Morgunblaðið - 14.11.1978, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978
27
• Ágúst Kárason, lyfti samtals
300 kg og vann yfirburðasigur í
yfirþungavigt. Gullverðlaun.
• Birgir Borgþórsson hlaut gull-
verðlaun í 90 kg flokkinum, lyfti
samtals 297,5 kg og var sigur
hans öruggur.
Verðlaunahafarnir
ÞAÐ VORU fleiri heldur en Skúli Óskarsson sem slógu í gegn í
lyftingum nýverið. Sömu helgi og hann var að tryggja sér
silfurverðlaun á heimsmeistaramótinu var unglingalandslið Islands að
keppa á Norðurlandamótinu í kraftlyftingum, en það fór fram í
Danmörku.
Er skemmst frá því að segja, að piltarnir unnu til eigi færri en sex
verðlauna á mótinu, sem er næstum 6 verðlaunum meira heldur en
nokkur hafði þorað að vona. Allir náðu unglingarnir sínum besta
árangri til þessa og enn meiri árangurs má vænta frá þeim, því að það
er af og frá að slegið hafi verið slöku við á æfingum. Blm. hitti
afreksmennina í Jakabóli rétt fyrir helgi og tók þá af þeim myndir
þær sem hér birtast. Kom fram í spjalli, að í byrjun hefði verið litið á
þá sem einhver viðundur og enginn tekið þá alvarlega. Hins vegar
breyttust svipbrigði frænda vorra, þegar strákarnir byrjuðu að hrúga
niður verðlaununum.
Það er ljóst af úrslitum í Norðurlandamótinu, að lyftingar eru í
mikilli sókn hérlendis, líklega meiri heldur en nokkurn grunaði.
Árangur Skúla bendir og til þess.
- gg-
1
• Óskar Kárason silíurverð- launahafi lyfti samtals 275 kg. • Guðgeir Jónsson lyfti samtals 280 kg í 82,5 kg flokkinum. Ekki lyfti Guðgeir minna hlassi heldur en sigurvegarinn, en Guðgeir var tins vegar fáeinum kg þyngri og varð því að sjá af gullinu.
V I J L
• Þorsteinn Leifsson vann silfur- • Þorvaldur Rögnvaldsson vann
verðlaun í 75 kg flokkinum, lyfti bronsverðlaun í 60 kg flokkinum
samtals 225 kg. lyfti samtals 170 kg.
O Landsliðið sem frægðarförina fór. Ljósm. Mbh gg.
Atvinnumenska í Danmörku var vitleysa!
FYRIR síöasta keppnistímabll inn-
leiddu Danir atvinnumennsku í knatt-
spyrnu sinni og eru þá einu sönnu
áhugamennirnir eftir vér íslendingar.
Danir voru afar bjartsýnir á nýjungina
og hugsuöu gott til glóöarinnar, nú
tæki dönsk knattspyrna stefnuna
upp á við.
En allt kom fyrir ekki og nú þegar
keppnistímabilinu í Danmörku er
nýlokið, eru fjárhagsstaöa ýmissa
liöanna svo ískyggileg, aö vafamál er
hvort þau beri nokkrun tíma sitt barr
á ný. Hvað gerðist? Svarið er einfalt,
það-var sjaldgæft að meira en 2000
manns kæmu aö sjá leik í dönsku
fyrstu deildinni, hvað þá á leiki í 2. og
3. deild, en þar var atvinnumennskan
einnig innleidd. Án áhorfenda fær
knattspyrna ekki þrifist, hvað síst
atvinnuknattspyrna.
Atvinnumennskan var einnig inn-
leidd í landsliöiö og tekjurnar sem
leikmennirnir fengu fyrir að spila
landsleiki voru slíkar, að knatt-
spyrnusambandið danska græddi
lítið.
í Svíþjóð er það sama uppi á
teningnum og kemur þaö meira á
óvart heldur en í Danmörku, því að
sænsk knattspyrna er mjög góð. Er
skemmst að minnast, að Malmö FF
komst í 8-liöa úrslit Evrópubikarsins
á kostnað Frakklands og Sovét-
meistaranna. Hvað viðvíkur Svíum,
fækkaöi áhorfendum þrátt fyrir að
knattspyrnan væri ekki lakari, jafnvel
betri en áöur. Þegar vandamáliö er á
því stigi, er það vægast sagt erfitt
viðureignar. Eitt er víst, að frændur
okkar á Norðurlöndum geta ekkert af
okkur íslendingum lært, enda fækkar
áhorfendum hérlendis vafalaust
hraðar en hvarvetna annars staöar.
Birtles
ÞAÐ var mikill kuldi hjá þeim -
Brian Clough og Peter Taylor að
selja til Newcastle miðherjann
sterka Peter Withe. I fvrstu var
það mál manna, að þeir hefðu gert
mikil mistök, en slíkt er fátítt hjá
þeim félögum. Og margir sann-
færðust um vitleysuna, þegar
Forest gekk frekar illa í fyrstu 5
leikjum haustsins. Það var einkum
markaskorunin sem var höfuð-
verkur liðsins. Ungur maður að
nafni Gary Birtles kom inn i liðið í
stöðu miðherja í fimmta leik
haustsins, en sýndi þá lítið.
Það var ekki fyrr en að Forest
lék gegn Liverpool í fyrstu umferð
Evrópukeppni meistaraliða, að
Birtles sýndi hvað í honum býr og
þá sannfærðust menn, að Clough
og Taylor vissu mæta vel hvað þeir
voru að gera þegar þeir létu Withe
fara til Newcastle. Hinn 22 ára
gamli Birtles skoraði þá fyrra
mark Forest og lagði upp það
síðara og Forest sló Liverpool út
úr keppninni.
Gary Birtles fæddist í smáþorpi
í útjaðri Nottingham og allt þar til
að hann gekk yfir í raðir Notting-
ham Forest, lék hann með áhuga-
mannaliðum í nágrenninu, svo sem
Long Eaton United og Long Eaton
Rovers. Hann gerðist atvinnumað-
ur hjá Nottingham Forest í
nóvember 1976 og 12. mars lék
hann sinn fyrsta leik með aðallið-
inu, þá í annarri deild gegn Hull
City. Lék Birtles þá stöðu tengi-
liðs. Framherjaeiginleikarnir
sögðu þó til sín í leiknum og
tvívegis var hann átakanlega
nærri því að skora gegn Hull.
Eftir að hafa slegið í gegn gegn
Liverpool, hélt Birtles sæti sínu í
liðinu og síðan hefur hann gengið
svo frá hnútunum, að hann verður
ekki settur úr því aftur, nema
sakir meiðsla. Hann skoraði glæsi-
mark gegn Middlesbrough, annað í
deildarbikarnum gegn Oxford, tvö
falleg í viðbót gegn Úlfunum og
enn eitt í Evrópuleiknum gegn
AEK frá Aþenu.
Birtles er nú af .mörgum spáð
landsliðssæti áður en langt um
líður.
Gery Birtles.
I
Forest
gegn
Brighton ^
DK£GIÐ helur veriö í 8-liAa úrslit ensku S|
deildarhikarkeppninnar ok er í fljótu
braKÖi erfitt aö sjá hvaöa lið eru líkleuust
til aö komast enn na r Wemhley.
Meistararnir Nottinttham Forest hljóta
j>ó að teljast sÍKurstranifleírir á heimavelli
sfnum tcettn Briichton. l.<-eds far Luton í ^
heimsókn <»K ætti sbmuleiðis aö vinna. bað ^
má þó minna á ótisÍKur Luton KeKn Aston
Villa í siðustu umferö. Stoke fær Watford JB
heim á Victoria-leikvanKÍnn. Watford hefur
unnið athyKlisverða sÍKra í keppninni,
þannÍK aö viöureÍKnin Ka'ti oröið hin
tvísýnasta. Loks leikur annaöhvort
Southampton eöa ReadinK á heimavelli
KeKn Manchester Citv.