Morgunblaðið - 25.11.1978, Page 26

Morgunblaðið - 25.11.1978, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1978 það gefur alveg augaleið, að nú verður að framkvæma ákveðna kjaraskerðingu. Það er alveg sama hvaða sjón- hverfingar menn eru að reyna að hafa í frammi, kjaraskerðing verður aldrei bætt með öðru en kjörum. — Annað er hreinn orðaleikur, kjaraskerðing er kjaraskerðing, og kaupránsflokk- arnir eru orðnir fjórir. En það er svo allt annað mál, hvernig menn ætla að ráðast gegn verðbólgunni, þá er það augljóst, að launþega- samtökin eru ekki tilbúin til að leika þar neinn einleik. Vinnuveitendahliðin, hver sem hún er, verður að sjálfsögðu að koma með sín útspil, raunveruleg útspil, þau geta verið í margs konar formi. Menn þurfa sem fyrst að rísa upp úr þessari lægð á nýjan leik, standa fyrir fjölgun á atvinnu- tækifærum, á sama tíma er reynt verður að ná verðbólgunni niður. Ekki má koma til atvinnuleysis á sma tima og verið er að ráða niðurlögum verðbólgunnar. Þetta eru kröfur sem gera verður til vinnuveitenda, og þá verður einnig að hafa í frammi strangt aðhald í fjárfestingarmálum. Þá munu lífskjörin batna stór- lega á nýjan leik, eftir að launþeg- ar hafa hugsanlega tekið á sig kjaraskerðingu við tímabundnar aðstæður,“ sagði Jónas að lokum. INNLENT „Kaupránsflokkamir eru nú orðnir fjórir” — segir Jónas Bjarnason, formadur B.H.M. Sjallinn býr sig und- ir vaxandi samkeppni Svanur Ágústsson í Leikhúskjallaranum hefur verið ráðinn forstjóri Sjálfstæðishússins á Akureyri. Mun hann væntanlega taka við hinu nýja starfi í febrúarmánuði næstkomandi. Fyrrverandi forstjóri Sjálfstæðishússins, Sigurður Sigurðsson, hætti með stuttum fyrirvara í sumar er leið, og bar Stefán Gunnlaugsson þá ráðinn forstjóri hússins til bráðabirgða. Um leið og sfðan var auglýst eftir nýjum forstjóra var öllu starfsfólki hússins sagt upp, þannig að hinn nýi forstjóri hefði frjálsar hendur um mannaráðningar er hann tæki við. Hefur Sjálfstæðishúsið því að undanförnu verið að auglýsa eftir starfsfólki, meðal annars mat- reiðslumanni, húsverði, yfirfram- reiðslumanni, framreiðslufólki, að- stoðarfólki í eldhús og „vínbuffett", dyravörðum og aðstoðarfólki í anddyri, svo eitthvað sé nefnt. Sem fyrr segir var öllu starfsfólkinu sagt upp til að gefa hinum nýja forstjóra frjálsar hendur við mannaráðning- ar, en allt eins er búist við að þorri starfsfólksins verði endurráðinn. Stefán Gunnlaugsson sagði í samtali við Morgunblaðið, að ekki stæðu fyrir dyrum neinar breyting- ar á rekstri „Sjallans", nema hvað Svanur Ágústsson hefði vafalaust sínar hugmyndir um reksturinn. Hins vegar yrði fyrirkomulag rekstrarins í stórum dráttur sá sami, og eigendur hússins verða þeir sömu. Það er Akur h.f. sem á Sjálfstæðishúsið, og er Sjálfstæðis- flokkurinn þar stærstur hluthafa. Stjórnarformaður Akurs er Gunnar Ragnars. Að lokum sagði Stefán, að þegar rætt væri um hugsanlegar bréyting- ar á rekstrinum, þá yrði vafalaust að hafa það í huga, að senn mun opna nýr skemmtistaður á Akureyri, í eigu tveggja fyrrverandi starfs- manna Sjálfstæðishússins, þeirra Baldurs Ellertssonar og Rúnars Gunnarssonar. Þar með fengi Sjall- inn aukna samkeppni, sem ætti að virka hvetjandi. Sagðist Stefán telja, að tilkoma þessa nýja staðar yrði að mörgu leyti til góðs fyrir skemmtanalífið á Akureyri, þar sem vissir erfiðleikar fylgdu því jafnan að þurfa að hafa nánast alla aldurshópa á sama stað, eins og gert hefði verið í Sjálfstæðishúsinu. Þar til hinn nýi skemmtistaður í Hafnarstræti tekur til starfa, eru tveir vínveitingastaðir á Akureyri, Sjálfstæðishúsið og Hótel K.E.A. Síðasta sýningarhelgi Troels Jóhann G. Jóhannsson með eitt verka sinna. Ljósm. Kristján. Jóhann G. opnar málverkasýningu í nýjum sýningarsal Jóhann G. Jóhannsson, listmál- ari og hljómlistarmaður, opnar í dag málverkasýningu í nýjum sýningarsal að Vagnhöfða 11. Salur þessi er rekinn í sambandi við veitingastofuna Ártún sem er í sama húsi. Eigendur salarins og veitingastofunnar eru Sigursæll Magnússon og Stefán Sigursæls- son. Salurinn er 500 m2 að stærð og mun hann ætlaður til sýninga fyrir listamenn í vetur en í framtíðinni er hann ætlaður sem samkomusal- Á sýningu Jóhanns, sem jafn- framt eru fyrsta sýningin í þessum sal, eru 100 málverk þar af eru 70 máluð á þessu ári. Flestar mynd- anna eru málaöar með vatnslitum. Sýningin verður opin til 3. desem- ber alla daga kl. 2—10. Jóhann G. Jóhannsson hélt sína fyrstu sýningu árið 1971 í Casa Nova og hefur hann síðan haldið 10 einkasýningar en aldrei tekið þátt í samsýningum. Jóhann er að mestu sjálfmenntaður utan þess að hann lærði auglýsingateikningar í Sam- vinnuskólanum á Bifröst. Allar myndirnar á sýningunni eru til sölu, þar af eru myndir sem Jóhann hefur um árabil haldið og ekki viljað selja þrátt fyrir tilboð og óskir ýmissa aðila. „ÞETTA þýðir það í reynd. að kaupránsflokkarnir svonefndu, eru nú orðnir fjórir. það liggur alveg Ijóst fyrir." sagði Jónas Bjarnason. formaður B.H.M.. er Morgunblaðið spurði hann álits á þeim efnahagsaðgerðum sem nú eru í burðarliðnum. „Þetta hefur nú staðið lengst í mönnum," sagði Jónas ennfremur. „Okkar fvrsta krafa nú er að sjálfsögðu sú, að „þakið“ verði numið úr gildi. Það er ekkert nema óréttlæti og hreinræktaður yfir- gangur, sem felst í því. Eftir að það hefur verið numið úr gildi, þá erum við til viðtals um ýmsa nauðsynlega hluti, sem við koma efnahagsmálunum almennt. En Dr. Jónas Bjarnason. SÍÐASTA sýningarhelgi ljósmyndasýningar Troels Bendtsen í kjallara Norræna hússins er nú um þessa helgi en sýningunni lýkur nk. þriðjudag. 28. nóvember. Þarna sýnir Troels myndir frá upptöku Brekkukotsannáls fyrir fácinum árum og einnig nokkrar fjörumyndir, sem hann segist hafa verið að sérhæfa sig hin si'ðari ár. Myndirnar eru allar til sölu og kosta óupplímdar á bilinu frá 7—27 þúsund krónur. Um helgina verður kjallarinn opinn frá kl. 14—22 en tvo síðustu dagana eftir helgi frákl. 16-22. >MYRKRAMESSA< veríur haldin a wqum MENNTASKÓLANS í KÓPAV06I laugard. 25.nóv. kl. I400. i Felagsheimili Kópavogs. AIH efni er unnid oq flutt af nemendum skófans. Heidursgestur hátídarinnar er Ólafur Haukur Símonarson Adgangseyrir kr. 300.- Kaffisafa a vegum 3.b. verdur í efrisal. «*% Skammdegishá- tíð Menntaskól- ans í Kópavogi Á VEGUM Menntaskólans í Kópavogi veröur haldin svo- kölluð JAyrkramessa“, skammdegishátíð, i Félags- heimili Kópavogs, laugardag- inn 25. nóvember kl. U.OO. Allt efnið á hátíðinni er unnið af nemendum skólans en heiðursgestur hátíðarinnar er Ólafur Haukur Símonarson. Ljósmyndasýning á Akranesi: Akranes gamla tímans AKRANES GAMLA TÍMANS nefnist ljósmyndasýning scm opn- uð verður í Bókhlöðunni á Akra- nesi á morgun, sunnudag. Þar vcrða sýndar Ijósmyndir, upp- drættir, teikningar og skyggni- myndir. Fjöldi mynda á sýning- unni eru um 300. flestar frá ti'mabilinu 1890 til 1940. myndir, mannamyndir, loftljós- myndir, teikningar og fleira. Sýn- ingin verður opin föstudaga, laug- ardaga og sunnudaga frá klukkan 14 til .22, en aðra daga frá klukkan 18 til 22. Skipulag sýningarinnar hefur annast Þorsteinn Jónsson. Flestar myndanna eru eftir þrjá valinkunna ljósmyndara, þá Magn- ús Olafsson, Sæmund G. Guðmundsson og Árna Böðvarsson. Helstu efnisþættir sýningarinnar eru: byggðaþróun á Akranesi, afstöðu- og húsamyndír, þjóðlífs- Hér sést ein þeirra mynda er verða á sýnungunni á Akra- nesi. og sýnir hún menn gera að fiski um aldamótin si'ðustu. Myndina tók Sæmundur G. Guðmundsson. Neytendasam- tökin stofna deild á Akranesi Stofnfundur deildar Neytenda- samtakanna á Akranesi og í' nágrenni verður haldinn í sam- komuhúsinu Rein á Akranesi í dag, 25. nóvember kl. 13.30. Reynir Árnason, formaður Neytendasamtakanna, og Jóhann- es Gunnarsson, formaður Borgar- fjarðardeildar Neytendasamtak- anna, verða á fundinum. í tilkynningu frá Neytendasam- tökunum segir, að óskir um stofnun deilda hafa borist víða að utan af landsbyggðinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.