Morgunblaðið - 14.11.1978, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 14.11.1978, Blaðsíða 40
Lækkar hitakostnaðinn jrcggotttMftfrifr ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978 Þyrla sótti veikan mann af Brettingi I>YRLA varnarliðsins var í gærdag fengin til að sækja sjúkan mann ti) Neskaupstaðar að beiðni lækna þar, en það var sjómaður af togaranum Brettingi NS-50. Var togarinn staddur norðaustur af Norðfjarðarhorni er beiðni barst frá togaranum, en skipverjinn hafði fenjjið heilablæðingu. Hjálparbeiðni barst Slysavarna- félaginu síðdegis í gær og var leitað til varnarliðsins um aðstoð. Að sögn Hannesar Hafsteins var fyrst áætl- að að þyrlan tæki skipverjann beint af togaranum á hafi úti, en þar sem henni seinkaði á ferð sinni austur var togarinn kominn til Neskaup- staðar í þann mund er þyrlan kom þangað og lenti hún því þar. Með henni var eldsneytisflugvél og fór læknir með þyrlunni að sunnan, og var haldið með sjúklinginn til Reykjavíkur og lent þar um kl. 20:50 og sjúklingurinn fluttur á Borgar- spítalann. Hluti endurvarpsstödvar Almanna- varna vegna hugsanlegs Kötlugoss: Týndist á leiðinni frá Bandaríkjunum ER LÓRANSTÖÐIN á Reynisfjalli var lögð niður fyrir nokkrum mánuðum þurfti að koma upp nýju viðvörunarkerfi vegna hugsanlegs Kötiugoss, en á Reynisfjalli var áður stöðug vakt allan sólarhringinn. Nú er búið að setja upp nýtt viðvörunarkerfi, en enn vantar þó inn í þá mynd endurvarpsstöð, sem á að setja upp á Háfelli skammt fyrir austan Vík í Mýrdal. Þessi stöð á að komast í gagnið á næstunni og verður þetta kerfi þá mun öruggara en var þegar Lóranstöðin var helzti öryggisventillinn. Ýmislegt varð til þess að seinka uppsetningu þessarar endurvarps- stöðvar. I fyrsta lagi þurfti að fá leyfi frá Pósti og síma til að setja upp stöðina. Þegar gengið hafði verið frá samningum um þetta atriði gerðist það að stór hluti endurvarpsstöðvarinnar týndist í pöntun frá Bandaríkjunum. Stöð þessi kostar um eina milljón króna, en síur, sem eru allt að helmingur stöðvarinnar, skiluðu sér ekki úr flutningi og nú hálfu ári seinna hafa Almannavarnir fengið greitt tryggingarfé og eru síurnar nú loksins komnar til landsins. Endurvarpsstöðin er liður í kerfi, sem bæði á að þjóna sem viðvörunar- og fjarskiptakerfi um landið. Það kerfi er byggt með það fyrir augum að það geti tengst því kerfi, sem er í Reykjavík, og með tilkomu endurvarpsstöðvarinnar hyggjast Almannavarnir loka þeim legg öryggiskerfisins sem nær frá Hornafirði og norður í Breiðafjörð á næsta ári. Reknetabátarnir að fylla kvótann REKNETABÁTARNIR hafa nú næstum fyllt kvóta sinn, sem ákveðinn var 15 þúsund lestir á síldveiðitfmabilinu, sem á að standa fram til 20. þessa mánaðar. Á sunnudag voru um 14 þúsund tonn komin á land og aflinn síðastliðna nótt var mjög góður, þannig að reikna má með að flotinn hafi í nótt náð langleiðina í 15 þúsund tonn. Að sögn Jóns B. Jónassonar, deildarstjóra í sjávarútvegsráðuneytinu, verður tekin ákvörðun um það í dag hvaða dag reknetaveiðunum skuli hætt. í hringnót höfðu á sunnudaginn veiðst 10 þúsund lestir af síld, en það er helmingur þess ufla, sem ákveðið var að heimila hringnótabátunum að veiða. Síðdegis í gær voru 20 bátar á leið í land með góðan afla og veiðin undanfarna daga hefur verið betri en áður á vertíðinni. 17 hringnóta- bátar voru búnir að fylla kvóta sinn um helgina, en hann var fyrst ákveðinn 210 tonn, en síðan aukinn í 240 tonn með forkaupsrétti Norður- stjörnunnar. Búist var við að er þeir 20 bátar, sem voru á leið til lands með afla, hefðu landað, hefðu um 25 bátar fyllt kvóta sinn. Eins og í fyrra hefur veiðin í ár glæðst mjög í kringum 10. nóvember. Hins vegar versnar síldin sem hráefni þegar orðið er svo framorðið á vertíðina og sagði Jón að varla kæmi til greina að framlengja veiðitímabilið í ár. Búið er að gera sölusamninga um 165 þúsund.tunnur af saltsíld, en það er rúmlega sá afli, sem veiðst hefur. Eftir er að salta í um 20 þúsund tunnur og má búast við að því ljúki í vikunni. Samningur Spánar og Efta: Slökkviliðsmenn báru varning úr geymslum hússins og slökktu í honum fyrir utan. Ljósm. Kristján. Miklar skemmdir í bruna í Breiðholti ELDUR kom upp í húsinu nr. 10 við Stelkshóla í Reykjavík um kl. 16t22 í gær, en þar hafði kviknað í geymslum á neðstu hæð hússins sem er þriggja hæða fjölbýlishús. Nokkrir íbúanna voru heima við í fbúðum á 2. og 3. hæð og fóru út á svalir er reyks varð vart og kallað hafði verið á slökkviliðið og björguðu smiðir, sem voru við vinnu í næsta húsi, fólkinu niður af svölunum í stiga. Nokkrir íbúa voru heima við og urðu að yfirgefa íbúðirnar um stiga sem smiðir í nágrenninu höfðu reist og aðstoðuðu þeir fólkið við að komast niður. Allt lið slökkviliðsins fór á staðinn og þegar þangað var komið var kallað á varalið, en röskan hálftíma tók að slökkva eldinn. Var hann aðallega á neðstu hæð hússins þar sem eru geymslur og brunnu 3 geymslur alveg og varningur sem í þeim vár. Þá urðu nokkrar skemmdir á neðstu hæð- inni af völdum hita og á efri hæðum hússins er reykurinn barst þangað upp. Fjórir reykkafarar sóttu að eldinum og sem fyrr segir tókst að slökkva hann á rúmum halftíma. Allir íbúar hússins, sem heima voru, höfðu komizt út, en körfubíll var reistur til öryggis og gengið úr skugga um það strax að ekki væru fleiri eftir inni. Ibúarnir báðu Mbl. að koma á framfæri þökkum til smiðanna og annarra sem unnu í húsinu á móti fyrir björgunina, og sögðu að ekki hefði mátt miklu muna að illa færi þar sem íbúðirnar fylltust smám saman af reyk. Flugleiðir fresta þjálfun áhafnanna á DC-10 þotuna STJÓRN Flugleiða hefur ákveðið að fresta komu DC-10 þotunnar, sent félagið hefur gert um kaup- lcigusamning, til landsins, en ráðgert var að hún kæmi á áætlunarleiðir félagsins 10. janúar n.k. Stjórn Flugleiða kynnti fyrir stéttarfélögum flugmannanna, þ.e. Félagi Loftleiðaflugmanna og Félagi ísl. atvinnuflugmanna, hug- myndir sínar um skipun áhafna DOIO þotunnar og áttu skv. þcim 7 flugstjórar að koma frá Loft- leiðaflugmönnum, en 2 úr hópi Flugfélagsmanna og allir aðstoðarflugmenn úr hópi Loft- leiðamanna. Stéttarfélögin svör- uðu á þann veg að F.Í.A. hafnaði ekki þessum hugmyndum, en Félag Loftleiðaflugmanna taldi að sínum félagsmönnum bæri að fljúga breiðþotunni þar sem enn væri ekki búið að sameina flug- menn félagsins og í gildi samning- ur við hvort félag þeirra um sig til 1. febrúar. sameiningunni sé ekki að fullu lokið. Félag ísl. atvinnuflugmanna telur hins vegar að hægt verði að ná samkomulagi og vill fyrir sitt leyti leggja mál þetta fyrir gerðarmenn og hlíta úrskurði þeirra og að nefndir félaganna, sem kjörnar hafa verið til að fjalla um sam- einingu flugmanna, fái þetta verk- efni til úrlausnar. Sjá nánar bls. 30 Féllútbyrðis / A að lækka toll á íslenzk- um saltfiski um fjórðung „ÞESSI viðskiptasamningur á að lækka tolla á íslenzkum saltfiski til Spánar um 25%, úr 10% í 7,5%,“ sagði Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu, er Mbl. spurði hann hvaða áhrif viðskiptasamningur Spánar og Efta hefði á saltfiskssölu íslendinga til Spánar. „Við reiknum einnig með að þessi samningur greiði fyrir því að leyfi fáist til útflutnings á saltfiski til Spánar og hugsanlega kann hann að opna dyrnar fyrir öðrum vörum," sagði Þórhallur. A föstudag var tilkynnt að viðskiptasamningur milli Spánar og Efta lægi fyrir í meginatriðum, og er stefnt að því að bráðabirgðasam- komulag verði undirritað 7. desem- ber. Samkvæmt samningum á að draga úr viðskiptahömlum milli Spánar og Efta í sama mæli og nú er milli Spánar og Efnahagsbandalags- ins, sem Spánn hefur nú sótt um inngöngu í. í frétt stjórnar Flugleiða segir að stjórnin hafi ákveðið eftir að Loftleiðaflugmenn vildu ekki fara utan til þjálfunar nema allar áhafnir yrðu skipaðar flugmönnum úr Félagi Loftleiðaflugmanna og árangurslausar samkomulags- umleitanir að fresta þjálfun áhafna um 3—4 mánuði og freista þess að fá þotunni verkefni annars staðar og nota mánuðina til að ná samkomulagi við stéttarfélögin. Loftleiðaflugmenn hafa brugðist þannig við ákvörðun stjórnar Flug- leiða að lýsa furðu sinni á henni og telja hana óeðlilega og halda fast við þá kröfu sína að þeim beri einum réttur að fljúga DC-10 meðan MAÐUR féll útbyrðis af 12 tonna báti, sem var í róðri út af Reykjancsi sl. sunnudagskvöld. Á bátnum, sem gerður er út frá Sandgerði, voru tveir menn, og var verið að draga línuna er annar þeirra féll útbyrðis, en það var um kl. 19 á sunnudagskvöld. Þegar var hafin leit að sjómann- inum og tók þátt í henni auk Flosa varðskip og var leitað fram undir hádegi í gær, en maðurinn fannst ekki. Hann hét Jón Ingi Ingimund- arson, 19 ára, til heimilis í Keflavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.