Morgunblaðið - 23.09.1978, Page 20

Morgunblaðið - 23.09.1978, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1578 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aðalstræti 6, sími 10100. Aðalstræti 6, sími 22480. Áskriftargjald 2000.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. V egið að eignar- réttinum Ekki fer hjá því, að mönnum þyki seinfund- ið réttlæti í samskiptum ríkisvaldsins við ein- staklinginn á stundum. Einkanlega verður þetta áberandi, þegar við völd sitja ríkisstjórnir, sem telja sig þess umkomnar að ráðskast með tekjur og eignir almennings. Þetta heitir „fjármagnstilfærsla í þjóðfélaginu" á fínu máli. Það er reynt að orða að- gerðina á ópersónulegan hátt. En eftir að farið er að beita henni, verður hún einkar persónuleg með því að farið er ofan í vasana hjá fólki. Alþýðubandalagsmenn og þeirra nótar hafa aldrei skilið þetta þjóðfélag, sem þeir hafa þó vaxið upp í. Þeir skilja ekki, að það er í eðli Islendingsins að vera fjárhagslega sjálfstæður, menn vilja búa að sínu og fyrsta markmiðið, sem ungt fólk setur sér að ná, er að eignast þak yfir höfuðið. 50% hækkun eingarskatts- ins nú bitnar á skuldlausu fólki, sem með ráðdeildar- semi og dugnaði hefur kom- ið sér upp þokkalegu hús- næði og á nokkrar eignir, sem eru afrakstur heillar starfsævi. Oft gefa slíkar eignir lítið eða ekkert í aðra hönd, eru óarðbærar, þótt á þær falli margvísleg gjöld, sem hafa farið vaxandi hin síðustu ár, enda fasteigna- gjöldin orðin verulegur þáttur í tekjuöflun sveitar- félaga. Þessi hækkun eignarskattsins bitnar þungt á slíku fólki, enda eru tekjur þeirra oft tak- markaðar. Á hinn bóginn sneiðir 50% hækkun eingarskatts- ins hjá verðbólgubröskur- um, enda engin tilraun gerð til að ná til þeirra. í fyrystugrein Þjóðviljans í gær er komizt að þeirri niðurstöðu, að „beinir skatt- ar“ séu „í heild léttbærir hér á landi“ og „engum vorkunn að svara slíkum sköttum“. Þetta eru mjög ^hyglisverðar yfirlýsingar, nkum þar sem viðurkennt í hinu orðinu, að tekju- .Kattarnir komi óréttlát- lega niður. En á bak við þetta er gamla sagan um vonda, ríka manninn. Eng- inn má verða bjargálna. Sýni menn dugnað og fram- takssemi er um að gera að skattleggja það sérstaklega og nú þykir það ekki mikið þótt sjö krónur séu teknar af hverjum tíu. Hér er jafnframt verið að búa menn undir, að ný skattalög verði lögð fram á næsta þingi, þar sem eign- ar- og tekjuskattar verði hækkaðir verulega frá því sem verið hefur. Það hefur verið grund- vallarstefna Sjálfstæðis- flokksins að tekjuskattur skuli ekki lagður á almenn- ar launatekjur og skattpró- sentan aldrei fara yfir 50%. Síðasta ríkisstjórn stóð ekki við þau fyrirheit að fullu. Þýðingarlaust er að horfa fram hjá því. Á hinn bóginn liggur ljóst fyrir, að það er við ramman reip að draga, þar sem eru úrelt sjónarmið vinstri flokkanna í skattamálum. I þeim efn- um eru þeir marga áratugi aftur í tímanum. Það sanna skattahækkanirnar nú, sem eru í senn aðför að hinum heiðarlega skattborgara og einhver ósvífnustu svik á kosningaloforðum, sem um getur í sögu þingræðis hér á landi. En eins og menn minnast var veruleg lækkun tekjuskatts eða jafnvel afnám hans eitt af helztu kosningamálum Alþýðu- flokksins og gengu margir til liðs við hann af þeim sökum. Einmitt vegna þess að Sjálfstæðisflokkurinn hafði ekki komið fram stefnu sinni. Kosningaúrslitin voru forystu Sjálfstæðisflokks- ins áminning um að standa fast á framkvæmd sjálf- stæðisstefnunnar í framtíð- inni. Það er að vísu rétt, að í samsteypustjóTnum er aldrei hægt að ná öllu fram. En hér er um grundvallar- atriði að ræða: Annars vegar er það stefna Sjálfstæðisflokksins að almennar launatekjur séu tekjuskattsfrjálsar. Hins vegar ‘mega tekju- skattar aldrei fara yfir 50%. Fallegt mál Flest okkar skynja á vissan hátt, hvaö málið er mikilvægur þáttur í lífi okkar — en fáir gera sér ef til vill grein fyrir því, hvaö uþþeldið og umhverfiö getur haft mikil áhrif á mál og þroska okkar fyrstu æviár okkar. Flest okkar skynja, hvort fólk talar fallegt mál og vandaö eöa hvort þaö talar einhvers konar „götumál“ — en færri gera sér e.t.v. grein fyrir því, aö málþroski okkar og skilningur á þernskuárum okkar, getur haft áhrif á allan þroska okkar, félagslegan og andlegan, síöar meir í lífinu. Flesta daga ársins eru þættir í hljóðvarpi um íslnesku, mál og málnotkun og er vissulega þörf á því, svo aö hiö fallega mál okkar fletjist ekki út eins og flatbrauös- deig, heldur veröi rismikið og tignarlegt eins og fram til þessa. Þó megum viö ekki gleyma þeim mikilvæga þætti, sem mál, mál- notkun og málfar hefur á alla líðan okkar og almennan þroska, allt frá því aö viö erum fædd inn í þennan heim og heyrum kærleiksrík orö og þægi- legt raul og söng þeirra, sem taka á móti okkur og eiga aö hugsa um okkur fyrstu æviárin á þessari jörö! Hver skilur hvern? Ég ætla ekki aö fjölyröa meira um mikilvægi þessa þáttar í fari okkar, en snúa mér þeint aö efninu. Mun ég ræða um málið út frá ýmsum sjónarhornum og varpa fram spurningu eins og: Hver skilur hvern á okkar dögum? Skilja börn foreldra sína — og foreldrar börn sín? Skilja nemendur kennara sína og kennararnir nemendur sína? Skilja sérfræðingarnir skjól- stæöinga sína og skjólstæö- ingarnir sérfræöinga? Stjórn- málamenn kjósendur og kjósendur stjórnmálamenn osfrv. Og þess vegna væri líka eðlilegt að ég spyrði í framhaldi af þessu: Hver les þáft, sem þennan — og skilur fólk þaö, sem hér er sagt? Vissulega væri gaman aö heyra viöbrögö fólks við því, hvort því finnst slíkir þættir æskilegir eöa einhvers viröi yfirleitt? Er fólk hætt að tala saman? Margir halda því fram, aö fólk tali nú minna saman er nokkru sinni fyrr í sögunni. Telja sumir þetta svo mikið vandamál, aö þaö sé nú þegar oröiö eitt alvarlegasta og erfiðasta vanda- mál, sem mennirnir eigi viö aö stríöa í samskiptum hverjir við aðra. Er fólk hœtt að rœða saman? Fyrir nokkru mætti ég tveimur ungum mönnum á götu sama daginn. Annan haföi ég ekki séö í 15 ár, en hinn um 20. Ég staldraði því góöa stund og rabbaði við þá um gamlar og góöar minningar. Báöir höföu orö á því sama og sögöu eitthvað á þessa leið: Þú hefur tíma til þess aö stansa og tala við mann. Venjulegast heyrir maður bara: Blessaður og sæll, gaman aö sjá þig. Vertu blessaður. .. Ekki veit ég, hvort þiö þekkiö slíkar sögur af eigin raun, en margir halda því þó fram, aö fólk bæöi skrifi minna en fyrr og ræöi minna saman. Og nú sé það jafnvel orðið svo slæmt, aö fólk komi ekki í heimsóknir hvert til annars, nema því sé boðið hátíðlega. Fólk hefur bókstaf- lega ekki tíma til þess að ræöa saman. Kannski hefur þú aöra skoðun á þessu máli en ég — og viö því er ekkert aö segja. En þó aö aðeins hluti af fullyrðingum þessum sé sannur, er þaö þess viröi að velta þeim aðeins fyrir sér og gefa þeim nokkurn gaum. Hinir fullorönu bera ábyrgð á börnunum, foreldrar, yfirvöld og samfélagið í heild, hafa skyldum aö gegna — og ef börnin eiga aö þroskast eðlilega, þarf einhver aö tala viö þau, auka oröaforöa þeirra og skilning, þroska hug- myndaflug þeirra og hugsanir, veita þeim kærleika og alúö í uppvexti þeirra, sérstaklega fyrstu æviárin. Orö' og setningar hafa áhrif Flest okkar gera sér þess Ijósa grein, hvaö orö og setningar geta haft mikla þýöingu í sam- skiptum okkar. í opinberum deilum manna í millum heyrum viö oft sagt eitthvað á þessa leið: „Einu sinni sagðir þú allt annaö. „Fyrir 10 árum stóöstu í pont- unni og hélst fram alveg önd- veröri skoðun.“ „Það er ekki hægt aö treysta orðum þínum. Þú segir eitt í dag og annað á morgun," o.s.frv. Ekki ætla ég að fara neinum orðum þaö, hvort slíkur mál- flutningur sé málefnalegur, heldur leggja áherslu á þaö, aö það, sem viö segjum hefur áhrif — og þau áhrif geta bæði orðið til góðs og ills, og fer þaö eftir ýmsu. Eg spurði einu sinni nokkra aðila, hvort þeir myndu eftir e-u sérstöku frá fyrsta skólaári þeirra, hvort sem þaö væru nú setningar, einstök orð, athafnir eöa atvik, sem væru þeim minnisstæö. Fjórir þessarra svöruöu á þessa leiö: 1. Sá fyrsti sagði: Skömmu eftir aö ég hóf skólagöngu, var kennarinn aö kenna okkur máls- hætti. Mér gekk víst heldur Illa aö læra aö lesa, en þótti gaman að málsháttunum. En svo sagöi kennarinn með áherslu, og mér fannst hann horfa á mig allan tímann: Heimskur er sá, sem er höfuöstór, en hefur lítil eyru. 2. Annar sagöi e-ð á þessa leið: Ég var nýkominn frá Danmörku, þegar ég byrjaði í skólanum og átti í miklum erfiöleikum meö málið. Ég þekkti engan, en sá, sem sat viö hliðina á mér, hallaði sér upp aö mér og hvíslaði: „Kennarinn okkar er alveg frábær.“ 3. Sá þriðji sagði: Viö höföum aöeins verið í skólanum fáeina daga, þegar kennarinn sagöi hátt og skýrt viö okkur öll: „Þiö megið ekki taka með ykkur epli í skólann.“ Og ég fékk sam- viskubit. 4. Og sá fjóröi sagði: Ég var nýfluttur í hverfið. Ég átti aöeins einn vin. Viö stóöum úti á skólalóðinni, þegar yfirkennarinn las upp nöfnin okkar, Og ég man þaö eins og það heföi gerst í gær, þegar vinur minn sagöi: Ef við lendum í sama bekk, verðum við alltaf vinir! Orð — til góðs og ills Ef við tækjum þessar setning- ar út úr samhengi og virtum þær fyrir okkur einar sér, kæmumst viö fljótt aö raun um, aö þær væru eðlilegar og einfaldar setningar — orö, sem annars létu ekki svo mikið yfir sér. En orö geta haft áhrif bæöi til góös og ills, og þegar ég innti fólkið nánar eftir útskýringu, kom greinilega í Ijós, aö þaö var ekki aö ástæðulausu, aö viðkomandi mundu eftir þessum orðum. Sá fyrsti mundi eftir máls- hættinum: Heimskur er sá, sem er höfuðstór, en hefur lítil eyru. — Hann mundi ekki eftir kringumstæðum aö öðru leyti. Hann var viðkvæmur, nýbyrjaður í skóla, gekk ekki vel í lestri, leit upp til kennarans. Hann haföi þráö þennan tíma svo lengi: aö byrja í skóla! Og svo fannst honum kennarinn horfa á sig, þegar hann mælti þetta af munni fram — og þegar hann kom heim úr skóla þennan dag, gekk hann beint inn á baö og fór aö skoöa á sér eyrun og höfuðið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.