Morgunblaðið - 25.11.1978, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1978 5
Starfsmannafélag Sinfóníuhljómsveitarinnar
gefur út hljómplötu ætlaða yngri kynslóðinni
Starfsmannafélag
Sinfóníuhljómsveitar ís*
lands hefur gefið út hljóm-
plötu með tveimur sígildum
tónverkum, „Tobbi túba“
eftir bandaríska tónskáldið
George Kleisinger og „Pét-
ur og úlfurinn" eftir rúss-
neska tónskáldið Sergei
Prokofieff. Plötuupptakan
fór fram í Iláskólabíói á
þessu hausti. Auk Sinfóníu-
hljómsveitarinnar koma
fram þau Guðrún Þ.
Stephensen sem er sögu-
maður í Tobba túbu og
Þórhallur Sigurðsson sem
er sögumaður í „Pétri og
úlfinum". Bjarni
Guðmundsson túbuleikari
Sinfóníuhljómsveitarinnar
leikur titilhlutverkið í
Tobba túbu á hljóðfærið
sitt. Tæknimenn við upptök-
una voru þeir Máni Sigur-
jónsson og Sigþór Magnús-
son. Hljómsveitarstjóri er
Páll P. Pálsson.
Hljómplatan var pressuð hjá
fyrirtækinu Cofasa s/a á Spáni
sem er dótturfyrirtæki Philips.
Samningarnir við Cofasa voru
gerðir fyrir milligöngu Sigríðar
Ellu Magnúsdóttur og útgáfu-
fyrirtækis hennar.
Plötuumslagið hannaði
Guðrún Gröndal en hún teiknaði
einnig myndir við textana af
báðum verkunum en plötunni
fylgir fjögurra síðna myndabók
þar sem sögurnar eru raktar í
máli og myndum. Prentsmiðian
Oddi annaðist prentun á plötu-
umslaginu og Korpus h.f. sá um
filmusetningu og plölugerð en
umslagið er ofsetprentað í fjór-
um litum. Iðunn h.f. annast
dreifingu plötunnar.
Sinfóníuhljómsveit íslands
hefur áður gefið út á hljómplötu
söguna um Pétur og úlfinn.
Fyrri útgáfan kom f.vrir meira
en 20 árum. í þeirri útgáfu
stjórnaði Václav Smetácek
hljómsveitinni en sögumaður
var Helga Valtýsdóttir. Upplag
þessarar útgáfu er nú þrotið.
Vegna útkomu plötunnar hélt
starfsmannafélag Sinfóníu-
hljómsveitarinnar blaðamanna-
fund. Á þeim fundi kom það
fram að á síðasta ári hófust
samningar um hugsanlega sam-
vinnu um upptöku á „Pétri og
úlfinum“ við hljómplötufyrir-
tæki í Reykjavík. Síðan var hætt
við þessa samninga fyrirvara-
laust og var það til þess að
félagið ákvað að standa eitt að
þessari plötu og neitaði að
ganga til samninga í ár er
hijómplötufyrirtækið óskaði
þess aftur.i Forsvarsmenn
Starfsmannafélagsins sögðu á
Guðrún Þ.Stephensen
leikari, Bjarni Guðmunds-
son túbúleikari Sinfóníu-
hljómsveitarinnar, Guðrún
Gröndal, Páll P. Pálsson.
hljómsveitarstjóri. Helga
Hauksdóttir formaður
Starfsmannafélagsins og
Þórhallur Sigurðsson
leikari kynna nýútkomna
plötu Starfsmannafélags
Sinfóníuhljómsveitarinnar.
Ljósm. Emilía.
fundinum að þeir vildu gjarnan
leiðrétta þann misskilning að
annarlega hafi verið staðið að
þessum samningum af hálfu
Sinfóníuhljómsveitarinnar eins
og fram hefði komið í fjölmiðl-
um.
Tónverkið „Tobbi túba“ hefur
aldrei áður verið hljóðritað á
íslensku en Sinfóníuhljómsveit-
in hefur spilað verkið á barna-
tónleikum bæði í Reykjavík, úti
á landi og í Færeyjum. Þýðing-
una á „Tobba túbu“ gerði
Guðrún Þ. Stephensen seni jafn
framt er sögumaður.
Allur ágóði af sölu plötunnar
rennur í Menningarsjóð
Sinfóníuhljómsveitarinnar en
starfssvið sjóðsins er að styrkja
meðlimi hljómsveitarinnar til
náms. Allir starfsmenn hljóm-
sveitarinnar gáfu vinnu sína við
upptöku plötunnar.
Starfsmannafélagið hefur í
huga að halda áfram að gefa út
á hljómplötum verk sem höfða
til yngri kynslóðarinnar og
einnig er á döfinni að hafa opið
hús í Reykjavík einhverja helg-
ina og spila þá þessi tvö tónverk
„Pétur og úlfurinn“ og „Tobbi
túba“.
Kjördæmisráð Framsóknarflokks-
ins í Reykjanesi:
Framsóknarmenn
hætti í ríkisstjórn
náist ekki sam-
staða um aðgerðir
KJÖRDÆMISÞING Framsókn-
armanna í Reykjaneskjördæmi
hefur ályktað að framsóknar-
miinnum beri að hætta í núver-
andi ríkisstjórn náist ekki sam-
staða á næstunni um „gerhreytta
efnahagsstefnu og samkomulag
um að ríkisbúskapurinn verði
rekinn með greiðsluafgangi" en
þetta kemur fram í frétt Tímans
í gær frá fundinum.
Kynningarfundur
á vegum AA-sam-
taka í samkomu-
húsinu í Garði
Á sunnudaginn kemur verður
haldinn opinn almennur út-
breiðslufundur á vegum AA-sam-
takanna á Suðurnesjum í sam-
komuhúsinu í Garði og hefst
hann klukkan 14.
Fundurinn er öllum opinn og er
þarna gott tækifæri að kynnast
starfi AA-samtakanna á íslandi.
Þá segir m.a. í ályktun kjor-
dæmisþingsins um verðbólgumál:
„Stöðvun verðbólgunnar er brýn-
asta verkefni ríkisstjórnarinnar
og takist það ekki verða aðrar
útbætur til lítils gagns. Stöðvun
verðbólgunnar verður að byggjast
á samræmdum aðgerðum á sviði
ríkisrekst.urs, fjárfestingarmála,
peningamála og kjaramála. Eitt
hinna öflugustu vopna eru fjárlög
ríkisins sé þeim beitt rétt. Fjárlög
með verulegum rekstrar- og
greiðsluafgangi og miklum tíma-
bundnum samdrætti opinberra
framkvæmda er nauðsynlegur
liður í þessum aðgeröum.“
Nýjasta mynd Zanussi
í Háskólabíói í dag
NÝJASTA kvikmynd pólska leik-
stjórans Krzysztof Zanussi Gornr
urinn (Spiral) verður sýnd í
Iláskólabíói í dag, laugardag kl. 2
að tilhlutan pólska sendiráðsins
og íslenzk-pólska menningarfé-
lagsins.
Zanussi er einn af fremstu
leikstjórum Pólverja um þessar
mundir, ein mynda hans Fjöl-
skyldulíf var sýnd á kvikmynda-
hátíð Listahátíðar í Reykjavík á
síðasta ári og sjálfur kom Zanussi
hingað til lands í stutta heimsókn
litlu síðar.
Öllum er heimill aðgangur á
kvikmyndasýninguna í dag svo
lengi sem húsrúm leyfir.
ADVENTU
KRANSAR
V
Opiö alla daga
kl. 9—21.
Sýnikennsla
í dag kl. 2—5.
Sýni-
kennsla
Fyrsti sunnudagur í aðventu er
eftir viku 3. desember, verið
tímanlega, heimsækið Græna
torgið um helgina og lærið
réttu handtökin viö gerö
aöventukransa.
J