Morgunblaðið - 25.11.1978, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1978
Dómkirkjant Kl. 11: Messa, séra
Hjalti Guðmundsson. Kl. 2:
Messa. í stað predikunar munu
Gideonfélagarnir Guðmundur
Guðlaugsson og Jón Sætran
kynna starf félags síns. Aðrir
Gideonfélagar munu lesa bæn,
pistil og guðspjall. Séra Þórir
Stephensen.
ÁRB/EJARPRESTAKALL.
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðsþjónusta kl. 2 í safnaðar-
heimili Árbæjarsóknar. Aðal-
safnaðarfundur eftir messu.
Séra Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSPRESTAKALL. Messa kl. 2
að Norðurbrún 1. Jón F. Hjartar
prédikar. Séra Grímur Gríms-
son.
BREIÐIIOLTSPRESTAKALL.
Sunnudagur, messa kl. 2 í
Breiðholtsskóla. Barnasamkom-
ur: Laugardag kl. 10.30 í Öldu-
selsskóla og sunnudag kl. 11 í
Breiðholtsskóla. Almenn sam-
koma miðvikud. kl. 8.30 að
Seljabraut 54. Séra Lárus Hall-
dórsson.
HÚSTAÐAKIRKJA.
Barnasamkoma kl. 11. Guðs-
þjónusta kl. 2. Organleikari
Guðni Þ. Guðmundsson. Séra
Ólafur Skúlason.
DIGRANESPRESTAKALL.
Barnasamkoma í safnaðarheim-
ilinu við Bjarnhólastíg kl. 11.
Guðsþjónusta í Kópavogskirkju
kl. 11. Séra Þorbergur
Kristjánsson.
LANDAKOTSSPÍTALI. Kl. 10
messa. Séra Hjalti Guömunds-
son.
FELLA- OG IIÓLAPRESTA-
KALL. Laugardagur: Barna-
samkoma í Hólabrekkuskóla kl.
2 e.h. Sunnudagur: Barnasam-
koma í Fellaskóla kl. 11 árd.
Guðsþjónusta í safnaðarheimil-
inu að Keilufelli 1 kl. 2 e.h.
Almenn Samkoma að Seljabraut
54 miðvikudagskvöld kl. 8.30.
Séra Hreinn Hjartarson.
GRENSÁSKIRKJA.
Barnasamkoma kl. 11. Guðs-
þjónusta kl. 14. Organleikari
Jón G. Þórarinsson. Almenn
samkoma fimmtudagskvöld kl.
20.30. Séra Halldór S. Gröndal.
IIALLGRÍMSKIRKJA.
Guðsþjónusta kl. 11. Séra Einar
Sigurbjörnsson messar. Séra
Karl Sigurbjörnsson. Fjöl-
skyldumessa kl. 2. Séra Ragnar
Fjalar Lárusson. Lesmessa n.k.
þriðjudag kl. 10.30. Séra Ragnar
Fjalar Lárusson.
LANDSPÍTALINN. Messa kl.
10. Séra Ragnar Fjalar Lárus-
son.
IIÁTEIGSKIRKJA.
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Séra
Tómas Sveinsson. Messa kl. 2.
Séra Guðmundur Óli Ólafsson,
Skálholti messar ásamt prestum
safnaðarins. Skálholtskórinn
syngur, organleikari Glúmur
Gylfason. Lesmessa og fyrir-
bænir kl. 5. Séra Tómas Sveins-
son.
KÁRSNESPRESTAKALL.
Barnasamkoma í Kársnesskóla
kl. 11 árd. Guðsþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 2. Séra
Sigurður Pálsson vígslubiskup
predikar. Séra Árni Pálsson.
GUÐSPJALL DAGSINS.
Matt. 17.. Dýrð Krists.
LITUR DAGSINS.
Grænn. Litur vaxtar og
þroska
LANGIIOLTSPRESTAKALL.
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Séra Árelíus Níelsson. Guðs-
þjónusta kl. 2. í stól Þóroddur
Þóroddsson jarðfræðingur, við
orgelið Jón Stefánsson. Séra Sig.
Haukur Guðjónsson.
LAUGARNESPRESTAKALL.
Guðsþjónusta að Hátúni lOb kl.
10.15. Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Æskulýðs- og fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 14. Fermingarbörn
aðstoða. Stúlkur úr Kristilegum
skólasamtökum syngja. Þriðju-
dagur 28. nóv.: Bænastund kl. 18
og æskulýðsfundur kl. 20.30.
Sóknarprestur.
NESKIRKJA. Sunnudagur:
Barnasamkoma kl. 10.30. Guðs-
þjónusta kl. 11 árd. Athugið
breyttan messutíma. Séra Guð-
mundur Óskar Ólafsson. Mánu-
dagur: Æskulýðsstarfið, opið
hús frá kl. 19.30. Biblíulesflokk-
ur kl. 20.30. Prestarnir.
SELTJARNARNESSÓKN.
Barnasamkoma kl. 11 árd. í
félagsheimilinu. Séra Frank M.
Halldórsson.
FÍLADELFÍUKIRKJAN.
Sunnudagaskóli kl. 10.30 árd.
Almenn guðsþjónusta kl. 8 síðd.
Organleikari Árni Arinbjarnar-
son. Einar J. Gíslason.
DÓMKIRKJA KRISTS Kon-
ungs. Landakoti. Lágmessa kl.
8.30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd.
Lágmessa kl. 2 síðd. Alla virka
daga er lágmessa kl. 6 síðd.,
nema laugardaga, þá kl. 2 síðd.
FELLAIIELLIR. Kaþólsk
messa kl. 11 árd.
HJÁLPRÆÐISHERINN.
Helgunarsamkoma kl. 11 árd.
Bæn kl. 20 og hjálpræðissam-
koma kl. 20.30. Deildarstjóra-
hjónin major Lund og frú
stjórna og tala.
ENSK MESSA. í kapellu Há-
skólans kl. 12 á hádegi.
GRUND. elli- og hjúkrunar-
heimilið. Messa kl. 10 árd. Séra
Lárus Halldórsson.
FRÍKIRKJAN í Reykjavik.
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Messa kl. 2 síðd. Prestur sr.
Kristján Róbertsson.
GARÐASÓKN. Barnasamkoma
í skólasalnum kl. 11 árd. Séra
Bragi Friðriksson.
FRIKIRKJAN Hafnarfirði.
Barnaguðsþjónusta kl. 10.30 árd.
Guðsþjónusta kl. 2 síðd. Safn-
aðarprestur.
HAFNARFJARÐARKIRKJA.
Sunnudagaskóli kl. 11 árd.
Guðsþjónusta kl. 2 síðd. Séra
Sigurður H. Guðmundsson.
Helgi- og bænarstund kl. 5 síðd.
Séra Gunnþór Ingason.
VÍÐIST AÐ ASÓKN.
Barnaguðsþjónusta kl. 11 árd.
KÁLFATJARNARKIRKJA.
Guðsþjónusta kl. 2 síðd. Séra
Bragi Friðriksson.
NJARÐVÍKURPRESTAKALL.
Messa í Innri-Njarðvíkurkirkju
kl. 11 árd. Sunnudagaskóli í
Stapa kl. 11 árd. og í
Innri-Njarðvík kl. 8.30. Séra
Ólafur Oddur Jónsson.
KEFLAVÍKURPRESTAKALL.
Munið basar Kristniboðsfélags-
ins í Tjarnarlundi laugardag ki.
3 síðd. Sunnudagaskóli í kirkj-
unni kl. 11 árd. Messa kl. 2 síðd.
Aðalsafnaðarfundur að lokinni
messu. Sóknarprestur.
HVALSNESKIRKJA.
Barnaguðsþjónusta kl. 11 árd.
Sóknarprestur.
ÚTSKALAKIRKJA.
Barnaguðsþjónusta kl. 1.30 síðd.
Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA.
Barnaguðsþjónusta kl. 10.30 árd.
Almenn guðsþjónusta kl. 2 síðd.
Séra Kolbeinn Þorleifsson
prédikar. Sóknarprestur.
HJALLAKIRKJA. Messa kl. 2
síðd. Sóknarprestur.
IIVERAGERÐISKIRKJA.
Barnamessa kl. 11 árd. Sóknar-
prestur.
AKRANESKIRKJA.
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Messa kl. 2 síðd. Um kvöldið kl.
8.30 verður kvöldvaka Bindind-
isdagsins með fjölbreyttri dag-
skrá. Sóknarprestur.
Utvarps-
guðsþjónustan
ÚTVARPSGUÐSÞJÓNUSTAN verður að þessu sinni í
Neskirkju. Prestur er séra Guðmundur Óskar ólafsson. Þessir
sálmar verða sungnir.
í nýju sálma-
bókinni.
2fi
363
119
Eftir predikun.
348
243
í gömlu sálma-
bókinni.
26
33G
133
Eftir prédikun.
290
674
I
Svona á ad koma sér upp
íslenzkum þjóðbúningi
Á undanförnum árum hefur
samstarfsnefnd á vegum
Heimilisiðnaðarfélags íslands.
Kvenfélagasambands íslands
og Þjóðdansafélags Reykjavík-
ur unnið að því að koma á
framfæri leiðbeiningum um
gerð íslenzkra þjóðbúninga
kvenna. Er nú kominn út
annar hæklingurinn frá nefnd-
inni. Þar eru snið og allar
leiðbeiningar um gerð peysu-
fata. þannig að saumakonur.
sem vilja sauma peysuföt geta
þar fengið vinnulýsingu og
snið. Og konur. sem áhuga hafa
á að eignast peysuföt. valið
úpphluturinn er dýrari en
p’ysufötin, því með honum
þ ' svo mikið kvensilfur. Efni
f *• J nú orðið í röndóttar og
köflóttar dúksvuntur.
milli gerða o.fl. Aður er komin
út sams konar lýsing á
upphlutnum. Benda má á að
peysuföt eru ódýrari. þar sem
ekki er þörf á miklu kvensilfri.
ekki öðru en skúfhólki. svuntu-
hnapp og slifsisnælu. En síðan
má. ef vill. bæta við upphlutn-
um sjálfum með myllum. beltis-
doppum eða stokkabelti. scm er
seinni tíma viðbót.
Nefndin sem að ofan getur
hefur verið starfandi í nokkur
ár. Árið 1974 gaf hún út heftið
Islenzkir þjóðbúningar I, um
Við peysuföt og upphluti báru konur utanhafnar slegin sjöl. Viðhafnarsjöl voru helst alsvört kasmírsjöl
og frönsk sjöl með mynstri.
upphlutinn. Um leið gaf K.I. út
bæklinga um upphlut telpna og
19. aldarbúning. Á blaðamanna-
fundi sögðu nefndarkonur að
þær hefðu hug á að halda þessu
verki áfram. og taka þá fyrir
skautbúninginn, en einnig kæmi
til greina gamli faldbúningur-
inn. Eru sniðin og leiðbein-
ingarnar miðaðar við búninga
eins og þeir eru notaðir nú.
Fyrir nefndinni vakir, að því
er nefndarkonur sögðu, að til
séu aðgengilegar upplýsingar og
leiðarvísir um þjóðbúninga, sem
Samstarfsnefndin um íslenzka þjóðbúninginn með tvo fyrstu
leiðbeiningabæklingana. Frá vinstri. Sigríður Thorlacius, Gerður
Hjörleifsdóttir, Dóra Jónsdóttir og Elsa E. Guðjónsson. Ljósm.
Kristján.
haldi þjóðlegum sérkennum, en
verði ekki sambland af gerðum
margra ólíkra tímabila. Bent er
á í heftunum hvaða efni hæfi
best og myndir fylgja af því
kvensilfri, sem talið er eiga við
búninginn.
Svanhvít Friðriksdóttir
handavinnukennari hefur gert
snið og saumalýsingar á peysu-
fötunum og þeim búningshlut-
um sem þeim fylgja og sögðu
nefndarkonur að hún hefði þar
unnið frábært starf. Elsa E.
Guðjónsdóttir ritar um sögu
peysufatanna, Gerður Hjörleifs-
dóttir hefur gert leiðarvísi um
að orkera blúndur á peysuerm-
ar. Margar myndir eru í heftinu
til skýringar og hafa félagar úr
Þjóðdansafélagi Reykjavíkur
aðstoðað við gerð þeirra.
Menntamálaráðuneytið veitti
nokkurn styrk til útgáfunnar.
Heftin eru til sölu hjá íslenzk-
um heimilisiðnaði, á skrifstofu
Kvenfélagasambands íslands,
Þjóðdansafélaginu og Þjóð-
minjasafni íslands og kosta 750
kr.