Morgunblaðið - 25.11.1978, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 25.11.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1978 23 Hefndarmorð framin á Ítalíu Desio. Ítalíu. 24. nóvember — AP FJÓRIR menn sem allir voru á sakaskrá liigreglunnar íyrir ýmis konar glæpi voru drepnir. að því er talið er í hefndarárás, rétt utan við smábæinn Desio á Norður-Ítalíu í nótt og lík þeirra skilin eftir á akri. segir í frétt lögreglunnar. í frétt lögreglunnar segir, að allar líkur bendi til þess að þeir hafi verið drepnir í hefndarskyni fyrir að hafa drepið aðra „skúrka", sem fundust fyrir skömmu í stolnum bíl á svipuðum slóðum. Sá sem tilkynnti lögreglunni um drápin var verkamaður sem hafði orðið líkanna var á leið sinni til vinnu í morgun. Nú líður varla sú vika, að ekki séu menn drepnir eða þeim rænt í Brianza-héraði á Norður-Ítalíu og hefur svo verið sl. þrjá mánuði, segir að síðustu í frétt lögreglunnar vegna þess. Chicago, 24. nóvember. AP. FIMMTI hver læknir í Bandaríkj- unum væri ekki mótfallinn sölu á líffærum til lfffæraflutninga, en þrír fjórðu eru því algerlega mótfallnir samkvæmt skoðana- könnun bandariska læknasam- bandsins (AMA). Vikurit AMA segir að læknar, sem séu þessu mótfallnir, sjái fram á hræðilegar afleiðingar. Þeir telja sölu líffæra ósiðlega og segja að fyrir hendi séu möguleik- ar á misbeitingu slíks kerfis í glæpsamlegum tilgangi. Þannig þykjast læknarnir sjá fyrir möguleika á líkránum, morð- um í því skyni að komast yfir líffæri sem seljist fyrir gott verð og möguleika á því að skipulögð glæpasamtök taki yfir markaðinn. Einn læknanna sagði að fátækt fólk yrði selt fyrir varahluti, aðrir segja að auðugt fólk stæði betur að vígi við kaup á líffærum og enn aðrir töldu að möguleikar væru á því að fólk misþyrmdi sjálfu sér í hagnaðarskyni. Og enn annar læknir sagði að Feitar flugfreyj- ur fá ekki að fljúga Abu Dhahi. Sameinaða Furstadærainu, 23. nóvember. AP FORRÁÐAMENN arabíska flug- félagsins Gulf Air hafa tekið þá ákvörðun að flugfreyjur sem eru yfir 55 kílógrömm að þyngd, fái ekki að fljúga hjá félaginu. Þeim flugfreyjum félagsins, sem eru yfir mörkunum, hefur verið skipað að fara í megrun. Þegar talsmaður flugfélagsins tilkynnti ákvörðun félagsins sagði hann> „Það er óhagkvæmt fyrir stúlkurnar að bera fitupokana utan á sér, og ennfremur er það ekki aðlaðandi sjón að sjá fyrirferðar- mikinn bakhluta kjagandi eftir þröngum ganginum á milli sæt- anna.“ Með þessari ákvörðun hefur þeirri trú manna að Arabar aðhyll- ist fremur bústnar konur en magrar að einhverju leyti verið varpað fyrir róða. engin leið væri til þess að verðleggja nýru, hjörtu og lifur. Tveir læknar, sem eru hlynntir sölu líffæra, sögðu að aðstandend- ur látinna gætu orðið sér úti um aukaskilding. Aðrir sögðu að framboð á líffærum til líffæra- flutninga mundi aukast. 67.1% töldu líffærasölu ósiðlega en 32.9% ekki. Einn læknir sagði: „Þetta er kannski ekki ósiðlegt en þetta er gróðabrall og óviturlegt." Veður víða um heim Akureyri -1 snjókoma Amsterdam 11 rigning AÞena 18 heióríkt Barcelona 15 heiðskirt Berlín 11 skýjað Brússel 13 skýjað Chicago 10 rigning Frankfurt 10 skýjað Genf 6 poka Helsinki 2 heiðskírt Jerúsalem 16 léttskýjað Jóhannesarb. 27 léttskýjað Kaupmannah. 7 skýjað Lissabon 18 léttskýjað London 13 skýjað Los Angeles 16 rigning Madríd 13 heiðríkt Malaga 19 léttskýjað Mallorca 19 léttskýjað Míami 28 heiðríkt Moskva 8 skýjað New York 7 rigning Ósló 6 skýjað París 12 skýjað Reykjavík -2 léttskýjað Río De Janeiro 34 skýjað Rómaborg 12 skýjað Stokkhólmur 8 skýjað Tel Aviv 20 léttakýjað Tókýó 14 skýjað Vancouver 4 rigning Vfnarborg 10 skýjað Þetta gerðist 1974 — U Thant, þriðji fram- kvæmdastjóri SÞ, deyr úr krabbameini. 1973 — Papadopoulosi steypt í herbyltingu í Grikklandi. 1965 — Mobutu steypir Kasavubu í Kongó. 1963 — Kennedy jarðsettur í Arlington-kirkjugarði. 1875 — Bretar kaupa hlutabréf í Súez-skurði af Egytpum. 1795 - Stanislaus II af Pól- landi leggur niður völd — Austurríkismenn sigraðir við Laono í Piedmont. 1758 — Bretar taka Senegal. 1568 — Ný rannsókn í máli Maríu Skotadrottningar í West- minster. 1542 — Bretar gersigra Skota i orrustunni við Solway Moss. 1535 — Karl keisari V sækir inn í Napoli. Afmæli dagsinsi Lope Felix de Vega, spænskt leikritaskáld (1562—1635) — Katrín af Brag- anza, portúgölsk kona Karls II af Englandi (1639—1705) — Joe Di Maggio, bandarískur beis- boltaleikari (1914---). Læknar ræða sölu líffæra ÓEIRÐIR í RENTERIA — Frá óeirðunum í Baska-héruðunum: Strœtisvagni lagt þvert yfir veginn inn í Renteria, bæ nálægt San Sebastian þar sem ólgan hefur verið mest. Víetnamar herða á árásum á Kambódíu Bangkok, 24. nóvember. AP VÍETNAMAR hafa aukið árásir á landi og úr lofti á Kambódíu samkvæmt áreiðanleguin heimild- um og allt að 40 flugvélar halda uppi árásum á landið á hverjum degi. Víetnamar hófu hinar auknu loftárásir um helgina með MIG-herflugvélum frá Rússum og flugvélum sem þeir hafa tekið frá Bandaríkjamönnum og þær bein- ast einkum gegn skotsvæðum á svæði því í Kambódíu sem gengur undir nafninu Öngullinn og er um 128 km fyrir norðvestan IIo Chi Minh borg. áður Saigon. að því er heimildirnar herma. Bardagar hafa einnig aukizt á iandi samkvæmt heimildunum á svæðunum Brek, Mimot og Snoúl í Önglinum og ahk þess í svokölluðu Páfagauksnefi sem skagar inn í Suður-Víetnam fyrir neðan Öngul- Sérfræðingar sem fylgjast með landamærastríði þessara tveggja kommúnistaríkja vilja þó ekki kalla þessa stigmögnun nýja Spurt á veggspjöldum í Peking: Gat Maó ef til vill skjátlast Belgrad — 24. nóvember — 23. nóvember TANJUG-fréttastofan skýrir svo frá að ný vegg- spjöld séu komin upp í Peking þar sem varpað sé fram þeirri spurningu hvort Maó heitinn formað- ur hafi yfirleitt verið á réttri línu. Spjöldin fylgja í kjölfar þess að afhjúpaður var „Sannleikurinn um atburðina á Torgi hins himneska friðar“, en þar er vísað til fjölmennra og róstusamrR mótmælaað- gerða, sem efnt var til á dánarafmæli Cou En-lais, fyrrum forsætisráðherra Kína, en við það tækifæri Innlenti Bretar senaa herskip á vettvang 1975 — Fiskimiðum Vestfjarða lokað 1940 — Tveir rússneskir kaupmenn kaupa hár af íslenzkum konum 1871 — Skúli landfógeti jarðsettur í Viðey 1794 — F. Jóhanna Egilsdóttir 1881. Orð dagsins. Hver einasta fjarstæða á sér einhvern for- mælanda — Oliver Goldsmith, enskt skáld (1728-1774). eiga þorpararnir fjórir að hafa skipað hernum að skakka leikinn. „Við viðurkennum að Mao for- maður var mikill leiðtogi kín- versku þjóðarinnar, mikilmenni í sögu Kína. En 'þótt kostir hans skuli viðurkenndir, teljum við fráleitt að honum hafi ekki orðið á mistök," segir Tanjug að standi á nýju spjöldunum. Jafnframt er persónudýrkun átalin, og sagt að enn viðgangist slíkt athæfi í Kína í anda hinna fjögurra alræmdu þorpara. Þá er spurt hvort Lin Piao, sem fórst í flugslysi 1971 og sakaður hefur verið um landráð, gæti hafa komizt til valda og áhrifa án aðstoðar Maós. Tanjug segir vegg- spjöldin hafa vakið mikla athygli í Peking og telur almenning þar í landi nú vera farinn að velta því alvarlega fyrir sér hvort ekki sé komið nóg af menningarlegu byltingarbrölti og tími til kominn að snúa sér í staðinn að verulegum efnahagslegum umbótum. Tatari svipt- ir sig lífi Moskvu. 25. nóvembor AP BROTTRÆKUR Krím-Tatari sem lögreglan ætlaði að handtaka hengdi sig í dag í stað þess að lenda í þrælkunarbúðum í Síber- íu. að því er áreiðanlegar heimild- ir herma. Krímverjinn Izzet Memedaliev sneri aftur til Krímskaga á ólöglegan hátt fyrir skömmu með fjölskyldu sína. stórsókn Víetnama þótt henni hafi verið spáð af ýmsum. Samkvæmt öðrum heimildum bendir flest til þess að Víetnamar muni treysta meira á flugvélar en áður í þeim átökum, sem eru í vændum eftir meiriháttar áföll sem suður-víetnamski landherinn hefur orðið fyrir á síðastliðnu ári. Loftárásirnar virðast beinast gegn liðssafnaði Kambódíumanna. Fyrr í þessupi mánuði héldu Kambódíumenn því fram að marg- ir óbreyttir borgarar hefðu beöið bana í árás víetnamskra flugvéla á þorp í Kratie-héraði. Víetnamar segja að rúmlega 1,2 milljón ungmenna hafi gengið í sérstakar baráttusveitir til þess að taka þátt í vörnum suðvestur- landamæranna að Kambódíu. Samkvæmt heimildunum virð- ast bardagarnir í Önglinum háðir á allskýrt markaðri víglínu gagn- stætt því sem virðist vera upp á teningnum í Páfagauksnefinu. Útvarpið í Phnom Penh hélt því fram í dag að Víetnamar revndu að viða að sér matvælum með valdi frá fátækum landsmönnum til uhdirbúnings innrás í Kambó- díu og að þeir sem veittu viðnám væru skotnir. Sri Lanka: 65 farast ífellihyl Culombo. 25. nóvember. AP. AÐ MINNSTA kosti 65 manns létust og yfir 15 þúsund misstu heimili sín þegar hvirfilbylur gekk inn yfir austurhluta eyjunnar í dag með 100 mílna hraða, segir í fréttum yfir valda. Forsætisráðherra landsins, Ranasinghe Premadasa. sagði að tveir bæir á austurhluta eyjunnar. Batticaloa og Trin- comalee, hefðu orðið mjög illa úti í hvirfilbylnum. sérstak- lega Batticaloa en þar hefðu hrunið mörg hús í hamförun- um. Björgunarsveitir voru þegar sendar á vettvang með mat og lyf og í bígerð var að koma upp neyðarskýlum fyrir hina heimilislausu meðan uppbygg- ing fer fram. A sama tíma og hvirfilbylur- inn gekk yfir eyjuna var öllum flugvélum beint þaðan ýmist til Bombay, Madras eða Bahrain. segir ennfremur í frétt yfirvalda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.