Morgunblaðið - 23.09.1978, Page 14

Morgunblaðið - 23.09.1978, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1978 Fréttaskýring: CIMIJ CIMKJI áður í sögu íslenzka lýöveldisins hefur setiö hér aö völdum ríkisstjórn eins wllTII^I Samansett, flokkslega séö, og sú, er nú trónar á valdasessi: samstjórn Framsóknarflokks, Alþýðuflokks og Alþýðubandalags — undir forsæti þáv. formanns Framsóknarflokksins. Framsóknarflokkurinn fór, auk stjórnarforystu, með fjármál, dómsmál, landbúnaðarmál og hluta samgöngumála. Alþýðuflokkurinn fór með utanríkismál þ.á m. framkvæmd varnarsamnings, og menntamál. Alþýðubandalagið fór með atvinnumál, þ.á m. sjávarútvegsmál, viðskiptamál, heilbrigðismál og félagsmál. * ___ __________ CT IORN bF^^I var mynduð eftir sögulegar kosningar áriö 1956 þar sem ^ ■ *»V/nli Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur höföu „samspil" um framboö, sem almenningur kallaði „hræðslubandalag", og stefndu að þingmeirihluta í skjóli úreltrar kjördæmaskipunar. Alþýðubandalagið bauð þá og fyrst fram undir því nafni, sem þá var kosningabandalag Sósíalistaflokksins og utanaökomandi afla, s.s. Hanríibals Valdimarssonar. Ml A prjT l/AD líkt um þessa stjórn, bæði um samsetningu og „efnahagsúrræði", og **1^"*'^ ■ ** ^"* eftirlíkingu hennar nú. Þaö er því e.t.v. ómaksins vert að glugga eilítiö í aðdraganda hennar og efnahagsaðgeröir, hvort heldur sem menn trúa á máltækið: „Sagan endurtekur sig“ eða ekki. Þrátt fyrir margendurtekin loforð bæði Alþýðuflokks- og Fram- sóknarmanna í kosningabarátt- unni um að ekkert samstarf yrði haft við kommúnista (Alþýðu- bandalag), var gengið til stjórnar- samstarfs við þá eftir kosning- arnar. Hin nýja stjórn tók við völdum 24. júlí 1956. Ráðherrar hennar vóru þessir: • Hermann Jónasson: forsætis- ráðherra, dómsmál og landbún- aðarmál. • Eysteinn Jónsson: fjármái og hluti samgöngumáia. • Lúövík Jósepsson: atvinnumál og viðskiptamál. • Hannibal Valdimarsson: félags- mál og heilbrigðismál. • Guðmundur I. Guðmundsson: utanríkismál, þ.á m. framkvæmd varnarsamnings. • Gylfi Þ. Gíslason: menntamál og iðnaðarmál. Jólagjöf vinstri stjórnar Hin nýja „vinstri" stjórn setti bráöabirgðalög um bindingu kaupgjalds og verðlags frá 1. september þ.á. til ársloka; kaup- gjaldsvísitala skyldi haldast óbreytt þennan tíma en niður- greiöslur vóru auknar og bann við verðhækkunum sett á. Þá vóru sett — í desember — lög um útflutningssjóð o.fl., sem m.a. fólu í sér: • a) Gengislækkun með yfir- færslugjaldi, • b) Aukna skattheimtu með sölu- skattsauka, innflutningsgjaldi o.fl. • c) Auknar styrkveitingar til út- flutningsframleiöslu. • d) Bindingu verðlagsuppbótar á laun í 3 mánuði. Vinstri stjórnin ’56—’58 og e fnahagsúrrœði hennar Aödragandi í marzmánuði 1956 samþykkti flokksþing Framsóknarflokksins að slíta stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn — þótt eftir lifði eitt ár kjörtímabilsins. Þessir flokkar höfðu þá setið saman 9 ár í stjórnarsamstarfi, þar af 6 ár tveir einir, en Sjálfstæðisflokkur- inn átti að baki 17 ára samfellda setu í ríkisstjórn. Þessi 17 ára samfellda stjórnar- seta Sjálfstæöisflokksins reyndist tími mikilla framfara í þjóðlífinu, ekki sízt varðandi uppbyggingu íslenzkra atvinnuvega, rafvæð- ingu landsins, íbúöabyggingar, verzlunarfrelsi og lækkun skatta. Kjörtímabilið fyrir þessar sögu- legu kosningar vóru tekjuskattar einstaklinga lækkaðir aö meðal- tali um 29% og félög fengu 20% skattalækkun. Sparifé var gert skattfrjálst og leyst undan fram- talsskyldu. Fiskveiðiflotinn, sem og fiskveiðasjóður, stórlega efld- ir. Um þetta tímabil sagði Ólafur Thórs í landsfundarræðu (1959); „En fram að þessum tíma (þ.e. 1955) hafði vísitalan staðið óbreytt frá því að Sjálfstæðis- flokkurinn myndaði stjórn 1953, sparifé vaxið með risaskrefum og yfirleitt allar loftvogir efnahags- málanna staöið vel. Aldrei haföi þjóðin getaö byggt jafn mikiö, ræktað jafn mikið, keypt jafn marga vélbáta eða yfirleitt aukið framkvæmdir jafn mikið sem þá; aldrei eytt jafn miklu, aldrei safnað jafn miklu, og aidrei efnast jafn mikið sem á þessum árum. Og flestar vóru fram- kvæmdirnar reistar á sæmilega traustum grunni, þó nú sé flest úr skorðum gengið eftir 5 missera óstjórn undir forystu Framsókn- arflokksins. Höfðu íslendingar þó lítil lán tekið til framkvæmdanna á þessu tímabili.“ Úrslit kosninganna — stjórnarmyndun Ekki náöi hræöslubandalagsút- gerðin því aflamagni á atkvæöa- miðum kosninganna 1956 og aö var stefnt eöa að nægöi til þingmeirihluta. Sjálfstæöisflokk- urinn bætti við sig 6.300 atkvæð- um sem þá var mesta atkvæða- aukning sem nokkur íslenzkur stjórnmálaflokkur hafði áöur hlotið í kosningum. Hann fékk 42.4% atkvæði í staö 37.1% 1953. Alþýðuflokkur og Fram- sóknarflokkur (hræöslubandaiag- ið) fengu 33.8% atkvæöa í stað 37.4% 1953. Hermann Jónasson, Þáverandi forsætisráðherra, kunngerir Alþingi aö hann hafi beðist lausnar fyrir þá vinstri stjórn (1956 — 1958), sem eins var saman sett, flokkslega séð, og sú er nú situr. Ríkisstjórn var mynduð 24.7 ‘56 — baðst lausnar 4.12. ‘58 „Engin samstaða, ” — ný verðbólgualda ”, sagði forsœtisráðherrann, er hann baðst lausnar, eftir sögulega heimsókn á ASI-þing Forsíöur dagblaðanna Tímans og Þjóðviljans (5. desember 1958), daginn eftir að vinstri stjórnin gafst upp, eftir tæplega 2 og % árs setu. Þessi lög fólu nánar tiltekið í sér afnám bátagjaldeyriskerfis og niðurlagningu framleiðslusjóðs. Hinsvegar var stofnaður sérstak- ur útflutningssjóður til að annast greiðslur „styrkja og uppbóta” til útflutningsframleiðslunnar. Tog- arastyrkjum var fram haldið en breytt. í stað bátagjaldeyriskerfis voru bátaútvegsmönnum greidd- ar 24.45% útflutningsuppbætur af fob-verðmæti. Verðbætur til fiskvinnslustöðva vóru og mis- munandi prósentur af fob-verð- mæti. Veitt var heimild til niður- greiðslu brennsluolíu til sjávarút- vegs (sem var algjör nýjung). Uppbótargreiðslum vegna út- flutnings landbúnaðarafuröa var fram haldið. Tekjuöflun til útflutn- ingssjóðs var þessi: • 1) 16% yfirfærslugjald, sem var nýr skattur. • 2) 10% gjald á farmiða til útlanda, sem einnig var nýr skattur. • 3) 10% gjald af tryggingarið- gjöldum — nýr skattur. • 4) „Söluskattsauki" 6% í út- flutningssjóð (nýr skattur), auk 3% í ríkissjóð. • 5) Skattur af innlendum toll- vörutegundum. • 6) Leyfisgjald af bílum var hækkað úr 100% í 125% af fob-virði. • 7) Gjald af gjaldeyrisleyfum til utanferða hækkað úr 25% í 40%. • 8) Innflutningsgjöld (gjaldstofn: fob-verð að viðbættu yfirfærslu- gjaldi, aöflutningsgjaldi og 10%) lagt á um % hl. innflutningsins, 8%—11% (þriðjungur innflutn- ings), 35%, 55%, 70% og 80%. Kom í stað 9% frámleiðslusjóðs- gjalds af innflutningi. Verðlagsuppbót á laun skyldi haldast óbreytt til 28/2/’57, frá 1/3/’57 og á 3ja mán. fresti skyldi síðan greiöa verölagsuppbót skv. kaupgreiösluvísitölu (178) að viðbættum þeim stigum, sem vísitala framfærslukostnaðar ein- um mánuði fyrr var hærri (lægri) en 186. Kunnugleg orö í eyrum Fátt var nýtt í þessum efnahags- ráðstöfunum, utan fjölbreytnin í skattheimtunni, hugmyndaauögin í aðferðum til að ná í aflafé almennings inn í ráðstöfunar- summu stjórnarherranna. Fyrir þessar kosningar (eins og fleiri) vóru þó fram sett fögur fyrirheit um annaö en raun varð á eftir þær. í stefnuskrá „hræðslu- bandalagsflokkanna” stóöu þessi orð: „Nú verður að brjóta blað í íslenzkum stjórnmáium. Ef ekki

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.