Morgunblaðið - 01.10.1978, Síða 32
SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1978
Metveiði á
sumarloðnu
MJÖG góð loðnuveiði var í fyrrinótt
ok gærdag ojf .skömmu cftir hádegi
hðfðu 18 skip tilkynnt um 10.890
lestir og þá var vitað um nokkur
skip. sem voru komin með 3000 —
1000 lestir. Veiði síðasta sólar
hrinjfs var orðin metveiði á sumar
loðnu um hádcKÍ í <>K er hátt í
Ljósm. Rax.
Litla Ccssnan 150 vegur aðeins 1300 kg fullhlaðin og kæmust áreiðanlega nokkuð
margar slíkar vélar fyrir inni í stærri vélinni.
-
„A að vera eitt af stefnu-
miðum ríkisst jórnarinnar
að fresta tollalækkunum,,
— segir Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra
„ÉG HEF litið svo á otí fleiri
ráðherrar í ríkisstjórninni að það
ei)fi að vera eitt af stefnumiðum
stjórnarinnar að fresta tollalækk-
unum iðnaðarvara." sajfði Iljör-
leifur Guttormsson iðnaðarráð-
herra í samtali við Morgunhlaðið.
122 árekstr-
ar og þrjú
slys urðu í
umferðinni
síðustu viku
UMFERÐARSLYS urðu með
fæsta móti á höfuðborjfar-
svæðinu í síðustu viku og er
það gleðilegt en árekstrar
urðu alltof margir eða 122 í
allt. Eru það rúmlega 17
árrekstrar að meðaltali á dag.
Slys með meiðslum urðu þrjú.
Frá miðnætti í fyrrinótt til
hádegis í gær urðu 5 árekstrar
í Reykjavík, einn í Hafnarfirði
og enginn í Kópavogi, en þar er
■'istandið langbezt. Ekki hefur
■ rðið umferðaróhapp í Kópa-
vogi síðan á fimmtudag. Engin
slys urðu í þessum sex árekstr-
um.
Með sameiginlegu átaki hef-
ur tekizt að halda slysum í
skefjum. Nú er takmarkið að
draga úr árekstrum og þar með
úr slysahættunni. Það lætur
nærri að í þessum 122 árekstr-
um hafi nær 300 bílar skemmst
meira og minna og samanlagt
tjón nemur tugum milijóna
króna. Þetta ættu ökumenn að
íhuga.
..Mál þetta hefur aðeins verið
tekið lauslega til umræðu í
ríkisstjórninni." sagði Iljörleifur.
„en engin ákvörðun hefur verið
tekin. Væntanlega verður skipuð
innanhússnefnd til þess að at-
huga þessi mál áður en ákvörðun
verður tekin. nokkurs konar
samstarfsnefnd viðkomandi ráðu-
neyta. Það tekur væntanlega
einhvern tíma að kanna þetta mál
og þegar niðurstaðan liggur fyrir
verður málið metið."
Aðspurður sagði Hjörleifur að
ekki væri útilokað að gripið yrði til
gagnráðstafana af hálfu EBE og
EFTA ef tollalækkunum yrði
frestað og menn yrðu að vera
viðbúnir slíku. Hins vegar kvaðst
hann ekki óttast það svo mjög, því
að við íslendingar gætum lagt
fram góð og gild rök fyrir þessari
ákvörðun. Ymsar stuðningsað-
gerðir við iðnaðinn hefðu verið
ræddar á vettvangi EFTA og
okkar sérstaða væri ekki ókunn
þar.
„Iðnaðurinn hefur lagt 'mikið
kapp á frestun tollalækkana og
kveður sig ekki undir samkeppni
búinn. I mínum augum yrði þessar
aðgerðir því til lítils nema tíminn
sé nýttur til þess að búa iðnaðinn
undir það að taka á sig samkeppn-
ina sem bíður hans þegar tollunum
verður aflétt,“ sagði Hjörleifur.
Hjörleifur sagði að lokum að ef
til þess ráðs yrði gripið að fresta
tollalækkunum yrði það einhliða
ákvörðun okkar Islendinga, alveg
eins og útfærsla landhelginnar, þó
að þessu máli væru ekki sambæri-
leg að öðru leyti.
Pétur og
Karl tU
Hollands
ÞAÐ er afráðið að knatt-
spyrnumennirnir Pétur
Pétursson og Karl Þórðarson
frá Akranesi fari innan
skamms til Hollands og Ifti að
aðstæður hjá knattspyrnu-
félaginu FC Twcnte. Þetta lið
er með beztu liðum f Hollandi
og var t.d. í öðru sæti í 1.
deildinni i Ilollandi s.l. vor.
Framkvæmdastjóri félagsins
Van Tallen hafði símasamband
við Akurnesingana í fyrra-
kvöld. Kvaðst hann ætla að
fara til Austur-Þýzkalands á
miðvikudaginn og fylgjast með
þeim Pétri og Karli leika með
íslenska landsliðinu gegn því
austur-þýzka í Evrópukeppn-
inni. Að leiknum loknum fara
þeir félagar með framkvæmda-
stjóranum yfir til Hollands og
líta á aðstæður hjá félaginu. Og
ef þeim líst vel á sig mun
framkvæmdastjórinn verða
Karli og Pétri samferða til
Islands til samningaviðræðna,
en hann hefur mikinn hug á því
að fá þá sem leikmenn með
atvinnuknattspyrnuliði sínu.
beztu sólarhringsveiði yfir vetrar-
tínann.
Þau skip sem fyrst tilkynntu um
afla fóru til Norðurlandshafna. en
flest fóru loðnuskipin til Austfjarða
og þangað voru á leið 6500 lestir
eftir hádegi í gær, og 1300 lestir
voru á leið í Faxafióa.
Morgunblaðinu var tjáð hjá loðnu-
nefnd í gær að ef þessi góða veiði
héldi áfram, kæmu löndunarörðug-
leikar upp strax í dag, en alls eru um
50 skip á loðnuveiðum. Skipstjórar
sögðu í talstöðvum í gær, að þeir
hefðu aldrei fundið jafn mikið af
loðnu að sumarlagi.
Eftirtalin skip hiifAu tilkynnt um afla til
loAnunrfndar um hádrKÍ í Kar. Örn KE 580
le.stir. Óskar Ilalldórssnn RE 300. Fífill GK
550. EldborK GK 550. Hilmir SU 520.
SkarAsvík SH B10. Sandafell GK 320. Arsæll
KE 160. Pétur Jónssun RE 670, Hrafn GK
660. Hákon ÞH 820. Börkur NK 1150.
GrindvíkinKur GK 1000. Kap 2. VE 650,
Gísli Árni RE 630. Skírnir AK 110. MaKnús
NK 450 OK Náttfari ÞH 470 lestir.
Þá var MorKunhlaAinu kunnuKt um aA
SÍKurður var kominn meA 1100—1200
lestir. GullberK var kontiA með 540 lestir ok
mörK skip voru með 300 — 500 lesta afla.
Eldsvodi á
Akureyri
Ákurcyri. 30. septemher.
MIKIÐ tjón varð af reyk í húsinu
nr. 11 við Ægisgötu þegar eldur
kom upp í frystikistu um kl. 24 í
gærkvöldi.
Frystikistan var geymd í þvotta-
húsi íbúðarinnar til bráðabirgða
vegna breytinga sem verið er að
gera á íbúðinni og eyðilagðist
frystikistan með öllu sem í henni
var. Megnan reyk lagði af henni
um alla íbúðina en tjón af völdum
eldsins sjálfs varð ekki á húsi eða
innanstokksmunum að öðru leyti.
Sv.P.
Aldrei meira selt af
Suðurlandssíldinni
FULLTRUAR Síldarút-
vegnsnefndar hafa að
undanförnu staðið í sölu-
samningum við Sovétmenn,
Pólverja, Finna og Svía.
Samkvæmt þeim upplýsing-
um, sem Morgunblaðið hef-
ur aflað sér, tókst söluferð
þessi betur en flestir áttu
von á. Þegar fulltrúar
Síldarútvegsnefndar fóru
utan, var búið að semja um
sölu á tæplega 100 þús.
tunnum, en í þessari ferð
Hrikaleg vanskil við Fiskveiðisjóð:
Fara 70 til 80 fyr-
irtæki á uppboð ?
FJÖLMÖRG fiskvinnslu- <>g út-
gerðarfyrirtæki í iandinu eiga nú
í miklum vanskilum við Fisk-
veiðisjóð íslands og samkvæmt
árciðanlcgum heimildum, sem
Morgunblaðið hefur aflað sér,
mun liggja nærri að Fiskveiða-
sjóður fari fram á uppboð á
70—80 fyrirtækjum á næstu
vikum og mánuðum.
Mjög er mismunandi hvað fyrir-
tækin skulda Fiskveiðisjóði vegna
vanskila. Þó er Morgunblaðinu
kunnugt um að vanskil tveggja
fyrirtækja vegna lána frá Fisk-
veiðasjóði eru mest. Fiskimjöls-
verksmiðjan í Vestmannaeyjum
mun skulda á milli 150 og 160
millj. kr. vegna tveggja skipa,
skuttogarans Sindra og nóta- og
skutskipsíns Breka. Þá mun út-
gerðarféiag það á Þórshöfn, sem
gerir út Font skulda Fiskveiða-
sjóði um 135 millj. kr. í afborganir.
mun hafa verið gengið frá
sölu eða möguleikum á sölu
á 80—90 þús. tunnum, og er
Síldarútvegsnefnd búin að
ganga frá eða hefur mögu-
leika á að selja 180 þús.
tunnur af Suðurlandssíld í
haust, sem er meira en
nokkru sinni fyrr.
Eins og áður hefur komið fram í
Mbl. samdi síldarútvegsnefnd um
sölu á 40 þús. tunnum samkvæmt
viðbótarsamningi fyrir tveimur
vikum. Þá var gengið frá sölu á 10
þús. tunnum til Póllands, en pólski
markaðurinn hefur verið útilokað-
ur íslendingum um tíma vegna
ásóknar Kanadamanna.
I viðræðum við Svía mun hafa
komið fram, að þeir eru tilbúnir að
kaupa umtalsvert magn af
„sauerlaupen", ediksaltaðri síld í
haust, en Svíar hafa ekki áður
keypt þannig verkaða síld frá
Islandi. Þá munu fulltrúar Síldar-
útvegsnefndar hafa samið um sölu
á 15 þúsund tunnum til Finnlands,
en gengið verður frá síldinni
þangað í 15 kg umbúðiim.