru David
Owen utanríkisráðherra og Martin
Lunch, yfirmaður Afríkudeildar
þróunarmálaráðuneytisins, og
nærvera hans þykir benda til þess
að Bretar séu þess albúnir að
bjóða Zambíumönnum fjárhagsað-
stoð.
Kosningar
1 Portúgal?
Lissahon. 22. september. Reuter.
ANTONIO Ramalho Eanes for-
seti Portúgals varaði þjóðina við
því í kvöld að nýjar þingkosning-
ar væru óhjákvæmilegar innan
skamms ef ekki tækist að mynda
ríkisstjórn sem heíði meirihluta á
þingi.
Ilann sagði að enginn stjórn-
málaflokkur hefði lagt fram
nýjar tillögur til lausnar
stjórnarkreppunni. Þetta er
fyrsta opinbera yfirlýsing for-
setans síðan þingið felldi fyrir
átta dögum 17 daga stjórn
iðnrekandans Alfredo Nobre da
Costa sem hann fól stjórnarmynd-
un.
Tveir helztu stjórnmála-
flokkarnir, sósíalistaflokkur Mario
Soares og miðhægri flokkur sósíal-
demókrata, hafa þegar hafið
virkan kosningaundirbúning þótt
kosningar eigi ekki að fara fram
að réttu lagi fyrr en 1980.
Eanes forseti vísaði á bug
ásökunum um að hann væri að
reyna að grafa undan flokkunum
og kenndi þeim um stjórnar-
kreppuna. Hann sagði að ástandið
versnaði óðum og að þar með
drægi úr vonum að hægt væri með
lýðræðislegum ráðum að leysa það.
Hann sagði að um fjóra kosti
væri að ræða: (1) Samkomulag
milli flokkanna sem nyti stuðnings
meirihluta á þingi. (2) Skipun
forsætisráðherra sem væri fyrir-
fram viss um stuðning meirihluta
þingsins. (3) Skipun stjórnar sem
semdi ný kosningalög og kosning-
ar. (4) Myndun nýrrar stjórnar
sem hefði sama verkefni eða
þingrof og nýjar kosningar innan
90 daga.