Morgunblaðið - 25.11.1978, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 25.11.1978, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1978 37 Iminningu fallinna félaga Þó að helfregnin mikla frá Sri Lanka hafi orðið okkur þyngri sorg en orð fá tjáð, þá gerir hún okkur skylt að þakka nú fyrir langa samfylgd og góða þeim átta félögum okkar, sem horfnir eru. Allir áttu þeir ríkulegan þátt í að efla éindrægni, sem skóp órofa vináttu samstarfs manna, enginn varð lengur einn í gleði eða sorg, allir stóðu öruggan vörð um hvern og einn, hver og einn um allan hópinn. Hvert okkar og eitt á þess vegna nú um þau sár að binda, sem sigð dauðans hefur veitt okkur öllum. Sameiginlega drúpum við höfði í sárri sorg. Við vitum að vinir okkar átta voru hugljúfastir þeim, sem þekktu þá bezt. Þess vegna sendum við fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur, þakklát fyrir að mega geyma með þeim hjartfólgnar minningar um kæra vini og ógleymanlega samstarfsmenn. ... „Sjá, einn í dauðann enginn fer, hver einn skal vita það“... ... „að hvert eitt sinn, er dauðinn drap á dyr, fór hluti af mér“... Starfsmannafélag Loftleiða. mér gleymt, en inntakið í vitnis- burði Ásgeirs geymi ég í minning- unni. Honum mæltist eitthvað á þessa leið: „Ég get ekki flutt snjallar ræður og ég get heldur ekki sungið fyrir ykkur, en ég get vitnað um frelsara minn og það sem hann hefur fyrir mig gert.“. Og það gerði hann á einfaldan, látlausan og skýran hátt. Og hann vitnaði um Jesúm Krist víðar en á samkomum í KFUM. Á síðastliðnu vori gengust KFUM og KFUK fyrir flugferð yfir landið fyrir þau börn og unglinga, sem ötulast höfðu sótt fundi í deildum félaganna á liðnum vetri. KFUM-maðurinn Ásgeir Péturs- son var sjálfkjörinn flugstjóri í þeim ferðum. Áður en flugið hófst söfnuðust börnin saman í flugstöð- inni og Ásgeir ávarpaði þau. Það ávarp 'flugstjórans vakti athygli vegna þess að í því var fólginn vitnisburður um Jesúm Krist. Hann brýndi fyrir börnunum að festa í minni söguna af Jesú, sem einnig hann hafði heyrt í KFUM og orðið hafði til þess að hann gerðist lærisveinn hans. En hann vitnaði ekki aðeins með orðum sínum. Það sem hann var vitnaði einnig. Skömmu áður en Ásgeir fór í sína síðustu ferð vorum við að undirbúa, ásamt fleirum, samkom- ur KFUM og K fram að jólum. Við spjölluðum stundarkorn saman að fundi loknum og umræðurnar snerust brátt um félagsstarfið. Af ákafa og með mörgum sterkum orðum lýsti hann þakklæti sínu til Guðs fyrir KFUM og vini og félaga sem hann hafði eignast þar, en fyrst og fremst var hann þakklát- ur fyrir að hafa þar fengið að heyra og taka á móti fagnaðarer- indinu um Jesúm Krist og eiga þar samfélag um trúna á hann. KFUM hefur misst góðan liðs- mann og félagar hans þar syrgja góðan vin. Þórey kona hans og börn þeirra hafa þó mest misst. Við sendum þeim innilegar samúð- arkveðjur og biðjum Guð um huggun og styrk þeim til handa. Trúin á Jesúm Krist, hinn upprisna Drottin, hefur í sér fólgna von, — já vissu, sem grundvölluð er á orðum Jesú: Ég er upprisan og lífið, sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi. I þessari vissu lifði og dó Ásgeir Pétursson. Mætti hún vera styrkur þeirra sem eftir standa. Ég bið öllum aðstandendum starfsfélaga Ásgeirs Péturssonar, sem nú eiga um sárt að binda vegna þessa hörmulega atburðar, blessunar Guðs og huggunar. Sigurður Pálsson form. KFUM í Rvk. Sárt er að sjá vini hverfa sjónum manns og sárast, þegar það ber að með hörmulegu slysi. Vinur minn og bróðir í Drottni, Ásgeir Pétursson, yfirflugstjóri fórst í því mikla flugslysi, sem varð á Sri Lanka miðvikudags- kvöldið 15. nóv. s.l. Þetta kvöld hafði ég átt von á honum í hópi vina okkar á heimili mínu, en ég frétti þá að hann hefði farió utan tveim dögum fyrr til þess að sinna skyldustörfum sín- um. Við vinir hans söknuðum hans og vonuðumst til þess að hann gæti orðið með okkur á næstu samverustund. En við höfum haldið hópinn árum saman og hist reglulega. Við vissum þá ekki að hann var horfinn úr hópi okkar og kominn í „þann skara, sem fagnandi fer í friðarins dýrlegu lönd“. Ásgeir Pétursson var trúaður maður, sem setti fullt traust sitt á þann Guð, sem uppvakti Jesúm Krist frá dauðum. Og hann gaf Guði dýrðina með því að hann trúði fyrirheitinu sem Guð hefur gefið, að hver sá sem trúir á Jesúm Krist sem frelsara sinn eignist eilíft líf og að Guð muni uppvekja þann á efsta degi. Ásgeir trúði einmitt þessu og gerði sér far um að styrkjast í sinni trú en hann efaðist ekki með vantrú. Þegar ég minnist þessa vinar míns kemur mér í huga samstarf okkar í sunnudagaskóla KFUM í Kópavogi um árabil. Flugstjóra- starfið er krefjandi en alltaf reyndi hann að haga svo til, þegar hann skipulagði vinnu sína að hann gæti komið og verið í sunnudagaskólanum með börnun- um, sem honum þótti afar vænt um. Það veit enginn nema sá, sem reynt hefur, hve það er sælt að fá að syngja með börnum söngva um gleði trúarinnar, um traustið á Drottni Jesú. Um hirðinn góða, um elsku Guðs og miskunn. Syngja bæna- og lofgerðarsöngva af hjartans grunni. Segja börnunum hollar sögur og útskýra fyrir þeim sögurnar sem lesnar eru fyrir þau úr Guðs Orði. Þetta allt reyndi Ásgeir. Umhyggja hans og alúð var einstök, hann tók líka á móti börnunum á sinn sérstaka hátt þegar þau komu og þegar þau sneru heim hjálpaði hann þeim í yfirhafnirnar og kvaddi þau. Oft sýndi hann börnunum léttar myndir og einnig spilaði hann á píanó undir sönginn þegar þess þurfti við. Á vorin var farið í stutt ferðalög með börnin. Þar var Ásgeir með og lék við þau og gætti þess að öllum liði vel. Ég veit að hann átti margar hamingjustundir með börnunum og að þau nutu góðs af samverunni með honum. Nú sakna margir Ásgeirs og mest þeir, sem honum standa næst. Ég og fjölskylda mín viljum votta ástvinum hans öllum okkar innilegustu hluttekningu og samúð við fráfall þessa góða drenglund- aða manns og biðjum algóðan Guð að styrkja þá og hugga ævinlega. Sigursteinn Hersvcinsson. Góður drengur er látinn. Ljúf- mennska hans og viðmót ailt var með eindæmum. Rólyndi hans og yfirvegun vakti hvarvetna trúnað- artraust. Það andaði hlýju þar sem Ásgeir var og umhyggja hans var algjör andstæða við ys og þys og hraða nútíma þjóðfélags. I æsku minnist ég hans sem „stóra bróður" Og margar minn- ingar streyma nú fram, er við kveðjum hann hinstu kveðju — minningar frá bernsku og æsku, þar sem við áttum mikil samskipti og bjuggum hlið við hlið um margra ára skeið. Vinátta hans var traust og einlæg, og sú vinátta, sem tókst með okkur í æsku, hélst alla tíð síðan. Þórarinn Jónsson, Olafur Axelsson og Ásgeir Pétursson Sem barn að aldri minnist ég þess glöggt, hvernig Ásgeir ræddi við mig sem jafningja og persónu- legan vin, þó að aldursmunurinn væri átta ár. Það eitt gerði það að verkum, að álit mitt og traust til hans jókst að mun. Hann bauð mér oft heim til sín, og kynntist ég þá foreldrum hans og bróður. Æ síðan er ég þakklátur fyrir þau góðu kynni. Á unglingsárunum smíðaði Ásgeir mikið af flugmódelum og radíótækjum. Mér fannst eins og ég kæmi inn í ævintýraheima, þegar hann bauð mér inn til sín og útskýrði allt með sinni miklu nákvæmni. Ég minnist þess einnig, hvað gleði okkar drengjanna og undrun varð mikil, þegar Ásgeir tók okkur með sér eitt sinn upp á túnið fyrir neðan Austurbæjarskólann. Hann hafði með sér fjarstýrða vélflugu, sem hann hafði sjálfur sett saman. Aðdáun okkar virtist engin tak- mörk sett. Ásgeir var alveg einstakur í sinni röð. Þolinmæði hans var einnig sérstök. Hann gafst helst aldrei upp. Ég man það, eins og það hefði gerst í gær, þegar við stóðum undrr húsveggnum heima, og Ásgeir kenndi mér að blístra átta ára gömium. Hann gafst ekki upp, og eftir langan tíma fór glaður og montinn átta ára drengur hlaup- andi inn til móður sinnar til þess að leyfa henni að heyra, hvernig hann gæti blístráð. Margar eru þær minningar, sem streyma fram í hugann þessa dagana. Ekki er rúm til þess að skrá slíkt — en æsku — og uppvaxtarár eru e.t.v. þýðingar- mestu ár ævi okkar og varða veginn til framtíðarinnar. Þess vegna m.a. minnist ég þessá sérstaklega nú. Og söngurinn, sem við sungum svo oft síðar saman í K.F.U.M. og Vatnaskógi, á vel við, er ég minnist þessa góða vinar: „Vertu fús bæði og frár til að framkvæma allt, ■ sem þú finnur, að rétt st.vður mál. Láttu æskunnar ár verða ævinnar salt, svo að aldregi sljóvgist þin sál.“ (Fr.Fr.) Ásgeir var varkár og grandvar, orðvar og einlægur. Góðmennska hans var rómuð meðal vina hans. Hann var góður drengur. Og nú er erfitt að kveðja. Erfitt að skilja „hvers vegna“ og „til hvers“. Vegir Guðs eru svo oft órannsakanlegir. Þannig var það einnig meðal lærisveina hans ailt frá upphafi, er Jesús gekk hinn þunga veg krossins. En það birti um síðir — og Guð veitti þeim styrk til nýrra og áframhaldandi verkefna. Ég veit, að timinn, sem í hönd fer, verður erfiður fyrir ástvini Ásgeirs — en í von og einlægri trú hið ég ykkur öllum mikillar blessunar Guðs um ókomna fram- tíð og votta ykkur mína dýpstu samúð. bórir S. Guðbergsson. Kveðja frá Félagi Loftleiðaflugmanna 1 dag er gerð útför þeirra Þórarins Jónssonar, Ásgeirs Péturssonar og Ólafs Axelssonar sem létust í hinu hörmulega flugslysi þann 15. þ.m. Við fráfall þessara mætu manna er höggvið stórt skarð í raðir okkar Loftleiða- manna sem ekki verður hægt að fylla aftur með neinu móti. Við Loftleiðaflugmenn höfum alltaf litið á hann Þórarin sem einn af traustustu máttarstólpum Loft- leiða og á stundum hafði hann eiginlega verið höfuð félagsins. Það kom í hans hlut að ráða flugmenn, sem hann gerði af mikilli nákvæmni. Við vitum að hans þyngstu spor í störfum fyrir Loftleiðir voru þegar fækka þurfti hjá félaginu, þess vegna lagði hann svo hart að sér sem raun ber vitni að vinna þann markað sem pílagrimaflugið er. Svo mikið lagði hann á sig í þessu máli að ekkert bar hærra. Frídagar og orlofsdag- ar voru Þórarni aukaatriði. Svo mikla trú höfðum við Loftleiðaflugmenn á Þórarni, að það var nánast máltæki þegar eitthvað bjátaði á hjá okkur: „Við skulum koma og tala við Þórarin." Hugur okkar fylgir honum þar sem hann er nú og þó að hann sé ekki lengur hjá okkur, vitum við að hvar sem við störfum í framtíð- inni verður hahn á meðal okkar. Þegar við segjum að höggvið sé stórt skarð í raðir Loftleiðamanna er ekki hægt annað en að hugsa til hans Óla Axels, sem alltaf virtist geta hlaupið í skarðið fyrir aðra sem veiktust eða tóku sér frí, þrátt fyrir það að hann hefði nógum störfum sjálfur að gegna. Það var líka oft að leita þurfti til hans þegar eitthvað fór úrskeiðis hjá Loftleiðum, hvort sem það var vegna þess að veðurguðirnir væru þar að verki eða mannlegur máttur. Það var eins og alltaf væri hægt að treysta því að Óli Axels gæti leyst hnútinn. Oft gerði hann Loftleiðum kleift með sinni alkunnu lipurð að láta allt ganga vel í flugrekstrinum hvað sem á gekk. Við horfum á eftir honum með söknuði og tre.vstum því að á þeim nýju slóðum sem hann er nú megi hann njóta sín eins og er hann var hjá okkur. Við vitum að hugurinn er á meðal okkar og okkar hugur er hjá honum. Flest það sem hér hefur verið dregið fram á líka við um yfirflug- stjórann okkar, Ásgeir Pétursson. Hann kom ævinlega auga á það jákvæða í mönnum og þeirra gjörðum. Hann var mikill dreng- skaparmaður og okkur góður yfirmaður, sem alltaf var hægt að leita til. Flugöryggi var honum efst í huga og hann var sívakandi yfir því sem betur mátti fara í þeim málum. Það var því ekki að undra að það legðist illa í okkur er það spurðist. út að Ásgeir ætlaði jafnvel að hætta störfum sem yfirflugstjóri fyrir um það bil ári síðan, en sem betur fór fengum við að njóta hans forustu lengur. Ásgeir var mikill trúmaður og virkur félagi í K.F.U.M. og er þess skemmst að minnast er hann stóð fyrir hringflugi um landið með börn úr þeim félagsskap. Ásgeir var góður félagi pg hugur okkar mun fylgja honum um ókomna tíð. Við vottum eiginkonum og börnum þessara vina okkar innilegustu samúð á þessari sorgarstundu. Félag Loftleiðaflugmanna. Þegar sú sorgarfregn barst, að íslenzk flugvél hefði farist í fjarlægu landi, varð íslenska þjóðin harmi slegin. Enn hefir forsjónin séð ástæðu til þess að höggva stórt skarð í hina fámennu sveit íslenzkra flugliða. Þegar slíkir sorgaratburðir eiga sér stað, leitar hugurinn til - ástvina og ættingja hinna brottkölluðu með þeirri bæn að sá harmur, sem að þeim er kveðinn, megi læknast með hjálp drottins. Félag ís- lenzkra atvinnuflugmanna sendir þeim, sem fórust, sína hinztu kveðju og vottar ástvinum og ættingjum þeirra sína dýpstu samúð. Stjórn Félags íslenzkra atvinnuflugmanna. Við vottum aðstandendum þeirra, sem létu lífið í flugslysinu í Sri Lanka, okkar innilegustu samúð. Fél. atvinnuflugmanna í Luxemburg — ALPL — ATIIYGLI skal vakin á því. að afmadis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein. sem hirtast á í miðvikudagshlaði. að herast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðsta'tt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendihréfs- formi eða hundnu máli. I>a‘r þurfa að vera vélritaðar o’g með góðu línuhili. Þórarinn Jónsson og Ólafur Axelsson — Kveðja Okkur setti öll hljóð, er við mættum til vinnu fimmtudaginn 16. nóvember s.l. og fengum þá harmafregn, að ein af vélum okkar, eins og við köllum þær, hefði farist í fjarlægu landi. Mér er minnisstætt, er ég fyrir liðlega 13 árum gekk gamla veginn að nýlegri skrifstofubyggingu Loftleiða og hugleiddi. hvers vegna ég væri að sækja um atvinnu hjá þessu fyrirtæki fremur en öðrum. Jú það var flugstarfsemin, sem var svo heillandi. En fljótlega komst ég að því, að þarna var svo gótt fólk, sem tók mér ungri og ómótaðri svo einstaklega vel. Atvikin höguðu því þannig, að í 10 ár starfaði ég náið með þeim Þórarni Jónssyni og Ólafi Axels- syni og langar mig að minnast þeirra með fáum orðum. Það var gott og heimilislegt andrúmsloft í flugrekstrardeildinni, og við kynntumst vel og bárum um- hyggju hvert fyrir öðru. Þórarinn eða Tóti, eins og við kölluðum hann alltaf okkar á meðal, var einstaklega ljúfur og alþýðlegur maður í umgengni við undirmenn sína. Hann hafði ákaflega góða frásagnargáfu og lífgaði oft upp á hversdagsleikann og önn dagsins með skemmtilegum frásögum. Um árabil hafði Þórarinn unnið ötullega að nýrri hiið flugreksturs- ins, sem var pílagrímaflugið, og kaldhæðnislegt, að hann skyldi enda ævi sína við þau störf. Ég kynntist því, að Þórarinn bar hag fyrirtækisins mjög fyrir brjósti og varði mörgum vinnustundum utan venjulegs vinnutíma við að leysa hin ýmsu verkefni. Ég hafði stundum orð á því, að hann eyddi kröftum sínum um of í þágu starfsins, en þetta var hluti af honum, og fjölskylda hans tók þátt í því með honum. Ekki var Óli síður elskulegur maður. Mér er hugstæðast, hversu góður vinur hann var flugfreyjun- um, er leituðu til hans með sín einkamál, sem hann leysti úr eftir beztu getu, enda ákaflega raungóð- ur maður. Hann lá heldur ekki á liði sínu, er eitthvað fór úrskeiðis í hinum daglega flugrekstri, og, oft var hann vakinn upp af værum blundi til þess að leysa mál, er enga bið þoldu. I sinni hinztu för var Óli á leiðinni að stjórna og liðsinna flugliðinu á nýjum slóðum eins og hann hafði gert svo vel hér heima. Fyrir hönd margra náinna samstarfsmanna hjá Flugleiðum votta ég Borghild og Auði og fjölskyldum þeirra dýpstu samúð. Við munum sárt sakna þessara góðu vina. Við biðjum Guð að styrkja fjölskyldur þeirra í sorg þeirra. Birna Þórisdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.