Morgunblaðið - 14.11.1978, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.11.1978, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBÉR 1978 29 IWtrgijji Utgefandi nÞIafeffe hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjórí Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guómundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsíngastjóri Baldvin Jónsson Ritstjórn og afgreiósla Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar Aóalstræti 6, sími 22480. Áskriftargjald 2200.00 kr. á mánuói innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Vísitalan, verka- lýðshreyfing ogríkisstjórnin Morgunblaðið skýrði frá því sl. laugardag, að frumdrög lægju nú fyrir að áliti nefndar þeirrar, sem ríkisstjórnin skipaði í haust til þess að endurskoða vísitölukerfið. I þessum frumdrögum er gert ráð fyrir mjög veigamiklum breytingum á vísitölukerfinu. I fyrsta lagi er lagt til, að breytingar á áfengis- og tóbaksverði, sköttum og niðurgreiðslum hafi ekki áhrif á verðbótavísitölu. I öðru lagi, að almennur frádráttur, sem nemi 10% af hækkun framfærsluvísitölu hverju sinni, komi í stað búvörufrádráttar. í þriðja lagi, að verðbótaviðauki verði felldur inn í fastar verðbætur og reiknist ekki sérstaklega síðar. í fjórða lagi, að fari viðskiptakjör versnandi, þannig að innflutningsverð hækki umfram útflutningsverð, skuli ekki verðbæta laun sem því nemur. Batni viðskiptakjörin að nýju komi til nýrra samninga innan þeirra marka. I fimmta lagi, að verðbætur greiðist sem hlutfallslegar bætur eins á öll laun. I sjötta lagi, að verðbætur greiðist á sex mánaða fresti og í sjöunda lagi, að fari verðbætur fram úr ákveðnum umsömdum mörkum falli það sem umfram er niður eða renni í bundinn sjóð. Eins og sjá má má er hér nánast um að ræða byltingu á vísitölukerfinu, nái þessar tillögur fram að ganga. Þar sem svo skammur tími er til stefnu er gert ráð fyrir því í þessum frumdrögum, að ríkisstjórnin freisti þess að ná samkomulagi við samtök launþega um að kaupgjaldshækkanir komi ekki eða að takmörkuðu leyti til framkvæmda hinn 1. des.m.k. en þá er gert ráð fyrir að kaupgjaldsvísitalan muni hækka um a.m.k. 14%. Sjálfsagt munu margir telja, að vonlaust sé að tillögur um svo veigamiklar breytingar á vísitölubindingu launa verði samþykktar eða að samkomulag takist við launþegasamtökin um frestun á vísitölugreiðslum hinn 1. des. n.k. En þetta er þó ekki eins vonlaust og ætla mætti. Undanfarna daga hafa verkalýðsforingjar Alþýðubandalagsins, hver á fætur öðrum lýst því yfir, að þeir leggi enga sérstaka áherzlu á beina kaupgjaldshækkun hinn 1. des. n.k. og er bersýnilegt, af þeim yfirlýsingum, sem fram hafa komið úr þeirra röðum, að þeir eru tilbúnir til þess að ræða ýmsar breytingar á vísitölukerfinu, sem þeir hafa ekki áður mátt heyra minnzt á. Morgunblaðið vill fagna viðleitni núverandi ríkisstjórnar til þess að koma einhverri skynsemí að í sambandi við vísitölutengingu launa, viðleitni, sem fram kemur í skipun vísitölunefndarinnar og væntanlegum tillögum hennar. Morgunblaðið vill einnig fagna yfirlýsingum einstakra leiðtoga Alþýðubandalagsins í verkalýðs- hreyfingunni, sem nú undirstrika sérstaklega, að þeir leggi ekkert upp úr beinum kauphækkunum. Hér er að sjálfsögðu um algera stefnubreytingu að ræða frá því sem var í febrúarmánuði sl. þegar þáverandi ríkisstjórn beitti sér fyrir umtalsverðri takmörkun á kaupgjaldsvísitölunni. En batnandi mönnum er bezt að lifa. Stefnubreytingu og hugarfarsbreytingu verkalýðsleiðtoga Alþýðu- bandalagsins ber að fagna. Allir hafa rétt tij að skipta um skoðun — líka þeir, sem veifuðu kröfunni um „samningana í gildi" sem mest sl. vetur og vor. Morgunblaðið býður. verkalýðsforingja Alþýðubanda- lagsins velkomna í hóp þeirra, sem hafa gert sér grein fyrir því, að við svo búið má ekki standa. Það liggur í augum uppi, að 14% viðsitöluhækkun launa hinn 1. des. n.k. mun kalla yfir þjóðina nýja verðbólguholskeflu. Þá er eins líklegt, að við tölum ekki um 50% verðbólgu á næsta ári heldur jafnvel 70% verðbólgu og þaðan af meira. Atvinnufyrirtækin þola ekki slíka verðbólgu. I landinu eru ekki lengur til peningar til þess að fjármagna þessa verðbólgu og þess vegna er vissulega orðið tímabært, að ríkisvald og samtök launþega og atvinnurekenda taki höndum saman um að koma verðbólgunni á kné. Yfirlýsingar verkalýðsleiðtoga Alþýðubandalagsins og viðleitni núverandi ríkisstjórnar er viðurkenning á því að stefna Geirs Hallgrímssonar í efnahagsmálum fyrr í vetur var rétt og til þessá vanda hefði ekki þurft að koma nú, ef verkalýðssamtökin hefðu sætt sig við febrúarlögin og maílögin eins og þau voru úr garði gerð. Þessir aðilar hafa með málflutningi sínum nú einnig viðurkennt, að krafan um „samningana í gildi" var lýðskrum eitt. En við skulum strika yfir það sem liðið er og taka höndum saman um að ráða niðurlögum þeirrar óðaverðbólgu, sem er á góðri leið með að eyðileggja efnahagslíf lands okkar og innviði atvinnufyrirtækja og fjármála- lífs. Morgunblaðið mun styðja alla skynsamlega viðleitni ríkisstjórnar Ólafs Jóhannessonar og verkalýðsleiðtoga Alþýðu- bandalagsins í þeim efnum. En vissulega hljóta launþegar að gera þá kröfu til þessara kjörnu fulltrúa sinna, að hugarfarsbreyting þeirra verði ekki takmörkuð við valdatíma núverandi ríkisstjórnar. Svo augljóst pólitískur skollaleikur væri ekki við hæfi. FRA SKAKMOTINU I BUONES AIRES FRA SKAKMOTINU í BUONES AIRES — FRÁ SKÁKMÓTINU í BUONES AIRES — FRÁ SKÁKMÓTINU í BUONES AIRES FRÁ SKÁKMÓTINU í BUONES AIRES Friðrik boðið tíl Suður-Afriku... Buenos Aires 12. nóvember. FORSETI skáksambands S- Afríku, Reitsin, sagði í samtali við Mbl. að hann hefði boðið Friðriki Ólafssyni og konu hans að koma til S-Afríku í maímánuði næsta og tefla þar á fjögurra manna móti og kynna sér hvernig ástatt er í skákmálum S-Afríku. Á aukaþingi Fide í Luzern í fyrrasumar var samþykkt með atkvæðum skáksambanda þriðja heimsins að svipta skáksamband S-Afríku ölium réttindum innan Fide. íslendingar og önnur V-Evrópusambönd mótmæltu þessu á þeirri forsendu að skák- inni væri fyrir beztu að ekki yrði blandað saman skák og stjórnmái- um, hvorki í S-Afríku né annars staðar. ht. Jón L. fyrsti Fide-meistarinn Buenus Aires 12. nóvember Þing Fíde samþykkti að stofna til nýs titils fyrir skákmenn og skal þessi nýi titilh Fide-meistari, ganga næst titlinum alþjóðlegur skákmeistari. Skáksamband íslands hafði lagt fyrir þingið að árangur Jóns L. Árnasonar, er hann varð heims- meistari sveina 1977, yrði látinn gilda að hluta til alþjóðlegs meistaratitils, en þingið sam- þykkti að titilinn Fide-meistari skyldi veittur heimsmeistara ungl- inga innan 17 ára og skyldi heimsmeistarinn 1977 verða fyrsti titilhafinn. Jón L. Árnason er því orðinn fyrsti P'ide-meistari sögunnar út á árangur sinn í Frakklandi 1977. ht. Friðrik fær Korchnoi- málið á sína könnu Buenos Aires 12. nóvember Friðrik ólafsson nýkjörinn forseti Fide þarf greinilega að taka á honum stóra sínum strax í upphafi embættisferils síns. Eitt þcirra mála, sem Friðrik fær til meðferðar, er Korchnoi-ákallið, þar sem Korchnoi biður Fide að hjálpa sér til að ná konu sinni og syni frá Sovétríkjumum. Dr. Euwe, sem stjórnaði þing- haldinu hér, neitaði að taka beiðni Korchnois á dagskrá þingsins. Skömmu eftir það sleit hann fundi og fóru þá margir þingfulltrúar úr fundarsalnum. Dr. Euwe tók þá hljóðnemann á ný og tilkynnti að sér hefði borizt bréf frá Korchnoi og las hann svo ákall Korchnois yfir hálftómum fundarsalnum. Menn voru á einu máli um það að þessi afgreiðsla væri ekki við hæfi og mun því málið koma til kasta Friðriks. ht. Margeir alþjód- legur meistari Buonos Aires, 12. nóvember. MEÐ sigri sínum yfir Mexikanan- um Aldrete tryggði Margeir Pétursson sér síðasta áfangann að titlinum alþjóðlegur skák- meistari. Margeir er þriðji íslcnd- ingur, sem ber þennan titil, hinir eru Ingi R. Jóhannsson og Helgi Ólafsson. Fyrir skákina höfðu forráða- menn S.í. lagt öll nauðsynleg skjöl á borð prófessors Elo, sem er formaður þeirrar nefndar sem reiknar út árangur skákmanna í stigum, þannig að ekki þyrfti að dragast að réttur Margeirs á titlinum yrði viðurkenndur. ht. Margeir Pétursson (lengst til hægri) tryggði sér titilinn alþjóðlegur skákmeistari á Ólympfuskákmótinu. — Símamynd AP. Einar S. Einarsson forseti S.í. og fararstjóri í Buenos Aires með íslenzku skáksveitunum. Yfirlýsingar skákmanna og varaforseta S.I. Skákmennirnir áttu ekki í útistöðum við Einar S. Allt tal um hneykslanlega framkomu hans er einnig út í hött Buenos Aires. Frá Högna Toríasyni HELGI Ólafsson alþjóðlegur skák- meistari sendi eftirfarandi til birtingar 1 Morgunblaðinu. „Að gcfnu tiiefni vil ég undirritaður taka skýrt fram að það er alls ekki rétt eftir mér haft að aðrir innan íslenzku skáksveitarinnar hafi átt f einhverjum útistöðum við Einar S. Einarsson forseta Skáksambands íslands. Deilur okkar Einars stóðu ein- göngu um fréttaflutning minn frá mótinu í Buenos Aires. Allt tal um hneykslanlega framkomu Einars S. Einarssonar er einnig út í hött. Eftir minni beztu vitund hafa allir í íslenzku sveitinni verið fyllilega ánægðir með fararstjórn Einars. Ilelgi Ólafsson.“ „I tilefni af skrifum Þjóðviljans, sem ég hef nú séð, bið ég Morgun- blaðið að birta eftirfarandi: „Þessi skrif eru hin furðulegustu. Ég hef áður gert grein fyrir afstöðu stjórn- ar Skáksambands Islands varðandi féhirði Alþjóðaskáksambandsins og ítreka að stjórnin telur sig þar í fullum rétti. Gísli Árnason kom aldrei til umræðu sem féhirðisefni á fundum stjórnarinnar og við Einar S. Einarsson heyrðum fyrst um framboð hans fáum mínútum áður en átti að kjósa. Hefði okkur Einari þótt eðlilegt að Gísli Árnason sem stjórnarmaður í Skáksambandi Islands léti okkur Högni Torfason. vita fyrirfram af áformum hans og Friðriks. Sú fullyrðing að það séu fyrst og frpmst Guðmundur G. Þórarinsson og Gísli Árnason sem hafi unnið málið fyrir Friðrik er í senn freklega móðgandi í garð okkar Einars og næsta fáránleg þegar þess er gætt að þeir félagar höfðu mjög nauman tíma til að ræða við menn, en við Einar höfum hins vegar verið hér allan tímann frá upphafi mótsins, erum kunnugir fjölda fulltrúa frá fyrri fundum og héldum marga fundi Fyrri talningin var æsispennandi segir Guðmundur G.Þórarinsson „ÞEHTA var auðvitað sigur Friðriks ólafssonar, sem hann vann gegn utanríkisþjónustu Júgóslava og peningaveldi Mendezar. Og þennan sigur vann hann út á sinn orðstír og sínar persónulegu vinsældir. Allt annað eru utanveltumál í þessu sambandi,“ sagði Guðmundur G. Þórarinsson verkfræðingur í samtali við Mbl. í gær, en Guðmundur kom þá heim frá Buenos Aires, þar sem hann vann að framboðsmálum Friðriks Ólafssonar til forsetacmbættis Fide. Sagðist Guðmundur ekki sjá ástæðu til að ræða „utanveltumálin“ í blaðasamtali. Guðmundur var einn þriggja sem töldu atkvæðin við forsetakosning- arnar. Mbl. spurði Guðmund hvernig það hefði verið. „Fyrri talningin var æsispennandi," sagði Guðmundur. „Friðrik var þá ýmist úti eða inni og á tímabili benti allt til þess að hann myndi ekki komast í aðra atkvæða- greiðsluna. Ég veit ekki, hvort það er hægt að lýsa þessu svo nokkurt vit sé í. Þetta var bara æsispennandi. Síðari talningin var út af fyrir sig ekki neitt lík þeirri fyrri, því strax og við byrjuðum að telja, þá varð mér ljóst að Friðrik hafði yfirburði yfir andstæðinginn. Ég held að tilfinningum okkar íslendinganna sé bezt lýst með því að við höfum bæði orðið glaðir og hrærðir, þegar ljóst var að Friðrik hafði sigrað." Mbl. spurði Guðmund um þann atkvæðaseðil sem ógildur var í fyrri kosningunni. „Þannig var að menn fengu seðil með nöfnum frambjóð- endanna þriggja: Gligoric, Ólafsson og Mendez, og síðan áttu menn að krossa í reit fyrir framan nafn þess frambjóðanda, sem þeir kusu,“ sagði Guðmundur. „Á þessum seðli var krossað við nöfn þeirra Gligoric og Mendezar. Sumir sögðu að viðkom- Guðmundur G. Þórarinsson. andi hefði viljað kjósa báða, áfram í aðra atkvæðagreiðslu, en ég held að skýringin geti allt eins verið sú, að sá, sem þarna kaus, hafi ekki skilið kosningareglurnar rétt og því alveg eins getað verið að láta það í ljós að hann vildi útiloka bæði Gligoric og Mendez og að meining hans hafi verið að styðja Friðrik. En þetta skiptir auðvitað ekki máli frekar en önnur utanveltumál. Aðalatriðið er að Friðrik vann.“ með öllum fulltrúum Fide-svæða eitt og tvö og með öðrum stuðnings- mönnum framboðsins. Reyfarasagan um að Einar hafi óskað Friðrik til hamingju með hangandi hendi er gjörsamlega úr lausu lofti gripin. Helgi S. Ólafsson og Einar S. Einarsson hafa deilt um það hvort Helgi ætti að vinna hér sem blaðamaður Þjóðviljans. Við höfum litið svo á að Skáksambandið hafi kostað ferð hans hingað til að tefla en ekki til að skrifa skákfréttir fyrir blað á íslandi, ekkert fremur en við höfum talið okkur verið að kosta ferð Ingvars Ásmundssonar til þess að kenna hér í fjölbrautaskóla svo einhver samanburður sé tekinn. Morgunblaðið * veitti Skáksam- bandi íslands ómetanlegan stuðning við undirbúning Ólympíumótsins. Liður í því var að blaðið greiddi ákveðna upphæð til S.í. upp í ferðakostnað minn og hef ég innt af hendi fréttaþjónustu og skrifað greinar jafnframt því að sækja Fide-þingið og vinna að framboði Friðriks Ólafssonar. Við Einar höfum báðir unnið sleitulaust að því framboði, ekki aðeins hér í Buenos Aires, heldur i meira en hálft annað ár, allt frá því að framboðið var tilkynnt. Halda menn að sú tillaga okkar að efna til sérstaks skákmóts til að fagna sigri Friðriks lýsi einhverjum fjandskap okkar stjórnarmanna hér í garð forsetans? Einar S. Einarsson hefur unnið frábæriega gott starf fyrir íslenzka skákhreyfingu á undanförn- um árum og þessar svívirðilegu árásir á hann eru fyrir neðan allar hellur. Högni Torfason varaforseti Skák- sambands íslands." Þá óskar íslenzka skáksveitin hér eftir því að eftirfarandi verði birt í Mbl: „Vegna fréttar í Þjóðviljanum 10. nóvember sl., sem við höfum séð, um deilur Islendinga á þingi Fide, vilja undirrituð taka fram, að við höfum ekki átt í neinum útistöðum við Einar S. Einarsson forseta Skák- sambands íslands og fararstjóra Ólympíuskáksveitarinnar hér í Buenos Aires. Birna Nordal, Guðlaug Þorsteins- dóttir, Guðmundur Sigurjónsson, IngVar Ásmundsson, Jón L. Árnason, Margeir Pétursson, Svana Samúels- dóttir." Tekið skal fram að ekki náðist til Ólafar Þráinsdóttur og Friðrik Ólafsson tók fram að hann hefði þegar sagt sitt um þetta mál í samtali við Morgunblaðið. «e 2 Japan 9 «8 M P tá m Qm Filipseyjar Ástralía VonezUela * e c E < Frákkland jE E 3 2 ha s u '3 T3 e J5 n C © > B e Itúmenía Kúha c <s g S 1 2 3 I 5 6 7 8 9 10 n 12 13 11 Friðrik 1 i 1 ., > > Guðmundur 0 1 >2 1;, 1 j í/, 0 1 0 1 . 1 . Helgi 1 1 1 > 1 ., 1 0 1 1 0 1 > 1 , 0 Margeir 0 1 I,., 1/, 1 1 1 > 1 > 0 I , 1 Jón L. 0 1 ., 0 0 1 1 > 1 > 1 > 0 Ingvar 1 1 1 1 0 1 > » > 0 0 Árangur íslenzku keppendanna *© Æ S e *© T •a B 5 M N *>* E > Forkeppni cð "O z e e je © 7 * © < cr. e 5 u » "O e £ Danmórk T3 e J5 .2. u ■> > M c T. d 3 s D-riðill ■© e c/T -2 .2* := 'C Z 22 o 5 E © 3 >» 3 g » u JC X e í N C > í 2 3 1 5 6 7 i 2 3 1 5 6 l Guðlaug í 0 0 1 •, 0 » > 0 0 i 1 1 i » , Ólöf í 0 >2 0 0 0 í », 0 1 i » > 1 Birna í 0 0 0 0 0 0 1 I fyvana 0 0 i 0 1 n 0 íslenzka karlasveitin var tólfta stigahæsta sveitin í mótinu, en hafnaði í 27. sæti með 29 vinningai vinningshlutfall 51,8%. Kvcnna- sveitin varð önnur í D-riðli loka- keppninnar með 13,5 vinningai vinningshlutfall 64,3%. í forkeppn- inni fengu stúlkurnar 4% vinning af 21. vinningshlutfall 21,4%, þann- ig að í heildina fékk sveitin 18 vinninga af 42. heildarvinningshut- fall 42,9%. Vinninxar Skákir Hlutfall Friðrik 3 4 75,0 Guðmundur 5 11 45.5 Helgi 7 12 58,3 Margeir 6% 11 59,1 JónL. 3 9 33.3 Ingvar i'/i 9 50.0 Guðlaux 1'h 14 53.6 Ólöí 6‘A 13 50.0 Birna 2 9 22.2 Svana 2 6 33.3 Ungverjar tryggðu sér titilinn með 3:1 sigri yfir Júgóslövum Bucnos Aircs 12. nóvcmbcr AP Rcutcr í SÍÐUSTU umferð Ólympíuskák- mótsins unnu Ungverjar Júgóslava 3:1, Sovétríkin unnu Hollendinga 2,5:1,5 og Bandaríkja- menn og Svisslendingar skildu jafnir. Urslit mótsins urðu sem hér 23. Kólumbía 30.0 58. Líbía 23.5 24. Filipseyjar 29.5 59. Máritanía 23.5 25. Nýja-Sjáland 29.5 60. Andorra 22.5 26. Indónesía 29.5 61. Jómfrúeyjar (USA) 22.0 27. Brazilía 29.5 62. Bermúda 20.5 28. ísland 29.0 63. Zaire 16.0 29. Chile 29.0 64. Arabíska furstasambandið 12.5 30. Ástralía 29.0 65. Brezku Jómfrúeyjar 12.5 31. Noregur 32. Parasuay 29.0 28.5 segir: 33. Skotland 28.0 34. Venezúela * 28.0 vinninga 35. Sýrland 28.fr 1. Ungverjaland 37,0 36. Frakkiand 27.5 2. Sovétríkin 36,0 37. I ruKuay 27.5 3. Bandaríkin 35,0 38. Dóminikanska lýðvcldið 27,5 4. VesturÞýzkaland 33.0 39. Sri Lanka 27.5 5. ísrael 32,5 40. Hong Kong 27.5 6. Kúmenía 32.5 • 41. Wales 27.0 7. Danmörk 32,0 42. Perú 27.0 8. Pólland 32.0 43. Guyana 27.0 9. Spánn 32,0 44. Japan 27.0 10. Sviss 32,0 45, Luxemburg 27,0 11. Kanada 32,0 46. Færcyjar 27.0 12. England 31.5 47. Belgía 26.5 13. Búlgaría 31,5 48. Guatcmala 26.5 14. Ilolland 31.5 49. Marókkð 26.5 15. Júgóslavía 31.0 50. Túnis 26.0 16. Svíþjóð 31.0 51. Equador 26.0 17. Argentfna 31,0 52. Bólivía 26.0 18. Kúba 30,5 53. Trinidad 26.0 19. Austurríki 30,5 54. Jórdanía 26.0 20. Kína 30,5 55. Jamaica 25.5 21. Mexíkó 30,5 56. Púcrtó Ríkó 25.0 22. Finnland 30,0 57. Malasía 25.0 B-svcit Arxcntínu. scm tók þátt tii að jafna tölu þátttakenda. hlaut 28.5 vinninga. cn er ckki talin mcð í úrslitum. f A-riðli úrslitakeppni kvcnnasvcitanna sigruðu sovézku konurnar þar cnsku í síðustu umfcrðinni 2.1, cn þær sovézku höfðu reyndar tryggt sér titilinn fyrir siðustu umfcrðina. (Irslitin i kvcnnakcppninni urðu þessi, A riðill, 1. Sovétrfkin 16 vinningar. 2. Unvcrjaland 11 vinningar. 3. Vestui-Þýzka- land 11 vinningar. 4. Júgóslavía 11 vinningar. 5. Pólland 10,5 vinningar. 6. Spánn 8,5 vinninxar. 7. Búlxarfa 8,5 vinninxar, 8. England 7,5 vinningar. B-riðill (nfunda til scxtánda sarti), Svfþjóð 15 vinningar. Rúmcnía 15. Holland 10, Argcntfna 9,5. Frakkland 9.5, Bandarfkin 9. Indland 8,5 ok Ástralía 7.5. C-riðill (sautjánda til 24. sæti), Danmörk 13. Kanada 13. Kólumbfa 12. Brazilfa 11,5, Finnland 11.5, Skotland 11. Japan 6,5 ok Mcxíkó 5,5. D-riðilI (25. til 32. sæti), Wales 17.5, (sland 13,5, Venezúela 12, Bólivía 10,5, llruguay 10,5, Nýja-Sjáland 10,5, Mónakó 5.5 og Púcrtó Rfkó 4 vinninxa. KK mmmmm ...........-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.