Morgunblaðið - 25.11.1978, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 25.11.1978, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1978 39 Startbásar þessir eru taldir auðveldir í flutningum og hér má sjá hvar jeppabifreið er notuð til að drajía þá milli staða. eftirTRYGGVA GUNNARSSON LH, frá því á ársþingi LH, að ýmsar upplýsingar hefðu fengist erlendis frá um þessi mál og meðal annars lægju fyrir tilboð um bása, sem smíðaðir eru í Nýja-Sjálandi en söluumboð fyrir þá er í Brussel. Kosta þessir básar miðað við að hægt sé að ræsa 6 hross samtímis um 3,5 milljónir króna. Þá liggur fyrir tilboð frá Bretlandi þar sem samstæða til að ræsa 6 hesta er boðin á milli 5 og 6 milljónir króna. Frá þessu sama fyrirtæki í Bretlandi er einnig hægt að fá ýmsan annan búnað til að nota á kappreiðum, s.s. sjónvarpsmyndavélar til að taka myndir af hlaupunum, mynda- vélar, sem stilltar eru inn á klukku og gefa til kynna tíma hrossanna, er þau koma að marki. Um þetta mál sagði formaður LH, að nú þyrftu hestamannafé- lög, sem héldu stærstu mótin, að gera upp ’við sig hvort tök væru á að fjármagna kaup á slíkum startbásum. Undir þessi orð formanns LH skal tekiö hér og satt best að segja finnst manni það með ólíkindum ef hesta- mannafélögin og áhugasamir Hrossin ræst. Einar Iliiskuldsson stígur á bak einu þeirra fjölmörgu hrossa. sem hann kom á bak landsmótsdagana.' Ljósm. Kristján. hestamenn treysta sér ekki til þess að standa saman að því að kaupa slíka startbása, þegar haft er í huga að unnt er að flytja þá milli staða með auð- veldum hætti. Þessa startbása væri því hægt að nota á nær öllum kappreiðum landsins, ef menn hefðu hug á því. Startbásar þessir eru eftir þeim upplýsingum, sem tiltækar eru, einfaldir að gerð og auð- veldir í meðförum. Opnunar- og lokunarbúnaður þeirra er knú- inn með 12 volta straum frá bíl og í flutningum milli staða má draga básana á jeppabifreið. Samkvæmt upplýsingum frá erlendum fyrirtækjum, sem framleiða þessa bása, er hægt að fá samstæður til að hámarki 4 hross og upp í samstæðu til að ræsa 10 hross. Breska fyrirtækfð, sem býður þessa startbása, Racecourse Technical Services Limited, ferðast með slíka startbása milli skeiðvalla í Bretlandi og annast fyrirtækið ræsingu, tímavörslu og myndatökur á 62 skeiðvöllum víðs vegar um Bretland. Til að annast þessa starfsemi er fyrir- tækið með í sinni þjónustu 3 hópa manna, sem ferðast á milli skeiðvallanna með tæknibúnað sinn. OFT HEFUR verið rætt um það meðal hestamanna. að nauðsyn beri til að koma upp svokölluð- um startbásum til að nota við kappreiðar hérlendis. Flestir kannast við hversu leiðigjarnt það er að bíða, oft í óratíma eftir því að takist að stilla hrossunum upp á ráslínu þann- ig að unnt sé að ræsa þau. Oft eru þau ekki nema eitt eða tvö hross, sem eru ókyrr en hindra að hægt sé að ræsa hópinn. Ekki er að efa að sú ófull- komna aðstaða. sem hér er á kappreiðavöllum til að ræsa hrossin. kemur niður á árangri þeirra og ekki síst er þeim sköpuð misjöfn aðstaða til að ná árangri allt eftir því hvern- ig þau eru staðsett, þegar flaggið fellur. Stjórn Landssambands hesta- mannafélaga hefur á sl. ári í samráði við Hestamannafélagið Fák nokkuð hugað að því að kaupa til landsins startbása til að nota við kappreiðar. Greindi Albert Jóhannsson. formaður Einar Höskuldsson fékk knapaverð - laun Landsmótsins VIÐ lok ársþings Landssam- bands hestamannafélaga, sem haldið var fyrir skemmstu, var Einari Höskuldssyni á Mosfelli afhentur hnakkur og hlaut þá einkunn að hafa verið besti knapi Landsmóts hestamanna í sumar. Tilurð þessara verðlauna var með þeim hætti að verzlunin Útilíf afhenti framkvæmda- nefnd Landsmótsins hnakk, sem veita skyldi sem viðurkenningu til besta knapa mótsins. Nefndin ákvað að bíða með að afhenda verðlaunin þar til að afloknu mótinu og var niðurstaða henn- ar sem fyrr sagði kynnt á þinginu. Auk þess sem Einar sat hross bæði í kynbótasýningunni og gæðingakeppninni, var hann fulltrúi dómnefndar kynbóta- hrossanna og fór á bak öllum þeim kynbótahrossum, sem sýnd voru á mótinu. Þótti mönnum hann leysa það verk einstaklega vel af hendi. Fræðslunám- skeið hjáFáki Fræðslunefnd Fáks gengst í næstu viku fyrir námskeiði, þar sem f jallað verður um ýmislegt er lýtur að hestum og hesta- haldi. Slíkt fræðslunám- skeið var einnig haldið í fyrravetur á vegum nefndarinnar og tókst það hið besta. Námskeiðið hefst hvert kvöld kl. 20 og er stefnt að því að kennslu sé lokið kl. 23. Nám- skeiðargjald er kr. 10.000.- og er þátttaka takmörkuð við 30 manns en innritun fer fram á skrifstofu Fáks. Námskeiðið hefst á mánudagskvöld, 26. nóvember, og fjallar Gunnar Bjarnason, ráðu- nautur, þá um fóðrun hrossa, á þriðjudagskvöld fjallar Eyjólfur ísólfsson um tamningu og þjálfun hrossa, næsta kvöld fjallar Brynjólfur Sandholt um hrossasjúkdóma, á fimmtu- dagskvöld eru járningar á dagskrá og ræðir Sigurður Sæmundsson um þær en námskeiðinu lýkur á föstu- dagskvöldið með þv að Þorvaldur Árnason fjallar um hrossarækt og erfðir eiginleika. Þá hefur fræðslunefndin þegar ákveðið að næsti fræðslufundur hennar verði 14. desember í Félags- heimili Fáks og verður þar fjallað um Evrópumótið í Skiveren 1977 og verða sýndar myndir þaðan og þær kynntar. Leiðrétting I upphafsoróum síðasta hestaþáttar. sem birtur var í Mbl. 19. nóvember sl.. var saKt aó ársþins Landssambands hestamannafélaKa hefói verið haldió um síðustu helKÍ. Ekki er þetta rétt. þvf þinjíið var haldió dagana 3. og 1. nóvem- ber og þátturinn skrifaður til birtingar helgina þar á eftir. en þaó dróst um viku að hann hirtist og er beóist velviróingar á þessari missögn. bessir startbásar eru framleiddir í Bretlandi og kostar samstæða til að ræsa 6 hross samtímis milli 5 og G milljónir. Hestar Startbásar notaðir á kappreiðum hérlendis?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.