Morgunblaðið - 15.10.1978, Blaðsíða 32
cmwnlilntiiíi
AKiLVSINíiASIMINN ER:
22480
JH*r0imbIníiiíi
235. tbl. 65. árg.
SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 1978
35 þúsnnd timnur
síldar til Hafnar
liiiín. IIornaíirAi. lö. okt.
BÚIÐ cr að taka á móti um 35
þúsund tunnum af sfld hór á Ilöfn
það scm af cr vcrtíðinni. scm
farió hafa í frystinjju söltun.
Búið cr að salta um 11 þúsund
tunnur hjá siiltunarstöðinni
Stcmmu ojí um 17 þúsund tunnur
hjá siiltunarstiið Fiskimjiilsvcrk-
smiðjunnar ojí um 7 þúsund
tunnur hafa vcrið frystar.
Aflahæstu bátarnir á vertíðinni
eru Þórir, Æskan ojí Báran, allt
heimabátar. Veiði sl. nótt var
þokkalejí oj» fenj»u bátarnir um
90—100 tunnur að meðaltali.
Hrinjjur var þó aflahæstur og er
nú á leið vestur með ströndinni til
löndunar í einhverri höfninni þar
með um 500 tonn, en það er mesti
afli sem einn bátur hefur fengið á
vertíðinni til þessa í hringnót.
Síidin sem nú veiðist vestan
Injíólfshöfða er heldur slæm,
yfirleitt smá og áta i henni, en
austan Höfðans hefur síldin verið
skárri.
— Jcns
Viðskiptaráðuneytið:
Sér ekki ástæðu til að
taka gerið af frílista
VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ hcf
ur svarað hrcfi fjármálaráðuncyt-
isins frá því fyrir nokkrum
döj'um varðandi gcrsvcppi oj;
innflutning þcirra ojí kcmur
fram í svarbrcfinu að viðskipta-
ráðuncytið tclur ckki ástæðu til
að taka þessa vöru út af frílista.
eins og fjármálaráðuncytið hafði
lagt til. Kcmur og fram í brcfinu
að viðskiptaráðuncytið álítur að
tclji fjármálaráðuncytið nauðsyn
á að j;cra brcytingu á sölu
jfcrsvcppa hcr á landi á þann veg
að Áfcnjíis- ojf tóbaksvcrslunin
fái á þcim cinkasölu j;cti það beitt
scr fyrir lagabreytingu í þessa
vcru á Alþingi.
I samtali við Morgunblaðið í
gær sagði Svavar Gestsson við-
skiptaráðherra, að hann væri
þeirrar skoðunar að það eitt út af
f.vrir sig að taka gersveppi út af
frílista og gera þá að leyfisvöru
breytti engu um ástand þessara
mála, því að eftir sem áður yrði
le.vfum væntanlega úthlutað til
þeirra aðila sem áður hefðu flutt
Fyrsta síldin til
Þorlákshafnar
Þorlákshöfn, 13. október.
FYRSTA síldin til söltunar hér að
þessu sinni barst hingað í fyrrinótt.
Þá landaði Sæunn Sæmundsdóttir
250 tunnum, sem saltað var hjá
Söltunarstöðinni Borgum hf. og
Meitlinum hf. Síldin var smá. Þá
kom Jón Sturlaugsson með 500
tunnur í nótt af góðri síld.
Sæmilega góður afli hefur verið
hjá spærlingsbátum og góður fiskur
flotið með spærlingnum. Togarinn
Jón Vídalín kom með 140 tonn úr
síðustu veiðiför. Næg vinna hefur
verið í frystihúsinu hér að undan-
förnu, svo og i saltfiskverkunar-
stöðvunum, þar sem nú hefur liðkast
um með útflutning á skreið og
saltfiski til Ítalíu og Spánar. Spánar-
fiskurinn er það bezta úr fiskinum,
sem stöðvarnar hafa legið með, en
vonast er til að hitt fari líka
fljótlega. — Ragnheiður.
þá inn eða setja yrði reglur áður
hvernig ætti að úthluta leyfunum.
Svavar sagði ennfremur, að vildi
fjármálaráðuneytið í annan stað
gera gersveppi að einkaleyfisvöru
yrði það að gera tillögur þar að
lútandi. „Megin atriði þess máls er
þó að þau ráðuneyti sem hér eiga
hlut að, þ.e. fjármálaráðuneytið,
dómsmálaráðuneytið og viðskipta-
ráðuneytið komi sér saman um
það hvernig þessum málum verði
skipað í framtíðinni,“ sagði Svav-
ar. „Þegar þetta mál kom upp fyrst
þá lagði ég strax á það áherzlu að
þetta væri mál þriggja ráðuneyta
og það er það áfram."
Olíuskortur
stöðvar loðnu-
löndun hjá SR
í Siglufirði
SijílufirAi. I 1. oktúhpr.
Síldarverksmiðjan í Siglufirði
tekur ekki við loðnu næstu daga
vegna fyrirsjáanlegs olíuskorts
Nú eru urn 3000 lestir af loðnu
í þróm í Siglufirði og nægir sú
olía, sem verksmiðjan á til, að-
eins til að bræða það magn. Að
sögn framkvæmdastjóra verk-
smiðjunnar er ekki vitað hvenær
olía kemur til verksmiðjunnar.
- mj
Viðbótar-
álagningin
send út
í vikunni
ÁLAGNINGAR-seðlar fyrir við-
bótarálagningu verða sendir út nú
eftir helgina, en lokið er útreikn-
ingi hennar. Guðmundur Vignir
Jósefsson, gjaldheimtustjóri í
Reykjavík, sagði í samtali við Mbl.
að búizt væri við að álagningar-
skrá yrði send til Gjaldheimtunn-
ar á næstunni og yrði viðbótar-
-álagningin þá færð á spjaldskrá og
atvinnurekendum sendar kröfur
um álagninguna vegna starfs-
manna. Gjalddagar viðbótarálagn-
ingarinnar eru 1. nóvember, 1.
desember, 1. janúar og 1. febrúar.
Ólafur flytur
stefnuræðuna
á fimmtudag
OLAFUR Jóhannesson forsætis-
ráðherra mun flytja stefnuræðu
sína á Alþingi n.k. fimmtudag, að
því er hann tjáði Morgunblaðinu í
gær. ____ ^ ______
Saltvinnsla
á Reykjanesi
fyrir áramót
GERT ER ráð fyrir að tilrauna-
vinnsla hcfjist í Saltvcrksmiðj-
unni á Rcykjanesi fyrir næstu
áramót. Þcgar fyrirtækið fcr í
gang hefst tilraunatímahil, sem
stendur í 6—12 mánuði. Möguleg
afkastagcta tilraunaverksmiðj-
unnar cr áætluð 2 tonn af salti á
sólarhring.
Samkvæmt frétt í Suðurnesja-
tíðindum er unnið af krafti við
verksmiðjuna og um þessar mund-
ir er verið að legjya gufuleiðslu og
setja upp tæki og vélar í verk-
smiðjuhúsinu, en verkið tafðist
nokkuð vegna seinkunar á pöntun-
um erlendis frá. Tækjábúnaður er
frá Bandaríkjunum og Þýzkalandi,
en allur tækjakostur sem mögu-
legt hefur verið að smíða hérlendis
hefur verið smíðaður hér á landi,
segir í Suðurnesjatíðindum.
Byggingarkostnaður verksmiðj-
unnar nemur nú um 90 milljónum
króna, en áætlaður kostnaður við
tilraunaverksmiðjuna komna í
gang er 120—130 milljónir króna.
Staðinn að
ólöglegum
veiðum
V'ARÐSKIPIÐ Ægir stóð vélbát-
inn Háborg NK 77 að meintum
ólöglegum veiðum í m.vnni Seyðis-
fjarðar í fyrrinótt. Farið var með
bátinn inn til Neskaupstaðar og
var mál skipstjórans tekið fyrir
hjá sýslumannsembættinu á Eski-
firöi síðdegi j í gær. Skipstjóri mun
hafa viðurkennt brot sitt.
Frægt fólk í kvikmynd á
Mngvöllum næsta sumar
Hópsamkoma á Þingvöfluni meðal atríða í fyrir-
hugaðri kvikmynd Peter Stein eflir Sögu Sáms
FY'RIRHUGAÐ er að taka hér á
landi næsta sumar kvikmynd
gcrða cftir Sögu Sáms eftir Per
Olaf Sundman, en bókin kemur
út í haust hjá AB. í bókinni er
Ilrafnkels saga Freysgoða færð
til nútímans og þeir atburðir
þjóðveldistímans, sem sagan
greinir frá eru settir í búning
okkar tíma. Meðal annars er
fyrirhugað að setja á svið mikla
hópsamkomu á Þingvöllum þar
sem þinghald yrði kvikmyndað.
Þar yrðu einnig skemmtanir og
hátiðahöld sviðsett og hefur sú
hugmynd komið upp að fá heims-
fræga tónlistarmcnn til að
skcmmta á þessari Þingvallahá-
tíð. Nöfn eins og Abba og Bob
Dylan hafa verið nefnd í því
samhandi, en ekkcrt er afráðið í
þessum efnum.
Hið v-þýzka fyrirtæki, sem
stendur að kvikmyndagerðinni,
Regina Ziegler Film Production,
sótti fyrir nokkru um leyfi til
þessarar hópsamkomu á Þingvöll-
um. Þingvallanefnd hefur ekki
afgreitt málið endanlega, en málið
mætti velvilja á fundum nefndar-
innar. Nú er beðið álits sérfræð-
ings á hvort landið þoli svo mikil
hátíðahöld. Kvikmyndaframleið-
endur telja heppilegast að um
15.000 manns taki þátt í þessari
hópsamkomu, en segja að mögu-
legt sé að komast af með minni
hóp.
Myndin um Sögu Sáms verður
kvikmynduð víðar á landínu ef
tilskilin leyfi fást. Á Þingvöllum
yrði kvikmyndað þinghald í Lög-
réttu og dómur í máli Sáms og
Hrafnkels. Ymislegt verður til
skemmtunar á þessu mannamóti,
þar sem saman yrði komið fólk af
öllum hornum landsins eins og var
á Alþingi til forna. Meðal
skemmtiatriða, sem felld verða
inn í myndina, yrðu þjóðlegir
hlutir eins og glíma og þjóðdans-
ar, en einnig alþjóðleg atriði. Hafa
nöfn heimsþekktra krafta verið
nefnd og þá meðal annars Abba og
Bob Dylan eins og áður sagði.
Kvikmyndaframleiðendurnir
hyggjast ekkert spara til að mynd
þessi megi takast sem bezt. Hafa
þeir áætlað að kostnaður við
kvikmyndina nemi allt að 600
milljónum íslenzkra króna. Leik-
stjóri er Peter Stein, sem talinn er
fremstur v-þýzkra sviðsleikstjóra,
kvikmyndataka verður í höndum
Robby Múllers, en hann hefur
tekið flestar af myndum Wim
Wenders, sem kom hingað til
lands á kvikmyndahátíð í vor.
Áætlað er að leikarar verði af
mörgu þjóðerni og verða íslend-
ingar væntanlega í fjölmörgum
hlutverkum.
Kvikmyndatakan fer eingöngu
fram hér á landi á tímabilinu frá
byrjun júní til loka ágúst næsta
sumar. Atriði það sem taka á á
Þingvöllum verður tekið á þremur
dögum af þessum þremur mánuð-
Þess má að lokum geta að Per
Olaf Sundmann var hér á landi í
sumar. Skoðaði hann þá nokkra
staði sem hugsanlega bústaði
aðalsöguhetjunnar. Staðnæmdist
hann m.a. við Flúðir og Aratungu.