Morgunblaðið - 25.11.1978, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 25.11.1978, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1978 Minning: Ásgeir Pétursson yfirflugstjóri Þegar minnst er Ásgeirs Péturs- sonar, yfirflugstjðra Loftleiða, kemur fyrst í hugann sú heiðríkja, sem ávallt umlukti þennan ágæta og heilsteypta mann. Hann bar höfuðið hátt, svipurinn var hreinn, heiðarleikinn og góðmennskan skein úr hverjum andlitsdrætti. Við starfsmenn flugmálastjórn-* ar þekktum hann vel, hann var einn okkar um árabil. Hann starfaði sem radíótæknir hjá flugöryggisþjónustunni í 5 ár eða frá 1951—55 enda með menntun sem útvarpsvirki. Þá vann hann m.a. með tækninefnd Alþjóðaflug- málastofnunarinnar (ICAO), sem starfaði hér að flugöryggismálum með frábærum árangri frá 1951—53 undir stjórn Glenn Goudie. Er hann kom til okkar átti hann að baki sér mikið og ágætt starf og nám hjá Svifflugfélagi Islands, en hann hóf störf í félaginu 1947 og naut félagið starfskrafta hans og ósérplægni í ríkum mæli í 5 ár. Honum var svo tamt að gefa af sjálfum sér, það var eðli hans, en slíkir menn eru fengur hverju félagi. Við samstarfsmenn hjá flug-' málastjórn söknuðum hans, þegar hann fór frá okkur, en við vissum, hvert hugur hans stefndi. Eftir flugkennslustarf hér í Reykjavík og starf hjá flugfélaginu Braath- ens Safe í Noregi gekk hann í þjónustu Loftleiða 1. maí 1956. Fór brátt af honum orð sem óvenju traustum flugmanni, sem sýndi sig bezt í því, að honum var falið starf yfirflugstjóra hjá félaginu 1. jan. 1971, þá fertugur. í því starfi sem og annars staðar ávann hann sér sakir mannkosta traust allra, sem áttu við hann samskipti. Aðals- merki Ásgeirs var hve grandvar og gætinn hann var í starfi sínu og lífi. Samviskusemi hans og réttsýni var viðbrugðið. Hann var hlédræg- ur að eðlisfari og gat verið fremur fátalaður, en þeim mun betur var tekið mark á því sem hann lét frá sér fara. Ásgeir var mikill trúmaður og sótti þangað greinilega hugarró sína, góðvild og æðruleysi. F'lugslysið í Sri Lanka var mikið áfall fyrir íslenzk flugmál. Loftleiðir áttu að baki sér meira en 30 ára starfsferil í millilanda- flugi sínu — án dauðaslyss. Á þessum tímamótum er eðlileg- ast að minnast þessarar náðar með þakklæti til skaparans svo og til allra þeirra, sem þrotlaust unnu að þessum frábæra árangri. I nafni íslenzku flugmálastjórn- arinnar votta ég eftirlifandi konu hans og börnum svo og eftirlifandi mökum og börnum allra hinna látnu innilegustu samúð. Agnar Kofoed Hansen Það er kannski að bera í bakkafullan lækinn að ætla sér að skrifa minningargrein um Ásgeir Pétursson — það verða eflaust margir til þess. En þar sem við Ásgeir vorum bæði persónulegir vinir og starfs- félagar, þá vil ég leyfa mér að senda frá mér nokkrar línur. Við Ásgeir kynntúmst fyrst í KFUM, ungir menn, en síðar urðum við einnig starfsfélagar, er hann hóf störf hjá Loftleiðum sem flugmaður. Margar ferðirnar höfum við farið saman í ýmsum gerðum flugvéla, ég í vélstjórasætinu, hann fyrst í aðstoðarflugmanns- sæti en síðar í flugstjórasætinu. Hann var traustur og nákvæm- ur flugmaður, sem ekki mátti vamm sitt vita í einu eða neinu. Sýndu Loftleiðir honum mikið traust, er honum var falið hið vandasama verk yfirflugstjóra félagsins, sem hann gegndi til dauðadags. Ljúfmenrti var hann hið mesta, sem átti virðingu allra sinna starfsfélaga, og var því ætíð gott að fljúga með honum. Fyrst og fremst var Ásgeir trúaður kristinn maður, sem aldrei dró dul á trú sína. Vissu menn ætíð, hvar hann stóð í þeim efnum. Starfaði hann í ýmsum deildum KFUM, en ljúfmennska hans held ég að bezt hafi notið sín meðal barnanna í Sunnudagaskólanum. Það voru ófá sporin, er hann átti í Kópavoginn til starfa meðal barn- anna þar, þó ekki byggi hann þar sjálfur. Enda kunnu börnin vel að meta það, bæði elskuðu hann og virtu. Betri eiginmann og föður en hann er erfitt að finna. Ástúðin og samheldnin geislaði út frá því heimili, það þekki ég af eigin reynd. Það er því erfitt að sjá á bak slíkum eiginmanni og föður. En stóri styrkur eiginkonu hans og barna er sá, að þau eiga sömu trú og hann og vita því, að ekkert er að óttast. Ásgeir lifir, þótt hann hafi dáið. Kveð ég góðan vin með sömu vissu og bið fjölskyldu hans Drottins blessunar. Baldur Bjarnasen. í dag er kvaddur hinstu kveðju Ásgeirs Pétursson yfirflugstjóri. Hann var fæddur 2. ágúst 1930 og var því 48 ára gamall er hann lét lífið ásamt fjölda annarra í hinu hörmulega flugslysi þann 15. nóvember s.l. Með Ásgeiri Péturs- syni er fallinn í valinn, langt fyrir aldur fram, mikill mannkosta maður. I brjóstum allra er til hans þekktu býr djúpur söknuður, sökum þess að með framkomu sinni allri, ávann hann sér ást og virðingu allra þeirra er hann umgekkst. I vitund þess er þetta ritar, býr vissa um það, að hin hlýja og kærleiksríka framkoma hans, hafi átt uppsprettu sína í persónulegri trú hans á Jesúm Krist, sem hann vitnaði um sem frelsara sinn og Drottin. Afstaða hans til manna og málefna, mótaðist greinilega af orðunum: „Allt hjá yður sé í kærleika gjört“. Með þetta í huga, var mjög eðlilegt að Ásgeir væri kallaður til ábyrgðarmikilla starfa á vettvangi þeirra málefna sem honum voru hugleikin. Ljóst er að hann naut virðingar og trausts þeirra er hann starfaði hjá sem flugmaður. Það sama er hægt að segja um starf hans í þeim kristilegu félögum er hann helgaði krafta sína. Ungur gerðist hann félagi í K.F.U.M. og sat í stjórn þess félags um skeið. I kristniboðshreyfing- unni var hann búinn að vera í mörg ár og málefni kristniboðsins voru honum einkar hjartfólgin. Á kristniboðsþingi 1975 var hann kosinn í stjórn Kristniboðs- sambandsins og naut þar óskoraðs trausts þeirra er með honum Störfuðu. Kom þar glöggt fram hversu útbreiðsla Guðsríkis, heima og úti á meðal heiðingjanna var honum mikið hjartans mál. Þann 13. október 1956 kvæntist Ásgeir eftirlifandi konu sinni Þóreyju Ingvarsdóttur og eignuö- ust þau þrjú börn, eina dóttur og tvo syni, sem öll eru í föðurhúsum. Það duldist engum er fjölskyld- unni kynntist, að á milli þeirra ríkti mikið ástríki. Ásgeir var ekki aðeins hinn umhyggjusami faðir, heldur líka hinn góði vinur og félagi barna sinna. Að fjölskyld- unni er því mikill harmur kveðinn. En það kemur líka í ljós nú, það sem vitað var, að þau áttu öll sem eitt trú á Guð, sem persónulegan föður, sem ber umhyggju fyrir þeim og það er það sem nú stenst og styrkir þegar svo mikið á reynir. Öll voru þau sem eitt í þjónustunni í Guðsríki og meiri hamingju getur einni fjölskyldu ekki hlotnast en það að vera eitt í trú og þjónustu við Guð. Það er þess vegna einlæg bæn, að þau mættu áfram varðveitast í því trúartrausti, sem einkennt hefur líf þeirra til þessarar stundar. Eitt ritningarorð langar mig til að tengja minningu Ásgeirs að lok- úm, orð sem mér finnst vera sem lifandi lýsing á honum sem kristnum manni: „Verið ávallt glaðir vegna samfélagsins við Drottinn,: ég segi aftur, verið glaðir. Ljúflyndi yðar verði kunn- ugt öllum mönnum". Gleði og ljúflyndi voru hin sterku einkenni í trúarlífi Ásgeirs. Okkur var öllum kunnugt um það. Stjórn Kristniboðssambandsins og kristnibosðvinir víðsvegár, minnast Ásgeirs Péturssonar með þakklæti til Guðs fyrir óeigingjörn störf hans fyrir kristniboðið. Almáttugur Guð styrki ástvini hans svo og alla þá er nú syrgja vegna þessa hörmulega slyss. Innileg hluttekning er þeim vottuð á þessari stundu. Baldvin Steindórsson. Vinur okkar og félagi, Ásgeir Pétursson yfirflugstjóri, er látinn. — það sama kvöld og slysið átti sér stað, hittumst við félagar hans á heimili eins okkar, eins og við höfum haft sem reglu í ein 30 ár. Það var haft á orði eftir samveru- stundina þetta kvöld, áð það munaði alltaf á sérstakan hátt mikið um Ásgeir, þegar hann, vegna starfa sinna erlendis, gat ekki verið með okkur. — Þá vissum við ekki, að það kall, sem allir verða að lúta, hafði náð til hans. — Við 24 félagsmenn, sem á unglingsárum höfðum kynnst og tengst vinarböndum í Kristilegu félagi ungra manna og til hliðar við það eignast lítinn skíðaskála (Éljagang) við Hveradali, eigum nú á bak að sjá góðum félaga. Ásgeir var einstökum hæfileik- um búinn. I huga okkar var hann ávallt flugstjórinn með allri þeirri þekkingu, þjálfun og ábyrgð sem því fylgir, og hlaut hann það traust að veljast í yfirflugstjóra- starf. Þegar svo bar undir, gat Ásgeir verið mjög næmur á það sem talist gat spaugilegt eða skemmtilegt enda af mörgum talinn ágætur skemmtikraftur. Einnig naut hann góörar tónlistar og lék sjálfur á hljóðfæri sér og öðrum til gleði. Þó var hann umfram allt minnisstæð- astur fyrir hlýju sína og fágaða framkomu. Hann átti bjargfasta trú á Jesúm Krist og miðaðist líf hans og framkoma við þá sannfær- ingu. Eitt var meira áberandi hjá Asgeiri heitnum en flestum öðr- um, en það var hin einstaka trúargleði sem honum var gefin og gerði hann meira aðlaðandi en flesta aðra, enda var gott að vera í návist hans. Nú, þegar sörg og söknuður hvílir yfir heimili hans og enginn mannlegur máttur getur þar um breytt, er bæn okkar félaganna að góður Guð veiti konu hans, Þóreyju, og börnum þeirra styrk og huggun 23 skíðaskálafélagar Kveðja frá K.F.U.M. Hið hörmulega flugslys á Sri Lanka kom eins og reiðarslag yfir þjóðina, sem vegna fámennis býr við nánari kynni og ríkari hlut- tekningu með þeim sem um sárt eiga að binda en gerist með stærri þjóðum. Harmurinn verður því sárari og reiðarslagið þeim mun harkalegra sem kynni eru nánari við þá sem kallaðir eru brott með voveiflegum hætti. Okkur félaga í KFUM setti hljóða þegar fréttist að í hópi þeirra sem farist höfðu var Ásgeir Pétursson yfirflugstjóri. Ásgeir hafði verið félagi í KFUM frá því hann var unglingur og tekið virkan þátt í starfi félagsins æ síðan og m.a. setið í stjórn þess um skeið. Við eigum því á bak að sjá góðum félaga og ötulum og ósér- hlífnum liðsmanni. Þrátt fyrir þetta er hugurinn þó ekki fyrst og fremst bundinn við það sem við höfum misst og hið vandfyllta skarð sem myndast hefur í raðir KFUM-manna. Minn- ingin um Ásgeir sem hinn glaða, heilsteypta, vitnandi lærisvein Jesú Krists og þakklæti til Guðs, sem gaf okkur hann að félaga og vini, er ofar í huga. Þrjár myndir, sem ég geymi í minningunni af Ásgeiri sem KFUM-manni, lýsa honum vel sem slíkum. Á samkomu, þar sem orðið var gefið laust til vitnisburðar stendur Ásgeir á fætur og tekur til rrtáls. Uppbyggileg ræða hafði verið flutt og góður söngur. Hvort tveggja er Faðir og tengdafaöir okkar, JÚLÍUS BJARNASON, fyrrverandí béndi, Leiré, Leirérsveit, andaðist fimmtudaginn 23. nóv. 1978 á sjúkrahúsinu Akranesi. Helgi Júlíusson, Hulda Jónsdóttir, Kristinn Júlíusson, Sigurést Indrióadóttir, Bjarni I. Júlíusson, Áslaug Stefénsdóttir, Þórður Júlíusson, Karen Lövdahl. RAGNAR VALTÝR ÁRMANNSSON, húsgagnasmiður, Einilundi 6, C, Akureyri, lézt í Landspítalanum aðfararnótt 23. nóv. María Guómundsdóttir, Marianna Ragnarsdóttir, Maríanna Valtýsdóttir, Magnús Sumarlióason, Sigurbjörg Ármannsdóttir, Þórarinn Hrólfsson. Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug við andlát og útför, ÞÓRÐAR EINARSSONAR, Dunhaga 15. Svava Sveinsdóttir, Ingunn Þóröardóttir, Svava Þóra Þóróardóttir, Einar Helgason. + Þökkum sýnda samúö og vináttu viö andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐMUNDAR PÉTURSSONAR. Óli Fossberg, Béra Guðmundsdóttir, Óttar Snædal Guðmundsson, Vigdís Fjeldsted og barnabörn. + Okkar innilegasta þakklæti til allra þeirra er studdu okkur og veittu okkur frábæra aöstoð við leit aö föður okkar, tengdafööur og afa, JÓNI G. JÓNSSYNI fré Deildaré. Þökkum samúðarkveöjur og hlýhug. Ásta Jónsdóttir, Garöar Kristjénsson, Helga Jónsdóttir, Bjarni Þorsteinsson, Jón Trausti Jónsson, Kalldóra Jóna Bjarnadóttir, Atli Guólaugsson. og barnabörn. + Alúðar þakkir öllum þeim til handa, sem sýndu okkur svo mikla hlýju og samúð við fráfall sonar okkar, bróður, mágs og frænda, ÞORLÁKSBJARNA HALLDÓRSSONAR. Else og Halldór Þorléksson, Brynja Axelsdóttir, Björn Halldórsson, Magnús S. Magnússon, Anna Halldórsdóttir, Eva Halldórsdóttir, Elísabet Björnsdóttir, Halldór Björnsson. + Við þökkum af alhug öllum þeim, nær og fjær, er auösýndu okkur samúö og vinarhug við fráfall og jarðarför litla drengslns okkar og bróður, BIRGIS MÁS. Áslaug María Þorsteinsdóttir, Björn Olsen Jakobsson, Svala Trr Björnsdóttir, Sigrún Vala Björnsdóttir, Elva Björk Björnsdóttir, Sigurður Gunnar Jóhannesson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.