Morgunblaðið - 14.11.1978, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.11.1978, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978 a BHM um lífskjör á íslandi: Dr. Jónas Bjarnason. Jónas Bjarnason form. BHM: Hagvöxtur er undirstaða bættra lífskjara — er niðurstaða ráðstefnu BHM Ég tel. að ráðstcfna Banda- lags háskólamanna um lífskjör á Islandi hafi hæði tckizt mjÖK vcl ojí verið tímabær. Ýmsir mcnn hafa lýst því yfir við mi>?. að ráðstefnan hafi verið Kann- lcK ok stuðli að mannlcKri umræðu um þcssi mál. sasði dr. Jónas Bjarnason formaður BIIM í viðtali við MorKunhlað- ið. — Myð þessari ráðstefnu hef- ur verið drefjin upp mynd af þv: ástandi sem hér ríkir í efna- haf;s- og framfaramálum ásamt möfjuleikum í þeim efnum í framtíðinni. Ef stiklað er á stóru, má lýsa þeim “rauða þræði", sem gekk í gefjnum ráðstefnuna, á eftirfarandi hátt: — Hafívöxtur er áfram undir- staða bættra lífskjara. Þótt ýmsar neikvæðar hliðar hafi fylfít örum hagvexti er það enfíin forsenda fyrir því að draf?a úr mikilvæfþ hans. Með því að meta neikvæð atriði til frádráttar í hagvexti er þannig fenginn hagvöxtur sama ákjós- anlega keppikeflið og áður. Hagvöxtur á íslandi hefur verið hægari á undanförnum árum en í ýmsum nágrannalöndum. Skýringar á því er að leita í óarðbærum fjárfestingum þæði í frumvinnslugreinunum svo og húsnæði til ýmissa nota í stað þess að fjárfesta meira í vélum og tækjum í úrvinnsluiðnaði. Fjárfestingar í fiskiskipum og landbúnaði hafa nú um árabil tæpast skapað arð, en jafnvel aukið á erfiðleika. Lífskjör nú hafa dregizt aftur úr Sem afleiðing af hægum hag- vexti hafa lífskjör á íslandi dregizt aftur úr lífskjörum á öðrum Norðurlöndum að Finn- landi undanskildu. Hlutur launa í þjóðartekjum er hér lægri en á Norðurlöndum, og hefur hann beinlínis lækkað á árunum 1974—1976. Segja má, að megin- skýringin á því, að launakjör hér virðast lægri en á öðrum Norðurlöndum sé sú, að meira er fjárfest hér á landi en þar, og fjárfestingin er ekki nægilega arðsöm til að halda sama hagvaxtarstigi og er í hinum löndunum. Verðbólga hefur að sjálfsögðu dregið úr arðsemi fjárfestingar. Margt bendir til þess, að íslendingár hafi nú að miklu leyti fyllt út í þann ramma eða umgjörð, sem annars vegar gróður landsins svo og lífríki sjávar setur fyrir lífskjör í þessu landi með núverandi atvinnuháttum, og veruleg hætta er á rányrkju, eins og tíðkast ávallt þegar um er að ræða óhindraðan aðgang á sameignargrundvelli að auðæf- um náttúrunnar. Aðeins breytt- ir atvinnuhættir og nýting á orkuauðlindum landsins geta stuðlað að auknum hagvexti. Með uppbyggingu fiskstofna, stóraukningu á vinnuafli í arðsömustu greinar atvinnulífs- ins á að vera unnt að auka hagvöxt úr 3Vfc% í 7% a.m.k. Ríkustu þjóðir heims eiga jafnframt á að skipa menntað- asta starfsfólkinu. Þótt einhver deila kunni að vera um það, hvort ríkar þjóðir séu ríkar vegna þess, að þær hafa mennt- að sig eða vegna þess, að þeir hafa efni á að mennta sig, er flest sem bendir til þess, að aukin menntun hafi mikla þýð- ingu ekki sízt við breytilegar aðstæður eins og hér á Islandi. Til þess að aðlaga sig fyrirsjá- anlegum breytingum í atvinnu- háttum hérlendis er menntun fólks lykilatriði. Ilér fer á eftir úrdráttur úr erindi Þráins Eggcrtssonar á ráðstefnu BHM um lífskjör á íslandi. Erindið fjallar eingöngu um tilraunir hagfræðinga til að meta það, hvort menntun auki getu fólks til að framleiða vöru og þjónustu. Ef svo er, má líta á námskostnað sem fjárfestingu og tala um mannauð sem veigamik- inn hluta af framleiðslugögnum þjóðarinnar. Þessi viðhorf útiloka ekki að gildi menntunar sé einnig fólgið í andlegri upplyftingu, að menntun sé varanleg neysluvara á máli hagfræðinnar. Ævitekjur og fjárfesting í menntun Athuganir á efnahagslegum áhrifum menntunar eru nýjar af nálinni og sú grein hagfræðinnar, sem nefnd er mannauðsfræði (enska human capital theory), skaut ekki rótum fyrr en um 1960. Alls staðar í heiminum, þar sem upplýsingar eru til um meðaltekj- ur eftir aldri og menntun, og reiknaðar hafa verið svo nefndar ævitekjulínur fyrir hina ýmsu menntahópa, hafa komið í ljós ýmis sameiginleg einkenni. Að meðaltali hækka laun á hverju aldursstigi með menntun, og jafnframt aukast tekjur hraðar með aldri eftir því sem menntun manna er meiri. Ævitekjulínurnar hafa verið notaðar til að mæla ávöxtun fjárfestingar í menntun. Mismun- ur á meðaltekjum tveggja hópa með ólíka menntun er þá talin vera tekjubótin af því að bæta við sig ákveðnu námsstigi. A móti tekjubótinni er veginn kostnaður við námið, en hann er bæði beinn kostnaður, svo sem skólagjöld og bókakostnaður, og óbeinn kostn- aður, en þar er um að ræða tekjutap námsmanns, sem situr á skólabekk í stað þess að stunda heiðarlega vinnu. Mæld greind og þjóðfélagsstaða hafa einnig áhrif á tekjur, en hagfræðingar hafa reynt að ein- angra áhrif þessara þátta og mæla hrein áhrif menntunar á tekjur. Víðast hvar í heiminum er almenn háskólamenntun talin ágæt fjár- festing og gefur einstaklingnum oft 8—12% raunvexti, og hefur þá verið reiknað með áhrifum beinna skatta. íslensk rannsókn A Islandi er ekki unnt að gera nákvæma útreikninga af þessu tagi vegna þess, að nauðsynleg gögn vantar. Þess má þó geta, að árið 1976 skrifaði nemandi í viðskiptadeild Háskóla íslands, Gunnar H. Hall, vandaða kandi- datsritgerð um ævitekjur 9 starfs- stétta á Islandi. Upplýsingar voru ekki til um heildarlaunatekjur, svo að Gunnar miðaði við gildandi kauptaxta á miðju ári 1976 og 40 vinnustundir á viku. Af hópunum 9 voru 5 með háskólamenntun, og var reiknað með því, að laun þeirra fylgdu töxtum BHM. Gert var ráð fyrir beinum og óbeinum námskostnaði og skattlagningu launatekna yfir starfsævina og þannig fundnar hreinar ráðstöfun- artekjur. Niðurstöður Gunnars voru þær, að fjárfesting í háskólamenntun sé ekki ýkja arðbær, ef tekið er mið af kjarasamningum. Af háskóla- hópunum 5, sem hann athugaði, voru ævitekjur viðskiptafræðinga hæstar. Samanburður á æviráð- stöfunartekjum viðskiptafræðings og bankamanns með verslunar- skólapróf leiddi í ljós, að fjárfest- ing viðskiptafræðingsins skilaði tæplega 2% arði. Hafa ber þó í huga, að vafasamt er að byggja samanburð af þessu tagi á kaup- töxtum einum. Tengsl menntunar og hagvaxtar' Ævitekjur hækka með mennt- unarstigi launþegans, en það sannar ekki, að menntun auki afköst í framleiðslu og þjónustu. Að vísu er ein af grundvallarfor- sendum hagfræðinnar sú, að laun endurspegli verðmæti framleiðslu- afkastanna hjá launþeganum. En ekki er unnt að útiloka þá tilgátu, að það séu ýmis félagsleg viðhorf, en ekki mikil afköst, sem ráði því að menntafólki séu yfirleitt greidd há laun. Hagfræðingar hafa um árabil gengið vasklega fram í leit að beinu sambandi milli menntunar og framleiðni eða hagvaxtar. Vinnubrögð þeirra hafa hins vegar oft verið næsta vafasöm séð frá bæjardyrum vísindalegrar að- ferðafræði. Hér verður skýrt lauslega frá tveimur aðferðum, en önnur þeirra hefur verið nefnd einfalda fylgniaðferðin og hin afgangsaðferðin. Einfalda fylgniaöferöin Samkvæmt einföldu fylgniað- ferðinni er leitast við að finna samband milli vísitölu fyrir þjóð- arframleiðslu og vísitölu, sem sýnir menntunarstig þjóðar. Einhver frægasta athugunin af þessu tagi var gerð fyrir 12 árum af Jan Tinbergen og Þjóðhags- stofnun Hollands. Safnað var gögnum um ‘þjóðartekjur á mann og fjölda menntafólks í atvinnulíf- inu í 23 löndum árið 1957. Helmingur landanna var þróunar- lönd. Niðurstöður Hollendinganna virtust sýna m.a., að aukist þjóðartekjur á mann um 1% eykst fjöldi háskólamanna í atvinnulíf- inu líka um 1%. Af þessu var dregin sú ályktun, að aukning háskólamanna um 1% væri skil- yrði fyrir 1% hagvexti. Þessi ályktun var mikið notuð við gerð áætlana um mannaflaþarfir fyrir þróunar- löndin. Ýmis rök má færa fyrir því, að vafasamt sé að draga svo afgerandi ályktun af Tinbergen- jöfnunum. Rannsókn Hollending- anna getur t.d. ekki gert upp á milli tilgátunnar að menntun orsaki hagvöxt og tilgátunnar að hagvöxtur (og hærri tekjur) „or- saki“ menntun. Einnig er ólíklegt, að þjóðum heims sé aðeins fær ein hagvaxtarbraut. Afgangsaöferðin Afgangsaðferðin er fólgin í því, að vísitala fyrir vöxt þjóðarfram- leiðslu er borin saman við vísitölu, sem sýnir aukna notkun aðfanga í framleiðslunni, þ.e. vinnu og fjármuna. Vinnan er mæld í vinnustundum og ekki tekið tillit til menntunar. Hugsum okkur nú, að þjóðar- framleiðslan hafi aukist um 8% á ári að meðaltali eitthvert árabil, en aðfangavísitalan aðeins aukist um 4%. Þá vantar enn skýringu á helmingi hagvaxtarins, en það er afgangurinn, sem aðferðin dregur nafn sitt af. Afgangsstærðin hefur á ensku verið nefnd total factor productivity, og margir hagfræð- ingar telja, að þarna séu á ferðinni áhrif aukinnar menntunar og tækniframa á hagvöxtinn. Þykir þá gott að óskýröa stærðin (af- gangurinn) sé sem mestur hluti hagvaxtarins. Lausleg athugun, sem ég hef gert, bendir til þess að afgangsstærðin sé mjög lítill hluti hagvaxtar hér á landi miðað við ýmis nálæg lönd. Þetta virðist merkja að áhrif menntunar og tækni á hagvöxt séu lítil á íslandi, og vöxturinn stafi fyrst og fremst af auknu vinnumagni og meiri notkun fastafjármuna. Bandaríski hagfræðingurinn, E.F. Denison, varð heimsfrægur fyrir tilraun sína til að skýra nánar margrædda afgangsstærð. Denison reyndi að bæta aðfangs- vísitöluna með því að gera ráð fyrir bættri menntun vinnuaflsins. Hann komst að þeirri niðurstöðu, að aukin menntun og lenging skólaársins hefðu á árunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.