Morgunblaðið - 23.09.1978, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 23.09.1978, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1978 Árni Sigurjónsson: Ad búa sér til Kommúnista Svar til Hannesar Gissurarsonar í fyrstu grein sinni um það hvort Háskóli Islands sé rann- sóknarstofnun eða róttæklinga- hreiður (í Mbl. þ. 9/9 sl.) gerir Hannes Gissurarson ákaft tilraun til að ófrægja fyrrum kennara sinn, prófessor Pál Skúlason. Meginhluti þessarar greinar geng- ur út á að sýna fram á að bók Páls, Ilugsun og veruleiki, sé marxískt áróðursrit og lýkur á þeirri fullyrðingu að það sé ekki sæm- andi að höfundurinn sé kennari við Háskólann. Eg er þeirrar skoðunar að þessa bók Páls sé óréttmætt að' kalla áróðursrit og tel hana ekki á neinn hátt flytja marxískan boð- skap. Auk þess get ég bætt því við að ég efast um að höfundur hennar sé marxisti og reikna heldur ekki með að yfirlýstir marxistar verði til þess að svara ómaklegri árás Hannesar. Hins vegar álít ég, eftir að hafa notið kennslu prófessors- ins um tíma, að hann sé Háskólan- um einstaklega þarfur maður fyrir það að hann er áhugasamur í starfi, smitar frá sér áhuganum og er vel þokkaður af nemendum. Ég vil hér svara grein Hannesar og rekja sumar af rangfærslum hans. Fyrst má nefna að Hannes gefur í skyn að Páll hafi verið launaður af H.I. í átta ár einvörðungu til að skrifa bækur („Hann hefur þegið laun af Háskóla Islands — eða öllu heldur af íslenzkum almenn- ingi — í átta ár og geta áhuga- menn um arðbærar fjárfestingar hins opinbera reiknað það út, ef þeir kjósa, hvað blaðsíðan í bókinni hafi kostað almenning." og er það einfaldlega rangt. Til þess er ætlast af prófessorum að þeir sinni rannsóknarstörfum, og það hefur Páll ekki vanrækt, enda fjöldi útgefinna bóka enginn mælikvarði á slíkt. Venjan er sú að kennsluskylda prófessoranna sé það mikil að rannsóknir verði að sitja á hakanum. Páll hefur lagt mikið kapp á bætta kennslu í forspjallsvísindum, og honum hef- ur tekist vel. Best gæti ég trúað að það þyki gott meðal háskóla- prófessora að gefa út vísindarit á átta ára fresti. Ein „ásökun" Hannesar er sú að Páll noti orð á óvenjulegan hátt, og tekur hann sem dæmi orðið „mótsögn". Ekkert er athugavert •við það að rithöfundur leggi aðra merkingu í orð en Hannes. Það er ekki einu sinni rangt að nota orð vísvitandi öðru vísi en viðurkennd- ar orðabækur gera ráð fyrir. Merking orða tekur breytingum og þá stundum með þeim hætti að þau eru skýrgreind að nýju í ákveðnum tilgangi, ef til vill fræðilegum. Hannes sakar Pál um „almenna vanþekkingu" og rökstyður skoðun sína með því að benda á að Páll lét ógert að nefna tvær ákveðnar bækur í riti sínu sem Hannes hefði viljað hafa með. Ég skil hugtakið „almenn vanþekking" á annan hátt. Hér er ekki um að ræða yfirsjón né viljandi mistök hjá Páli. Eða veit lesandinn að Ódauð- leiki mannsins eftir James kom út á íslensku árið 1905 og „Socialism- inn eftir Gunnar Arnason í tveimur bindum 1935—1936“? Ef lesandinn vissi þetta ekki, þá blasir við „almenn vanþekking" hans samkvæmt orðanotkun Hannesar Gissurarsonar. Ég get líka sagt við Hannes: af hverju skrifaðir þú ekki í grein þinni að íslenzk málfræði eftir Björn Guðfinnsson kom út í fimmtu útgáfu árið 1958? Og skáldsagan Sjálfstætt fólk árin 1934 og 5. Hvílík hyldýpis vanþekking! Hvi- lík yfirsjón! Mér þykir líka ankannalegt að Hannes skuli kalla fasista „þjóð- ernis-samhyggjumenn“. Hverjum þætti það ekki undarlegt orðalag ef í Morgunblaðinu stæði svofelld fyrirsögn: „Stjórn þjóðernis-sam- hyggjumanna í Chíle völd að morðum í þúsundatali?" eða ef rætt væri um „þjóðernis-sam- hyggjulegar pyntingabúðir,,? Það er og hlægileg aðferð hjá Hannesi að reyna að níða Pál með því að segja hann hrifinn af heimspekingnum Sartre, Heidegg- er og Hegel, sem hver á sinn hátt hafi stutt alræðishyggju. Þessir þrír menn eru með merkustu Þeir standa að útgáfu bókarinnar um íjárfestingu, f.v.. Gunnar H. Hálfdánarson, Sigurður Helgason, Gunnar J. Friðriksson og Jóhann Briem. Ljósm. Rax. Kynna bók um fjárfestingu Fjárfestingafélag íslands heíur látið taka saman bók sem inni- heldur leiðbeiningar um fjárfest- ingu og er hún samin fyrir hinn almenna borgara. Ráðgert er að bókin komi út í næsta mánuði en það er útgáfufyrirtækið Frjálst framtak h.f., sem gefur bókina út. Gunnar J. Friðriksson formaður Fjárfestingafélags íslands sagði á fundi með fréttamönnum nýlega að eftir að Verðbréfamarkaður félagsins hóf starfsemi sína fyrir rúmum 2 árum hefði það fljótlega komið í ljós aö fólk virtist skorta upplýsingar og fróðleik um hvers konar fjárfestingu og viðskipti. Hefði því verið horfið að því að hefja samningu bókar um fjárfest- ingu og ritstýrði henni Gunnar H. Hálfdánarson viðskiptafræðingur, forstöðumaður Verðbréfamark- aðarins. Naut hann og aðstoðar starfsmanna Hagvangs. Gunnar H. Hálfdánarson sagði á fundinum með fréttamönnum að fáfræði manna um viðskipti hefði jafnvel komið þeim í koll og svo virtist sem almenningur væri oft haldinn misskilningi og ákvarðanir um fjárfestingu stundum byggðar á vanþekkingu. „Fjárfestingahandbókin fjallar um fjármál einstaklinga og leggur áherzlu á að kynna helztu reglur sem beita skal við mat fjárfest- inga, kosti þeirra og galla. Þá fjallar bókin um á hvern hátt einstaklingar geta komið betra skipulagi á fjármál sín. Bókin fer ítarlega ofan í helztu tegundir fjárfestinga hér á landi og lyftir hulunni af margs konar viðskipt- um, sem fram að þessu hefur einungis verið á færi fárra að stunda með árangri vegna almenns þekkingarskorts. í fáum orðum sagt leggur bókin áherzlu á að einstaklingar fari ofan í saumana á eigin fjármálum með því að kanna skipulega fjárráðstafanir sínar og áætla greiðslugetu sína með ákveðnu millibili. Þessi atriði eru ákaflega mikilvæg fyrir fólk sem stendur í framkvæmdum og er með bogan’n spenntan til hins ýtrasta. Ljóst er því að bókin á brýnt erindi til margra landsmanna og ekki hvað sízt til ungs fólks sem er að hefja búskap og til þeirra sem vilja skipuleggja fjármál sín,“ segir m.a. í samantekt um bókina. Hver kafli bókarinnar er sjálf- stæður og verður fyrra bindi hennar 13 kaflar. Síðara bindið mun fjalla um fjármál fyrirtækja en ekki er vitað hvenær af útgáfu þess verður. Kaflaheiti bókarinnar eru: Að fjárfesta, fjármagn á Islandi, tryggingar, innlánsstofn- anir, spariskírteini ríkissjóðs, happdrættisskuldabréf ríkissjóðs, veðskuldabréf, hlutabréf, fasteign- ir, bílaviðskipti, fyrirtækjarekst- ur, ýmsir munir og heimilisbók- hald. heimspekingum síðustu 200 ára, og þótt Hannes geti fundið í viða- miklum ritverkum þeirra staði, sem benda til „alræðishyggju" þá er hvorki neitt sem bendir til að Páll dáist að þeim af því að þeir hafi stutt nasista eða kommúnista, né heldur gefur það til kynna að Páll sé „róttæklingur", „ósæmandi Háskólanum" og bók hans „áróð- ursrit". í Hugsun og veruleika útskýrir Páll hugtakið „mótsögn" með því að tala um ýmsar togstreitur milli andstæðra þátta. Eitt af dæmum hans er togstreitan milli atvinnu- rekenda og verkalýðs. Allir vita að slík togstreita á sér stað, þessir aðilar takast á með til dæmis verkföllum og verkbönnum, og er leitt til þess að vita að Hannes áttar sig ekki á því. Alþingismenn og alls konar framámenn í stjórn- málum og atvinnulífi tala þannig um átök á vinnumarkaðnum og verða þó ekki fyrir því að vera nefndir róttæklingar af Hannesi eins og prófessor Páll. Á einum stað í bók sinni útskýrir Páll kenningu Marx um þróun framleiðsluaflanna. Til að skýra marxísku afstöðuna tekur hann dæmi um íslenskan sjávarút- veg þar sem marxisti teldi að framleiðslutengslum sé haldið við af ríkisvaldinu. Hannes segir að í þessu felist kenning um vanda íslensks sjávarútvegs. En bók Páls er full af útskýringum á heim- spekikenningum, og hann þarf ekki að vera þeim öllum sammála. Þannig þarf hann heldur ekki að vera marxisti þótt hann útskýri skoðanir Marx, og hann þarf ekki að hafa neina sérstaka skoðun um vanda sjávarútvegsins þótt hann útskýri marxíska afstöðu með dæmi þaðan. Hannes, þú sem vitnar í Hegel og útskýrir skoðun hans, ert þú ekki þá hegelisti? Eða alræðissinni? Yfirsjón kallar Hannes það, að þar sem Páll nefnir Kommúnista- ávarpið skuli hann láta ógert að halda því fram að spá Marx um hrun kapítalismans hafi enn ekki ræst. Er ekki nauðsyn á því, að dómi Hannesar, að geta þess ávallt er maður nefnir Marx á nafn að hann hafi verið falsspámaður því margt nýtt hafi komið á daginn síðan karlinn lifði? Eða þegar maður nefnir rit Newtons að undirstrika rækilega að menn viti betur en hann, sem dó líka fyrir langalöngu? Þótt ég tryði ekki á Biblíuna, þá teldi ég þarflaust að saka þann fræðimann, sem um hana skrifaði, um yfirsjónir þótt hann léti ógert að gagnrýna sumar kenningar hennar eða segja að nútímamenn viti betur en höfund- ur Biblíunnar því það sé alls ekki hægt að breyta vatni í vín með bænum einum saman. Eins kallar Hannes það yfirsjón hjá Páli að nefna ekki í bók sinni höfundana Popper, Avineri, Schumpeter, Acton og Tucker, sem allir hafa skrifað um Marx. Þetta er vitanlega engin yfirsjón. Það var heldur engin yfirsjón að láta ógert að nefna hundruð eða þúsundir annarra höfunda, sem Efnt til fræðslu- námskeiða fyrir foreklra ungiinga Geðverndarfélag íslands hefur ákveðið að taka upp nýjung, sem í því felst að efna til námskeiðs fyrir foreldra unglinga á aldrin- um 12—18 ára. Er það námskeið, sem feist í 10 fundum á mánudagskvöld- um með fræðslu fyrir al- menning eða foreldra al- mennt sem ekki endilega eiga við við nein sérstök vandamál að stríða í sínu uppeldisstarfi. Tveir félagsráðgjafar, Sigrún Júlíusdóttir, yfirfélagsráð- gjafi á Kleppsspítala, og Ingibjörg Pála Jónsdóttir, sem er ráðgjafi Geð- verndarfélagsins og einnig félagsráðgjafi á Klepps- spítala, standa að þessu fræðslunámskeiði. Við ræddum stuttlega við þær. Sigrún er menntuð í Svíþjóð og Bandaríkjunum og nýkomin heim þaðan, eftir að hafa m a. sérhæft sig í foreldrafræðslu. — Maður finnur það svo vel, þegar heim er komið, hve lítil úrræði fólk hefur til að leita sér þekkingar og fræðslu í þessum efnum, án þess eitthvað þurfi að bjáta á. Slík fræðsla er algeng í Bandaríkjun- um og mikill áhugi á að nýta sér hana, enda Bandaríkjamenn yfir- leitt ekki hræddir við að leita sér þekkingar. Ingibjörg, sem verið hefur ráð- gjafi Geðverndarfélagsins árum sáman, sagði að til þeirra leitaði fátt annað fólk en þeir sem þegar væru búnir að reyna erfiðleika, hefðu jafnvel gengið á milli sjúkrahúsa. En nær ekkert væri leitað eftir almennri fræðslu í fyrirbyggjandi tilgangi. Og báðar tóku þær fram, að þar lægi ábyrgðin ekkert síður hjá sér- fræðingunum eh fólkinu. Þeir hefðu lítið gert til að ná til þess. En einmitt vegna þess að þær hefðu gegn um starf sitt og annarra félagsráðgjafa orðið var- ar við að mikið skortir á að fólk ætti almennt þess kost að afla sér fræðslu og leiðbeininga um upp- eldismál og önnur samskiptamál, er snerta fjölskylduna, væri nú farið af stað með þessi námskeið, sem fyrirhuguð væru á mánudags- kvöldum kl. 20—22 í húsakynnum Geðverndarfélagsins í Hafnar- stræti 5 frá 2. öktóber. Væri vonast til þess, að þeir sem áhuga hefðu á málinu hefðu samband við þær næstu daga kl. 17—21 í símum 21428 og 21601. Þær lögðu mikla áherzlu á að þær vildu ná til foreldranna beggja, ekki bara mæðranna, þar sem bæði standa að uppeldinu og því eðlilegt að báðir foreldrar afli sér þekkingar og taki jafna ábyrgð á uppeldis- málunum. — Þetta námskeið er fyrst og fremst ætlað foreldrum unglinga á

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.