Morgunblaðið - 06.10.1978, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1978
3
Verðlagsmál blaðanna:
Morgunblöðin skrifa
ríkisstjórninni
- og lýsa áhuga sínum á viðræðum
„ÞAÐ MÁ segja að við höfum
stigið skref til að reyna að kanna
vilja stjórnvalda tii viðræðna við
dajíblöðin með því að senda
ríkisstjórninni þetta bréf og nú
bíðum við undirtektanna.“ sagði
Ilaraldur Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri Montunblaðsins. í
samtali við blaðið, en í gærmorg-
un sendu framkvæmdastjórar
Morgunblaðsins, Tímans. Þjóð-
viljans og Alþýðublaðsins ríkis-
stjórninni brcf þar sem sagt var
að af hálfu þessara hlaða væri
áhugi fyrir hendi til viðræðna við
ríkisstjórnina um stöðuna í verð-
lagsmálum hlaðanna.
Haraldur Sveinsson sagði
ennfremur: „I blaðaviðtali í morg-
un kom fram áhugi hjá viðskipta-
ráðherra á viðræðum milli ríkis^
stjórnarinnar og dagblaðanna. I
samræmi við það sem við á
Morgunblaðinu höfum gert taldi
ég rétt að eiga aðild að því að
dagblöðin sendu ríkísstjórninni
orð um að þau hefðu áhuga á
viðræðum. Síðar kom í ljós að
fulltrúar Vísis og Dagblaðsins
treystu sér ekki til aö skrifa undir
bréfið.
Þetta bréf okkar hinna fór inn á
ríkisstjórnarfund í morgun og nú
bíðum við bara svars.“
Við höfðum samband
við Svavar Gestsson
— segir framkvæmdastjóri Vísis
„ÞAÐ er nú ckki rétt hjá Svavari
að við höfum ekki haft samhand
við hann vegna þessa máls. Um
leið og hann tók við ráðherra-
starfi hafði ég samband við hann
fyrir hönd blaðanna til að minna
hann á hækkunartilkynningu
blaðanna. Hann sagði þá að hann
gerði sér fulla grein fyrir
hækkunarþörfum blaðanna og
kvaðst telja þetta sjálfafgreitt
mál en vildi þó skýra samráðherr-
um sínum frá því fyrst,“ sagði
Davíð Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Vísis í samtali við
Mbl. í gær, en í blaðaviðtölum í
gær kvartar Svavar Gestsson
viðskiptaráðherra yfir því að
forráðamenn Vísis og Dag-
blaðsins hafi ekki haft samband
við sig um hækkunarmálið.
Davíð Guðmundsson sagði enn-
fremur: „Síðan kom í ljós í
viðtölum við Svavar að einhvers
konar fyrirstaða var fyrir málinu
og að úrslitavaldið virtist vera í
höndum einhvers annars en hans.
Þannig getur Svavar tæpast
haldið því fram að ekki hafi verið
haft samband við hann né að hann
hafi ekki rennt grun í að hverju
stefndi."
Borgarstjórn:
Meirihlutinn treysti sér ekki
til að samþykkja atkvæðis-
rétt starfsmannafulltrúa
Á FUNDI borgarstjórnar í gær
kvöldi Iágu frammi tillögur frá
meirihluta borgarstjórnar um að
starfsmenn SVR og Borgarbóka-
safns fengju rétt til að kjósa einn
fulltrúa til að sitja stjórnarfundi
stofnananna með málfrelsi og
tillögurétti. Framsögu af hálfu
meirihlutans hafði Adda Bára
Sigfúsdóttir. Birgir ísleifur
Gunnarsson taldi hins vegar
eðlilegra form að koma á sam-
starfsnefndum í hinum ýmsu
fyrirtækjum og stofnunum
borgarinnar, en fyrst málið væri
komið í þennan farveg vildu
borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins stíga skrefið til fulls og
láta starfsmenn viðkomandi
stofnana kjósa tvo fulltrúa með
fullum rétti á stjórnarfundum
þar með töldum atkvæðisrétti.
Nokkrar umræður urðu um málið
og töldu fulltrúar meirihlutans
ástæðu til að kanna málið betur,
en rétt væri að samþykkja tillögu
þeirra scm fyrsta áfanga.
Birgir Isleifur Gunnarsson lýsti
undrun sihni á óákveðni meiri-
hlutans.
Tillögur meirihlutans voru síðan
samþykktar með atkvæðum meiri-
hlutans og tillögur minnihlutans
hlutu 7 atkvæði borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins en meirihlut-
inn sat hjá.
fjölmiðlum að ég viti til en hér eru
það sjálfir framleiðendurnir sem
sýna fram á skaðsemi bjórsins.
En samt sem áður er talað um
áfenga drykki af mikilli hræsni og
bera úienn það gjarnan saman við
matvörur svo sem mjólk og kjöt.
En áfengi er vímugjafi og það er
ekki raunhæft að tala um það
nema í sambandi við aðra vímu-
gjafa. Þó að maður hafi t.d. reykt
einn vindil hefur það ekki sömu
áhrif á hann og vín þar sem hægt
er að fá dagfarsprúða menn til að
fremja glæpi undir áhrifum áfeng-
is. Við erum í nánu sambandi við
Noreg og Kanada í áfengismálum
og við höfum fengið þær upplýs-
ingar að þótt einhverjar tegundir
kunni að bætast við á markaðnum
þá hefur það ekki áhrif á áfengis-
neyzluna né heldur tjónið af
völdum hennar. Tjón er í beinu
hlutfalli við neyzlu áfengis og þeir
sem þekkja eitthvað til þeirra
hluta gera sér glögga grein fyrir
því.
Ég veit ekki hvort bann á
innflútningi gersveppa komi til
með að stöðva heimabrugg en það
mun vissulega torvelda það. Það
verður t.d. ekki eins auðvelt og það
er nú fyrir fermingarbarn að
brugga. Þegar verið er í þessu
sambandi að nefna þá sem hafa
sitt lifibrauð á því að selja vörur
til bruggunar tel ég það ekki
raunhæft. Þessir menn geta varla
verið það fullkomnir að geta sagt
hug sinn hlutlaust.
Við hjá áfengisvarnaráði höfum
frá upphafi reynt að vinna á móti
heimabruggi og höfum verið í
stöðugu sambandi við yfirvöld til
þess að reyna að koma í veg fyrir
brugg. Við höfum reynt að fylgjast
með áhrifum þess og dreifingu og
höfum reynt að vekja athygli
yfirvalda á þessu vandamáli. Við
erum í þessu sambandi alls ekki að
hugsa um hag ríkisins.
Mig langar til þess að lokum að
vitna í orð Vilmundar Jónssonar
landlæknis en hann flutti einu
sinni ræðu og sagði þá þessi orð:
„Það er gömul bábilja og kerlinga-
bók að nokkur sú hófdrykkja sé til
sem sé skaðlaus.“
„Gat nú verið! Hún er líka i Duffys“
Frumsnið tölvureiknuð.
100% amerísk bómull — þvegin.
Stærðir: 27, — 28, — 29, —
30, — 31, — 32, — 33, —
34, — 36, — 38. ^
gallabuxurnar
obÝk MUNfíbUk
Austurstræti
sími: 27211
,