Morgunblaðið - 12.11.1978, Blaðsíða 4
52
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 1978
ir stútkur í Vestmannæyjum höfdu
dýrt í rekstri, hetz
svitadropa fyrir hver
Sigurgeir Jónsson.
Dalton Baldwin
— Ég hef oft velt Því fyrir mér
hvernig paö sé aö búa á svona eyju
og komast kannski aldrei út fyrir
hana á allri »vi sinni. Þeir sem búa
á eyjum hugsa áreiðanlega öðru vísi
en Þeir, sem eiga sér nágranna
hinum megin við girðinguna, — eru
kannski meiri einstaklingar. Ég er
alitaf að fá meiri og meiri tilfinningu
fyrir Norðurlöndunum. Fyrir nokkr-
um árum hafði ég lítinn áhuga á
Þeim og fannst eiginlega að nafli
heimsins vœri við Miðjarðarhafið.
Það var sá blettur á jörðunni Þar
sem mér fannst ég eiga heima. En
nú er Þaó að breytast. Þið Norður-
landabúar eruð nefnilega ekki eins
Þurrlegir og daufir og mér fannst
við fyrstu kynni. Þiö eruð næmari
og tilfinningaríkari en ií! Jcemis
Þjóðverjar, ef hægt er að draga
almennar ályktanir. Ég veit ekki af
hverju Það kann að stafa — kannski
Þaö standi í einhverju sambandi við
alla Þessa birtu sem er á norður-
hveli jarðar, — Þessi köldu, tæru
birtu. Ég hef gaman af að velta
Þessu fyrir mér, Þótt svona hug-
renningar séu náttúrulega mjög
abstrakt fyrirbæri. Sjálfsagt hef ég
betra tækifæri til Þess en margur
annar að bera saman fólk af ólíku
Þjóöerni, Þar sem ég er alltaf að
feröast, sagði Dalton Baldwin
píanóleikari er við ræddum viö
hann nýlega.
— Þessi feröalög eru svo ríkur
Þáttur í lífi mínu, aö án Þeirra ætti
ég víst bágt með aö vera. Auðvitaö
kemur stundum fyrir að mér dettur í
hug að gott væri að vera kominn
heim, en ég kann Þessu flakki vel. Á
hverjum stað er eitthvað nýtt og
mannlífið er svo merkílegt í öllum
sínum margbreytileika, að Það eru
mikil forréttindi að fá svona gott
tækifæri til að skoða Það. Mér
verður alltaf betur og betur Ijóst, að
Þrátt fyrir ólíkar aðstæður er
kjarninn í manneskjunni — í öllum
manneskjum alltaf sá sami. Það eru
búskaparhættir og ytri lífsvenjur,
sem eru mismunandi. Fólk hugsar
meö ýmsum hætti, eftir ólíkum
hugmyndakerfum, Það tjáir sig á
margan hátt, og Það er mismunandi
hvað Það er, sem setur mestan svip
á daglegt líf Þess, en Þegar aö
kjarnanum kemur eru allir að leita
að Því sama, — öryggi, jafnvægi og
skilníngí.
— Því miður gengur misjafnlega
að búa fólki friðsamlegt umhverfi,
Þar sem Það getur verið tiltölulega
öruggt um sinn hag, og Þegar
maður fer svona víöa á löngu
árabili, eins og ég hef gert, pá fer
ekki hjá Því að breytingar veki
athygli. Árum saman kom ég til
... að rækta sinn
sprotinn
getur gert ótrúlegustu hluti,
þótt einfaldur sé.
Honum fylgja eftirtaldir
hlutir:
★ Hnífur sem t.d. sker græn-
meti og lagar þessa fínu
grænmetissúpu.
★ Þeytari, sem þeytir rjóma,
býr til ís og ýmislegt fleira.
★ Gatastykki, sem býr til
mayones, sósur o.fl.
★ Auk þess fylgir kvörn, sem
malar kaffi, baunir, möndl-
ur, súkkulaði og jafnvel
molasykur.
Fæst í öllum
raftækjaverslunum
landsins.
Hefurðu áhuga á að kynnast
lifnaðarháttum annarra
Þjóða?
Ef svo er, geturðu sótt um aö fara sem skiptinemi til
Evrópu, Bandaríkjanna eö „Þriðja heims“-landa.
Síöasti umsóknardagur 17. nóv.
Opið 4—6.
AFS
International/ Intercultural Programs,
Hverfisgötu 39, P.O. box 753
121 Reykjavík.
Sími 25450.
ðtMft
Skósalan,
Laugavegi 1.
—■ ........