Morgunblaðið - 03.10.1978, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1978
25
Stjómmálayfirlýsing aukaþings SUS:
Sjálfstæðisflokkur verður
að undirbúa ítarlega
og samræmda stefnumörkun
skyldum fjölda meðmælenda.
c) Kjörnefnd eða annar aðili hafi
ekki rétt til að tilnefna
frambjóðendur nema að sú
staða komi upp að ekki komi
fram nægilega mörg framboð.
d) Samræmdar verði margvís-
legar framkvæmdareglur s.s.
— um aðgang að flokkslegum
upplýsingum (félagsskrár o.fl.)
— um hringingar fyrir og á
kjördag.
— um útgáfustarfsemi.
e) Að ákvæði verði sett um það
hverjir megi taka þátt í próf-
kjörinu.
f) Að ákvæði verði sett um
bindingu úrslita prófkjörsins.
VI. Almennir
starfshættir
Varðandi landsfund, flokksráðs-
fund og formannaráðstefnur þarf
að senda út skýrslur til þátttak-
enda a.m.k. viku áður en fundir
hefjast. Slíkir fundir eiga að
grundvallast á almennum um-
ræðum, nefndarstörfum og um-
ræðum um álit. Þess sé gætt að
þau gögn, sem lögð eru fram í
nefndum séu fyrst og fremst
umræðugrundvöllur, þannig að
nefndarmenn sjálfir hafi raun-
veruleg áhrif á niðurstöður
nefndarnnar.
Ekki á að eyða tíma í langar
skýrslur (upplestur) heldur eiga
fundarmenn að hafa þær í höndum
og vera búnir að kynna sér þær.
Forysta flokksins á síðan að sitja
fyrir svörum um stefnu flokksins.
og starfshætti. Ganga verður ríkt
eftir því, að fundarmenn séu virkir
þátttakendur.
Ungir Sjálfstæðismenn benda á
að núverandi kosningatilhögun á
Landsfundum sé úrelt og ósæm-
andi fyrir lýðræðisflokk. Lagt er
til, að á Landsfundi starfi kjör-
nefnd og sé framboöum til
formanns, varaformanns og
miðstjórnar skilað til hennar
sólarhring áður en kjörfundur
hefst.
VII. Rekstur Sjálf-
stæðishússins og
miðstjórnar-
skrifstofunnar
Taka verður upp nýja starfs-
hætti á skrifstofu flokksins og
verði í því skyni komið á deilda-
skiptingu:
Rekstrar- og skipulagsdeild.
Fræðslu- og útbreiðslunefnd.
Framkvæmdastjóri útbreiðslu-'
nefndar verði jafnframt formaður
útbreiðslunefndar (sbr. III. kafla).
Frumskilyrði þess, að markviss
starfsemi geti átt sér stað, er að
virkt samstarf skapist milli fram-
kvæmdastjóra miðstjórnar
(rekstrar- og skipulagsdeildar) og
framkvæmdastjóra annarra sam-
taka, sem aðsetur hafa í Sjálf-
stæðishúsinu (S.U.S., L.S. og
Verkalýðsráð).
Vinna verður því með öllum
tiltækum ráðum að gera Sjálf-
stæðishúsið að þeim sameiginlega
stað flokksmanna sem það á að
vera.
Til að vinna að þessu verði:
a) komið verði upp kaffiteríu á
jarðhæð hússins og verði veit-
ingasalan boðin út.
b) komið verði upp töflu í anddyri
hússins, sem sýni glögglega
hvar fundir eða önnur starf-
semi sé í húsinu. Númera mætti
sali og herbergi til hægðar-
auka. Sýna að líf er í starfi
flokksins.
c) útbúnir verði fundarsalir og
smærri fundarherbergi þannig,
að þau komi að sem fjöl-
breyttustum notum t.d. með
töflum til að skrifa á, mynd-
varpa, aðstöðu til kvikmynda-
sýninga eða skuggamynda-
sýninga.
d) hraðað verði sem mest fram-
kvæmdum við kjallarasal
hússins. Sjálfstæðishúsið á að
vera sá vettvangur, sem allir
Sjálfstæðismenn vilja koma
með gesti sína. Þar eiga menn
að geta hitt samherja sína,
hvort sem um er að ræða
almenna flokksmenn, þing-
menn eða forystulið. Það
verður að vera vettvangur til að
skapa og auka tengsl manna í
millum, samhug og stemningu.
Á aukaþingi Sambands
ungra sjálfstæðismanna var
samþykkt eftirfarandi
stjórnmálayfirlýsing.
Ungir Sjálfstæðismenn berjast
fyrir frjálsu og opnu lýðræðisþjóð-
félagi, þar sem einstaklingarnir
njóti mesta mögulega frelsis til
þess að ákvarða sjálfir um líf sitt
og starf.
Efnalegar og andlegar framfarir
og félagslegar umbætur byggjast á
því að atorka einstaklinganna og
samtaka þeirra fái að njóta sín til
fulls. Frjálst framtak og sam-
keppni í efnahags- og atvinnumál-
um tryggir mesta mögulega af-
rakstur atvinnuveganna og er
þannig forsenda raunhæfra kjara-
bóta öllum landsmönnum til
handa.
Hin nýja vinstri stjórn, sem tók
við völdum að afloknum síðustu
kosningum hafnar frjálsum
markaðsbúskap en velur leiðir
hafta, miðstýringar og opinberrar
forsjár á öllum sviðum. Þau verk
ríkisstjórnarinnar sem nú hafa séð
dagsins ljós staðfesta þetta. Ríkis-
stjórnin svíkur kosningaloforð
Alþýðuflokks og Alþýðubandalags
um „samningana í gildi". Ríkis-
stjórnin falsar vísitöluna og setur
upp flókið kerfi millifærslna og
styrkja, sem leiðir til pólitísks
eftirlits- og úthlutunajkerfis.
Ríkisstjórnin leggur á afturvirka
skatta, sem brýtur gróflega í bága
við réttlætis- og siðgæðisvitund
þjóðarinnar og tekur upp sérstak-
ar álögur á margvíslegar nauð-
synjar og skerðir þannig enn
frjálst val neytenda.
Ungir Sjálfstæðismenn telja það
höfuðverkefni Sjálfstæðisflokks-
ins að veita núverandi ríkisstjórn
allt það aðhald og markvissa
stjórnarandstöðu sem hann má. I
þessu skyni er nauðsynlegt að
Sjálfstæðisflokkurinn hefji þegar
undirbúning að ítarlegri og sam-
ræmdri stefnumörkun sem leggi
grunninn að framfarasókn
íslenzku þjóðarinnar næstu ára-
tugi.
Ungir Sjálfstæðismenn vilja
meðal annars leggja sérstaka
áherslu á eftirfarandi atriði við
mótun stefnu Sjálfstæðisflokksins.
Nauðsynlegt er að tryggja
rekstrargrundvöll atvinnuveg-
anna. Vegna rangrar skipu-
lagningar atvinnulífs, vitalausrar
lánastefnu og gæluverka stjórn-
valda er hætta á að Island verði
láglaunasvæði. Vandamálið verður
að leysa með aukinni iðnvæðingu
og fullvinnslu afurða. Atvinnu-
greinar þurfa að vera reknar með
arðsemissjónarmið í huga og
óhæfa er að mismuna ólíkum
rekstrarformum með skattlagn-
ingu. Sérstök nauðsyn er á endur-
skoðun á markmiðum land-
búnaðarstefnunnar og tekin af-
staða til þess, hvort rekinn skuli
sjálfsþurftarbúskapur eða hvort
stefnt skuli að umframfram-
leiðslu.
Ungir Sjálfstæðismenn leggja
áherzlu á samdrátt í ríkisbúskapn-
um og hvetja til aukinpar baráttu
sjálfstæðismanna undir vígorðinu
„báknið burt“.
Ungir Sjálfstæðismenn leggja
áherzlu á að ungu fólki sé gert
kleift að eignast eigið húsnæði. —
í því skyni verði tryggð lánafyrir-
greiðsla við kaup á fyrstu íbúð sem
nemi allt að 80% af íbúðarverði,
miðað við stærðarmörk Húsnæðis-
málastjórnar, sem eru í gildi á
hverjum tíma.
Menntakerfið verður að endur-
skoða með það fyrir augum, að
nemendur eyði ekki of löngum
tíma á skólabekk. Það eru engin
rök fyrir því, að íslenzkir
nemendur þurfi að ljúka almennu
framhaldsskólanámi síðar en ger-
ist í nágrannalöndum okkar. Miða
verður við að almennu framhalds-
skólanámi ljúki við 18 ára aldur.
Skólarnir eiga að vera fræðslu-
stpfnanir. Nemendur eiga rétt á
því að njóta hlutlausrar fræðslu,
sérhverja tilraun til pólitískrar
innrætingar ber að fordæma. Slíkt
er í andstöðu við þá lýðræðishug-
sjón, að fólk móti sér sjálft eigin
skoðanir í stjórnmálum.
Ungir Sjálfstæðismenn telja að
vegna þjóðfélagsbreytinga undan-
farinna áratuga verði aö tryggja
að dagvistunarrými fyrir börn
fullnægi eftirspurn. Verðleggja
ber þessa þjónustu jafnt fyrir alla
en tryggja hag þeirra sem minna
mega sín með almannatryggingum
eða neikvæðum tekjusköttum.
Varanleg vegagerð er raunhæf
byggðastefna. Ungir Sjálfstæðis-
menn leggja áherzlu á, að stórátak
verði gert á þessu sviði og við það
miðað, að bundið slitlag verði lagt
á hringveginn og helztu aksturs-
leiðir út frá honum, innan 8 ára,
enda verði öllum tekjum af umferð
varið til vegagerðar. Slík sam-
göngubót veldur verulegum
sparnaði og gefur fjölþættari
möguleika til stofnunar og
reksturs atvinnufyrirtækja um
land allt.
Aðild að Atlantshafsbandalag-
inu og varnarsamstarf með vest-
rænum lýðræðisríkjum verður að
vera hornsteinn utanríkisstefnu
okkar ásamt norrænu samstarfi og
þátttöku í starfi Sameinuðu þjóð-
anna. Við Islendingar höfum
skipað okkur á bekk með öðrum
lýðræðisþjóðum, og þar eigum við
heima. Hlutverk okkar í alþjóða-
málum er, að berjast fyrir lýðræði
í heiminum, frelsi ófrjálsum
ríkjum til handa og að almenn
mannréttindi séu í heiðri höfð. Það
skiptir ekki máli, hver beitir
frelsisskerðingu eða brýtur al-
menn mannréttindi, slíkt má
aldrei líða. Lýöræðissinnuð æska
um allan heim verður að beita sér
fyrir öflugri baráttu á þessu sviði.
Lýðræði og frelsi verður ekki varið
með sofandahætti og hlutleysi,
heldur með staðfastri og einlægri
baráttu.
STUDIO
Ný keramiklfna frá Glit, hönnuð af
Sigurði Haukssyni, Handrennt keramik
með nýrri glerungsáferð.
Blómapottar, Skrautpottar, Matarskálar
cgL
höfðabakka 9.
SÍMI85411.
Þingfulltrúar að störfum á aukaþingi SUS, sem haldið var í Valhöll á Þingvöllum um
helgina. Ljósm. Mbl. RAX.