Morgunblaðið - 25.11.1978, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 25.11.1978, Blaðsíða 48
Verzlið i sérverzlun með litasjónvörp og hljómtæki. Skipholti 19 BUÐIN sími "" ' 29800 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1978 Samkomulag í ríkisst jóminni: Alþýðuflokkuriim féll frá skilyrðum sfnum ÓFÆRÐ — Snjókoma og éljagangur á suðvestan- verðu landinu hefur gert mörgum skráveifu, því að í þessum landshluta eiga menn ekki slíku að venjast. Þetta er ekki óalgeng sjón víða á höfuðborgarsvæðinu þessa dagana. Á bls. 2 og 24 er sagt nánar frá ófærð- inn5‘ Ljósm. Mbl. RAX ALÞÝÐUFLOKKURINN féll í gær frá þeim skilyrðum, sem flokkurinn hafði sett fyrir því að hann samþykkti 6,13% kauphækkun hinn 1. desember næstkomandi og leiddi það til þess að samkomulag varð í ríkisstjórninni í gær milli stjórnarflokkanna þriggja um að kaupgjald skyldi hækka um 6,13% um mánaðamótin, en 8 prósentustigum skyldi eytt með auknum niðurgreiðslum um 3%, lækkun sjúkratrygginga- gjalds á lág- og miðlungslaun 2% og aukningu félagslegra umhótamála 3%. Þá fylgir þessum ráðstöfunum, sem að sögn Ólafs Jóhannessonar forsætisráðherra verða lagðar fram á mánudag, allmikilvæg greinargerð. Þá létu ráðherrar Alþýðuflokkssins bóka á ríkisstjórnarfundi í gær, að flokkurinn lýsti gremju með að ekki skyldi nást fram heildstæð stefna í efnahagsmálum — „verðbólguvandinn verður ekki leystur með eilífum bráðabirgðaráðstöfunum.14 Nígeríumenn kaupa allt hlutafé Scanhouse íslendingar starfa áfram við framkvæmdirnar í Nígeríu NÝLEGA var frá því gengið að Nígeríumenn yfirtækju allt hlutafé fyrirtækisins Scanhouse—Nígería Ltd en íslenzkir aðilar hafa sem kunnugt er átt meirihluta í fyrirtækinu. Scanhouse—Nígería Ltd. stendur í miklum hyggingarframkvæmdum í Nígeríu að jafnvirði 800 milljónir íslenzkra króna. Um samkomulagið innan ríkis- stjórnarinnar sagði Ólafur Jóhannesson í samtali við Morgun- blaðið í gær: „Agreiningur var um tiltekin atriði, sem samstarfsaðilar vildu fá inn í lagafrumvarpið, en sætzt var á að sett yrðu ákvæði í þá átt í greinargerð, sem fylgdi frumvarpinu. Þar setur ríkisstjórn- in sér ákveðin takmörk, sem að vísu eru að mestu endurtekning á samstarfsyfirlýsingunni." Um einstök atriði þessarar grein- argerðar sagði Ólafur að þar væri sett sem mark, að stefnt skuli að Fasteign- ir í land- inuhækka um 400 milljarða milli ára NÚ liggur fyrir fram- reikningur á hækkun mats fasteigna í landinu milli áranna 1977 og 1978 og er hækkun þessi að meðaltali um 42% að sögn Guttorms Sigur- björnssonar, forstöðu manns Fasteignamats ríkisins. Guttormur varaði þó við því að eigendur fasteigna tækju þessa tölu of bókstaflega og gengu út frá því að fasteignir þeirra hækkuðu sjálfkrafa um þessa prósentutölu, því að taka þyrfti tillit til margvíslegra annarra þátta áður en raun- hæft mat einstakra fasteigna Iægi fyrir. Hins vegar upplýsti Gutt- ormur að samkvæmt ákvörðun yfirfasteignamatsnefndar um hækkun fasteignamatsins milli ára hækkaði heildarfasteigna- matið að krónutölu úr 864,4 milljörðum króna í 1266.5 milljarða króna, en þetta mat nær til ails sem kallast fasteign í landi, þ.e. landeigna og lóða, hvers kyns húseigna og hlunn- inda. því að vísitala hækki ekki hinn 1. marz næstkomandi, um meira en sem nemur 5%. Þá segir einnig að stefnt skuli að því að endurskoðun vísitölu verði lokið fyrir þann tíma og ný hafi tekið gildi. Þá hafði Morgunblaðið spurnir af því að í greinargerðinni væri annar bálkur, er lyti að réttindamálum verkalýðsins. Þar segir að stefnt skuli að því að orlofsfé verði verðbætt, stórbætt verði aðstaða og aðbúnaður á vinnustöðum, atvinnu- leysistryggingasjóður verði styrkt- ur, veruleg aukning verði á slysa- og veikindabótum, eftirvinna verði felld niður í áföngum, en nætur- vinnutaxtar taki við þegar er dagvinnu sleppir, kauptrygging gildi er fyrirtæki verði gjaldþrota. Þetta samkomulag náðist á ríkisstjórnarfundi í gærdag, sem hófst klukkan 16 og stóð fram til klukkan 19. Áður höfðu verið haldnir þingflokksfundir, en sam- starfsnefndin, sem lagði drög að þessu samkomulagi sat á fundi í alla fyrrinótt. Samkomulagið er að mestu sam- hljóða tillögum Ólafs Jóhannesson- ar, sem í raun gengur gegn tillögum Alþýðuflokksins og þingflokks Framsóknarflokks um rúmlega 3% hækkun launa, en fóru næst tillögum Alþýðubandalags. Þau atriði, sem alþýðuflokksmenn vildu hafa í frumvarpinu og höfnuðu í greinargerð voru þau er varða vísitöluna, en atriðin um réttinda- mál verkalýðsins munu að mestu eiga rót að rekja til alþýðubanda- lagsmanna. Sjá viðbrögð á bls. 24 og 25. Jónas sagði, að ennfremur hefði það verið vilji Alþingis á hátíðar- fundinum á Þingvöllum 1974 að þjóðargjöfinni yrði ekki blandað saman við aðrar fjárveitingar til landgræðslumála og að hún ætti ekki að rýra þær. „Reynslan er hins vegar sú, að fastar fjárveitingar fil Hafsteinn Baldvinsson hrl., einn íslenzku hluthafanna sagði í sam- tali við Mbl. í gær að samkvæmt nígerískum lögum, sem sett voru í árslok 1977 hefðu heimamenn átt að eignast meirihluta í fyrirtæk- inu og átti það að eiga sér stað í síðasta lagi 31. desember 1978. Allt frá stofnun fyrirtækisins 1975, þegar íslenzku hluthafarnir stofn- uðu þetta félag með heimamönn- um, til þess að hefja byggingar- stofnana eins og landgræðslunnar, skógræktarinnar og fleiri hafa rýrnað verulega svo ekki sé meira sagt,“ sagði Jónas Jónsson, „hvort heldur sem menn bera hækkanir þeirra saman við hækkun fjárlaga eða framreikna fastar fjárveitingar framkvæmdir í Nígeríu, hafa 60% hiutafjár verið í eigu íslendinga. Kvað Hafsteinn íslenzku hluthaf- ana af ýmsum ástæðum ekki hafa haft áhuga á því að eiga minni- hluta hlutafjár í fyrirtækinu og því hefði orðið að samkomulagi að nígerísku hluthafarnir yfirtækju allt hlutafé og fjárhagsskuldbind- ingar fyrirtækisins en íslenzku hluthafarnir drægju sig út úr því. Byggingarframkvæmdir Svan- ársins 1974 með vísitölu þjóðargjaf- arinnar." Jónas nefndi sem dæmi, að landgræðsla ríkisins hefði ein fengið 180 milljón krónum meira fyrstu þrjú árin, ef verðbætur hefðu verið greiddar á hverju ári fyrir sig en ekki eftir á, eins og gert hefur verið. Af þeim 200 milljónum krónum sem grunnfjárveitingin er á ári sagði Jónas að landgræðslan fengi 140 milljónir, skógræktin 34, til rannsókna fara 16 milljónir og tíu til annarra verkefna, m.a. landnýt- house—Nígería Ltd. eru á tveimur svæðum í Nígeríu en fyrirtækið hafði gert samninga við yfirvöld um að byggja 2500 íbúðir. Islenzk tækni er notuð við smíðina og Islendingar hafa stjórnað fram- kvæmdum. Hafa milli 20 og 30 íslendingar starfað hjá Scanhouse að undanförnu og munu einhverjir þeirra vinna áfram við fram- kvæmdirnar þótt íslenzkir aðilar eigi ekki lengur í fyrirtækinu. ingarráðunauts Búnaðarfélagsins, Landverndar og afrétta- og útivist- arvega. Jónas sagði að samstarfs- nefnd um landgræðsluáætlunina myndi innan skamms skila áfanga- skýrslu um framkvæmd þjóðargjaf- ar. „Það verður eitthvað að taka við, þegar þjóðargjöfin þrýtur árið 1979,“ sagði Jónas. „Ef ekki verður framhald á munu þessar stofnanir standa mjög illa að vígi, þannig að það verður annaðhvort að koma ný áætlun eða þá auknar fjárveitingar til áframhaldandi starfs.“ Verðtrygging þjóðargjafarinnar: Rýrnaði um 247 milljón- ir króna fyrstu þrjú árin „FJÁRVEITINGARNAR samkvæmt þjóðarlöggjöfinni áttu að halda framkvæmdagildi sínu allt tímabilið. Nú hefur vísitala þjóðargjafarinnar nær fjórfaldazt, en hins vegar eru verðbætur greiddar árið eftir og fyrir það hefur landgræðsiuáætlunin liðið sem svarar 247 milljónum króna fyrstu þrjú árin,“ sagði Jónas Jónsson formaður samstarfsnefndar um landgræðsluáætlun í samtali við Mbi. í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.