Morgunblaðið - 14.11.1978, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978
21
* “ í Stewart 5
1 fékk ^
þriggja 5
vikna |
leikbann i
Verða útlending-
arnir ekki með?
Ég er mjög tregur varðandi það að leika með íslcnska landsliðinu
í handknattleik í vetur. Ég tel að ég sé búinn að gera skyldu mína
gagnvart liðinu. Það er bæði tímafrekt og kostnaðarsamt fyrirtæki
að vera með í þessu svo að allar líkur eru á að það verði án mín. Það
er líka til nóg af góðum mönnum heima, sagði Björgvin
Björgvinsson handknattleiksmaðurinn kunni er Mbl. raeddi vð
hann í gær.
Landsliðsþjálfarinn í hand-
knattleik, Jóhann Ingi Gunnars-
son, fór gagngert út til
Vestur-Þýskalands til að horfa á
leik Grambke, liðs Björgvins, og
Dankersen, liðs Ólafs Jónssonar
Hljóp 16
mílur
meö kúlu
í höfðinu
ÞEGAR Dennis Reiner hafði
lokið 10 mílum af 26 milna
maraþonhlaupi í Michigan-
fylki í Bandarikjunum,
gerðist það, að hann fékk
óvænt og fyrirvaralaust höf-
uðhögg. Ekki hafði Reiner
minnstu hugmynd um hvað-
an það kom og hvað því olli,
en honum sortnaði fyrir
augun, hann svimaði, og
stór kúla kom út á höfði
hans. En hann hætti ekki að
hlaupa og lauk þeim 16
mflum sem eftir voru á
ágætum tíma miðað við
aðstæður.
Þegar í markið var komið,
var Reiner færður í sjúkra-
hús til rannsóknar og þar var
dregin úr höfði hans byssu-
kúla af hlaupvídd 22. Lög-
reglan þar í fylki rannsakar
nú málið, en Reiner hefur
áhuga á að eignast kúluna
sem minjagrip, þegar rann-
sókn er lokið. Sjálfur trúir
hann því að um einhvers
konar slys hafi verið að ræða.
u
| Ekkert
I óvænt
SS Fyrri hluta G-keppninnar i handknatt-
lcik iauk um heljóna. en hún íór fram í
Sviss. Leikið var í 3 riðlum og var
sannast sagna aldrei um verule^a
^ spennu að ræða.
Úrslit um helgina urðu þessi,
V A-RIÐILL,
^ Portújíal — Luxemburg 25—18(12—7)
K Sviss — Portúiral 27—19
Jl B-RIÐILL.
^ ísracl — Austurrfki 17—11
^ Austurriki — Finniand 27—22
C-RIÐILL.
^ Noreirur — Fareyjar 27—15
W NorcKur — ítalia 21—14
SvisslendinKar voru druKgir sigurveK-
SS arar í A-riðli, fsraciar í B-riðli og
Norðmenn í C-riðli. Luxemburg, Finn-
land og Færeyjar eru úr leik, en
sigurvegararnir ásamt PortÚKölum,
Austurrikismönnum og ítölum leika í
næstu umfcrð keppninnar.
og Axels Axelssonar. Dankersen
sigraði í leiknum 20—12, og áttu
íslendingarnir allir góðan leik.
Ólafur Jónsson sagði í viðtali
við Mbl. í gær, að Jóhann hefði
sýnt því mikinn áhuga að fá þá
til liðs við landsliðið, en það
væri erfitt fyrir hann og Axel að
taka sér frí frá vinnu og um leið
kostnaðarsamt. — Þetta getur
því ráðist nokkuð af því hvað
HSÍ getur komið til móts við
okkur, í sambandi við vinnutap
og kostnað sem við verðum
fyrir.
— Þetta skýrist nú alveg á
næstunni, þvi að ætli HSI að
greiða götu okkar verðum við að
fá að vita það fyrir helgina,
sagði Ólafur.
Eins og skýrt hefur verið frá
verður landsliðið í handknatt-
leik tilkynnt nú næstu daga, þar
sem lokaundirbúningur fyrir
Frakklandsferð liðsins stendur
fyrir dyrum.
Jóhann Ingi var væntanlegur
til landsins í gærkveldi.
ÞR.
Holmes rotaði
áskorandann!
LARRY Holmes varði WBC heimsmeistaratitil sinn um helgina
gegn Spánverjanum Alíredo Evangelista. Keppnin var alger
einstefna frá upphafi til enda, en endalokin komu í 7. lotu, þegar
llolmes rotaði Évangelista með gífurlegu hægri handar höggi. Lá
Spánverjinn í móki í tæpa mínútu. áður en hann vissi á ný hvar
hann var og hvað hann hét.
Þetta var 29. sigur Holmes í röð og enn hefur hann ekki tapað sem
atvinnumaður. Holmes hefur aldrei keppt við Mohammed Ali og eftir
leikinn sagði hann sjálfur, að sér virtust litlar horfurá að keppni milli
þeirra væri á næstu grösum. Holmes mun næst verja WBC-titil sinn í
mars og þá líklega gegn Jimmy Young, Scott Ledoux eða Duane
Bobick.
ÍR-INGURINN Paul
Stewart, sem kærður var af
UMFN vegna atviks sem
átti sér stað í leik UMFN og
ÍR á Keflavíkurflugvelli á
dögunum, var á laugardag-
inn dæmdur í þriggja vikna
leikbann af Aganefnd
Körfuknattleikssambands
íslands.
Tildrög málsins voru í
stórum dráttum þau, að í
umræddum leik sló Stewart
Njarðvíkinginn Stefán
Bjarkason það illa, að sauma
varð nokkur spor í andlit
hans. Njarðvíkingar kærðu
málið til KKI, sem vísaði því
til aganefndar. Aganefndin
tók síðan málið fyrir á
laugardaginn og þar sem um
brot var að ræða, sem þýtt
gat meira en eins leiks
leikbann, fór fram munnleg- ^
ur málflutningur. Að honum |
loknum kvað aganefndin upp i
úrskurð sinn, sem hljóðaði %
upp á þriggja vikna leikbann kc
frá og með 11. nóvember. Það ,
þýðir að Stewart má ekki M
leika með ÍR gegn UMFN 18. ^
nóv. og KR 29. nóv. Hins
vegar má hann leika gegn A
Val 2. desember. |^
Meistarakeppnin:
Bodan verð- 5
ur í marki! 5
Frammistaða Eyja-Þórs í 2. deild í handknattleik
hefur vakið verðskuldaða athygli. Hin kornungi og
efnilegi markvörður liðsins, Sigmar Þröstur, átti
stóran þátt í hversu liðinu hefur gengið vel. Sigmar,
sem er aðeins 16 ára gamall, sést hér vera við öllu
(Ljósmynd Sigg.)
I KVÖLD kl. 21.00 fer fram í
Laugardalshöllinni leikur Vals
og Víkings í meistarakeppn-
inni í handknattleik. En Valur
sigraði í Islandsmótinu á
síðasta ári og Víkingar í
hikarkcppninni. Leikur þessi
er líka hugsaður sem fjár
öflunarleikur. en liðin standa
nú í mjög kostnaðarsamri
Evrópukeppni.
Valur og Víkingur eru nú efst
og jöfn að stigum í íslandsmót-
inu í handknattleik og var leikur
liðanna er þau skildu jöfn í
mótinu afar spennandi og
skemmtilegur. Þjálfari Víkinga,
Árgentínumenn
græddu minna
HM í Argentínu á síðastliðnu
sumri gaf af sér sem svarar
74.3 milljónum Bandaríkja-
dala, sem er um 8 milljón
dölum minna heldur en IIM í
Vestur-Þýzkalandi gaf af sér
árið 1974.
Þetta kom fram í tilkyningu
frá FIFA fyrir skömmu. Þetta
kemur á óvart, vegna þess að
almennt hefur verið talið, að
knattspyrnuáhugi sé síst minni í
Suður-Ameríku en í Evrópu.
Bodan, mun leika með Víkingi í
kvöld. Hann er mjög reyndur
markvörður og lék á sínum tíma
70 landsleiki fyrir Pólland. Þá
var hann aðalmörkvörður
pólska liðsins Slask í mörg ár.
Víkingum hefur ekki tekist að
sigra Val það sem af er vetrin-
um, og munu áreiðánlega leggja
á það mikið kapp í kvöld. Það
verður þvi væntanlega mikið
fjör á fjölum hallarinnar.
þr