Morgunblaðið - 06.10.1978, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1978
5
Þórshamar GK leigður til Bretlands:
Gerður út á makríl-
veiðar frá Plymouth
ÞÓRSHAMAR GK 75 frá Grinda-
vík hefur verið leigður til Bret-
lands í fjóra mánuði, en þaðan er
báturinn gerður út á makrílveið-
ar. Að sögn Erlings Kristjánsson-
ar skipstjóra. eins af eigendum
Þórshamars, hefur Þórshamar
verið í leigu frá 18. september og
í lok síðustu viku hafði skipið
landað 300 lestum af makríl í
Skotlandi, en veiðar skipsins
hófust ekki fyrr en í byrjun
síðustu viku.
Þórshamar er gerður út frá
Plymouth í Englandi, en áhöfn
skipsins er svo til eingöngu írsk.
Einn íslendingur er um borð í
skipinu, Sigmar Björnsson vél-
stjóri, og verður hann einhvern
tíma um borð.
Þórshamar er 325 lestir að
stærð, byggður í Noregi árið 1974.
Þórshamar var keyptur til Grinda-
víkur frá Færeyjum, en áður hét
skipið Götunes.
Almenna bókafé-
lagið gefur út 10
bækur fram til jóla
ALMENNA bókafélagið ráðgerir
að senda frá sér nú fram til jóla
10 bækur og kemur ein þeirra,
skáldsagan Hægara pælt en kílt,
eftir Magneu Matthíasdóttur, út
á næstu dögum. Hér er um að
ræða fyrstu bók ungrar skáld-
konu og gerist bókin annars
vegar í heimi eiturlyfjanna og
hins vegar í ævintýraheimi.
Þá kemur út fyrra bindi af
ævisögu Rögnvalds Sigurjónsson-
ar píanóleikara, sem Guðrún
Egilson hefur skráð. Kallað í
Kremlarmúr nefnist bók, sem
Agnar Þórðarson rithöfundur
hefur skrifað og hefur að geyma
frásögn af ferð Agnars og fleiri til
Sovétríkjanna 1956 en með honum
Tveir seldu
í Þýzkalandi
TVEIR íslenzkir bátar seldu
í Þýzkalandi í gær, báðir í
Bremerhaven. Ilöfrungur III
seldi 67 tonn fyrir 21 millj-
ón, meðalverð 313 krónur
fyrir kg og Bylgjan frá
Vestmannaeyjum seldi 35,4
tonn fyrir 9,6 milljónir,
meðalverð 270 krónur fyrir
kg. Uppistaðan í aflanum
var ufsi.
í hópnum voru meðal annars
Steinn Steinarr, Jón Óskar og Jón
Þórarinsson en það var að aflok-
inni þessari för, sem skáldið
Steinn Steinarr hóf að gagnrýna
Sovétríkin og þjóðskipulagið þar.
Eftir Guðmund L. Friðfinnsson
frá Egilsá kemur út bók með
heitinu Blóð og er þar á ferðinni
skáldsaga. Sagan Hoppit eftir J. R.
Tolkien en saga þessi hefur verið
mikið lesin í Evrópu. AB gefur í
haust út bók Per Olaf Sundmanns,
Sagan af Sámi, en efnivið sögunn-
ar hefur skáldið sótt í Hrafnkels-
sögu Freysgoða.
Þrjár Ijóðabækur koma út á
vegum Almenna bókafélagsins nú
í haust en það er bókin Fyrir stríð
eftir Erlend Jónsson, sem þégar er
komin út, Jón úr Vör sendir frá sér
sína tíundu ljóðabók og eftir
Ingólf Jónsson frá Prestbakka
kemur út ljóðabókin Vængir
draumsins.
Þá kemur út bókin Efnahagsmál
eftir hagfræðingana Asmund .
Stefánsson og Þráin Eggertsson og
er hún byggð á sjónvarpsþáttum,
sem höfundarnir önnuðust í fyrra.
Út kemur Matreiðslubók eftir
Sigrúnu Davíðsdóttur. Einnig
sendir AB frá sér reyfara eftir
Helen Maclnnes, sem nefndist
Njósnari í innsta hring og hefur
Björn Thors þýtt söguna.
Gott verð fæst á
markaðnum í Grimsby
„ÉG á von á því að íslenzk skip
selji afla í Grimsby áður en langt
um líður,“ sagði Agúst Einarsson
hagfræðingur hjá LÍÚ við Mbl. í
gær, en sem kunnugt er hafa
hafnarverkamenn í Grimsby af-
létt löndunarbanni á íslensk skip.
Ágúst sagði að ekkert skip hefði
enn tilkynnt að það ætlaði að selja
í Grimsby, enda skammt um liðið
síðan opnað var fyrir íslenzkum
skipum. Mjög gott verð hefur
fengist á brezkum mörkuðum og
þar á meðal Grimsbymarkaðnum,
yfir 400 króna meðalverð fyrir-
kílóið. Hins vegar hefur dregið úr
söluferðum íslenzkra skipa til
Bretlands og er ástæðan fyrst og
fremst sú, að sögn Ágústs að
óvenju lítið hefur aflast af þorski
og ýsu að undanförnu. Hæst verð
fæst fyrir þorsk, ýsu og kola á
brezkum mörkuðum.
Sovézki sendiherr-
ann staðinn að ólög-
legum silungsveiðum
SOVÉZKI sendiherrann á ís-
landi. Guergui N. Faravonov, var
fyrir skömmu staðinn að ólöglcg-
um siiungsveiðum ásamt fleiri
sendiráðsstarfsmönnum í Kirkju-
fellsvatni, að því er dagblaðið
Ti'minn greinir frá.
Samkvæmt frásögn blaðsins
voru það gangnamenn sem voru að
smala Landmannaafrétt er komu
að hópi sovézkra sendiráðsstarfs-
manna í vatninu og var sendiherr-
ann sjálfur þar á meðal. Öll veiði
hefur hins vegar verið bönnuð í
vatninu nú um skeið, en eftir því
sem Tíminn segir voru Rússarnir
þarna að veiðum í beztu trú, þar eð
þeir höfðu í höndunum veiðileyfi
er gefin voru út af íslenzkum
manni. Var það sonur þess manns
er síðast hafði með höndum
veiðivörzlu við vatnið skamman
tima áður en veiði þar var bönnuð.
Ekki hefur enn verið stofnað
veiðifélag um veiðiréttindi í vatn-
inu.
Fullar búðir af
haustfatnaði
□ Axlabandabuxur
alls kyns flauelsbuxur
□ gallabuxur
□ skyrtur
□ blússur
□ mussur
□ peysur
IZI ledurkápur
□ vesti
□ vatteraöir kuldajakkar
o.fl. o.fl.
TlZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
Laugaveg 20. Laugaveg 66. Austurstræti 22. Giæsibæ. Sími 28155