Morgunblaðið - 25.11.1978, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 25.11.1978, Blaðsíða 14
V 14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1978 Stjórnun fiskveiða er ekki síður efnahags-og félagslegt vandamál en líffræðilegt Ég býö þinj;fulltrúa velkomna til setu á Fiskiþin(;i hinu 37., svo ofi (jesti. Á þessu ári eru liðin 65 ár frá því aö hið fyrsta Fiskiþinjí var háð, en það var í júní árið 1913. Liðin eru 67 ár frá stofnun félatísins. Ék vil í upphafi minnast sjó- manna er farizt hafa við skyldu- störf sín frá því að síðasta Fiskiþinfi var haldið. Sjö sjómenn hafa fallið í valinn. Það var ánæfcjulefít að geta saf;t við upphaf þinfíhalds á s.l. ári, að fiskafli þessa árs mundi verða meiri en nokkru sinni áður í fiskveiðasöfíunni. Afli ársins 1977 reyndist alls um 1374 þús. lestir. Áður hafði mesti afli á land borizt á árinu 1966, alls 1243 þús. lestir. Það er einnifí með ánægju, að unnt er að segja við upphaf þessa þings, að allt bendi til, að afli þessa árs verði jafnvel enn betri en aflinn á s.l. ári. í lok okt. s.l. var heildarafli fisks, skelfisks, humars og rækju orðinn tæplega 1.360 þús. lestir. Bendir því allt til þess, að aflinn á þessu ári verði a.m.k. 1.450 þús. lestir. Þar sem Fiskifélagið gefur mánaðarlega út aflayfirlit, hirði ég ekki um að fara ítarlega út í að gera spá um afla einstakra teg- unda. Eins og öllum er kunnugt um, munar hér mest um loðnuafl- ann, sem í dag er um 905 þús. lestir. Þá eF einnig mikil aukning á afla kolmunna, sem sýnir, að sú viðleitni, er stjórnvöld, útgerðar- menn og fiskimenn hafa sýnt undangengin tvö ár til að nýta þennan stofn, hefur borið góðan ávöxt. Er þess að váenta, að sú reynsla er fengizt hefur og tileink- un tækni við veiðarnar muni koma í góðar þarfir á næstu árum. Er þetta ekki sízt mikilvægt, þegar haft er í huga, að við virðumst a.m.k. í bili vera komin að efri mörkum þess afla, sem skynsam- legt er að veiða af loðnu. Auk þess, sem flest bendir til, að búast megi við töluverðum náttúrulegum sveiflum á loðnustofninum, þótt við fram að þessu höfum búið við hagstætt árferði í því efni. Þótt rækjuaflinn muni reynast minni á árinu, en efni og ástæður eru til, sökum eðlilegra veiðitak- markana vegna óvenjulegrar seiðagengdar á veiðislóðir rækju- báta, er þeim mun nauðsynlegra að halda áfram könnun vænlegra rækjumiða annarsstaðar og þá ekki sízt á djúpslóð. Sú viðleitni einstaklinga til veiða á djúprækju undanfarið, sem dyggilega hefur verið studd af stjórnvöldum, eftir efnum og ástæðum, hefur þegar borið drjúgan árangur og virðist farið var í einu og öllu að okkar tillögum í þessu efni. Við verðum að gæta okkar vel, er við gerum tillögur um fyrirkomulag veiða. Það er eirtfaldara að stofna til „kerfis" en að losna út úr því aftur. Það er einfaldara að banna eða takmarka notkun afkastamikilla veiðarfæra en að heimila þær veiðar á ný, og svona mætti lengi telja. Utlitið er ekki bjart hvað botnlægar tegundir snertir. Bendir margt til þess, að afli á þeim, ef spærlingur er frátalinn, verði nokkru minni en á s.l. ári. I lok október var heildarafli botnlægra tegunda um 418 þús. lestir, sam- kvæmt bráðabirgðayfirliti, en var 422 þús. lestir á sama tíma á s.l. Ræða Más Elíssonar fiskimála- stjóra við setningu Fiskiþings margt benda til, að þessar veiðar geti orðið arðsamar og skilað þjóðarbúinu góðum tekjum, ef rétt er að staðið. Núverandi kvótafyrir- komujag ónothæft Heimilað var að veiða 35 þús. lestir af síld á þessu hausti, þar af um 20 þús. lestir af herpinótaskip- um. Líklegt þykir, að þessi kvóti herpinótaskipa verði ekki f.vlltur. Ber efalaust ýmislegt til. Eina ástæðu tel ég mikilvæga, en það er núgildandi kvótafyrirkomulag. I upphafi var ákveðið, að hvert hringnótaskip mætti veiða liðlega 200 lestir. Þetta er einfaldlega of lítið. Það borgar sig ekki að halda skipum úti á svo lítinn afla. Utgerðin er of kostnaðarsöm til þess, og verðið sem fyrir aflann þarf að fást til að nokkur von sé til, að slík útgerð beri sig, of hátt til að við getum staðizt samkeppni við keppinauta okkar. Við þurfum að læra af reynsl- unni. Núverandi kvótafyrirkomu- lag er ónothæft. Hér verður samt engum einum um kennt, því að ári. Afli bátaflotans var 196 þús. lestir en 206 þús. lestir í fyrra, þannig að enn hefur breyting þar orðið til hins verra. Aukin sókn í spærling veldur hér e.t.v. nokkru, en ekki öllu um þessa þróun. í októbermánuði einum re.vndist t.d. þorskaflinn nær helmingi minni en í október 1977. Stafar það án efa af afspyrnu stirðu tíðarfari, þar sem veiðitakmarkanir voru svipaðar bæði árin, breyttri hegð- un þorsksins og auknum siglingum fiskiskipa á erlendan markað. Flest bendir til, að svipaða sögu verði að segja um nóvember og desember, enda hefur einnig verið hert á veiðitakmörkunum. Ef tíð verður sæmileg má samt e.t.v. vænta aukinnar sóknar í aðrar fisktegundir, það sem eftir lifir nóvember og í desember. Minnkandi þorskafli Samkvæmt framansögðu vil ég álíta, að þorskafli okkar í ár verði nokkru minni en í fyrra, líklega 310—315 þús. lestir á móti 330 þús. lestum á árinu 1977. Þorskafli erlendra fiskiskipa verður vænt- anlega 8—9 þús. lestir á árinu, en var um 10.5 þús. lestir í fyrra. Tölur undanfarinna ára sýna minnkandi þorskafla á Islands- miðum, þegar á heildina er litið, eða úr 473 þús. lesta á árinu 1970 í 340 þús. lestir á s.l. ári, enda þótt okkar eigin þorskafli hafi aukizt og hafi verið meiri á s.l. ári og í ár en nokkru sinni fyrr. Raunar hefur langtímaþróunin verið sú, að þorskafli hefur minnkað á íslandsmiðum allar götur frá 1953—1955. Spurningin í þessu efni er raunar sú, hvort ekki var farið að ganga á íslenzka þorskstofninn þegar á seinni hluta sjötta áratugsins. Rkulegar göng- ur frá Grænlandi rugluðu okkur e.t.v. í ríminu. Sú lind virðist hafa þorrið a.m.k. í bili, um og eftir 1970. Ég hefi ekki að ástæðulausu dvalið nokkuð við þessa þróun þorskveiða, sem mikilvægur sem þorskstofninn er og þorskveiðar fyrir sjávarútveginn og þjóðar- búið. Ég tel líka, að þróun undanfar- inna ára og reynsla hafi kennt okkur margt. Við höfum sveiflast frá bjartsýni í sambandi við útfærslu í 50 og 200 mílur, — að brotthvarf útlendinga mundi leiða til mikillar aukningar eigin afla þorsks og annarra botnlægra tegunda, jafnvel í 700 þús. lestir, og til mikillar svartsýni er svörtu og bláu skýrslurnar komu út. Við óttuðumst mjög, með réttu, minnkandi hrygningarstofn þorsks. Þó hefur reynslan kennt okkur tvennt, — annað er hið augljósa, að lítill hrygningarstofn hefur í för með sér lélegan þorskafla á S- og SV-landi, og vissulega er það ein ríieginástæðan fyrir lélegri afkomu báta og vinnslustöðva á því svæði og þeirra er að þessum atvinnuvegi starfa. Hitt er ekki eins augljóst, að Lárus Jónsson alþm.: Spáð er nálægt 50% verðbólgu á næsta ári Þrátt fyrir mestu svikamylluf járlög íslandssögunnar, gífurlega hækkun skatta og nidurgreiðslna, vísitölu- fals og niðurskurð framkvæmda og félagslegra verkefna Á miðju ári 1977 var verðbólgu- vöxturinn kominn niður í 26% frá því að vera 54% almanaksárið 1974. í kjarasamningunum 1977 urðu þáttaskil. Heildarkjarasamn- ingarnir reyndust olía á verð- bólgubálið, sem magnast hefur síðan. Þetta vissu forystumenn Alþýðuflokks og Alþýðubandalags innan verkalýðshreyfingar og utan mæta vel. Þegar fyrrverandi ríkis- stjórn beitti sér fyrir efnahagsráð- stöfunum í febrúar sl. til þess að draga úr skrúfugangi verðlags og Iauna m.a. með því að skerða vísitölubætur á laun, beittu þeir sér harkalega gegn þeim ráðstöf- unum sem „kaupráni" og gerðu þá kröfu að næstum eina kosninga- máli síðustu Alþingiskosninga, að samningarnir gengju í gildi. Svikamyllufjárlög Nú standa þessir forystumenn að ríkisstjórn og ráða þar ferðinni. Hún hefur lagt fram frv. til fjárlaga og gert aðrar efnahags- ráðstafanir og áformar meiri svikamyllufjárlög en þekkst hafa í sögu landsins, stórfellda skatta- hækkun, niðurgreiðslur, vísitölu- fals og niðurskurð verklegra og félagslegra verkefna. Fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir að nýir skattar — tekju- og eignaskattar að upphæð 16 millj- arðar króna, verði lagðir á allan almenning og þessum fjármunum varið til beinna og óbeinna niður- greiðslna á vöruverði. Þannig greiða launþegar sjálfir fölsun vísitölunnar sem lækk.ar kaup um 9—10% á næsta ári miðað við ákvæði kjarasamninga um verð- bætur á laun. Minni lán til íbúðabygginga Niðurskurður verklegra fram- kvæmda skv. frumvarpinu nemur vægt áætlað 9,800 millj. króna að raungildi og almennra sjóða 1000 m. kr. þ. á m. til Byggingasjóðs ríkisins. Þar er gert ráð fyrir að ríkisstjórnin taki til sín 670 m. kr. af sértekjum sjóðsins. Þetta minnkar lán til íbúðabygginga. Gert er ráð fyrir að létta 980 m. kr. af ríkissjóði með stórhækkun á lyfjum og sérfræðilæknishjálp sem sjúklingar eiga að greiða. Iðnaðargjald sem er nýr tekju- stofn og átti að ganga til eflingar íslenzks iðnaðar — rennur til eigin þarfa ríkissjóðs skv. frv. Byggða- sjóður er skorinn niður um 1100 m. kr. miðað við ákvæði laga og framlög ríkissjóðs til vegamála skorin um 1000 m. kr. frá núgild- andi fjárlögum. Fjöldi fjárlagaliða til félagslegra verkefna er óbreytt- ur í frv. frá fjárlögum að krónu- tölu og aðrir liðir stórlega van- áætlaðir. Til viðbótar er í raun greiðsluhalli á frv. um nær 8 milljarða króna eins og Matthías Á. Mathiesen sýndi fram á í sjónvarpsþætti fyrir skömmu. Verðbólgan æðir áfram Sú meginstaðreynd blasir við að þrátt fyrir alla þssa vinstri tilhurði til stórfelldra skatta- hækkana. niðurgreiðslna, vísi- tölufals. niðurskurðar verklegra og félagslegra verkefna — þrátt fyrir mestu svikamylluf járlög frá upphafi sem nú eru í smíðum á Alþingi a*ðir verðbólgan áfram og mun verða nærri 50% á næsta ári nema ráðist verði heint á kjarasamninga fólks að auki. Þessi vandi væri svipur hjá sjón ef ráðstafanir íyrri ríkisstjórnar hefðu ekki veri rifnar niður. Þá hefði fjárlagadæmið gengið upp án skattalækkana og verðbólgan verið viðráðanlegri. Sigurvegarar kosninganna Al- þýðuflokkur og Alþýðubandalag, standa nú frammi fyrir vanda, sem þeir sjálfir mögnuðu. Þeir ráða ekki við hann nema með aðferð sem þeir sjálfir kölluðu „kauprán" í vor, þ.e.a.s. bæði með beinni íhlutun ríkisvalds á kjara- samninga og stórfelldu vísitölu- falsi, sem launþegar bera bóta- laust í skattahækkunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.