Morgunblaðið - 23.09.1978, Síða 1

Morgunblaðið - 23.09.1978, Síða 1
40 SÍÐUR OG LESBOK 216. tbl. 65. árg. LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. V ance frestar Sýrlandsferð Hiyadh. 22. sept. Reuter. CYRUS Vance. utanríkisráð- herra Bandarikjanna, tilkynnti í dajf að hann heíði frestað ferð sinni til Sýrlands um einn sólar- hrinn að beiðni Hafez A1 Assad forseta. Damaskus verður síðasti við- komustaðurinn í ferð þeirri sem Vance fór til Miðausturlanda til að útskýra samkomulagið í Camp David og tryggja stuðning við það. Vance hefur rætt við stjórnir Saudi-Arabíu og Jórdaníu um samkomulagið og sagði í Riyadh í dag að loknum þessum viðræðum, að hann væri hvorki bjartsýnn né svartsýnn á þá afstöðu sem stjórnir landanna tækju að lok- um. Þær hafa báðar sagt að þær hafi ekki tekið endanlega ákvörð- un. Háttsettur bandarískur emb- ættismaður sagði í dag að Banda- ríkin mundu styðja áframhaldandi Callaghan kveður Begin í London áður en hann fór til Kano í Nígeríu og Begin til ísraels. Begin gaf Callaghan skýrslu um samkomulagið í Camp David. dvöl ísraelsks herliðs á vestur- bakka Jórdanár að loknum fyrir- huguðum fimm ára aðlögunartíma ef það reyndist nauðsynlegt. Hann sagði að hlutaðeigandi aðilar mundu ræða fyrirkomulag örygg- ismála að loknum fimm ára tímanum. Hann sagði líka að bandaríski ræðismaðurinn í Jerúsalem hefði átt undirbúningsviðræður við leið- toga Palestínumanna á vestur- bakkanum um samkomulagið í Camp David. Hann sagði að þeir væru ýmist með eða á móti samkomulaginu. Anwar Sadat forseti sagði í Rabat, þar sem hann hefur reynt að fá stuðning Marokkóstjórnar við samkomulagið í Camp David, að hann mundi halda friðartil- raunum sínum til streitu því hann vildi uppræta þjáningar Palestínu- Araba sem búa við hernám Israelsmanna. Borgin Estele riúkandi rústir Estele. Nicarajfua, 22. september. Reuter. BORGIN Estele í norðurhluta Nicaragua lá í rjúkandi rústum í dag þegar hermenn stjórnarinn- ar þögguðu niður í síðustu leyniskyttum uppreisnarmanna með skriðdreka- og eldflauga- skothríð. Allar hyggingar í miðborginni bera mcrki vélbyssuskothríðar og miklu alvarlegra tjón hafði orðið á mörgum byggingum. Bygging- ar við aðaltorgið cru rjúkandi rústir eftir eldflaugaskothrfð Frjálst fall Lexinjfton. Kentucky. — 22. sept. — AP. TUTTUGU og sjö ára gamall ofurhugi og staðgengill kvik- myndaieikara A. Bakunas slas- aðist á fimmtudag. cr hann gerði tilraun til að setja heims- met í frjálsu loftstökki án fallhlífar. Hann stökk af þaki bygging- ar úr 98 metra hæð með nálægt 200 km hraða á klukkustund. en loftfylltir plastbelgir. sem hann ætlaði að lenda á, rifnuðu er hann lenti. Ilann hefur stokkið ámóta stökk 2500 sinnum og segist aðeins hafa meiðst tvisvar. í þessari tilraun ætlaði hann að rcyna að endurheimta heims- met sitt í frjálsu loftstökki. sem hann hafði átt til skamms tfma. Ekki var vitað hversu meiðsli hans voru alvarleg. flugvéla stjórnarinnar og aðal- hótelið. Europa. er brunnið til kaldra kola. Tvö sviðin lík lágu á aðaltorg- inu og óstyrkir hermenn skutu öðru hverju til þess að fæla burtu þjófa sem létu greipar sópa í verzlunum og höfðu á brott með sér útvarpsviðtæki. saumavélar og íatnað. Starfsmenn Rauða krossins kváðust háfa fundið fjöldagröf sem að minnsta kosti 50 lík höfðu verið látin i meðan stóð á 12 daga uppreisn borgarbúa gegn stjórn Anastasio Somoza forseta. Estele hefur orðið harðast úti þeirra fjögurra bæja sem hafa risið gegn stjórninni og síðasti bærinn sem þjóðvarðliðið braut á bak aftur. Þjóðvarðliðið beitti flugvélum búnum eldflaugum, Sherman-skriðdrekum og bryn- vörðum vögnum búnum vélbyssum til að hrekja síðustu uppreisnar- mennina úr bænum. Skothylki við götuvígi uppreisnarmanna sýna að unglingarnir sem mönnuðu þau beittu frumstæðum vopnum. Grátandi kona benti á gapandi sprengjuholu á húsi nokkru og sagði: „Þeir komu í brynvagni og fóru að skjóta. Við hrópuðum að það væru börn þarna inni en þeir létu það ekki á sig fá.“ Maður nokkur sagði: „Þú getur sagt öllum að þeir eru búnir að afgreiða Estele.“ Kaunda leggur fast að Bretum Kano. Níjferíu 22. sépt. Reutor. JAMES Callaghan, forsætisráð- herra Breta. átti í dag mikilvæg- ar viðræður við Kenneth Kaunda, forseta Zambíu, í Kano í Nígeríu um deilurnar um brot á olíubann- inu á Rhódesíu og hið versnandi ástand í sunnanverðri Afríku. Refsiaðgerðirnar gegn Rhódesíu bar þó lítið á góma á fyrsta fundinum samkvæmt brezkum heimildum. Viðræðurn- ar geta orðið stormasamar og haft er eftir zambiskum heimild- um að Kaunda muni krefjast þess að Bretar lofi því að afneita Ian Smith. forsætisráðherra Rhódesíu. í fylgd ineð Callaghan eru David Owen utanríkisráðherra og Martin Lunch, yfirmaður Afríkudeildar þróunarmálaráðuneytisins, og nærvera hans þykir benda til þess að Bretar séu þess albúnir að bjóða Zambíumönnum fjárhagsað- stoð. Kosningar 1 Portúgal? Lissahon. 22. september. Reuter. ANTONIO Ramalho Eanes for- seti Portúgals varaði þjóðina við því í kvöld að nýjar þingkosning- ar væru óhjákvæmilegar innan skamms ef ekki tækist að mynda ríkisstjórn sem heíði meirihluta á þingi. Ilann sagði að enginn stjórn- málaflokkur hefði lagt fram nýjar tillögur til lausnar stjórnarkreppunni. Þetta er fyrsta opinbera yfirlýsing for- setans síðan þingið felldi fyrir átta dögum 17 daga stjórn iðnrekandans Alfredo Nobre da Costa sem hann fól stjórnarmynd- un. Tveir helztu stjórnmála- flokkarnir, sósíalistaflokkur Mario Soares og miðhægri flokkur sósíal- demókrata, hafa þegar hafið virkan kosningaundirbúning þótt kosningar eigi ekki að fara fram að réttu lagi fyrr en 1980. Eanes forseti vísaði á bug ásökunum um að hann væri að reyna að grafa undan flokkunum og kenndi þeim um stjórnar- kreppuna. Hann sagði að ástandið versnaði óðum og að þar með drægi úr vonum að hægt væri með lýðræðislegum ráðum að leysa það. Hann sagði að um fjóra kosti væri að ræða: (1) Samkomulag milli flokkanna sem nyti stuðnings meirihluta á þingi. (2) Skipun forsætisráðherra sem væri fyrir- fram viss um stuðning meirihluta þingsins. (3) Skipun stjórnar sem semdi ný kosningalög og kosning- ar. (4) Myndun nýrrar stjórnar sem hefði sama verkefni eða þingrof og nýjar kosningar innan 90 daga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.