Morgunblaðið - 14.11.1978, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 14.11.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978 3 UNNIÐ var við söltun hjá Stemmu langt fram á kvöld á lauKardag. en er Hornfirðinsar vöknuðu á sunnudagsmorgun blasti þessi sjón við þar sem hátt í 100 manns höfðu áður haft atvinnu sína. Inni í járnabrakinu ægði öllu saman. sfldarhrújíum. færiböndum. gjörðum og fleiru. sem finna má í einni söltunarstöð. (Ljósmynd Jcns Mikaelsson). Um 300 milljón króna tjón er söltunarstöð Stemmu gereyðilagðist ÁÆTLAÐ er að tjónið. sem varð í brunanum í söltunarstöðinni Stemmu á Hornafirði aðfararnótt sunnudags. nemi um 300 milijón- um króna. Stöðin gjöreyðilagðist í eldinum. syo og 12-1500 tunnur af uppsaltaðri sfld. sem geymd var í húsinu. Einnig skemmdust lyftari og vörubifreið í stöðinni og var hvorugt vátryggt. Elds- upptök eru ókunn, en rannsókn stendur yfir á hvað olli brunan- um. Um 80—100 manns höfðu atvinnu í stöðinni. Karlmenn. sem unnu þar. byrjuðu strax í gærmorgun að hreinsa til cftir brunann. en kvenfólk sem vann við söltun og eeer að mestu lcyti aðkomufólk. missti þarna at- vinnu sína. Söltunarstöð Stemmu var stál- grindarhús byggt á síðasta ári, en í ár var byggt við stöðina. Húsið var einangrað með texi og fuðraði það upp er eldurinn varð laus. Vinnu var haett í stöðinni klukkan rúmlega 22.30 á laugardagskvöld- ið, en klukkan 0.55 var brunaboði brotinn og tilkynnt um eldinn. Innan við hálftíma síðar var húsið alelda og féll skömmu síðar. Allt tiltækt slökkvilið var kallað á staðinn og að auki dreif að mikinn mannfjölda til aðstoðar. Tunnustæðum við stöðina tókst að bjarga, en líklegt er að eitthvað hafi skemmst af þeirri síld vegna hitabreytinga frá eldinum. Búið var að salta rúmlega 19 þúsund tunnur hjá Stemmu og dagana fyrir brunann hafði óvenjumikið af síld verið saltað hjá fyrirtæk- inu. Var því meira af síld í húsum stöðvarinnar þegar bruninn kom upp en ella. — Eins og við vorum ánægðir með afköstin þegar við gengum frá á laugardagskvöldið, erum við að sama skapi bitrir núna, sagði Kristján Gústafsson, framkvæmdastjóri Stemmu í sam- tali við Morgunblaðið í gær. Kristján sagði að það væri hulin ráðgáta hvað hefði valdið eldinum. Starfsfólk hefði gengið frá stöð- inni eins og venjulega og bruna- varnir hefðu verið fullnægjandi í húsinu. — Það eina, sem við vitum, er að eldurinn kom ekki upp í kyndiklefánum, sem var aðskilinn frá stöðinni sjálfri, sagði Kristján. — Þar er allt heilt inni og þar sést varla sótkorn. Vátryggingarverð hússins nam 230 milljónum. Eigendur Stemmu eru margir aðilar, bæði Hornfirð- ingar og eigendur aðkomubáta, sem lagt hafa upp hjá stöðinni. Á vfirstandandi síldarvertíð hafa 17 bátar verið í föstum viðskiptum hjá Stemmu, en aðrir 6 bátar hafa landað þar nokkuð reglulega. Bruninn hjá Stemmu er mikið áfall fyrir alla viðkomandi, bát- arnir sem lagt hafa upp hjá Stemmu verða nú að sigla langa leið með afla sinn og þar sem góð síldveiði hefur verið undanfarið er ekki auðvelt að komast að hjá höfnum sem næstar eru. Verða Stemmu-bátarnir ýmist að sigla til Seyðisfjarðar eða á Faxaflóa- hafnir. — Þetta er áfall fyrir sjómennina, fólkið hér á Horna- firði og þjóðarbúið í heild, sagði Kristján Gústafsson. hinn upprunalegi söngur loksins útgefinn á hljómplötu Alfreð Andrésson syngur: Ó, vertu ein svona sorró — M-listinn og Útvarpsvísur. Brynjólfur Jóhannesson syngur: Hvers er hvurs — Hvaö er um aö tala og Ástandiö. Lárus Ingólfsson syngur: Syrpa Óla í Fitjakoti — Eftirhermuvísur og Daninn á íslandi. Nína Sveinsdóttir syngur: Kerlingavísur — Jónsvísur og Þegar Kanarnir komu í Keflavík. Þessar gömlu og skemmtilegu revíuvisur eiga vafalaust eftir aö rifja upp Ijúfar endurminningar hjá mörgum. Höfundar eru Haraldur Á. Sigurösson, Bjarni Guðmundsson, Tómas Guömundsson og fleiri og fleiri. Verð á plötu eða kassettu aðeins kr. 4.900- SG.-hljómplötur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.