Morgunblaðið - 06.10.1978, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1978
19
Nýtt stöðvarhús
Pósts og síma
í Hólmavík
Hólmavík. 5. október.
í GÆR var tekið í notkun nýtt
stöðvarhús Pósts og síma í Hólma-
vík.
Húsið er á tveimur hæðum 1277
rúmm. A neðri hæðinni, sem er
233 fm, er rúmgóð og vistleg
afgreiðsla pósts og síma ásamt
tilheyrandi geymslurými, skrif-
stofa stöðvarstjóra, talsímaklefar
og pósthólf, og venjuleg hreinlæt-
isaðstaða. I tengibyggingu við
aðalhúsið er sjálfvirka símstöðin,
en sá hluti byggingarinnar var
byggður árið 1969 og tekinn þá í
notkun.Efri hæð hússins er 150
fm. Þar er rúmgóð íbúð stöðvar-
Skautaborð
stórhættuleg
í AKUREYRARBLAÐI Morgun
blaðsins í gær var birt mynd af
unglingi á svokölluðu skauta-
borði. Af því tilefni hafði Eiríka
Friðriksdóttir sem unnið hefur að
slysarannsóknum. samband við
blaðið og kvað slíkt farartæki
mjög hættulegt, þar sem unnt
væri að ná á því allt að 50 mílna
hraða. Hafa slík bretti verið
bönnuð í Noregi.
Nú í september sagði Eiríka að
haldin hefði verið ráðstefna í
Árósum, þar sem slysarannsókna-
fólk frá öllum Norðurlöndunum
hefði verið saman komið. Á
þessari ráðstefnu var sérstaklega
fjallað um þessi skautabretti og
varð niðurstaða ráðstefnunnar að
ekki ætti að leyfa notkun brett-
anna nema mjög takmarkað og
skyldi fólk þá m.a. hafa öryggis-
hjálm á höfði. Eiríka kvað erindi
vegna þessa hafa verið sent
heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu.
Brotist inn hjá
borgardómara og
kvennasamtökum
INNBROT var framið í Hallveig-
arstaði í fyrrinótt en þar eru til
húsa borgaradómaraembættið,
Kvenfélagasamband Islands og
Kvenréttindafélag 7 íslands.
Þjófarnir fóru um allt húsið, brutu
upp hurðir og unnu skemmdarverk
á annan hátt. Voru þeir greinilega
í peningaleit en lítið höfðu þeir
upp úr krafsinu, þar sem litlir sem
engir peningar voru geymdir í
húsinu.
Sofnaði út
frá logandi
sígarettu
SLÖKKVILIÐIÐ var kallað að
íbúðarhúsinu Rjúpufelli 31 laust
fyrir klukkan 2 í fyrrinótt en eldur
hafði komið upp í einni íbúðinni.
Slökkvistarf gekk vel en miklar
skemmdir urðu á íbúðinni og
innanstokksmunum af eldi, vatni
og reyk. Orsök eldsvoðans var sú,
að húsráðandinn hafði sofnað út
frá logandi sígarettu í sófa í
stofunni og kviknaði í sófanum.
Maðurinn, sem er þrítugur að aldri
vaknaði í tæka tíð. Hann hlaut
væga reykeitrun.
stjóra og gistiherbergi fyrir
starfsmenn pósts og síma. Byrjað
var á byggingu hússins í maí í
fyrra, en öllum frágangi húss og
ióðar lokið nú fyrir skömmu.
Húsið er hið vandaðasta að allri
gerð og bætir úr brýnni þörf, því
gamla símstöðvarhúsið var orðið
allt of lítið fyrir starfsemina.
Húsið teiknaði Jósef Reynis,
arkitekt. Verkfræðiþjónustu önn-
uðust: Verkfræðistofa Braga
Þorst. og Eyvindar Vald. og
Verkfr.stofa Kristjáns Flygenring.
Raflagnir teiknaði Ólafur Tómas-
son. Verktaki hússins var Reynir
Hjörleifsson, múrarameistari í
Hafnarfirði, og sá hann jafnframt
um allt múrverk. Þetta er 4.
stöðvarhúsið, sem Reynir byggir
fyrir Póst og síma. Raflagnir
teiknaði Ólafur Tómasson. Verk-
taki hússins var Reynir Hjörleifs-
son, múrarameistari í Hafnarfirði,
og sá hann jafnframt um allt
múrverk. Þetta er 4. stöðvarhúsið,
sem Reynir byggir fyrir Póst og
síma. Húsasmíðameistari var Þor-
steinn Jónsson, Hólmavík. Pípu-
lögn annaðist Guðmar Sigurðsson.
Raflögn: Samvirki s/f. Málningu:
Friðrik Runólfsson málarameist-
ari. Dúklögn: Guðm. J. Kristjáns-
son. Innréttingar í afgreiðslu eru
smíðaðar á verkstæði Pósts og
síma. Aðrar innréttingar eru að
mestu leyti frá Trésmiðj-unni,
Trönuhrauni 10, Hafn.Viðstaddir
opnun hússins voru yfirmenn
Pósts og síma, starfsfólk Pósts og
síma í Hólmavík og boðsgestir. I
ár eru liðin 70 ár frá því fyrsta
símstöðin var opnuð í Hólmavík.
— Andrés
Reynt að draga
úr slysahættu
ÁKVEÐIÐ hefur verið að gera
breytingar á stöðunum tveimur
þar sem banaslys urðu fyrir
stuttu í Reykjavík og Hafnar-
firði. Kristófer Magnússon full-
trúi í umferðarnefnd Ilafnar-
fjarðar sagði að nefndin hefði
lagt til við bæjarstjórn og gerð
yrðu útskot fyrir biðstöð strætis-
vagna á Strandgötu við gang-
brautina og girt yrði að henni til
að beina umferð gangandi á
gangbrautina meira en verið
hefði. bá verður hún lýst betur
upp og Strandgatan þrengd
nokkuð á þessum kafla.
Á Laugavegi í Reykjavík hefur
verið ákveðið að færa gangbraut
framan við Hótel Esju og verða þá
biðstöðvar beggja vegna götunnar
báðar austan megin gangbrautar-
innar. Hefur umferðarnefnd
Reykjavíkur samþykkt að leggja
þetta til við borgarstjórn. Þá hefur
nefndin lagt tíl við borgarráð að
Njarðargata frá Sóleyjargötu að
Njálsgötu verði gerð að aðalbraut.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra er auösýndu samúð og vináttu viö andlát og
jaröarför móöur okkar, fósturmóöir, tengdamóöur, ömmu og langömmu.
GUDRUNAR JÓHANNSDÓTTUR,
Sfóra- Kálfalæk.
Arnbjörg Siguröardóttir Hjörtur Magnússon,
Jóhann Siguröaaon, Unnur Andréadóttir,
Holga Guómundadóttir, Ólafur Magnúaaon,
Sveinbjörg Guömundadóttir,