Morgunblaðið - 14.11.1978, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 14.11.1978, Blaðsíða 28
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978 Eyjólfur Konráð Jónsson: Ræktun í sjó og vötnum jafnsjálf- sögð og á þurrlendi Tillaga Stefáns Jónssonar o.fl. um fiskeldissjóð rædd í efri deild markaði stefnu til árangurs. ís- lendingar ættu að sjálfsögðu, eðli mála samkvæmt, að vera í broddi fylkingar í þessu efni. Það sem hér um ræddi, til stuðnings stórri framtíðaratvinnugrein, væri að- eins andvirði eins mótorbáts, sem skila myndi sér margfalt í þjóðar- búið. Skortir fjármagn Alexander Stefánsson (F) sagði það standa okkur fyrir þrifum, hve lítið væri sinnt raunhæfum rann- sóknum og tilraunum, þrátt fyrir að hæfir vísindamenn væru til staðar. Þar hefði skort fjármagn, þótt arðsemi slíkra rannsókna væri hafið yfir vafa. Hann vakti athygli á Kolgrafarfirði og Hraunsfirði á Snæfellsnesi sem hentugum fyrir tilraunir af þessu tagi og fiskuppeldi. Stefán Jónsson (Abl). Gcir Gunnarsson (Abl). Oddur Ólafs- son (S), Ililmar Rósmundsson (F) og Bragi Níelsson (A) hafa lagt fram frumvarp um fiskeldi. Efn- isatriði frumvarpsins eru þau. að stofnaður verði fiskeldissjóður, í viirzlu Framkvæmdastofnunar. með framlagi úr ríkissjóði að fjárhæð 900 m. kr. á næstu 5 árum, — og hvcrn vcg verja skuli til stuðnings við fiskirækt, bæði í sjó og fersku vatni. rannsóknir og rekstur. Möguleikar fiskiræktar ævintýri líkastir Stefán Jónsson (Abl) vék m.a. að tilraunum, sem gerðar hafa veriö hér á landi með fiskeldi, bæði á vegum einstaklinga og veiðimálastjórnar. Hann gat þess og að tilraunir beggja vegna Atlantshafs með fiskeldi í- sjó hefðu leitt til umfangsmikiilar atvinnustarfsemi í Kanada, Bandaríkjunum, Sovétríkjunum, Noregi — og raunar einnig í Japan og ýmsum löndum Suðaustur-Asíu (þar einkum með skelfisk og krabbadýr). Þá vék hann að tilraunum til að rækta flatfisk í sjó í Bretlandi. Þrátt fyrir mikið starf hér á landi á þessum vettvangi sagði StJ að geysimikið verk væri óunnið á sviði tilrauna og ræktunar sjávar- fiska. Hann nefndi m.a. tilraunir á vegum Líffræðistofnunar Háskól- ans og Veiðimálastofnunar, sem framkvæmdar hefðu verið að verulegu leyti í samstarfi við einkaaðila, og dr. Sigurður St. Helgason, prófessor, hefði m.a. unnið að sl. 5 ár. M.a. hafi verið gerð tilraun með kynblending af laxi og sjóbirting, laxbirting, kynlausan fisk, sem ekki þurfi að eyða orku í hrogn og svil, og vaxi því fyrr. StJ sagði þannig til haga víða í sjávarplássum, að tiltækt væri heitt vatn, jarðhiti til að hita á ódýran hátt eldissjó, sem skapaði skilyrði til unifangsmikillar lax- fiskræktar. Annars staðar mætti nýta kælivatn frá vélum frysti- húsa. Ymiss konar fiskúrgangi og raunar loðnu yrði ekki komið öðruvísi betur í verð en sem fóður í fiskrækt. Vitnaði hann til reynslu þar um í Noregi. Þá vék StJ að tilraunum í eldisstöð með heitum jarðsjó í Húsatóftum við Grindavík, þar sem Sigurður St. Helgason og Eyjólfur Friðgeirsson, fiskifræð- ingur, komu við sögu, og hættu til eigin fjármunum, án fyrirgreiðslu af hálfu hins opinbera. Þessi tilraun hafi fært heim sanninn um að á öllu sunnanverðu Reykjanesi væri hægt að nýta heitan jarðsjó í þessum tilgangi, sem falla muni til í stórum stíl við fyrirhugaða saltvinnslu á nesinu. StJ vitnaöi og til vísindamanna um furðulega möguleika, sem falist gætu í notkun á volgum og efnastýrðum eldissjó fyrir helztu fiskitegundir okkar. Hann vék að tilraunum erlendis til að finna kjörfæði þorsklirfunnar, sem hún nærist á þær 3 til 4 vikur, sem ráða úrslitum um hvern veg hrygning heppnast. Með einbeit- ingu sérfræðinga ætti að vera hægt að finna þessa kjörfæðu — og væri það hægt, myndi notkun eldistjarna með réttri sjávar- blöndu geta tryggt fiskislóðina árlega gegn misheppnaðri hrygn- ingu. StJ. lagði í lokin áherzlu á þýðingu rannsókna í ræktunartil- raunum af þessu tagi og hversu hyggilegt það væri að verja nokkrum fjármunum til þeirra. Ræktun í sjó jafn sjálfsögð og á landi Eyjólfur Konráð Jónsson (S) sagðist lítill aðdáandi Fram- kvændastofnunar — en tilgangur þessarar tillögu væri hafinn yfir allan vafa. Hann varðaði einn Alexander Stefánsson mikilvægustu möguleika þjóðar- innar í verðmætasköpun. EKJ rakti frumkvæði og margra ára framtak dr. Snorra heitins Hallgrímssonar, í samstarfi við Kristin Guðbrandsson og dr. Odd Ólafsson, alþingismann, er hófst fyrir hálfum öðrum áratug. — Hann rakti starfsemi þessa allt frá byggingu tilraunastöðvar að Keldunt til tilrauna að Tungu í Landbroti. Þessir menn hafi unnið mikil hugsjónastarf í fiskræktar- málum — og lagt á sig mikið erfiði, ofan á föst störf sín, og hætt til fjármunum. Rétt sé að nöfn þeirra komi fram, þegar forsaga þessara mála sé rakin í sölum Alþingis. EKJ sagðist hafa haft gæfu til að tengjast starfi þess- arra manna og kvaðst höfundur að nafngift hins nýja afbrigðis: lax- birtingur. Hann kvaðst hafa fylgst með ræktun þessa afbrigðis austur í Tungu í Landbroti, veitt hann og snætt, og teldi hann betri fisk en bæði lax eða sjóbirting. EKJ sagði það einstakt fyrirbrigði að tekizt hefði að rækta þennan kynlausa fisk, þannig að engin orka færi í hrogn eða svil, allt í vöxt fisk- holdsins. EKJ fór nokkrum orðum um tilraunir og fiskeldi fyrirtækis þeirra félaga, sem rekur tvær eldisstöðvar, aðra í Ölfusi en hina austur í Landbroti. Hann sagði að Alþingi ætti hiklaust að stuðla að og styrkja tilraunir á þessum vettvangi. Fullvíst væri, að þótt frumherjar þessa máls bæru e.t.v. ekkert úr býtum annað en erfiðið, ætti fiskeldi margs konar eftir að veröa mikill atvinnuvegur á Islandi. Það yrði ótvírætt eins með auðæfi hafs og vatna, eins og á þurrlendi, að það yrði ræktun sem réði ferð og Ellefu þingmenn Alþýðuflokks- ins hafa lagt fram í Sameinuðu þingi tillögu til þingsályktunar um kerfisbreytingu skattalaga. sem m.a. felur í sér að virðisauka- skattur komi í stað söluskatts, tekjuskattur af almennum laun- um verði afnuminn. að hvort hjóna verði sjálfstæður skattaðili, að stighækkandi tekjuskattur haldist á atvinnurekstri ofl. Tillagan fer hér á eftir. Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að láta endurskoða gildandi skattalög með kerfis- breytingu fyrir augum, sem af- næmi úrelta og óréttláta skatt- stofna, einfaldaði skattkerfið og tryggði bætt framtöl, betri skatta- skil og raunhæfara skattaeftirlit. Tillögur um breytingar verði m.a. miðaðar við þessi grundvallaratr- iði: 1. Að í ársbyrjun 1980 leysi virðisaukaskattur söluskatt af hólmi og skal upphæð hans við það miðuð, að tekjur af honum verði Stefán Jónsson jafnmiklar og af núgildandi sölu- skatti og tekjuskatti að frádregn- um þeim tekjuskatti, sem áfram yrði greiddur af atvinnurekstri og hæstu tekjum samkvæmt síðari ákvæðum þingsályktunar þessar- ar. Sem undanfari þeirrar breyt- ingar færi fram allsherjarendur- skoðun á útgjaldakerfi ríkisins í því skyni að minnka tekjuþörf ríkissjóðs og auka stjórnunarsvig- rúm við fjárlagagerð með því m.a. að draga úr sjálfvirkni útgjalda. 2. Að frá sama tíma verði felldur niður tekjuskattur af launatekjum nema þeim, sem ná " hærri fjárhæðum en nemur tvö- földum meðaltekjum verkamanna, sjómanna og iðnaðarmanna á síðasta ári eftir að þær hafa verið leiðréttar samkvæmt kaupgjalds- vísitölu. Við ákvörðun á skatt- skyldum tekjum einstaklings af eigin atvinnurekstri skulu laun hans áætluð eins og telja má eðlilegt miðað við vinnuframlag hans í þágu fyrirtækis síns, svo og stöðu hans, og vera hliðstæð tekjum fyrir sams konar störf í atvinnurekstri eins og ráð er fyrir gert í lögum, en sérstöku eftirliti verði auk þess beitt til þess að koma í veg fyrir að fólk sé tekið á launaskrá án þess að það starfi í þágu fyrirtækisins, enda liggi þung viðurlög við slíku. 3. Hvort hjóna um sig verði sjálfstæður skattgreiðandi án til- lits til þess, hvort vinna fer fram utan eða innan heimilis að hluta eða einvörðungu. Vinni annar aðilinn einungis á heimili skal hann eiga rétt til ráðstöfunar á hluta af tekjum hins og greiða útsvar af þeirri fjárhæð, en þó aldrei til hærri hluta en svarar til helmings af tekjum heimilisins. Ef það hjóna, sem annast heimilis- störf, sýnir fram á að það hafi ekki fengið til ráðstöfunar þann hluta teknanr.a, sem hún eða hann er talinn eiga rétt á, ber þeim, sem tekna heimilisins aflaði, að greiða allt útsvar af þeim. 4. Af atvinnurekstri, hvort sem Aödáun mín og viðurkenning Stefán Jónsson tók aftur til máls. Þakkaði jákvæðar undirtekt- ir. Hann sagðist vilja árétta aðdáun sína á þeim mðnnum, sem varið hefðu fé og fyrirhöfn í brautyrðjendastarf á sviði fisk- ræktar og tilrauna á þeim vett-. vangi. Þar ættu þeir mikilvægan hlut að máli dr. Snorri heitinn Hallgrímsson og samstarfsmenn hans, þ.á m. Eyjólfur Konráð Jónsson. Starf þeirra hefði vakið athygli á þeim miklu möguleikum, sem hér um ræddi, og auka myndu gæði lands okkar, er nýtt yrðu. Frumvarpinu var að lokinni umræðu vísað til fjárhags- og viðskiptanefndar efri deildar Al- þingis. hann er stundaður af einstakling- um, sameignarfélögum, hlutafé- lögum eða opinberum aðilum, skal greiddur stighækkandi tekjuskatt- ur. 5. Reglur um afskriftir eigna skulu annars vegar við það miðað- ar, að afskriftirnar svari til eðlilegrar verðmætisrýrnunar miðað við verðmæti eignar þegar afskrift fer fram og hins vegar að jafnan sé miðað við mat á upphaflegum endingartíma eign- arinnar, þ.e. að kaupandi eignar afskrifi hana með sama hætti og seljanda hennar hefði borið að gera, þannig að sama eign verði aldrei afskrifuð oftar en einu sinni. 6. Reglur um heimild til þess að draga vexti af skuldum frá tekjum skulu við það miðaðar, að um hafi verið að ræða nauðsynlega láns- fjáröflun í þágu atvinnurekstrar- ins. 7. Hagnaður af sölu eigna verði skattlagður að svo miklu leyti sem hann á ekki rót sína að rekja til rýrnunar á verðgildi peninga. 8. Hert verði eftirlit með fram- tölum og skattskilum og skattsvik meðhöndluð með sama hætti og önnur fjársvikamál. 9. Jafnframt fari fram endur- skoðun á lögum um tekjustofna sveitarfélaga með það fyrir augum að auka frjálsræði þeirra til þess að ákveða á hvern hátt þau afla sér tekna sinna. Þó skulu þau ekki fá heimild til þess að innheimta söluskatt né virðisaukaskattl í sambandi við þessa endurskoðun verði m.a. sérstaklega athugað, hvort rétt sé að sameina í einn skatt tekjuskatt til ríkisins og tekjuútsvar til sveitarfélaga þann- ig að hinn nýi skattur yrði lágur, en stighækkandi brúttóskattur, sem staðgreiddur yrði og skipt yrði í ákveðnu hlutfalli milli ríkis og sveitarfélaga. Þar með félli tekjuskattur einstaklinga í núver- andi mynd alfarið niður og sömu- leiðis tekjuútsvar í núverandi mynd. 78000 skráð ökutæki: Lagavernd í sölu notaðra bfla Algengasta tegund lausafjárkaupa Eiður Guðnason (A) og fjórir aðrir þingmenn Alþýðuflokks hafa lagt fram tillögu til þings- ályktunar þess efnis, að Alþingi feli ríkisstjórninni að gera ráðstafanir — með breytingar að þar að lútandi lögum og reglugerðum — til að tryggja hagsmuni almennings gagnvart aðilum er stunda verzlun með notaðar bifreiðar. I greinargerð er vitnað til tíðra frétta um svik og pretti í tengslum við sölu notaðra bifreiða. Skráð ökutæki á landinu séu um 78.000 og árið 1977 fóru fram rúmlega 18.000 umskráningar hjá Bifreiðaeftir- liti ríkisins, þar sem eigenda- skipti áttu sér jafnframt stað. Viðskipti af þessu tagi eru einhver algengasta tegund lausafjárkaupa og „sýnt er hinn almenni borgari nýtur ekki þeirrar verndar löggjafans, sem nauðsyn ber til í þessum við- skiptum,“ segja flutningsmenn. Kerfisbreyting skattkerfis: Virðisaukaskattur og afnám tekjusköttunar Tillögur Alþýðuflokks miðaðar við árið 1980

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.