Morgunblaðið - 03.10.1978, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1978
19
íbróttir
'.. !
SÉi
Minnast leiksins
í Magdeburg 1974
— BLÖÐIN skriía mikið um leikinn fræga í Magdeburg hér um árið og eru sum
greinilega kvíðin fyrir leikinn gegn íslendingum hér í Halle á miðvikudaginn.
Við skoðuðum völlinn í morgun og leist mjög vel á hann, en hann er heimavöllur
fyrstu deildar liðsins Chemie Halle. Hann tekur 30.000 manns og reiknað er með
a.m.k. 20.000 mæti á landsleikinn, — sagði Ellert Schram í samtali í gær. — Við
höfum orðið fyrir nokkru áfalli, Dýri Guðmundsson steig ofan á skel í
f jörukambi á Spáni og skar sig svo illa, að hann er draghaltur. í stað hans komu
inn í liðið þeir Jón Gunnlaugsson og Jóhannes Guðjónsson báðir frá IA, — sagði
Ellert enn fremur.
Er Mbl. ræddi við Ellert í gær, voru enn ókomnir til Halle þeir Atli, Guðmundur, Ingi Björn og
Stefán Örn Sigurðsson frá Holbæk. Þeir voru hins vegar væntanlegir til liðs við liðið í dag. Hvorugt
liðanna hafði verið tilkynnt er Mbl. hringdi í gær, en vitað er að í þýska liðinu eru nokkrir félagar úr
liði Magdeburg, sem lék hér á dögunum gegn Valsmönnum. — gg.
Þráinn stórbætti
árangur sinn
Keppnistímabilinu í
frjálsum íþróttum lauk
Staðan í
körfunni
íiéííí
• Jóhanncs Guðjónsson lcikur hugsanlega sinn fyrsta
landslcik í Ilallc á morgun. en hann ásamt Jóni Gunnlaugssyni
var kallaður til liðs við landsliðið á síðustu stundu, vcgna þess
að Dýri Guðmundsson skar sig á fæti suður á Spáni.
358— 321
338 - 326
332-315
359- 344
373 -394
338-369
6 stig
6 stig
6 stig
4 stÍK
2 síík
0 stig
STIGAIIÆSTU MENN.
Dirk Dunbar ÍS
Stew Johnson Á
John Johnson Fram
Paul Stewart ÍR
John Hudson KR
Torfi MaKnússon Val
um helgina með bikar-
keppni FRÍ í fjölþraut-
um. í tugþrautarkeppn-
inni náði Þráinn Haf-
steinsson sínum lang-
besta árangri, hlaut
7236 stig og sigraði
örugglega. Er afrek
Þráins mjög gott þegar
miðað er við hversu
veður var óhagstætt til
keppni.
Annar í þrautinni varð Pétur
Pétursson ÚÍA; hlaut hann
6799 stig. Þriðji varð Þorsteinn
Þórsson með 6571 stig, og bætti
þar með 10 ára gamalt drengja-
met Ólafs Guðmundssonar í
tugþraut um rúm 300 stig.
í fimmtarþraut kvenna
mættu fimm stúlkur til leiks,
en þrjár luku keppni. Sigríður
Kjartansdóttir sigraði, hlaut
3032 stig, Valdís Hallgríms-
dóttir varð önnur með 2597
stig, og Asta Asmundsdóttir
þriðja með 2156 stig.
I tugþrautinni bar Ármann
sigur úr býtum í félagakeppn-
inni, hlaut 10,916 stig, IR varð í
öðru sæti með 10,530 stig. KA
sigraði í kvennakeppninni.
þr.
Framstúlkurn-
ar
FYRSTU lcikir í mcistara-
flokki kvenna í Reykjavíkur-
mótinu í handknattleik fóru
fram um helgina. Úrslit urðu
þessi.
Fram — Valur 11-6
Fram — KR 7 — 3
KR — Víkingur 4—6
Fylkir — Þróttur 5 — 4
Valur — Víkingur 13—9
ÍR - Þróttur 12-8
Anaegður með útkomuna
segir landsjiðsþjálfarinn
ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik, sigraði einnig í síðari landsleik sínum við
Færeyinga sem fram fór í Þórshöfn á sunnudag. Leiknum lauk með 20 mörkum
gegn 16. ísland hafði tvö mörk yfir í hálfleik 10—8.
Að sögn Jóhanns Inga landsliðsþjálfara, var síðari leikur íslenska liðsins ekki
eins góður og sá fyrri. Virtust menn vera eilítið þyngri á sér, og spilið var ekki
eins hratt og létt.
Bestu kaflar íslands komu í byrjun beggja hálfleikja. Var þá keyrður upp hraði
og^varnarleikurinn sterkur.
íslenska liðið komst í 2—0 í byrjun leiksins, en Færeyingar jöfnuðu. Þá náði
ísland góðu forskoti 7—2, og hafði svo 2 mörk yfir í leikhléi. í síðari hálfleiknum
komst Island mest í sjö marka forystu, en í lokin slökuðu leikmenn nokkuð á og
sýndu kæruleysi. Misnotuðu þeir tvö vítaköst, og nokkur dauðafæri.
Við spurðum nýja landsliðsþjálfarann hvernig honum hefði líkað þessi fyrsta
ferð sín með hópnum og hann svaraðn
— Þetta var mikil reynsla fyrir mig. Það var lærdómsríkt að stjórna
A-landsIiði í fyrsta skipti. Ég lagði áherslu á að ná sem bestum sálrænum
undirbúningi með leikmönnum fyrir leikina. Og mér fannst það takast vel.
Hópurinn stóð sig vel, þetta ver sterk liðsheild, engar stjörnur. Útkoman var eins
og ég hafði best vonað.
Mörk íslands skoruðut Viggó Sigurðsson 7, Páll Björgvinsson 4, Bjarni
Guðmundsson 3, Steindór Gunnarsson 2, Ólafur Jónsson 1, Sigurður Gunnarsson
1. - þr
1
■
s
€
m
r
• Stcíán Gunnarsson. landsliðsfyrirliði. skorar. Ilans bíða ærin
vprkcfni cr líða tekur á vcturinn.