Morgunblaðið - 06.10.1978, Blaðsíða 32
r • sérverzlun með ^
litasjónvörp og hljómtseki.
FÖSTUDAGUR G. OKTÓBER 1978
Fulltrúar þingflokka stjórnarflokkanna:
Mótmæla harðlega vinnu-
brögðum ríkisstjómarinnar
LÚÐVÍK Jósepsson íor-
maður Alþýðubandalags-
ins, Geir Gunnarsson, full-
trúi Alþýðubandalagsins í
fjárveitinganefnd Alþing-
is, Sighvatur Björgvinsson
formaður þingflokks
Alþýðuflokksins og Karl
Steinar Guðnason varafor-
maður þingflokksins
gengu í gær á fund þriggja
ráðherrai Ólafs Jóhannes-
sonar forsætisráðherra,
Ragnars Arnalds mennta-
mála- og samgöngumála-
ráðherra og Magnúsar H.
Magnússonar félagsmála-
og heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra og mót-
mæltu harðlega vinnu-
brögðum ríkisstjórnarinn-
ar við gerð fjárlagafrum-
varpsins. Varð niðurstaða
þessa fundar ráðherranna
og fulltrúa þingflokkanna
sú að málið yrði skoðað
betur.
Þin);menn Alþýðuflokksins eru
andvífiir tekjuöflunartillö);um
ríkisstjórnarinnar, cinkum varð-
andi enn frekari hækkun á tekju-
skatti og breytta vísitöluviðmiðun
skattsins og alþýðubandalags-
menn hafa auk þess fjölmargar
athugasemdir við útgjaldaáform
ríkjsstjórnarinnar, niðurskurð
framkvæmda og stefnuna í fjár-
festingarmálum. Vilja þingmenn
Alþýðubandalagsins og Alþýðu-
flokksins að ríkisstjórnin leggi
fram á Alþingi í meginatriðum
drög að fjárlagáfrumvarpi sem
fyrrverandi ríkisstjórn hafði látið
vinna og að síðan verði ákveðið í
meðförum þingsins hverjar breyt-
ingar verða á tekjum og gjöldum.
Að því er Alþýðubandalagið
varðar, virðist þessi deila öðrum
þræði snúast um það, hvort
ráðherrar Alþýðubandalagsins
ráða ferðinni af hálfu síns flokks
eða hvort þeir verða að lúta vilja
Lúðvíks Jósepssonar og vekur í því
sambandi athygli, að ráðherrum
Alþýðubandalagsins er ekki falið
að túlka óánægju þingflokks
Alþýðubandalagsins með fjárlaga-
frumvarpið, heldur er það verkefni
falið Lúðvík Jósepssyni og Geir
Gunnarssyni.
Tómas Árnason fjármálaráð-
herra vildi í gærkveldi ekki ræða
við Morgunblaðið um stöðu fjár-
lagafrumvarpsins í ríkisstjórn-
inni.
Lagafrum-
varp um ger-
sveppinn?
—ekki reiðubúinn til
að segja neitt um
það nú segir fjár-
málaráðherra
_ÉG er ekki reiðuhúinn til að
segja neitt um það á þessari
stundu." sagði Tómas Arnason
fjármálaráðherra er Mhl.
spurði hann í gærkviildi hvort
hann myndi leggja fram á
Alþingi frumvarp til laga um
einkasiilu ATVR á gersvepp-
um ef það væri nauðsynlegt til
að tryggja ÁTVR einkasiilu á
þessari viiru.
Ég er fylgjandi þeirri stefnu
sem fram kom í heiðni fjár-
málaráðuneytisins til við-
skiptaráðuneytisins um þetta
mál." sagði fjármálaráðherra.
„Annað vil ég ekki segja að
svo stiiddu."
Sjá ummæli um heima-
hrugg á bls. 2.
„ÞETTA er nokkuð merkilegur
gripur," sagði Agnar
Kofoed-IIansen flugmálastjóri
er Mbl. ræddi við hann í gær um
flugvélina á myndinni, sem Rax
tók á Reykjavíkurflugvelli í
gær. Agnar sagði vél þessa hcita
Lockhead Ventura og var hún
smíðuð upp úr farþegaflugvél,
Lockhead Hudson. og notuð sem
sprengjuflugvél. Hún þótti hins
vegar aldrei góður flugkostur,
reyndar með því allra lélegasta
að sögn Agnars. Flugvélar
þessarar tegundar flugu yfir
Atlantshafið á árunum 1941 og
42 og sagði Agnar að m.a. hefðu
tvær farizt hér á landi og önnur
þeirra á Háskólalóðinni.
Geimveran
Stjörnubíó
sýnir „Close
Encounters”
IIVER stórmyndin rekur nú
aðra í kvikmyndahúsunum í
Reykjavík. Morgunblaðið hafði
af því fréttir í gær að Stjörnu-
híó myndi nk. laugardag byrja
sýningar á myndinni Close
Encounters of the Third Kind.
Þessi mynd er eiginlega vís-
indaskáldsaga og greinir frá því
þegar jarðarbúar komast í návígi
við fyrirbærið „fljúgandi disk“ og
verur utan úr geimnum. Leik-
stjóri myndarinnar er Steven
Spielberg, maðurinn á bak við
„Okindina“ sem hér var sýnd á
sínum tíma — „Jaws“, sem þá sló
öll met í aðsókn og þessi mynd
hefur ekki síður gert það gott.
Henni hefur verið lýst sem
tækniundri, því að brellurnar í
henni þykja ævintýri líkastar.
Þá mun Nýja bíó innan
skamms taka til sýninga mynd-
ina „Star Wars“, myndina sem
mesta aðsókn hefur hlotið í
kvikmyndasögunni og hleypti af
stað skriðu geimmynda.
Rafmagnsveitur ríkisins:
V er ða að loka á Suður-
nes javeitur eftir helgina
„ÞAÐ ER meiningin að híða út | eitthvað hatnað. Ef svo verður 1 málastjóri Rafmagnsveitna ríkis- I væri að ræða 6—8 fyrirtæki á
vikuna og hafa síðan samband við ekki og lítið um loforð þá munum ins er Mbl. spurði hann í gær um suðvesturhorni landsins og að
þessar rafmagnsveitur eftir helg- við taka af skarið og hóta lokun," skuldir rafveitna við rafmagns- samanlögð upphæðin næmi tug-
ina og sjá hvort staðan hefur | sagði Bent Thorsteinsson fjár- | veiturnar. Bent staðfesti að um I um milljóna króna. Sagði hann
„Afturköllun á uppsögnum kjara-
samninga kemur ekki til greina,’
— segir Guðmundur Hallvarðsson
Rætt við sjómenn, útvegsmenn og
fiskkaupendur um fiskverðið
„MÉR lízt illa á þetta fiskverð. það á enn einu sinni að skerða hlut
sjómanna umfram almennra þjóðfélagsþegna og líklega er þetta
gert á þeirri forsendu að sjómenn hafi svo miklar tekjur." sagði
Guðmundur Hallvarðsson hjá Sjómannafélagi Reykjavíkur, „það
er hart að þetta skuli koma frá stjórnvöldum sjálfum. Það er
engan veginn raunhæft eins og stundum er gert að horfa á
upphæð tekna sjómanna en láta liggja á milli hluta þá miklu
vinnu sem liggur að baki.
Guðmundur sagði að stjórn
Sjómannafélags Reykjavíkur
hygðist taka fyrir tvö mál á
næsta fundi, í fyrsta lagi
fiskverðið og í öðru lagi bréf frá
ASI með beiðni um afturköllun
á uppsögnum kjarasamninga,"
en ég tel að slíkt komi ekki til
greina á þessu stigi málsins,"
sagði Guðmundur.
„Fiskverðshækkunin viðbót
á rekstrarhallann"
Árni Benediktsson, formaður
sambands Sambandsfrystihúsa,
sagði að í stórum dráttum hefði
staðan fyrir þessa fiskverðs-
hækkun verið sú að lítilsháttar
halli hefði verið á frystiiðnaðin-
um, en allverulegur í saltfisk-
verkuninni. „Þessi fiskverðs-
hækkun kemur síðan til viðbót-
ar,“ sagði Árni, „en eins og fram
kemur í greinargerð okkar um
málið þá þótti okkur ekki annað
fært en sjómenn fengju nokkuð
hliðstæða hækkun miðað við það
sem orðið hefur í landi, en hins
vegar er erfitt að meta það
hvenær það er hliðstaett. I
sumum tilvikum er um minni
hækkun að ræða, en meiri í
öðrum.“
„Meinsemdin aðeins færð
til í þjóðfélaginu"
Gísli Hermannsson hjá Ögur-
vík sagði að með þessari fisk-
verðshækkun væri verið að ýta
þeim vanda sem við væri að
glíma yfir á útgerðina og
sjómenn. „Vandinn er hjá fisk-
kaupendum,“ sagði Gísli, „og
honum er ýtt yfir á aðra þótt
þeir séu á engan hátt undir það
búnir eða færir um að taka slíkt
á sig. Meinsemdin er því ekki
læknuð, heldur er hún aðeins
færð til í þjóðfélaginu.
Ef öll fyrirtæki í sjávarútvegi
þurfa að vera rekin með halla,
þá er þetta gott svona, enda er
nú svo komið að ef einhverjum
tekst að láta fyrirtæki sitt bera
sig þá er því slegið upp í fréttum
með nauðgunar- og þjófnaðar-
fréttum.
Vandi fiskkaupenda hefur
ekki verið leystur með þeim
efnahagsaðgerðum sem gerðar
hafa verið, en með þessu er verið
að reyna að leysa hann að
einhverju leyti.“
„Menn óhressir
yfir þróun mála"
Sveinn Ingólfsson á Skaga-
strönd kvaðst telja að þessi
fiskverðshækkun hefði verið of
lítil. „Það er ekkert vafamál að
kostnaðarhækkanirnar hafa
orðið miklu meiri og ekki er á
bætandi hjá útgerðinni. Það
fylgist að í þessu að sjómenn
dragast aftur úr í launum og
erfiðleikar aukast hjá út-
gerðinni. Mönnum hér um slóðir
finnst þetta lítil hækkun og eru
alls ekkert hressir yfir þróun og
gangi málsins."
að sumar veiturnar hefðu dregið
greiðslur í 3—4 manuði og aðrar
í allt að 10.
Bent sagði að þessum veitum
hefði verið hótað lokun í síðasta
mánuði en þá hefði verið samið um
frest þar sem aðalskuldarar þess-
ara veitna væru fiskvinnslufyrir-
tæki, sem séð hefðu fram á
einhverja úrlausn sinna mála.
Síðan hefði verið veittur frestur á
frest ofan út allan september en
nú gætu Rafmagnsveitur ríkisins
ekki beðið lengur. „Landsvirkjun
heimtar miskunnarlaust greiðslur
af okkur og það eru teknir hæstu
leyfilegir vextir af því sem við ekki
getum greitt á réttum tíma,
þannig að okkur er nauðugur einn
kostur að grípa til aðgerða eftir
helgina, ef ekki rætist úr,“ sagði
Bent. ___ ______
Bíómiðinn
hækkar
um 20%
VERÐLAGSYFIRVÖLD hafa
heimilað kvikmyndahúsunum að
hækka verð aðgöngumiða um 20%
og tekur hið nýja verð gildi í dag.
Aðgöngumiðinn hækkar úr 500 í
600 krónur og harnamiðinn úr
250 í 300 krónur.