Morgunblaðið - 23.09.1978, Side 17

Morgunblaðið - 23.09.1978, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1978 17 ritað hafa um Marx og kenningar hans. En hinu segi ég frá til gamans, að meðan Páll kenndi mér í H.í. fór hann talsvert með nemendum í kenningar Poppers, og ég minnist þess líka að einhverju sinni er hann var spurður hvar hægt væri að lesa eitthvað um Marx, benti hann á eina af þessum bókum, sem Hannesi eru hjartfólgnar. Ein af furðulegri árásarátyllum Hannesar gengur út á það að Páll sé tvöfaldur þegar hann leggur til að Brynjólfur Bjarnason sé heiðr- aður af Félagi áhugamanna um heimspeki. Ástæðan: Brynjólfur ritaði eitt sinn: Sósíalistaflokkur- inn „metur valdbeitingu eftir þýðingu hennar í sögulegri þróun“; en Páll hins vegar segir að skynsemi og ofbeldi séu andstæður og heimspekingurinn taki skyn- semina framyfir ofbeldið. Um þetta er það að segja að orð Brynjólfs um ofbeldið eru alls ekki höfuðkenning hans á sviði heim- speki. Og ekkert bendir til þess að Páll hafi viljað heiðra manninn fyrir að styðja ofbeldi! Öðru nær. Loks skal sagt að ég sé ekkert athugavert við orð Brynjólfs og er þeim innilega sammála, held meira að segja að sama gildi um alla stjórnmálaflokka og ekki bara Sósíalistaflokkinn. Til dæmis Sjálfstæðisflokkurinn „metur valdbeitingu eftir þýðingu hennar í sögulegri þróun“. Eg tek sem dæmi að ef asískt stórveldi hernæmi ísland og kúgaði lands- lýðinn þá myndi flokkurinn á- reiðanlega endurskoða afstöðu sína til valdbeitingar og meta út frá aðstæðunum. Af ofanrituðu sést að grein Hannesar er full af alls konar misskilningi og rangtúlkunum. Þröngsýnin stýrir penna hans. Það er vissulega áhugavert umræðu- efni að hve miklu leyti skólar hafa þýðingu í pólitísku uppeldi þegn- anna og á hvern hátt ungt fólk myndar sér skoðun á stjórnmála- flokkum. En kommúnistaveiðar Hannesar eru ekkert framlag í þeirri umræðu. Aðferð hans er sú að taka lítið rit, sem lítinn séss skipar meðal kennsluefnis Háskól- ans og lesa það svo eins og skrattinn les Biblíuna til að sýna fram á að höfundurinn sé hættu- legur skólanum eða „ósæmandi“ honum eins og hann skrifar. En þetta er allt eitt stórt vindhögg: Páll hefur ekki í frammi „áróður í skólunum", predikar ekki„hug- myndafræði alræðissinna", heldur ekki á loft „mótsögn verkalýðs og atvinnurekenda" né heldur krefst hann þjóðnýtingar, svo ég taki upp dálkafyrirsagnir í greininni. Loks heldur hann ekki fram því, sem ein fyrirsögnin segir, að Marx háfi einn leyst vanda stjórnmálanna. Ef Hannes heldur að hann hafi með þessum tilburðum sínum svarað þeirri spurningu, sem hann spyr í fyrirsögn, það er að segja hvort Háskólinn sé rannsóknar- stofnun eða róttæklingahreiður og niðurstaða hans er „róttæklinga- hreiður", þá kalla ég bæði rann- sókn hans og niðurstöður hugar- óra um veruleikann. Hitt getum við svo hugleitt til hvers það mundi leiða ef menn með skoðanir Hannesar réðu einhverju um menntamál á Is- landi. Yrði þá ef til vill heimspeki- kennsla í Háskólanum þannig að Hegel, Sartre og Heidegger féllu burt úr námsefninu? Kannski yrði „marxsinnum" eða þeim sem væru grunaðir um að vera vinstrisinnar meinað að kenna. Hver ætti þá að skera úr um hvort rit væri vinstrisinnað eða ekki? Slíkt mundi sennilega leiða til gerræðis- legra stjórnarhátta, ritskoðunar, sem spillti ritfrelsinu. Það er að minnsta kösti ekki vænleg aðferð til að sporna gegn varhugaverðri innrætingu eða áróðri í mennta- stofnunum að búa sér til kommún- ista með þeirri aðferð, sem Hannes hefur nú beitt sér til vansæmd^r. Árni Sigurjónsson Félagsráðgjafarnir Sigrún Júlíusdóttirog Ingibjörg P. Jónsdóttir. aldrinum 12—18 ára, en við munum fjalla mjög vítt um börn og unglinga, eðlileg vandamál þeirra og hvernig best sé að taka á þeim, sögðu þær. Og við viljum reyna að gera þetta í svo aðgengi- legu formi að fólk hafi áhuga á að koma og taka þátt í þessu. — Tilgangurinn er að auðvelda foreldrum að ræða við aðra foreldra um sameiginleg áhuga- mál, sem snerta uppeldi barna og skiptast á skoðunum. Enn fremur að deila eigin reynslu með öðrum. Allir foreldrar standa einhvern tíma frammi fyrir vanda, sem þeir þurfa að leita ráða um, en veigra sér oft við að hefja máls á við vini og kunningja. Jafnframt þessu hyggjumst við gefa þátttakendum kost á að tileinka sér fræðilega þekkingu og nýta hana þannig, að þeir geti beitt nýjum aðferðum í samskiptum við börn sín. — Bein fræðsla verður í formi fyrirlestra um þroska unglingsins frá barnsaldri, einkenni heil- brigðra unglingsára og almennra erfiðleika, sem fylgja því tímabili í lífi einstaklingsins. Þetta fellur undir eitt af helztu erfiðleika- skeiðum allrar fjölskyldunnar. Við munum einnig nota æfingar og gefast þátttakendum tækifæri til spurninga og umræðna. Að iokum voru þær Sigrún og Ingibjörg spurðar að því hvort þær hygðust síðar ná til annarra hópa. — Þetta er aðeins einn þáttur fjölskyldufræðslu svöruðu þær. Mjög góð reynsla hefur fengizt af því erlendis, að félagsráðgjafar og aðrar heilbrigðisstéttir tengi fræðslu starfi sínu í geðverndartil- gangi. Hér getur verið um að ræða þá hópa fólks, sem eru á því stigi í lífinu, sem það þarfnast aðstoðar eða stuðnings, svo sem vegna skilnaðar, fæðingar fyrsta barns, sj úkdóms, • dauðsfalla, ættleiðinga eða eðlilegra en oft erfiðra við- burða, sem gerast í öllum fjöl- skyldum. Ennfremur finnst okkur, að þörf væri á að gefa fólki kost á fræðslu um hjónabandið, bæði áður en sambúð hefst og í bætandi tilgangi. Við útför Keith trommuleikara Moon Á DÖGUNUM voru margir ■þekktir rokk- og popptónlist- armenn samankomnir í Gold- ers Green kirkjugarðinum til að votta hinztu virðingu trommuleikaranum Keith Moon úr hljómsveitinni WHO sem hafði látizt fáeinum dögum áður. Ekki þarf að fara mörgum orðum um þessa hljómsveit, hún er firna fræg og hefur verið við lýði í mörg ár. Keith Moon vakti löngum á sér athygli fýrir óvenjulega framgöngu og hegðan, sem Meðal syrgjenda var John Entwistle úr Who. Roger Daltrey söngvari Who. Charlie Wattsi einn af Rúllandi steinunum. Pete Townshend gítarleikari Who. ekki þótti alltaf hefðbundin. Þrátt fyrir all tryllingslegar lífsvenjur þótti hann hinn ágætasti tónlistarmaður í sinni grein. Við útförina komu vinir hans og kunningjar klæddir snyrtilegum dökkum jakka- fötum og sumir sögðu að það Keith Moon. væri að líkindum í fyrsta skipti í mörg ár, að þessir menn sæjust í slíkum klæðn- aði. Sumir höfðu meira að segja látið skera hár sitt og snyrta skegg. Vinnir og kunningjar styðja unnustuna Anette Walter Lax vtð útförina. Við athöfnina voru meðal annars móðir Keiths Moon, Kitty, og unnusta hans, An- ette Walter Lax, sem er sænskrar ættar. Þau Anette og Keith Moon höfðu kunn- gjört trúlofun sína kvöldið áður en hann lézt, en þau höfðu hins vegar búið saman um hríð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.