Morgunblaðið - 03.10.1978, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR MEÐ 4 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
224. tbl. 65. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Stjórn Barre
fær vantraust
Parfo. 2. oktAber. Reuter.
FRANSKI sósíalistaflokkurinn
fylgdi í dag eftir sigrum í
aukakosningum með því að bera
fram tillögu um vantraust á
ríkisstjórn Raymond Barre for-
saetisráðherra.
Engar horfur eru á því að
vantrauststillagan verði sam-
þykkt þótt stærsti stjórnarflokk-
urinn. Gauliistaflokkurinn. hafi
harðlega gagnrýnt stefnu stjórn-
arinnar í varnarmálum og mál-
um Evrópu og einkum og sér í
lagi sparnaðarráðstafanir Barre
forsætisráðherra.
Gaullistaleiðtoginn Jacques
Chirac tók skýrt fram eftir tveggja
daga gagnrýni gaullistaþingmanna
á stjórnina á fundi í Biarritz í
síðustu viku að ekki kæmi til mála
að flokkurinn mundi greiða atkvæði
Annar
Búlgari
myrtur
London. 2. október. Reuter.
ANNAR húlgarskur flóttamað-
ur starfandi hjá brezka útvarp-
inu BBC, Vladimir Simenoff,
hefur fundizt látinn að því er
BBC skýrði frá í kvöld.
Vinnufélagi Simenoffs fann
hann látinn í íbúð sinni í
London þegar hann mætti ekki
til vinnu. Lögregla sem
rannsakar dauða annars
búlgarsks starfsmanns BBC,
Georgi Markovs, telur að hann
kunni að hafa verið myrtur með
örlitlum eituroddi.
Ekki er vitað hvernig dauða
Simenoffs bar að höndum en
hann er talinn grunsamlegur að
sögn lögreglunnar. Engir sýni-
legir áverkar voru á líkinu.
Lögreglan segir að málið verði
rannsakað nákvæmlega með
hliðsjón af dauða Markovs og
svipaðrar tilraunar sem virðist
hafa verið gerð til að ráða
búlgarskan útlaga af dögum í
París.
Simenoff var einhleypur ein-
fari og fékk ríkisborgararétt
nýlega. Hann fór frá Búlgaríu
1971 og hóf störf við BBC ári
síðar. Hann var áður stúdent.
Fjölskylda hans býr í Plovdiv
og hefur heimsótt hann í ár.
með vinstri flokkunum þegar van-
trauststillagan yrði rædd í þinginu
á miðvikudag og fimmtudag.
Vaxandi atvinnuleysi, hækkandi
verðlag og alda verkfalla sem hefur
fylgt í kjölfarið hafa orðið til þess
að margir kjósendur hafa snúið
baki við stjórninni og þessi þróun
náði hámarki með ósigri þingmanns
gaullista fyrir frambjóðanda sósíal-
ista í aukakosningu í 14. hverfinu í
París í gær.
Sósíalistinn Edwige Avice, 32 ára
gamall félagsfræðingur, hlaut tæp-
lega 54% atkvæðanna en gaullist-
inn Christian de la Malene rétt
innan við 46%:
I Nancy, Austur-Frakklandi, fyrir
viku sigraði sósíalistinn Yves
Trondon leiðtoga Róttæka flokks-
ins, Jean-Jacques Servan-Schreiber.
De la Malene er fyrrverandi
ráðherra og staðgengill Chiracs sem
borgarstjóri Parísar. Hann kenndi
um ferli stjórnar Barre síðan
þingkosningarnar fóru fram fyrir
sex mánuðum.
Assad forseti á horgarmörkunum i Berlín ásamt austur-þýzka
hershöfðingjanum Karl-Heinz Drews (til vinstri) og stjórnmálaráðs-
fulltrúanum Gerhard Griineberg (til hægri).
Ný stjórn
mynduð í
Líbanon
tícirút. 2. október. Reuter.
ELIAS Sarkis, forseti Lfbanons.
sagði í dag að hann hefði ákveðið
að mynda nýja stjórn stjórnmáia-
manna til að ráðast gegn vanda
sem ætti sér enga hliðstæðu og
ógnaði máttarstoðum ríkisins.
Sarkis boðaði einnig nýja
öryggismálaáætlun til þess að
binda endi á æ harðari bardaga í
Beirút milli kristinna manna og
sýrlenzkra hermanna úr friðar-
gæzluliði Arabarfkja.
Hann skýrði frá þessu í ríkisút-
varpinu skömmu eftir að bardag-
arnir breiddust út frá kristnu
hverfunum í borginni til nálægra
bæja og þorpa.
Skriðdrekum og stórskotaliði var
beitt í bardögunum, þar á meðal
stærstu fallbyssum sem Sýr-
lendingar hafa fengið frá Rússum,
og barizt er af mikilli hörku á stóru
svæði.
Útvarpið sagði í dag að 32
óbreyttir borgarar hefðu faltið og
rúmlega 200 særzt á 12 tímum. Sjö
hinna föllnu bjuggu á elliheimili.
Stefnu Callaghans
hafnað í Blackpool
Blackpool, 2. október. Reuter.
JAMES Callaghan, forsætisráðherra Breta, varð fyrir
meiriháttar áfalli, hinu mesta síðan hann varð
forsætisráðherra, þegar flokkur hans Verkamannaflokk-
urinn hafnaði gersamlega stefnu stjórnarinnar um
hófstillingu í kjaramálum til að hafa hemil á
verðbólgunni á árlegu þingi sínu í Blackpool í dag.
Uppreisninni gegn Callaghan á
þinginu stjórnuðu leiðtogar fjöl-
mennra verkalýðsfélaga sem esu
orðin þreytt á þriggja ára tak-
mörkunum á kauphækkunum.
Mikill meirihluti þingfulltrúa
greiddi atkvæði gegn efnahags-
málastefnu ríkisstjórnarinnar að
loknum þriggja tíma stormasöm-
um umræðum — einkum og sér í
lagi gegn tilraunum hennar til að
takmarka kauphækkanir við fimm
af hundraði.
Akvarðanir flokksþingsins eru
ekki bindandi fyrir ríkisstjórnina
og aðstoðarmenn Callaghans for-
sætisráðherra segja, að ekkert
bendi til þess að hann muni segja
af sér. Búizt er við að viðbrögð
hans komi fram á morgun þegar
hann ávarpar flokksþingið.
Ráðherrar segja að þeir muni
halda áfram baráttu sinni fyrir
því að bjarga þeirri stefnu sem
stjórnin hafi fylgt gegn verðbólg-
unni en viðurkenna að atkvæða-
greiðslan í dag hafi grafið undan
getu hennar til að berjast gegn
kröfum verkalýðsfélaga um miklar
launahækkanir.
Callaghan á flokksþinginu ásamt bæjarstjórafrúnni í Blackpool, June
Moore.
50.000 starfsmenn Ford-bíla-
verksmiðjanna hafa þegar lagt
niður vinnu og við blasir sú hætta
að í vetur komi til alvarlegra
vinnudeilna i Bretlandi. Aðrir
verkamenn, þar á meðal kola-
námumenn, hafa hótað að leggja
niður vinnu ef stjórnin reynir að
Andrúmsloftið þrung'ið
ótta og eymd í Víetnam
Parfo, 2. októher Reuter.
ANDRÚMSLOFTIÐ í Víctnam
er þrungið ótta og cymd ríkir
vegna gcigvænlegra vanda-
inálai styrjalda, flóða og hung-
ursncyðar, segir franski blaða-
maðurinn Rolan-Pierre Paring-
aux, sem er nýkominn frá
landinu.
Víetnamska hernum hefur
ekkert orðið ágengt í
kostnaðarsömu landamæra-
stríði við Kambódiumenn og
Suður-Víetnamar veita enn
stcfnu stjórnarinnar í Hanoi
andspyrnu segir Paringaux,
sem er einn fárra vestrænna
fréttamanna er hafa ferðazt að
ráði um Víetnam á undanförn-
um árum.
Spilling er komin á svo hátt
stig í víetnömsku kommúnista-
hreyfingunni að það á sér eng.t
hliðstæðu, fangabúðir fyrir póli-
tíska fanga eru fullar og leyni-
lögreglan hefur frjálsar hendur
um að stjórna í raun og veru
landinu, segir Paringaux í
greinum sínum um ástandið er
birtast í Le Monde, blaði sem
lengi hefur barizt fynr málstað
víetnömsku byltingarinnar.
Paringaux segir að raunveru-
legt styrjaldarástand ríki í
Víetnam, að hluti hersins heyi
blóðuga og árangurslausa bar-
áttu á kambódísku landa-
mærunum og að hinn hluti
hersins búi sig undir hugsanleg
átök við Kínverja.
Almennt herúboð er í landinu
öllu, á heilum svæðum vinna
aðeins konur á ökrunum.
'Stór hluti Mekongóshólma-
svæðisins er algerlega undir
vatni og hungursneyð ríkir á
sumum svæðum segir Paring-
aux.
Gremja sunnanmanna í garð
yfirvalda í Hanoi hefur náð nýju
hámarki síðan síðustu leifum
fyrrverandi stjórnar var útrýmt
takmarka launahækkanir við
fimm af hundraði.
Þingfulltrúar höfðu að engu
eindregnar áskoranir frá ráðherr-
um sem vöruðu flokkinn við því að
gera að engu sigurmöguleika sína í
þingkosningum sem fara fram á
næsta ári með því að segja skilið
við efnahagsstefnuna. Denis
Healey fjármálaráðherra kvað
launamálastefnuna hafa stórbætt
aðstöðu Breta og spáði „framfara-
stökki.**
Árásir inn
í Marokkó
Rabat, 2. október. Reuter.
HASSAN konungur Marokkó hef-
ur sakað alsírskt herlið um að hafa
gert tvær árásir yfir landamærin
og segir að margir hafi beðið bana
og særzt í árásunum að sögn
marokkóskra embættismanna í
kvtild.
Ásökun konungs kom fram í
harðri mótmælaorðsendingu til
Houari Boumedienne forseta Alsírs
um helgina. Hassan konungur sagði
að atburðirnir hefðu gerzt á laugar-
dag og sunnudag á tveimur stöðum,
öðrum um fimm km og hinum 15 km
frá alsírsku landamærunum.