Morgunblaðið - 23.09.1978, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1978
39
inn af stað í dag
VERTÍÐ innanhússítróttanna er nú að hefjast.
Reykjavíkurmótin í körfuknattleik og handknattleik
hefjast um helgina, en þau eru ávallt fyrsti vísirinn að
innanhússíþróttunum.
Reykjavíkurmótið í handknatt-
leik hefst kl. 15.30 í dag, í
Laugardalshöllinni með leik ÍR
og Fylkis. nýliðanna í 1. deild.
Strax á eftir þeim leika
núverandi íslandsmeistarar,
Valur. á móti bikarmeisturum
Víkings. Sá leikur ætti að verða
skemmtilegur eins og alltaf
þegar þessi lið leiða saman hesta
sína. Valsmenn hafa nú endur-
heimt sinn gamla þjálfara
Hilmar Björnsson og Víkingar
hafa ráðið til starfa pólskan
þjálfara. Bæði liðin hafa æft mjög
vel að undanförnu, og þó að
léikurinn í dag sé máske ekki
beint mælikvarði á getu liðanna f
vetur verður samt fróðlegt að sjá
hvernig þau hefja keppnistíma-
bilið. Alls eru 9 lið skráð til
keppni í mótinu og leikið verður í
tveimur riðlum. Tvö efstu liðin úr
hvorum riðli leika síðan saman í
úrslitakeppninni, þannig að allir
leika við alla.
Kastmót IR
Frjálsíþróttadeild ÍR gengst
fyrir kastmóti á Laugardals-
vellinum á laugardag (23.
sept.) og hefst mótið klukkan
15. Keppt verður í kringlukasti
karla og kvenna og í kúluvarpi
karla.
2 golfmót á
TVÖ golfmót fara fram á
Grafarholtsvellinum um helg-
ina.A laugardaginn fer fram
fjórleikur (fourball), þar sem
tveir leika betri bolta sfnum
gegn betri boltum tveggja
annarra. Öllum félögum GR er
heimil þátttaka. 3/4 eru í
forgjöf. Keppni þessi hefst
klukkan 13.00
Á sunnudaginn klukkan
10.00 hefst síðan öldunga-
keppni GR, með og án forgjaf-
ar. Öllum 50 ára og eldri er
heimil þátttaka.
Valur gegn ÍBK
EINN leikur fer fram í úrvals-
deildinni í knattspyrnu í dag
og hefst hann kl. 14. Eigast þar
við Valur og Keflavík. Leikið
verður á nýja grasvellinum við
Valsheimilið og það lið sem
sigrar mun leika til úrslita
gegn KR sfðar.
Fundur
landsdómara
STJÓRN IISÍ boðar alla lands-
dómara til fundar á Hótel Esju
mánudagskvöldið 25. sept. kl.
20.00. Áríðandi að allir mæti.
IISÍ
Allir með
nema Ásgeir?
Dómarahneykslið í Hollandi
SJALDAN hefur frammistaða knattspyrnudóm-
ara valdið jafn mikilli hneykslan og frammistaða
finnska dómarans Anders Mattsons í landsleik
Hollands og íslands á dögunum. Augljósara brot
hefur vart sést en er Rudi Krol felldi Pétur
Pétursson innan vítateigs en dómarinn þorði
ekki að dæma á brotið.
f viðtölum við íslenzka blaðamenn eftir leikinn
sagði dómarinn að þarna hefði ekki verið um brot
að ræða hjá Krol og Pétur hefði bara dottið vegna
þess hve þreyttur hann var! Síðar um kvöldið dró
hann í land og kvaðst hafa séð brotið svo illa
vegna þess að leikmenn skyggðu á að hann hefði
hikað við að dæma á það þar til það var um
seinan. Á meðfylgjandi mynd af brotinu má sjá
að það stenzt ekki, dómarinn sést á miðri
myndinni og enginn skyggir á Pétur og Krol.
Loks í viðra>ðum við fslenzku leikmennina
viðurkenndi Finninn að þetta hefði verið augljós
vftaspyrna en hann hefði bara hikað að flauta á
brotið þar til það var orðið of seint.
Atvik þetta var sýnt rækilega í hollenska
sjónvarpinu sama kvöld og sást þar greinilega að
Pétur var felldur bæði af Krol og Schiives
markverði. Gefst íslcndingum tækifæri til þess að
sjá þetta umdcilda atvik f sjónvarpinu annað
kvöld.
Hin myndin sem hér birtist sýnir hollensku
leikmennina fagna marki Rudi Krols. Hann er f
miðjum hópnum en aðrir leikmenn eru
Nanninga, Jansen, Rensenbrink, Wildschut.
Willy van de Kerkhof og Janus Guðlaugsson.
— Eins og staðan er núna, höfum við liðið fyrir framan
okkur á borðinu, aðeins Ásgeir Sigurvinsson og hugsanlega
Jóhannes Eðvaldsson verða ekki með. Valsmennirnir og
Skagamennirnir ætluðu sér að vera í sumarfríi, en þessu
verður hliðrað til þannig að þessir leikmenn munu leika
þennan mikilvæga leik, sagði Árni Þorgrímsson,
landsliðsnefndarmaður, í viðtali við Mbl. í gær, er hann
var inntur eftir stöðunni í landsliðsmálunum fyrir leikinn
gegn Austur Þýskalandi í Halle 4. október næstkomandi.
Um tíma leit út fyrir að hvorki Valsmennirnir
Guðmundur, Dýri, Ingi Björn og Atli, Skagamennirnir
Árni og Pétur, auk þeirra Ásgeirs og Jóhannesar, gætu
leikið í Halle, en nú virðist sem málið hafi blessast eftir
atvikum vel. — Ásgeir á enga möguleika á að leika og
Celtic á leik á útivelli í deildarbikarnum gegn Motherwell
sama dag og leikurinn í Halle fer fram. Það er því óvíst
hvort Jóhannes leikur en við höfum engan veginn gefið upp
alla von og eftir er að sjá hvort við getum ekki snúið
svolítið upp á höndina á forráðamönnum Celtic. Jón
Pétursson og Árni Stefánssou eru til reiðu, einnig Teitur
Þórðarson, sem nú kemur inn í hópinn á ný.
Aðspurður um Gísla Torfason, sagði Árni, að Gísli hefði
verið í sumarfríi að undanförnu og auk þess ekki leikið
hinn mikilvæga síðasta leik Keflavíkur gegn Víkingi, því
væri Gísli ekki í hópnum.
— gg-
Handknatdeikur-