Morgunblaðið - 25.11.1978, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 25.11.1978, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1978 Mennt er máttur Umsjón; Fríöa Proppé Bessí Jóhannsdóttir: Nám að lokn- um grunnskóla A undanförnum árum hcfur mjöK skort alla fcstu í stjórn mcnntamála cinkum þegar lit- ið cr til framhaldsskólastitís- ins. I>cssi jircin mun fjalla um núvcrandi ástand ojí frumvarp til lajía um framhaldsskóla. Grcinin cr ckki hujfsuó scm vísindalcjí úttckt á þcssum málum hcldur aðcins innlcjfj; í þá umræóu scm orðið hcfur um þennan stóra málaflokk á undanfiirnum mánuðum. Öryggisleysi að námi loknu Þegar litið er til þess ófremdarástands sem ríkir í þessum málum vekur það mesta furðu að í landinu starfa nú allmargir skólar kostaðir af alman'nafé, án þess að um þá finnist stafkrókur í lögum. Starfandi framhaldsskólar eru jyarnan flokkaðir „eftir gæðum". Má segja að sú flokkun sé í grófum dráttum þessi: 1. flokkur: Menntaskólar og Verslunarskóli íslands. 2. flokkur: Fjölbrautaskólar. 3. flokkur: Iðnskólar og ýmsir verkmenntunarskólar. Grundvallarhugmynd um samræmdan framhaldsskóla er sú að vinna gegn slíkri flokkun skóla í eins konar „æðri“ og „óæðri skóla". Undanfarin ár hefur verið mjög um það rætt að nauðsyn beri til að efla og bæta aðstöðu verkmenntunar í landinu. I frumvarpinu kemur fram sú hugmynd að hinn samræmdi framhaldsskóli eigi að þróast frá því kerfi, sem við höfum í dag, á þann hátt að skólar, sem nú starfa, breyti smátt og smátt starfi sínu og falli inn í nýja kerfið. Þetta atriði hefur þegar valdið losi og óvissu um stöðu nemenda. Þeir sækja nú mest inn í þær stofnanir, sem hafa skapað sér hefð í menntakerf- inu. Þar vita þeir hvar þeir standa og réttindi að námi loknu eru öllum ljós. Slíkt öryggi og traust er öllum nauðsynlegt, ekki hvað síst ungu fólki sem ætlar að feta mennta- veginn. Framhaldsdeildirnar eins og þær eru nú svífa mjög í lausu lofti. Þetta á bæði við um námsefni og réttindi að námi loknu. Nemendur spyrja: Verður mitt nám metið eins og lofað var í upphafi? Verður kennt hér á næsta ári, eða verð ég að fara annað og þá, hvert? Verður nám mitt metið sem stúdentspróf af Háskóla Islands? Verða settar reglur um lágmarkseinkunn í deildir Háskólans? Hvaða deildir? Verða sett inntökupróf? Munu nemendur gömlu stúdentsprófsskólanna ganga fyrir? Vegna þessa öryggisleysis gerist það hjá skólunum að jafnvel að hausti eftir að nám er hafið eru þeir að missa nemendur frá sér. Afleiðingin getur orðið mjög óhagkvæm stærð bekkja. Hér vegur þyngst gagnvart nemandanum að það er freistandi að fara inn í skóla sem getur sagt þér nákvæmlega til um hver staða þín verður að námi loknu. Það er mín skoðun að því lengur sem málin eru iátin reka á reiðanum verði ástandið verra. Skólarnir fá ákveðna ímynd, sem erfitt verður að breyta. Rammalöggjöf I maí 1974 tóku gildi tvenn lög sem fjalia um fræðslumál. 1. Lög um grunnskóla, sem fjalla um skólagöngu barna og unglinga. 2. Lög um skólakerfi þar sem kveðið er á að allir skóiar, sem reknir eru fyrir almannafé, myndi samfellt skólakerfi sem skiptist í skyldu- námsstig, framhaldsskólastig og háskólastig. Það er skref fram á við að litið sé á menntakerfið í einni heild. Menn eru síðan ekki eins bjartsýnir á að í fram- kvæmd verði sú samvinna, sem æskileg mætti teljast, milli þessara stiga. Þetta atriði þarf án efa nánari umfjöllun á næstu árum. Lög um framhaldsskóla hafa verið lengi í undirbúningi, og leitað hefur verið umsagnar fjölmargra aðila um frumvarp- ið, og verður eflaust tekið tillit til þeirra umsagna í endanlegri gerð þess. Þetta frumvarp er unnið af nefnd embættismanna, sem skilað hefur frábæru starfi. Þeir sem verulega hafa brugðist í þessu máli eru stjórnmála- mennirnir. Alþingi á að marka þá stefnu sem æskilegust er talin á hverjum tíma, það er síðan embættismannanna að framfyljoa þeirri stefnu. Stefna í menntamálum hjá stjórnmála- flokkum landsins er mjög óskýr. Talað er um frelsi og jafnrétti án þess að skilgreina nokkuð við hvað er átt. Sjálfstæðisflokkur- inn hefur sýnt mjög lítinn áhuga á menntamálum og verður það að teljast mikill skaði. Væri það verðugt verkefni að framhaldsskólinn yrði tekinn til itarlegrar umræðu meðal sjálfstæðismanna. Aukin völd mennta- málaráðuneytis Skólastarfi má raunverulega skipta í tvennt. Ytra starf, sem kalla mætti stjórnunarstörf, og innra starf sem er kennslan, námið, námsefni og námsmat. Það er mikilvægt að samræmi sé í ákvarðanatöku varðandi þessa þætti. Víða erlendis hefur á undanförnum árum staðið yfir ítarleg umræða um innra starf skólans. T.d. hefur í Svíþjóð verið gerð mikil bylting á þessu sviði. SIA (Skólens Indre Arbete) en þar á að tengja fristundir og skólanám, og koma á samfelldum skóladegi í grunn- skólanum. Um þetta hafa staðið miklar déilur þar í landi, en ákveðið hefur verið að SIA skólinn eigi að vera „fullmótað- ur“ um 1980 og þá víðast kominn á. Það frumvarp, sem fjallar um samræmdan framhaldsskóla og lagt var endurskoðað fyrir Alþingi síðastliðinn vetur, er fyrst og fremst rammalöggjöf. Slik löggjöf krefst setningar fjölmargra reglugerða, sem snerta innra starf skólans, og verður að ætla að þingheimur óski eftir því að þær veigamestu liggi fyrir áður en frumvarpið verður samþykkt sem lög. Með frumvarpi þessu fær menntamálaráðuneytið mun stærra hlutverk varðandi fram- haldsskólamenntunina en það hefur gegnt hingað til. Skipu- lagning skólastarfs hefur fyrst og fremst verið í höndum skólanna sjálfra, og þá hafa einstakir kennarar haft mikið að sejya um námsefnið. Með frumvarpinu er gert ráð fyrir að þessir skólar hverfi inn í sam- ræmdan framhaldsskóla (29. gr.) A þessu eru þó undan- tekningar. Ég tel það mjög varhugavert að ætla að mis- muna skólum sem reknir eru af almannafé að þessu leyti, jafn- vel þó þeir hafi áður verið einkaskólar. Með því er raun- verulega kippt fótum undan þessari nýju skipan. Um þetta atriði þurfa stjórnmála- mennirnir að gera upp hug sinn. Mér finnst eðlilegt að taka þetta fram áður en ég tek lauslega fyrir einstaka kafla frumvarps- FRUMVARP TIL LAGA TJM FRAMHALDSSKÓLAl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.