Morgunblaðið - 25.11.1978, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1978
Flateyjar- Freyr
Ljóðafórnir eftir Guðberg Bergsson
MAL OG mpnnin;; hefur sent frá
sér nýstárleKa ljóðabók,
Flateyjar — Freyr — Ljóðfórnir
eftir Guðberj; Bergsson.
í bókinni eru 32 Ijóð sem beint
er til Freyslíkneskis Jóns
Gunnars Árnasonar í Flatey á
Breiðafirði
í frétt frá útgáfunni segir m.a.:
„Þetta er ísmeygilegur og forvitni-
legur skáldskapur og vinnur mjög
á við nánari kynni. Skáldið ljóðar
á guðinn hugleiðingum um hin
margvíslegustu efni, forna heims-
mynd og nýja, málfræði og hag-
fræði, list, mannlíf og þjóðfélag.
Ljóðin til Flateyjar-Freys hafa
ekki birst á prenti áður, en lestur
Guðbergs á hluta þeirra á sam-
komum Listaskáldanna vondu
sællar minningar vakti mikla
eftirtekt og hrifningu. Bókin
Flateyjar-Freyr er 44 blaðsíður,
prentuð í Prentsmiðjunni Odda
hf.“
FLATEYJAR - FREYR
LJÓÐFÓRNIR
Andri verður
fullorðinn
Pétur Gunnarssoni
ÉG UM MIG
FRÁ MÉR TIL MÍN.
Skáldsaga.
Iðunn 1978.
Ég um mig frá mér til mín er
framhald skáldsögunnar Punktur
punktur komma strik (1976). í
nýju skáldsögunni kynnumst við
drengnum Andra enn betur og
einnig fjölskyldu hans og fjöl-
mörgum öðrum.
Það er í rauninni gelgjuskeið
Andra sem höfundurinn fæst við
að lýsa. Pétur Gunnarsson virðist
vera að rita þroskasögu ungs
manns og eins og gefur að skilja er
það óhugsandi án þess að draga
upp mynd þess umhverfis sem
hann hrærist í. Pétur Gunnarsson
segir frá Reykjavík æskuára sinna
og gerir það á svo eðlilegan hátt að
vekur trúnað lesandans. Flest er
séð í skoplegu ljósi og það eru
einmitt hinar kátlegu smámyndir
úr bæjarlifinu sem gæða söguna
lífi.
Ég um mig frá mér til mín er
enn hnitmiðaðri saga en Punktur
Bðkmenntir
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
punktur komma strik. Vel getur
verið að einhverjum þyki hún
einhæf. Þá er þess að gæta að
bókin er hluti stærri sögu sem enn
er ekki fullgerð. Nýja bókin er eins
konar millispil. í heild er ekki
unnt að dæma verkið fyrr en það
er allt komið út. Þessi skáldsaga
vekur kannski ekki jafn mikla
eftirvæntingu eins og Punkturinn
gerði, en hér er greinilega unnt á
markvissan listrænan hátt sem út
af fyrir sig ber að fagna.
Brot úr daglegu lífi Andra getur
litið út á þessa leið:
„Þegar hann kom heim úr
.skólanum beið enginn eftir honum
nema fiskurinn í pottinum. Hann
leit ekki við honum en hámaði í sig
brauð og Morgunblaðið. Skólatösk-
una opnaði hann ekki frekar en
það væri í henni lík. Þegar hann
var búinn að lesa blaðið, náði
leiðinn tökum á honum. Stal
Soni Ventorum heldur tónleika í Austurbæjarbíói kl. 14i30 í dag,
laugardag.
Soni ventorum í
Austurbæjarbíói
HINN heimsfrægi blásarakvartett
Soni Ventorum heldur tónleika
næstkomandi laugardag í Austur-
bæjarbíói kl. 14.30 á vegum
Tónlistarfélags Reykjavíkur.
Kvartettinn skipa Felix
Skowronek, flautuleikari, William
McColl, kalrinettleikari, Laila
Storch, óbó og enskt horn, og
Arthur Grossman fagottleikari. Á
efnisskrá tónleikanna eru verk
eftir: Gioacchino Rossini, Georg P.
Telemann, Pierre Gagaye, Igor
Stravinsky og síðast en ekki síst
Seott Joplin.
Heimsókn Soni Ventorum
hingað til lands er liður í tónleika-
ferð þeirra um Evrópu og er það
fyrir tilstilli Menningarstofnunar
Bandaríkjanna að þessi ágætu
listamenn koma fram á vegum
Tónlistarfélagsins á þessu ferða-
lagi.
(Frá Tónlistarfél.)
Norrænir heildsalar:
Frjáls versl-
un milli landa
A FTINDI hjá samtökum nor-
rænna heildsala sem haldinn var í
Stokkhólmi nýlega. þar sem
mættir voru fulltrúar frá Dan-
mörku. Finnlandi. íslandi.
Noregi og Svíþjóð. var eftirfar-
andi ályktun samþykkti
Það er Norðurlöndunum í hag að
vérzlun í heiminum sé frjáls.
Frjáls verzlun milli þjóða gefur
aukna möguleika á sérhæfingu,
hagkvæmni stórreksturs nýtist
betur og hún eykur framleiðni
atvinnuveganna. Samkeppnin
heldur vöruverði niðri og hvetur
til stöðugt bættrar framleiðslu.
Frjálsri verzlun er nú ógnað á
marga vegu. Opinberar og óopin-
berar verndaraðgerðir viðgangast
í æ ríkara mæli bæði milli landa
og innanlands. Verði þessi þróun
ekki stöðvuð, er sú frjálsa verzlun.
sem nú er tryggð með samningum
GATT og fleiri alþjóðasamning-
um, í mikilli hættu.
Hrun frjálsrar verzlunar og
alþjóðlegs kerfis á þessu sviði
mundi takmarka mjög útflutning
Norðurlandanna og skaða utan-
ríkisverzlun þessara landa, sem
eru mjög háð utanríkisverzlun.
Félagar í norrænu stórkaup-
mannasamtökunum sjá um stóran
hluta innflutningsins til þessara
landa. Með þessa ábyrgð í huga
vilja samtök stórkaupmanna á
Norðurlöndum skora á ríkisstjórn-
ir og þing viðkomandi landa að
snúast harðlega gegn þessum
opinberu og óopinberu verndunar-
aðgerðum og styðja frjálsa verzlun
milli landa. Slíkar aðgerðir munu
styrkja efnahagslega þróun
Norðurlandanna íbúunum til
hagsbóta.
Móðurminning
MÓÐIR MÍN IIÚSFREYJAN. 255
hls. Gísli Kristjánsson bjó til
prentunar. Skuggsjá. Rvík. 1978.
»Mamma lærði að reikna og
skrifa tilsagnarlaust. Hún náði í
áritun bréfa og hausa af reikning-
um með góðri skrift og varð sér úti
um lélegan pappír til að skrifa á.
Blekið var ýmist sót eða kálfsblóð.
Og þegar hún gekk að fé æfði hún
skrift með smalapriki sínu á snjó
og sand. Hún náði að skrifa góða
rithönd en mest undráði mig hvað
hún skrifaði rétt og lærði þó aldrei
réttritun.«
Þannig lýsir Ingimar Jóhannes-
son sjálfsnámi móður sinnar.
Ingimar skrifar fyrsta þátt þessa
rits og einn hinna lengstu. Ingi-
mar var lengi í tölu okkar
farsælustu skólamanna. Nú horfir
hann frá ævikvöldi til árroðans á
morgni lífs síns. Faðir Ingimars
var sjómaður og drukknaði af bát
er bretar hvolfdu á Dýrafirði
vegna þess að Hannes Hafstein
sýslumaður var á bátnum og
ætlaði að taka þá fyrir landhelgis-
brot eða, eins og Ingimar kemst að
orði hafði sýslumaður »skikkað til
þess að róa með sig út að skipinu
til þess að koma lögum yfir
togarann eftir margra daga rán að
botnvörpuveiðum á miðjum firðin-
um.« Eftir lát föðurins mæddi
meir á móðurinni. Saga hennar er
líka hetjusaga þó með öðrum hætti
Bðkmenntlr
eftir ERLEND
JÓNSSON
Og mörg er hetjusagan.
Fimmtán karlar og konur skrifa
hér um mæður sínar. Þær eru
flestar fæddar á síðustu áratugum
nítjándu aldar og eru því af þeirri
kynslóð sem Jónas Jónsson kallaði
aldamótamennina. Hetjur hvers-
dagslífsins má kalla flestar þeirra.
»Það er meira vandaverk að
skrifa um skyldmenni sín eða nána
vini, svo að vel sé gert, en ætla má
í upphafi,« segir einn höfundanna,
Hákon Bjarnason. Hákon minnist
á »ljómann frá æskuárunum«.
Hann segir líka að »ást eða vinátta
kunni að lita söguna.« Hvort
tveggja er rétt. En með þá
fyrirvara í huga verður ekki annað
sagt en höfundar þessara þátta
lýsi mæðrum sínum skrumlaust.
Og ekki efa ég að þeir segi rétt frá
eins og verkefnið horfir við þeim.
Ein persóna getur haft margar
hliðar. Heimili kann að koma
gestum og gangandi, sem það
gista, misjafnlega fyrir sjónir.
Börn og unglingar eru sjaldan
dómbærir um kosti og galla
foreldra sinna. En höfundar þess-
arar bókar eru engin börn eða
unglingar, flestir komnir á afa-
eða ömmualdurinn og hafa því
ærna eigin lífsreynslu við að miða
þegar þeir skyggna úr fjarlægð
lífsbaráttu horfinnar kynslóðar.
Ég hygg að bók þessi verði afar
kærkomin þeim sem komnir eru á
miðjan aldur og þar yfir. Hér
kemur við sögu fólk af öllu
landinu. Og hér er horft aftur til
tíma sem voru — meðan þeir voru
að líða — afskaplega nýir og
spennandi miðað við enn eldri tíð.
Þeir sem gengu í það heilaga fyrir
svo sem 1870 sóttu maka sinn
sjaldnast langt út fyrir sóknina.
En hér er komið fram yfir
aldamót. Persónur þessara þátta
eru að gifta sig frá aldamótum og
að fyrra stríði, sumar síðar. Og þá
er komin slík hreyfing á þjóðlífið
að ekki þykir tiltökumál þó
kaupmaður á Húsavík sæki brúði
sína, bóndadóttur, vestur á Mýrar.
Eða reykvískur garðyrkjunemi
haldi í leit að konuefni alla leið út
fyrir landsteinana. Hansína Bene-
diktsdóttir frá Grenjaðarstað gift-
ist Jónasi Kristjánssyni frá
Snæringsstöðum í Svínadal. Jónas
Óvart bók
Einar Guðmundssoni
ÁN TITILS. Skáldverk.
Iliifundur gaf út 1978.
Þessi bók er 262 bls. Hún varð til
óvart eins og segir á bls. 7:
Einu sinni voru ótal
bladsíður ...
óvart
Og síðar um orðin:
Vo^na þess. aÖ þau
voru hugsuA ...
óvart
til þess aó bráðna
og koma á ...
óvart
Um söguna Dropi í hafið segir
Einar Guðmundsson að hún sé
„ekki beint raunveruleikasaga,
heldur eins konar táknmynd af
raunveruleikanum" og bætir við að
hún sé „andsvar við einhverju
ríkjandi ástandi, sprottin af
meðvitaðri könnun þess umhverfis
sem við lifum í“. Sagan fjallar um
engil í kvenlíki sem fyrir óheppni
verður jarðneskur og tekur loks
upp siði jarðarbúa. Sagan er
athyglisverð, hugmyndin snjöll.
Sama má einnig segja um ýmsar
aðrar sögur í Án titils. Ég nefni
sem dæmi Þvöguna og Science f ...
sem taka mið af Ray Bradbury.
Það er einkennandi fyrir þessa
löngu bók Einárs Guðmundssonar
að í hennf eru mörg góð söguefni
eða brot, viðleitni til skáldskapar
sem einhvern veginn verður minna
úr en skyldi. Undantekningar eru
þó fyrrnefndar sögur. Ég er ekki
viss um að Einar vilji sjálfur að
sögur sínar séu öðruvísi, markviss
vinnubrögð virðast ekki eiga við
hann. Hann stefnir ljóst eða leynt
að óskapnaði, ruglingi sem er víst
mátulegur á þessa þjóð sem Einar
er að skrifa fyrir.
Meginefni bókarinnar eru dag-
bókarblöð og bréf. Einar skrifar:
„Mín flata hugsun er hin hvers-
dagslega staðreynd — við henni er
ekkert að gera. Ég reyni aðeins að
vera sannur, það eitt virðist skipta
máli, og það er hagkvæmast."
Hann segir einnig: „Og þessi bók,
öll eins og hún leggur sig er þá
persónulegt heimildarrit; en
maðurinn er ekki bara hann
sjálfur, einstaklingurinn, heldur
einnig umhverfið, þ.e.a.s. sé hann
mótaður af áhrifum annarra eins
og allir eru. Dagbókin er sumsé
skrifuð með því hugarfari, að
reyna af mætti að varpa Ijósi á
„raunverulega stærð“ manns ...“
Mörgum mun þykja dagbók
Einars Guðmundssonar óvenju
hreinskilin og ekki er víst að allir
vinir hans kunni honum þökk fyrir
það sem skrifað er um þá. Margir
þeirra eru kunnir rithöfundar og
myndlistarmenn (einkum í
kringum Súm við Vatnsstíg) og er
ekki ófróðlegt að fá af þeim fréttir.
Það er þó huggun fyrir þá að Einar
er ekki barnanna bestur meðal
vina sinna eins og hann minnir á í
ljóðinu Hugsað til stj ...
Ég gríp hér niður í frasögn af
því þegar Þórður Ben kemur með