Morgunblaðið - 15.10.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 1978
23
frá grunni aö mæni í orðsins
fyllstu merkingu. Sæti Sólveigar
sem húsmóður í húsi því var vel
skipað, kringum hana var allt fullt
af lífi meðan heilsa entist. Hjarta-
hlýja tengdamóður minnar,
greiðasemi og skilningur á öllu
mannlegu lífi voru aðdáunarverð.
Vinarþeli hennar og trygglyndi við
mig mun ég aldrei gleyma, hvað
sem á gekk í lífinu, eins og gengur.
Sólveig var kona stórlynd og
stórhuga, en þó allt í senn blíðlynd
og og sérstaklega viðræðugóð við
alla er á hennar fund leituðu, enda
húsið opið fyrir öllum. Oft var
mannmargt að Skipasundi 13, „þá
var setinn Svarfaðardalur", fólkið
undi sér við orðsins list, spil og
aðra skemmtan. Ég veit að margir
komu á fund hennar sér til halds
og trausts á lífsbrautinni er þurftu
að létta á hjarta sínu eða leita
huggunar.
Ég hef eigi kynnst hreinlyndari
konu ennþá, og gat þó undan
orðum hennar sviðið en hún leit
aldrei á sig sem yfirboðara ann-
arra í samtali, sagði meiningu sína
við hvern sem í hlut átti. Ef
Sólveig hefði verið fædd seinna þá
hefði hún sjálfsagt orðið kennari,
svo mikið yndi hafði hún af
börnum og reyndar kenndi hún
börnum til stafs í mörg ár. Sólveig
Vilhjálmsdóttir var aldamóta-
kona, verður fulltrúi þeirrar kyn-
slóðar, sem við minnumst nú með
virðingu og þakklæti. Hún hafði
mörg einkenni hennar og marga
bestu kosti, hugsjónatryggð,
stefnufestu, sannleiksást og heið-
ríkju í hugsun. Hún vann öll störf
sín í kyrrþey og bar eigi skoðanir
sínar á torg alþjóðar.
Nú við kistu hennar leita ótal
minningar á hugann um ógleym-
anlegar samverustundir okkar.
Minningar er lifa best í kyrrþey og
friðhelgi okkar á milii er hún
veitti mér og fjölskyldunni.
..Víst ssitja fáir hauárið hrapa
húsfreyju KÚðrar viður iáti
en hverju venziavinir tapa.
vottinn má sjá á þeirra gráti
af diievu siikri á gröfum erar
KÓðrar minningar rósin skær.“
B.Th.
Ég kveð tengdamóður mína.
Megi hún hvíla í friði.
Tengdadóttir Þórveig.
AUGLÝSIIMGATEIKNISTOFA
MYNDAMÓTA
Aðalstræti 6 sími 25810
Orðsending
til fyrrverandi starfsmanna Kaup-
félags Rangæinga
Þar sem viö núverandi starfsmenn Kaupfélags
Rangæinga ætlum aö halda árshátíö okkar á Hvoli
laugardaginn 21. október vildum viö endilega gefa
ykkur kost á aö vera meö. Þeim sem áhuga hafa er
bent á aö panta miöa í síma 99-5296 mánudags- og
þriöjudagskvöld (16. og 17. október).
Hittumst öll og höldum gamla góöa hópinn.
Nefndirnar.
Hafnarfjörður
Spila og skemmtikvöld veröur í Góötemplarahúsinu
n.k. laugardag 21. okt. (fyrsta vetrardag) kl. 20.30.
Félagsvist (12. umferöir). Sýndar myndir úr sumarferö-
inni. Sameiginleg kaffidrykkja og almennur söngur og
dans.
Aögöngumiöar kr. 1000,- (Kaffiveitingar innifaldar).
Afhentir aö Austurgötu 10, eða óskast pantaðir sem
fyrst, sími 50764.
Félag óháðra borgara.
Ryklaus heimili með
nýju Philips ryksugunni!
Gúmmíhöggvari (stuðari),
sem varnar skemmdum
^ rekist ryksugan í.
Þægilegt handfang.
850 W mótor
Einstaklega þægilegt grip
með innbyggðum sogstilli
og mæli, sem sýnir þegar'
ryksugupokinn er fullur.
Stillanlegur sogkraftur.
Nýja Philips ryksugan sameinar hvoru tveggja,
fallegt útlit og alla kosti góörar ryksugu.
850 W mótor myndar sterkan sogkraft,
þéttar slöngur og samskeyti sjá um aö allur sog-
krafturinn nýtist. Nýjung frá Philips er stykkiö,
er tengir barkann viö ryksuguna.
Þaö snýst 360° og kemur í veg fyrir
aö slangan snúi upp á sig eöa ryksugan
velti viö átak. Þrátt fyrir mikiö
afl hinnar nýju ryksugu kemur
manni á óvart hve hljóölát hún er.
Stór hjól gera ryksuguna einkar
lipra í snúningum, auk þess
sem hún er sérlega fyrir-
feröalítil í geymslu.
Skipting á rykpokum
er mjög auöveld.
Rofi
Inndregin snura.
Snuningstengi eru
nýjung hjá Philips.
Barkinn snýst hring
eftir hring én þess
að ryksugan hreyfist
PHIUPS
Meöal 6 fylgihluta er stór
ryksuguhaus, sem hægt
er að stilla eftir því hvort
ryksuguö eru teppi
eöa gólf.
Philips býöur upp á 4 mismunandi
geröir af ryksugum, sem henta bæöi
fyrir heimili og vinnustaöi.
PHILIPS
heimilistæki sf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655
Blóma- og
flóamarkaðu
Stórglæsilegur markaður í Volvosalnum, Suðurlandsbraut 16, í
dag kl. 14—17.
Leikföng, nýjar kuldaúlpur, búsáhöld, blómaafleggjarar,
hljómplötur, nýir síðir kjólar, snyrtivörur og fleira.
Fátt eitt dýrara en 2.500 krónur
Gerið góð kaup fyrir jólin.
Eflum öryggi æskunnar
JC-VIK