Morgunblaðið - 01.10.1978, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1978
Austurrískum
fréttamanni
vísað frá
Sovétríkjunum
Moskvu, 29. sept. Reuter.
ERIIARD Hutter. íréttamaður
austurríska sjónvarpsins í
Moskvu. skýrði starfsbræðrum
sínum þar í horií svo frá í kvöld.
að sovézk stjórnvöld hefðu aftur-
kallað vcgabréfsáritun hans.
Ilann hefur starfað í Moskvu í
rösklejía sex ár. Ilann sagðist
haía vitneskjuna frá yfirmönnum
sínum í Vínarborg og hefðu
starfsmenn sendiráðsins þar í
borjí (jreint þeim frá þessu. Sú
ástæða var gefin að Ilutter var
sagður grunaður um að hafa
tckið þátt í „andsovézkum
áróðri" og „ólöglegum viðskipt-
um". Ilann kvaðst þó áli'ta að hin
raunvcrulega ástæða iægi í þeim
tengslum sem hann hefði náð við
ýmsa sovézka borgara í starfi
sínu og þar í hópi væru ýmsir
andófsmenn.
Hutter er kvæntur sovézkri
konu. Hann sagði að sér væri enn
ókunnugt um hvaða tímamörk
sovézk stjórnvöld hefðu sett hon-
um og því væri ekki ljóst hvenær
hann yrði að hverfa á braut.
Hutter er eini austurríski
fréttamaðurinn í Moskvu. Hann er
sjöundi vestræni fréttamaðurinn
sem rekinn er frá Sovétríkjunum
eða neyddur með öðrum ráðum til
að hverfa þaðan sl. tíu ár.
Hutter gaf í skyn að sovézk
stjórnvöld hefðu fyrir rösku ári
hafið aðgerðir sem miðuðu að því
að hann færi úr landi.
Nóbels-
verdlaun
hækkuð
Stokkhólmi. 28. september. Reuter.
NÓBELSVERÐLAUNIN í ár
verða alls 3.625.000 sænskar
krónur sem er met og samsvarar
3.6% hækkun frá síðasta ári
þrátt fyrir mesta samdrátt í
sænsku efnahagslífi síðan í
heimskreppunni miklu.
Stig Ramel barón, fram-
kvæmdastjóri Nóbelstofnunar-
innar í Stokkhólmi, sagði í dag að
þetta jafngilti 40% hækkun að
raungildi síðan 1953 þegar stofn-
unin fékk heimild til meira
frelsis í fjárfestingum.
Ramel barón sagði: „Stefna
okkar er að sigra verðbólguna og
láta verðlaunaféð hækka. Við
fylgjum langtímafjárfestingar-
stefnu og fáum margar góðar
ráðleggingar."
í Osló hefur verið staðfest að
Henry Kissinger, fyrrverandi
utanríkisráðherra, hafi lagt til að
Anwar Sadat forseti fái friðar-
verðlaunin.
Aðrir sem eru sagðir tilnefndir
eru Stefan Wysszynski kardináli
frá Póllandi, sovézkir andófs-
menn og systir Teresa í Kalkútta.
Leiðrétting
í FRÉTT Morgunblaðsins af sekt-
arheimild í sambandi við brot á
Iögum um ráðstafanir til að draga
úr tóbaksreykingum tífaldaðist sú
hámarksupphæð, sem lögin gera
ráð fyrir. Hæsta sektargreiðsla er
500 þúsund krónur eða hálf
milljón. Þetta leiðréttist hér með.
Leiðrétting
MISSAGT var í blaðinu í gær að
Agúst F. Petersen sýndi aðeins
olíumálverk á sýningu sinni að
Kjarvalsstöðum. Agúst sýnir einn-
ig olíupastelmyndir og vatnslita-
myndir.
Snrfðum Neon-og plastljósaskiltL
Einnig ýmiss konar hkiti
úrAcrflplasti.
Heonþjónustaif hf. Snóðjuvegi 7, Simi 43777
Bókhaldsfyrirtæki til sölu
Til sölu er hluti í grónu bókhaldsfyrirtæki í
borginni. Þeir sem kynnu aö hafa áhuga á aö
kaupa gott fyrirtæki í fullum gangi sendi tilboö á
afgreiöslu blaösins ásamt upplýsingum merkt:
„Trúnaöarmál — 1884“.
VARÚÐ, HÆTTA, ENN SKAL ORT,
ALLT SKAL FÆRT ÚR SKORÐUM!
VÍAMWMMUJb
Þórarinn u
Eldjárn
í Disneyrímum er fjallað um Walt Disney (1901 - 1966), líf
hans og störf fyrir og eftir dauðann.
Myndskreytt af Sigrúnu Eldjárn.
lOVNs
II III
In.— nmu
&
* ÍÍTlTiTÍII TílkT
Bræóraborgarstíg 16 Sími 12923-19156
IB-lánin:
Nokkrar
nviunaar
566. B80
f .001.100
Þessar tölur sýna breytingar á ráðstöfunarfé
eftlr 6 og 12 mánaða sparnað.
IB lánin hafa vakið verðskuldaða athygli.
Þau eru raunhæf leið til lána fyrir almenning.
En til þess að þau haldi kostum sínum þarf að endur-
skoða kerfið reglulega, m.a. með tilliti til verðlags-
þróunar.
Þetta hefur Iðnaðarbankinn einmitt gert. Því hefur
verið ákveðið að gera eftirtaldar breytingar:
1. Stofnaður hefur verið nýr 18 mánaða flokkur.
Hámarks innborgun er kr. 50.000. Ráðstöfunarfé (eigin
sparnaður ásamt IB-láni) að loknu sparnaðartímabili,
með slíkri innborgun, nemur þá 1.8 milljón króna auk
vaxta.
2. Hámark mánaðarlegra innborgana hefur verið endur-
skoðað. Gildir það um nýja reikninga og er sem hér segir:
(6 mánaða flokki kr. 30.000
í 12 mánaða flokki kr. 40.000
í 18 mánaða flokki kr. 50.000
124 mánaða flokki kr. 60.000
í 36 mánaða flokki kr. 60.000
148 mánaða flokki kr. 60.000
3. Þá hefur Iðnaðarbankinn ákveðið, að fengnum fjölda til-
mæla, að gefa fólki kost á að lengja sparnaðartímabilið,
enda lengist þá lánstíminn og upphæð IB-lánsins
hækkar að sama skapi.
Nánari upplýsingar veita IB ráðgjafar hver á sínum
afgreiðslustað — þeir vita allt um IB lán.
Banki þeirra sem hyggjaað framtíðinni
Iðnaðarbankinn
Aðalbanki og útibú