Morgunblaðið - 23.09.1978, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1978
29
Erlendir
punktar
Danmörk. Miklar eru
raunir Dana þessa dagana.
Nú hafa þeir verið kærðir
fyrir dómstól Efnahags-
bandalagsins þar sem
skattlagning þeirra á
snapsinum er ekki nógu há.
Danir halda því hins vegar
fram að snapsinn sé
þjóðardrykkur rétt eins og
mjólkin og því sé ekki hægt
að skattleggja hann eins og
sterka drykki-
Bílasala. Mikii aukning
virðist hafa orðið í sölu
sænskra bíla til Bandaríkj-
anna það sem af er þessu
ári. Söluaukningin hjá
Saab nemur það sem af er
árinu 16% m.v. 1977 og í
ágúst nam hún 25%. Svo
virðist sem Volvo fái sinn
hlut af kökunni því sölu-
aukningin hjá þeim í ágúst
var 33% m v. ágúst á
síðasta ári.
DDR. Piat verksmiðjurnar
hafa mikil samskipti við
Austur-Evrópu. Nú munu
standa yfir samningavið-
ræður milli þeirra og
Austur-Þjóðverja að þeir
fyrrnefndu reisi verk-
smiðju í Austur-Þýzka-
landi sem hafi það verkefni
að smíða vélar í Fiat bíla.
London. Áætlað er að
útflutningur Breta dragist
nokkuð saman í upphafi
næsta árs og er það sjálf-
sagt ekkert fagnaðarefni
hjá þeim. Á síðasta ári
jókst útflutningurinn um
8.5% en í ár er ekki gert
ráð fyrir nema um 4%
aukningu svo ekki er útlitið
gott.
Asía EB. Viðskipti Asíu-
landa og Efnahagsbanda-
lagslandanna hafa aukist
um tæp 100% frá því 1973.
Svo virðist sem Evrópu-
löndin hafi aukið útflutn-
ing sinn verulega til Asíu
og má nefna sem dæmi að
útflutningur þeirra til
Indónesíu var meiri en
innflutningur þeirra þaðan,
á síðasta ári.
Magasín de Nord. hefur nú
selt Schou-Epa vöruhúsin,
16 að tölu, til Fjárfest-
ingarstofnunar danskra
kaupmanna en sú stofnun
mun leigja verzlanirnar út
til einstakra kaupmanna.
Ástæðan fyrir sölunni var
sú að Magasin var búið að
tapa um 40 millj. d. kr.
þessum vöruhúsum á þeim
þremur árum sem þau voru
í eigu þeirra.
Skuttogarinn Elín Þorbjarnardóttir.
Mikill f jármagns-
kostnaður
OFT ER rætt um lánamál at-
vinnuvejíanna eins ok lánin væru
hrein gjöí til þeirra. en svo er
ekki. I eftiríarandi da*mi má sjá
hve mikið má fá lánað til minni
skuttogara smi'öaðra innanlands
til að mynda on á hvað lánakjör-
um þau lán eru ok sfðast en ekki
sízt hvernig lítur dæmið út eftir
að endurgreiðslur lánsins hafa
átt sér stað. Kostnaðarverð 1300
milljónir kr. lánsfjárhæð 1105
milljónir sem skiptist þannig.
263 millj. eru vísitölutryggðar
712 millj. eru genKÍstryggðar
og 130 millj. eru gengistryggðar
(byggðasjóður)
Miðað við þróun gengis og
byggingarvísitölu síðustu fimm
árin verða þessar 1105 milljónir
orðnar að 15.632 millj. kr. í lok
lánstímans en hann getur lengst
orðið 18 ár. I heild er niðurstaðan
þessi:
263 millj. verða að 7122 millj. kr.
eftir endurgreiðslu.
712 millj. verða að 7897 millj. kr.
eftir endurgreiðslu.
130 millj. verða að 613 millj. kr.
eftir endurgreiðslu.
Auk afborgana af láninu greið-
ast vextir, verðbætur og lántöku-
gjald. Ath.vglisvert er að endur-
greiðslur vísitölulánsins og gengis-
tryggða lánsins eru svo til þær
sömu þrátt fyrir mikinn mismun í
upphafi. Og einnig má benda á að
gengistryggingu lána til útgerðar
mætti telja hið eðlilega þar sem
tekjur hennar eru bundnar gjald-
eyrisskráningu á hverjum tíma en
erfitt er að tengja það byggingar-
vísitölu. Hún hefur ekki nein bein
tengsl við útgerðina.
Aðeins 3% af fram-
kvæmdum Vega-
sjóðs boðnar út
OLÍUMÖL h.f. var stofnað 1970 af
sveitarfélögum í Reykjaneskjör-
dæmi og þremur verktakafyrirtækj-
um og um 1974 gerðust sveitarfélög
á Vestfjörðum aðilar að fyrirtæk-
inu.
Stefnt er að því að fleiri
sveitarfélög gerist aðilar að fyrir
tækinu en meginmarkmið þess er
að gefa sveitarfélögum og öðrum
kost á því að lcggja varanlegt
slitlag á vegi innan umdæma sinna
á sem hagkvæmastan hátt. Til að
afla nánari frétta af þessari starf-
semi ræddi Viðskiptasíðan við Ólaf
G. Einarsson alþingismann en hann
er stjórnarformaður Olíumalar h.f.
Ólafur sagði að fyrirtækið væri
fyrst og fremst framleiðslufyrirtæki
en verktakar sjá um að leggja efnið
enda er það eðlilegast þar sem þeir
hafa séð um alla undirbyggingu og
þeir sjá einnig um allan frágang
gatna.
Heildarframleiðslan frá upp-
hafi nemur nú orðið um 385 þús.
tonn en láta mun nærri að það svari
til 385 km. og hefur þetta magn farið
bæði til nýlagna og til endurnýjunar.
Hins vegar eru það aðeins um 200
km af um 8600 km sem eru í umsjá
Vegagerðarinnar er hafa verið lagðir
varanlegu slitlagi, og af þessum tvö
hundruð hafa 120 km verið lagðir
olíumöl.
Til aö leggja sitt á vogar-
skálarnar fyrir bætt vegakerfi hafði
Olíumöl frumkvæði af því að bjóða
Vegagerðinni að leggja olíumöl á
tiltekna vegarkafla alls um 70 km
sem svarar til 35% aukningar, og
lána opinberum aðilum 20% fram-
kvæmdarkostnaðarins í nokkurn
tíma.
Þessu tilboði svaraði Vega-
gerðin ekki og er það nokkuð
kaldhæðnislegt þegar þess er gætt að
Ólafur G. Einarsson.
verð pr. km var til muna lægra í
tilboðinu en almennt er rætt um og
eins það að aðeins 3% af fram-
kvæmdafé Vegasjóðs fer til fram-
kvæmda sem eru boðnar út.
En hvað með framkvæmdir á
vegum sveitarfélaga? Þær hafa verið
miklar um allt land sagði Ólafur. Við
höfum yfir að ráða tveimur flytjan-
legum stöðvum auk einnar stórrar er
bæði framleiðir olíumöl og malbik,
en einn af kostum olíumalarinnar er
hvað auðvelt er að flytja hana milli
staða.
Umhverfi sveitarfélaga hafa
m.a. fyrir tilstilli þessa fyrirtækis
tekið miklum stakkaskiptum á
undanförnum árunj og nægir í því
sambandi að nefná staði s.s. Vest-
firði, Sauðárkrók, Húsavík og þétt-
býlisstaði á Austfjörðum og ég er
bjartsýnn á framtíðina, sagði Ólafur
að lokum, enda þurfum við að gera
stórátak á næstu árum í því að
leggja varanlegt slitlag á alla vegi
jafnt innan sem utan byggðakjarna.
„Húsgagnavika 1978”;
Kúlulaga hjónarúm með-
al nýjunga á húsgagna-
sýningu í næsta mánuði
SYNING á íslenskum húsgögnum
og innréttingum verður haldin f
Reykjavík dagana 20. til 29. októ-
ber næstkomandi. bað er Félag
húsgagna- og innréttingaframieið-
enda sem gengst fyrir sýningunni í
samvinnu við Meistarafélag hús-
gagnabólstrara, en sýningarstaður
er Á.G.-húsið við Tangarhöfða á
Ártúnshöfða.
Á fundi sem undirbúningsnefnd
sýningarinnar hélt með blaðamönm-
um í gær, kom fram, að meira en 20
fyrirtæki munu sýna framleiðslu
sína í 29 sýningarbásum. Þessi
sýning, sem hlotið hefur nafnið
„Húsgagnavika 1978“, er sú fimmta í
röðinni, en sú fvrsta var haldin árið
1969.
Að sögn Ingvars Þorsteinssonar;
formanns undirbúningsnefndarinn-
ar, er markmið framleiðenda með
sýningunum að kynna húsgagna-
kaupmönnum og almenningi það
nýjasta í framleiðslunni hverju
sinni, Auk þess sé það augljóst, að
sýningar sem þessar laði fram
nýjungar, og sýni með ótvíræðum
hætti mismuninn á framleiðslu
hinna ýmsu fyrirtækja. Meðal þeirra
nýjunga sem til sýnis verða á þessari
sýningu, má nefna „ástarkúlu", það
er hjónarúm sem byggt er eins og
kúla, með tvennum dyrum, bar,
sjónvarpi, ísskáp, hljómflutnings-
tækjum, spegli, ljóskösturum og
fleiru, og segja aðstandendur sýning-
arinnar að þetta rúm sé einstakt í
sinni röð í allri Evrópu og þótt víðar
væri leitað. Rúmið mun kosta
milljónir króna fullbúið, en fram-
leiðendurnir, Ingvar og Gylfi, kváð-
ust ekki vera hræddir um að sitja
uppi með það!
Úndirbúningsnefnd sýningarinnar
skipa, auk formanns, Ingvars Þor-
steinssonar, þeir Ulfar Guðjónsson,
Leifur Jónsson, Bragi Eggertsson,
Jakob Þórhallsson og Sigurður Már
Helgason. Pramkvæmdastjóri sýn-
ingarinnar verður Þorsteinn Þor-
steinsson.
Hér eru þeir Ingvar borsteinsson, t.v. og Einar Ágúst Kristinsson við
hálfbyggða „ástarkúluna**, eða kúlulaga hjónarúm, sem verður til
sýnis og sölu á húsgagnasýningunni í næsta mánuði. Það er fyrirtæki
Ingvars og Gylfa sem framleiðir rúmið, en höfundur þess er Einar
Ágúst. Ljósm. RAX.
Höfum kaupendur aö eftirtöldum veröbréfum:
Verötryggö spariskírteini ríkissjóös:
Yfirgengi miðað
Kaupgengi við innlausnarverð
pr. kr. 100. Seðlabankans
1967 2. flokkur 2972.23 60.9%
1968 1. flokkur 2588.55 42.4%
1968 2. flokkur 2434.51 41.6%
1969 1. flokkur 1813.30 41.5%
1970 1. flokkur 1665.95 10.3%
1970 2. flokkur 1214.11 41.3%
1971 1. flokkur 1141.97 10.6%
1972 1. flokkur 995.58 41.3%
1972 2. flokkur 851.86 10.6%
1973 1. flokkur A 651.62 11.1%
1973 2. flokkur 602.40
1974 1. flokkur 418.40
1975 1. flokkur 342.08
1975 2. flokkur 261.07
1976 1. flokkur 247.23
1976 2. flokkur 200.76
1977 1. flokkur 186.45
1977 2. flokkur 156.18
1978 1. flokkur 127.29
Höfum seljendur að eftirtöldum verðbréfum:
HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF:
1972 — A
1973 — B
1974 — D
1975 — G
1976 — H
1977 — J■
VEÐSKULDABREF:*
1 ár Nafnvextir: 26%
2 ár Nafnvextir: 26%
3 ár Nafnvextir: 26%
*) Miöaö er við auðseljanlega fasteign
HLUTABRÉF:
Sölugengi
pr. kr. 100.-
666.12 (10% afföll)
571.47 (10% afföll)
432.15(10% afföll)
212.99 (10% afföll)
206.27 (10% afföll)
153.34 (10% afföll)
Sölugengi
pr. kr. 100-
78—79-
69—70,-
62—64-
Málning hf. Kauptilboð óskast
íléRPEJTinCARPéUtG iflMIM HP.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
Lækjargotu 12 — R (iðnaðarbankahúsinu)
Sími 2 05 80.
Opi8 frá kl. 13.00 til 16.00 alla virka daga