Morgunblaðið - 25.11.1978, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 25.11.1978, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1978 15 lítill hrygningarstofn gæti gefið af sér jafngóða árganga fisks og dæmin frá 1976 og 1978 sanna. Félagslegur vandi Vandamál þau, er glíma þarf við eru því ekki síður félagsleg og efnahagsleg en líffræðileg, þ.e. að finna skynsamlegar leiðir til að efla svo hrygningarstofninn, að afkoma byggðarlaga sunnan og vestanlands batni, jafnframt því, að sæmilegir hrygningarstofnar auka á öryggi fyrir viðgangi stofnanna — án þess þó að raska um of afkomumöguleikum fyrir- tækja og fólks í öðrum landshlut- um. Þetta er eins og ég gat um ekki sízt félagslegt og efnahagslegt vandamál. Reynslan virðist líka sýna a.m.k. fram að þessu, að með núverandi sókn og veiðitilhögun náum við ekki að rétta hrygningarstofninn við og megum því búast við minni göngum fisks á hrygningar- stöðvarnar en áður þekktust, og eins og að framan greinir t.d. um árið 1970. Við verðum að gera okkur grein fyrir því, að hverja leið sem við veljum til takmörkunar á afla, verðum við að færa fórnir. Flotinn sem við beitum í dag til veiða botnlægra tegunda er of stór miðað við afrakstursgetu stofn- anna eða öllu heldur, 480—500 þús. lestir af botnlægum tegundum er of lítið fyrir þann flota, sem þessar veiðar stunda. Ég hef alltaf litið á, að tillögur fiskifræðinga um þorskafla, þ.e. 275—280 þús. lestir á ári, miðuðust . við hraða uppbyggingu þorsks- stofnsins. Jafnframt hefi ég litið á, að stjórnvöld hafi undanfarin ár sett sér sama markmið, en því átti að ná á lengri tíma. Mér sýnist, að stjórnvöld hafi stefnt að 315—320 þús. lesta ársafla. Tillögur Fiskiþings frá í fyrra miðuðust við tiltölulega hraða uppbyggingu hrygningarstofnsins. Jafnframt var bent á leiðir til að beina sókn fiskiskipa, einkum togara, til veiða annarra fisk- tegunda svo sem karfa og ufsa á þeim tíma árs, þegar hagkvæmast er að sækja í þá, án þess þó að grípa til beins kvótafyrirkomulags eða annarra óæskilegra beinna stjórnunaraðgerða. Tillögur Fiskiþings miðuðust við svipaðan heildarafla botnlægra tegunda og verið hefur, en hins- vegar annarrar aflaskiptingar. Þótt afli botnlægra tegunda hefi reynzt nokkurn veginn hinn sami, megum við þó ekki loka augum fyrir því, að verðmætahlutföll hefðu raskazt bæði inn á við svo og útflutningsverðmæti. Tillögur Fiskiþings beindust að því að nýta til fulls vannýtta fiskstofna til þess m.a. að liggja ekki undir ámæli erlendis frá og ásókn erlendra þjóða í að fá að nýju aðgang að Islandsmiðum til að nýta umframafla. Ef gráa skýrsla Hafrannsóknar- stofnunar er lögð til grundvallar hámarksafla á næsta ári, að tilliti teknu til lakara ástands karfa- stofnsins, sýnist mér, að afli botnlægra tegunda á næsta ári, að kolmunna og spærlingi undan- skildum, megi samkvæmt skýrsl- unni ekki fara fram úr 470 til 475 þús. lestum, eða jafnvel 465—470 þús. lestum, ef við finnum ekki leiðir til að hagnýta kolastofninn betur en hingaö til. Þetta er nokkru minni afli en á s.l. ári. Málin rædd í samhengi Akveðið hefur verið, að um- ræður á þessu Fiskiþingi snúist um þennan vanda m.a. Reynt verður að gera grein fyrir afrakstursgetu fiskstofna í bráð og lengd. Reynt verður að sýna breytingar á sóknargetu fiski- skipastólsins og núverandi sóknar- mætti hans. Þá verður reynt að gera grein fyrir afkastagetu vinnslustöðva miðað við hráefnisframboð og vinnuafl tiltækt. Það þ.vkir nauðsynlegt að líta á mál þessi í samhengi — við þurfum að nýta fiskimiðin sem bezt og samræma afkastagetu flotans afrakstursgetu fiskstofn- anna til langs tíma. Jafnframt þessu þarf sem mest samræmi að ríkja milli veiða og vinnsluafkasta í landinu. Ég vil bera fram þá frómu ósk, að á þessu Fiskiþingi, eins og raunar ávallt áður, takizt okkur að ræða málin málefnalega, byggja niðurstöður okkar á þeim beztu upplýsingum, sem f.vrir liggja og gera ályktanir, sem geta orðið til að tryggja hagsmuni sjávarút- vegsmanna um lahd allt. Hér eru samankomnir fulltrúar veiða og vinnslu úr öllum landshlutum. Fiskiþing er því sá bezti vettvang- ur sem völ er á til að ná þessu markmiði. Ný útgáfa af „Þúsund og emni nótt” MÁL og menning hefur sent frá sér nýja útgáfu af „Þúsund og ein nótt“, hinu kunna austurlenska ævin- týrasafni í þýðingu Stein- gríms Thorsteinssonar. „Þúsund og ein nótt“ er safn fjölbreyttra sagna og ævin- týra. Þýðing Steingríms Thor- steinssonar er ein af sígildum þýðingum hans á erlendum verkum og var fyrst gefin út í Reykjavík 1857—65. Útgáfa Máls og menningar er fjórða útgáfa verksins, þrjú mynd- skreytt bindi. Bækurnar eru um 1800 blaðsíður í stóru broti ljósprentaðar í prent- smiðjunni Grafík h.f. Kaupið ekki stríðs- leikföng handa bömum Á stjórnarfundi Norræna húsmæðrasambandsins. sem haldinn var í Noregi um miðjan september s.l.. var samþykkt að skora á alla félaga sambandsins að kaupa ckki stríðslcikföng handa börnum. þar sem þau hcina hugum barna að ofbcldi og hvetja til neikvæðra athafna. Sænska þingið hefur samþykkt svohljóðandi skilgreiningu á hvað sé stríðsleikföng: Stríðsleikföng eru öll leiktæki, sem eru eftirlikingar af vopnabún- aði. Vopn beinast að og hvetja til að ágreingur sé leystur með ofbeldi, að menn sigri mótherja sína með því að bana þeim eða særa þau. Stríðsleikföng eru i mörgum og ólíkum myndum. Til þess að vinna gegn stríðsleik- föngum á jákvæðan hátt, sótti Norræna húsmæðrasambandið um fjárstyrk frá Norræna menningar- málasjóðnum til þess að efna til samkeppni á Norðurlöndum og jafnvel víðar um gerð leikfanga, sem hafa þroskavænlegt gildi og eru ekki óheyrilega dýr í fram- leiðslu. F'áist sá styrkur verður efnt til samkeppninnar á Alþjóða- ári barnsins 1979. r Havana Goóheimum 9 Sími 34023. TEBORDJL HJ0LUN Einnig vínbarir, innskotsborð (margar tegundir), taflborð, Ijósakrónur og lampar. Kl. 10.00. Tízkusýning herra. Kl. 10.45. Danssýning frá Dans- skóla Heiöars Ástvalds- sonar. Kl. 11.15. Tízkusýning dömur Allur fatnaður er frá Karnabæ. Borö tekin frá í síma 20221 föstudag, laug- ardag og sunnudag eftir kl. 16. Aöeins rúllugjald. samtök sýningarfólks halda tízkusýningu aö Hótel Sögu sunnudaginn 26. nóv.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.