Morgunblaðið - 14.11.1978, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 14.11.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978 7 Gamlar, þýzk- ar þjóöfélags- kenningar Einn af nýbökudum foringjum sósíalista, Svavar Gestsson ráð- herra viðskipta á islandi, flutti eins konar „trúar- játningu“ á nýafstöönum „ársfundi Verkalýðsmála- ráðs Alpýðubandalags- ins“. Upphaf, innihald og endir boðskapar hans var viðrun á meir en aldar- gömlum kennisetningum Karls nokkurs Marx, hins pýzka upphafsmanns al- ræðíshyggjunnar og kommúnismans. „Karl Marx Þóttist geta sýnt fram á Það, að Þegar fyrir 110 árurn," voru upphafsorð Svavars, og síðan kom kenningin um vinnugildi og verkalýðs- baráttu. Út af Þeirri kenn- ingu er síðan lagt í löngu máli. Lokaorð boðskap- arins eru og sótt beint í orð Marx gamla um „beitingu á valdi verka- lýösfélaga" til að ná lokamarkinu, „endanlegu afnámi launaskipulags- Síðan segir Svavar (minnugur orða Ólafs Jóhannessonar í upphafi vinstri stjórnar 1971): „j Þessari gömlu tilvitnun (í Marx) felast enn mikil sannindi. Textarnir í Marx, Engels, úrvalsrit, eru engu ónauðsynlegri lesning kvölds og morgna en stjórnarsátt- máli ríkisstjórnar íslands eöa Hagtölur mánaðar- ins. Það er skylda okkar að beita flokknum . . .“ á Þann hátt sem í Þessum fornu fræðum. i boðskap sínum horföi „businessmáiaráöherr- ann“ sem sé aðallega um öxl, til kennisetninga í Þýzkalandi á öldinni sem leið, en minna á samtíð eða framtíð; viðblasandi vandamál í Þjóðarbúskap okkar. Forneskjur fyrri alda Þaö kemur eilítið spánskt fyrir sjónir að fjalla um nokkurs konar forneskjur fyrri alda, 19. aldar kenningar Karls Marx, á verkalýðsmála- ráðstefnu „íslenzks" stjórnmálaflokks — við ríkjandi aðstæður í Þjóð- félaginu. í gjörvallri rsað- unni er hvergi minnst á „samningana í gildi“, kaupmátt eða annað, er tengist „fyrirheitum" Al- Þýðubandalagsins fyrir kosningar. AlÞýöubanda- lagið er greinilega í öðru hlutverki en fyrir kosn- ingar, og hefur raunar alltaf hagað seglum eftir vindi í pólitískum tví- skinnungi sínum. Þaö athyglisverðasta við ræðu Svavars Gests- Svavar Grstsson sonar er, að í fyrsta skipti um langt árabil viörar forvígismaður úr röðum sósíalista hreinræktaða og ódulda fornesku marxismans, eins og hún „bezt“ geröist hjá forvera Alpýðubandalagsins, Kommúnistaflokknum sáluga, og síðar í eilítið útvatnaðari mynd hjá Sósíalistaflokknum. Ef til vill er Þessi málflutningur hugsaður sem viöbrögð gegn vaxandi gagnrýni á AlÞýðubandalagið „frá vinstri", eftir að Það keypti aðild aö ríkisstjórn með nokkrum „hugsjón- um“ og baráttumálum? — í bland bera pessi viðbrögð samt sem áður Ijósan vott Þess, að forn- eskja marxismans býr enn við hjartarætur fram- ámanna AlÞýðubanda- lagsins. „Skammtíma- stjórn“, „vissir menn“ og draumfarir Þórarinn Þórarinsson segir í Tímanum sl. sunnudag: „Það er nú óðum aö koma í Ijós, að ' Þau töfraráð, sem sigur- | vegarar kosninganna í sumar töldu sig luma á, ' voru orðagjálfur eitt... j Framtíð Þeirrar stjórnar I sem nú fer með völd, | veltur á Því, að stuðn- , ingsflokkar hennar sýni ' raunsæi og takist á við | vandann, eins og hann , er, en reyni ekki að koma sér hjá Því með Því að | benda á eitthvað sem , hillir undir í framtíðinni ' eöa er alveg óraunhæft. | Verði Þannig á málum i haldið getur stjórnin ekki orðið annað en skamm- tímastjórn eins og vissa i menn í tveimur stjórnar- flokkum dreymir um ...“ Hér staðhæfir Þórarinn að stefnumörkun AlÞýðu- flokks og AlÞýðubanda- lags fyrir síðustu kosn- ingar hafa verið orða- gjálfur eitt. Verði haldið fast við orðagjálfrið hljóti stjórnin að veröa | „skammtímastjórn", sem ■ ekki „sé fær um að leysa málin til nokkurrar fram- | búöar". Hann staöhæfir ■ jafnframt að „vissir menn“ í báðum Þessum | samstarfsflokkum ■ „dreymi um“ að ríkis- stjórnin lifi sem stytztl | Hverjir eru Þeir drauma- i menn? Það væri karl- mennska af Þórarni að | láta nöfn fylgja fullyrð- ingu, svo að allir Þing- menn samstarfsflokka | Framsóknar liggi ekki undir grun helzta tals- manna Framsóknar í ís- | lenzkri Þjóömálaumræðu — um óheillindi í sam- I starfinu, svo að ekki sé | sterkara að orði kveðið. Electropower 3 \ | £5* GÍRMÓTORAR RAFMÓTORAR EIGUM JAFNAN TIL GÍRMÓTORA: Ýmsir snúningshraðar lns fasa: 3/4-1 1/2 hö 3ja fasa: 1/3 - 20 hö RAFMOTORA: 1400 - 1500 sn/mín. lns fasa: 1/3 - 3 hö 3ja fasa: 1/3 - 20 hö Utvegum allar fáanlegar stærðir og gerðir. FALKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 Snyrtistofan Gyðjan Andlitsböö, húöhreinsun unglinga og litanir. Hötum fengiö hið viöurkennda High Frequency tæki, sem stuölar aö heilbrigöi húöarinnar. Hand- og fótsnyrting. Kvöldsnyrting. Glæsibæ sími 35044. Rakarastofan Klapparstíg Klapparstíg 29, sími 12725. |SNIÐS| OFNAR Sniðnir eftir yöar þörfum 7 hæðir (frá 20—99 cm). ' Allar lengdir. Margra ára reynsla hér á landi. Henta Þæði hitaveitu og olíukyndingu. Sænskt gæöastál. Stenst allar kröfur íslensks staöals. Hagstætt verð. Efnissala og fullunnir ofnar V /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.