Morgunblaðið - 25.11.1978, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 25.11.1978, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1978 Jaim- m íjiilskvldasíta Þórir S.-tiudbiTKsson RúnaíiísladóUir Ein ágæt? Ég voit ekki, hvort þú hefur hcyrt söBuna um hann Gunna litla. Ilann var víst þrÍKfíja eða fjögurra ára — Ob það er í tisku, cr það ekki, að segja brandara! Das einn sat Gunnar úti í horni og hamaðist við að krota eitthvað á hlað. Mamma hans hélt, að hann væri að teikna. þangað til hann hrópaði allt í einu yfir sig hrifinn. „Mamma, mamma! Ég kann að skrifa, sko bara!“ „Ja'ja. góði minn.“ svaraði mamma hans, „og hvað varstu að skrifa?“ „Það veit ég ekki," svaraði Gunnar, „ég kann ekki að lesa!" Slys-Sorg-Samúð Mikið hefur verið rætt um hið sorglega slys í Sri Lanka að undanförnu. Minningarræða var flutt, er lík hinna látnu komu heim, og hefur hún verið birt í blaðinu. Börn, unglingar og fullorðnir eiga nú um sárt að binda. Sorgin hefur heimsótt heimili þeirra og margar spurningar verða áleitn- ar, sem erfitt mun reynast að svara. Sársaukinn, sem fylgir slíkri sorg, tekur misjafnlega langan tíma. Það er líka misjafnlega erfitt fyrir börn og fullorðna að mæta slíkum erfiðleikum. En einmitt á slíkum tímum er svo mikilvægt að geta verið eðlilegur — og hvorki hylja sorg sína né sársauka, — leyfa tilfinningum sínum að koma fram bæði í söknuði og sorg, en einnig í bæn, í von og í trú. Barna- og fjölskyldusíðan vott- ar aðstandendum hinna látnu, og þá sérstaklega börnum þeirra og um leið allri f jölskyldunni, dýpstu samúð, og biður um blessun og styrk þeim til handa á komandi tímum. ©PIB Jafnvægislist Ilér á að blnda saman handspotta og halda honum milli tveBKja fingra, eins og sést á myndinni. Síðan er vandinn sá, að láta lítinn bolta, eins og borðtenniskúlu. rúlla fram og aftur án þess að detta á golfið. Tveir félagar geta til dæmis reynt sig til skiptis. Þetta er hreint ekki auðvelt.! Mikið kaffi Óhemju mikið kaffi er drukkið um allan heim, ekki síst í Ameríku. í New York-borg einni hefur verið áætlað, að á hverjum klukkutíma sé drukkið nálægt 6 milljónum kaffi- bolla. Það verða 144 milljónir kaffibolla á sólar- hring.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.