Morgunblaðið - 06.10.1978, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1978
Námskeið í
fiármálastjórn
STJÓRNUNARFÉLAG íslands
gengst hinn 12. október n.k. fyrir
námskeiði um fjármálastjórn
fyrirtækja. Námskeið þetta er eða
„námstefna" eins og það er nefnt
í frétt frá félaginu. er nýjung í
starfi þess og með þessu fundar-
formi er sérfræðingum og áhuga-
mönnum á ákveðnu sviði gefinn
kostur á að hittast og kynnast
nýjungum í sinum fræðum og
fræðast um vandamál starfs-
bræðra í öðrum fyrirtækjum og
ræða sameiginleg vandamál, seg-
ir í fréttinni.
Dagskráin er sem hér segir: Kl.
10 Setning námstefnunnar, Ragn-
ar S. Halldórsson formaður S.Í.,
kl. 10:15 Nýjungar á sviði fjár-
málafræði, prófessor Árni Vil-
hjálmsson, kl. 11:15 ræðir Helgi
Backman forstöðumaður hagdeild-
ar Landsbanka íslands um fjár-
málastjórn og bankaviðskipti, kl.
13 ræðir Hörður Sigurgestsson
Ingveldur Hjaltested
framkvæmdastjóri um fjármála-
stjórn hjá stærri fyrirtækjum, um
fjármál meðalstórra og smærri
fyrirtækja ræðir Steinar Berg
Björnsson kl. 13:30 og kl. 14 ræðir
Björn Friðfinnsson um fjármála-
stjórn hjá borgarfyrirtæki. Klukk-
an 15 ræðir Páll V. Daníelsson
framkvæmdastjóri um fjármála-
stjórn hjá ríkisfyrirtækjum og
Sigurður R. Helgason fram-
kvæmdastjóri ræðir kl. 15:30 um
fjármálastjórn og verðbólgu. Að
loknum erindum þessum eða kl. 16
verða pallborðsumræður.
Sérstaklega hefur verið boðið til
námskeiðs þessa forstjórum,
framkvæmdastjórum, fjármála-
stjórum og öðrum er fást við
fjármálastjórn fyrirtækja, en í
frétt Stjórnunarfélagsins segir að
efni þetta eigi erindi til banka-
stjóra, starfsmanna hagdeilda,
endurskoðenda og annarra er hafi
eftirlit með fjármunum fyrir-
tækja.
Jónína Gísladóttir
Tónleikar í Austurbæiarbíói
ÞRIÐJU tónleikar fyrir styrktar-
félaga Tónlistarfélagsins verða
haldnir laugardaginn 7. október
1978 klukkan 14.30 í Austurbæjar
bíói. Á tónleikunum syngur Ing-
veldur Hjaltested og Jónína Gfsla-
dóttir píanóleikari leikur á píanó.
Á efnisskrá tónleikanna eru tón-
verk eftir Franz Schubert, Johannes
Brahms, Richard Strauss, Pál ísólfs-
son, Edvard Grieg, Jean Sibelíus, og
G. Puccini.
13
Mikið endurbótastarf hefur verið unnið við húsið í Skeljanesi G
og unnið er nú að innréttingu íbúða á neðri hæðunum og í rishæð
eftir að þaki var lyft. Húsið verður væntanlega tilbúið til
notkunar um áramót en þar verður neyðar- og bráðabirgðahús-
næði á vegum FEF.
UM HELGINA, á morgun,
laugardag. og á sunnudag.
heldur Félag einstæðra for-
eldra árlegan flóamarkað sinn
og verður hann í Fáksheimil-
inu eins og í fyrra. Markaður-
inn verður opnaður kl. 2 eh.
báða söludagana. Flóamarkað-
ir FEF eru löngu orðnir árviss
viðburður og vinna félagar
mikið sjálfboðastarf við undir-
búning þeirra. Allur ágóði af
markaðnum rennur til að
kaupa innréttingar í húsið að
Skeljanesi 6 sem tekur til
starfa um áramót. ef vel
gengur.
Flóamarkaðurinn nú er mjög
fjölbreyttur. Á boðstólum er
nýr fatnaður og notaður, leik-
föng. lukkupakkar, sjónvörp.
svefnbekkir. matvæli. plötu-
spilari, eldunarplötur. bús-
áhöld og skrautmunir og er þá
aðeins fátt eitt upp talið.
(FréttatilkynninK)
Stuöningi vid iðnad
líkt við eiturlyfjaneyzlu
Stuðningsaðgerðir við iðnað
er aðalmálefnið á dagskrá
fundar Efnahags- og félags-
málanefndar EFTA, sem nú
stendur yfir í Genf. Fyrir
fundinum lágu skýrslur
einstakra EFTA-landa um
opinberar stuðnings-
aðgerðir.
Miklar umræður urðu um málið,
aðallega þar sem í ljós kom að
skýrslur sumra landanna voru
ófullkomnar. Gætti þar greinilegr-
ar tregðu að skýra opinskátt frá
ástandinu. Þá kom þó berlega
fram í ýmsum skýrslum, að
styrktar- og stuðningsaðgerðir eru
orðnar mjög víðtækar í sumum
landanna og virðist sem þær kalli
á stöðugt auknar styrktaraðgerðir,
þannig að þiggjendur styrkjanna
verða þeim háðir. Að þessu leyt-i
var styrkjunum líkt við eiturlyfja-
neyslu, þar sem neytandinn verður
eiturlyfjunum háður og þarf
stöðugt stærri skammta. Þá kom
einnig berlega í ljós, að margar
þessara stuðningsaðgerða snið-
ganga fríverslunarsamningana.
Upphaflega var þetta málefni
tekið á dagskrá að íslensku
frumkvæði og hefur það nú verið
til umfjöllunar hjá EFTA í um eitt
ár. Mun lokaniðurstaða Efnahags-
og félagsmálanefndarinnar
væntanlega liggja fyrir seinni
hluta vetrar. Mestan stuðning
hafa Finnland og Sviss veitt
Islandi í að knýja könnunina
áfram.
Af íslands hálfu sóttu fundinn
Davíð Scheving Thorsteinsson,
formaður Félags íslenskra iðn-
rekenda, og Haukur Björnsson,
aðalframkvæmdastjóri F.Í.I.
(frá Fél. ísl. iðnrek.)
Peningaveski
fannst í
Hafnarstræti
LlTIÐ pcningaveski fannst í
Ilafnarstræti í gærdag um klukk-
an 13.40. í veskinu voru engin
skilriki en nokkur peningaupp-
hæð. Eigandi getur vitjað veskis-
ins í síma 16458 eða 16983.
Metsöluplatan:
Prakkarinn
í Kattholti
Þriöja sending af hinni bráöskemmti-
legu barnaplötu um sjónvarpsstjörn-
urnar Emil og ídu í Kattholti komin í
verzlanir.
Pöntunarsímar:
26139 — 16112
A.A. hljómplötur