Morgunblaðið - 06.10.1978, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 06.10.1978, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1978 15 Neyzla verður heft í Noregi Frá fréttaritara Mbl. í Ósló í gær. NORKSA stjórnin lagði í da>? fram f járla>?afrumvarp næsta árs ok það miðað greinilcga að því að hefta vfcrðbólgu og innanlands- neyzlu. treysta efnahaginn, bæta samkeppnisaðstöðu erlendis og viðhalda atvinnu. Fjárlögin byggjast á tveggja ára stöðvun kaupgjalds og verðlags sem var sett á í síðasta mánuði og niðurstöðutölurnar verða 67,7 milljarðar norskra króna sem er 6,3% hærri en á yfirstandandi fjárlögum. Per Kleppe fjármála- ráðherra segir að gert sé ráð fyrir 6,3 milljarða króna halla. Hann sagði að ríkisútgjöld til fjárfestinga, vara og þjónustu mundu aukast um 0,5% miðað við 1978 og það yrði minnsta aukning frá stríðslokum. Megináherzlan er lögð á að draga úr atvinnuleysi en Kleppe varaði við því að það gæti aukizt úr 1% í allt að 2% sem þó er lítið á evrópskan mælikvarða. Aðeins um 20.000 voru skráðir atvinnulausir í síðasta mánuði og þótt þeim fjölgi í 25.000 er það talið viðunandi. Stjórnin mun verja 450 millj. kr. til atvinnubótavinnu. Erlend aðstoð verður sem fyrr 1% þjóðartekna eða 2,2 milljarðar króna. Utgjöld ti landvarna aukast um 6,5% í 7,3 milljarða króna miðað við 13,6% aukningu 1977—78. Lífskjör eiga ekki að batna og lífskjör hinna hæstlaun- uðu munu versna nokkuð. Kaup- máttur eykst aðeins hjá eftir- launafólki og mun nema 3—4%. Lægstu ellilaun aukast í 21.800 kr. fyrir einhleypa og í 35.400 kr. fyrir hjón. Framlög skattgreiðenda í eftirlaunasjóði aukast um 0,8%. Barnafjölskyldur fá skattalækkun. Kleppe sagði að í samvinnu við banka og sparisjóði yrði lánum haldið í lágmarki til einkaneyzlu. Ríkisbankar eiga að minnka lán um 10%: Kleppe sagði að stöðva yrði óarðbæra framleiðslu og gjaldþrot yrði að skoða sem eðlilegan þátt í efnahagslifinu. Þjóðartekjur hafa aukizt um 1,8% miðað við 3,1% árið áður. íran: 50 þús. í Teheran. 5. okt. AP. FIMMTÍU þúsund opinberir íranskir starfsmenn lögðu niður vinnu í dag víðs vegar um Iran til að lýsa andstöðu sinni við stjórn Emamis forsætisráðherra. Er þetta önnur meiri háttar mótmælagjörðin á innan við viku. Verkfallið hafði víðtæk áhrif, meðal annars á Pah- lavisjúkrahúsinu i Teheran og á verkfall öllum þjónustuskrifstofum á vegum ríkisins. Þá lögðu nokkur hundruð verkamenn við olíuhreinsunarstöð við Persaflóa niður vinnu og 600 starfsmenn Rauða krossins voru einnig sagðir í verkfalli. Aðilar krefjast um hundrað prósent kaup- hækkunar. Stjórnin gekk að kröfum starfsmanna ríkisolíufélags írans í gær varðandi launahækkun. Skipum fækkar um 103 í Noregi Frá fréttaritara Mbl. í Ósló í gær: NORSKUM kaupskipum hefur fækkað um 103 það sem af cr þessu ári og óhjákvæmilegt er að kaupskipaflotinn minnki ennþá meir að því er félag norskra skipaeigenda tilkynnti í dag. Hinn 1. október hafði kaup- skipaflotinn minnkað um 3 milljónir lesta og 2.760 norskir sjómenn höfðu misst atvinnuna. Fyrir árslok verða seld sex skip til viðbótar, alls um 450.000 lestir og 240 sjómenn í viðbót missa atvinn- una. Niels Werring forseti félagsins, sagði að ástandinu yrði aðeins bjargað með breyttri stjórnar- stefnu. Hann sagði aö aðrar þjóðir gætu boðið upp á ódýrari þjónustu þar sem þær greiddu lægri laun. Til þess að sigrast mætti á erfiðleikum skipaútgerðarinnar sagði Werring að stjórnin yrði að gera útgerðarmönnum kleift að láta skip sín sigla í takmarkaðan tíma undir fánum landa svo að hægt vaéri að nota ódýrt erlent vinnuafl þó að yfirmenn skipa yrðu norskir. Hann sagði að stjórnin yrði einnig að heimila útgerarmönnum aö fækka í áhöfnum skipa sinna svo að þær yrðu aðeins skipaðar þeim lágmarksfjölda sem væri leyfilegur samkvæmt norskum öryggisreglum. Þetta gerðist 6. október 1977 — Ráðstefnan í Belgrad sett. 1970 — Herbylting í Thailandi. 1973 — Hörðustu átök Israels- manna og Araba í sex ár á Golanhæðum. 1958 — Met bandaríska kjarn- orkukafbátsins „Seawolf", sem kemur upp við Nýja England og var tvo mánuði í kafi. 1953 — Brezkt herlið til Brezku Guvana að afstýra kommúnistabyltingu. 1939 — Bretar og Frakkar hafna friðartimleitunum Ilitl- ers. 1938 — Slóvakía fær sjálf- stjórn. 1928 — Chiang Kai-shek kos- inn forseti Kína. 1927 — Öld talmynda hefst með sýningu „Jazz-söngvarans“ með A1 Jolson. 1918 — Frakkar taka Beirút. 1911 — ítalir taka Tripoli. 1818 — Austurríkismenn segja Ungverjum stríð á hendur. 1507 — Hertoginn af Alba tek- iir öll völd í Niðurlöndum. 1170 — Hinrik VI sleppt úr Tower. Afmæli dagsinsi Charles How- ard, jarl af Nottingham, brezkur fiotaforingi (1536 — 1624) — Loðvík Filippus Frakkakonung- ur (1773 - 1850) - George Westinghouse, bandarískur upp- finningamaður (1846 — 1914). Innlentt Spendrup, sýslumaður Skagfirðinga, drukknar í Hér- aösvötnum 1735 — F. Benedikt Gröndal 1826 — Dýralæknaráð Dana gagnrýnir niðurskurðar- áform Norðlendinga 1858 — Taflfélag Reykjavíkur stofnað 1900 — F. Ásmundur Guð- mundsson biskúp 1888 — Eggert Kristjánsson forstjóri 1897 — Stefán Islandi 1907 — Jónas Haralz. 1919. Orð dagsinsi Staðreyndir verða ekki að engu af því l>a»r eru hafðar að engu — Aldous Huxley, enskur rithöfundur (1894 - 1963). Tj&rri' (JU ~ . vhei/rrr%l% . taka stórt upp '^’nina nýju num ,a""|siV0rö í auglý'OQ" pömutrí. ŒesÞsu P'-^rrtramar vonurnJ ^PP^oK^r, s^-eola Uortió eins o9 m vie að nú Þe9ar SiSfStó» " “ """ . þínu heirrvili? Kiarnab® sími 28t5S. oremng um K>a,na __________-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.